Dagblaðið - 09.12.1980, Síða 11
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1980.
11
írar horfa á
Land og syni
—á Vetrarkvikmyndahátíðinni íDublin
„írarnir höfðu frétt af myndinni íslenzku þjóöarinnar hafi séð mynd-
,og fengu eintak af henni fyrir milli-
göngu menntamálaráðuneytisins.
Þetta er fyrsta sýning hennar á Bret-
iandseyjum,” sagði leikstjórinn
Ágúst Guðmundsson hjá ísfilm í
stuttu spjalli við Dagblaðið í gær.
Á mikilli kvikmyndahátíð, Winter
Film Festival, í Dublin á írlandi er
meðal annars að finna kvikmyndina
Land og syni á dagskránni, ásamt
um fjörutíu kvikmyndum frá
tuttugu og fimm löndum. Land og
synir er á dagskránni fimmtudaginn
11. nóvember. Hátíðin hófst 1.
desember og henni lýkur um næstu
helgi.
í blaðaúrklippu úr The Irish
Times sem DB barst segir að Land
og synir sé fyrsta íslenzka kvik-
myndin sem rekur á fjörur íra.
Blaðið segir að um helmingur
írar fengu að sjá þessi föngulegu
fljóð i kvikmyndinni Land og synir.
ina (!), sem mun vera allhressilega
orðum aukið.
Ágúst Guðmundsson sagði að
samningar hafi að mestu tekizt um
almennar sýningar á Landi og
sonum í Danmörku og Svíþjóð
fljótlega. Þá ætti fyrir myndinni að
liggja að fara á norræna kvik-
myndahátíð i Finnlandi sem haldin
er annað hvert ár. Vonast ísfilm-
menn til að síðar verði hún sýnd
Finnum á almennum sýningum.
Þess má að lokum geta að fregnir
frá írlandi herma sömuleiðis að von
sé á Óðali feðranna til sýninga þar.
Eitthvað vafðist fyrir mönnum í
þvísa landi að koma nafni Hrafns
Gunnlaugssonar óbrengluðu á
prent. f blaði einu hét hann
Hrafann Gunnlangsson, sem í sjálfu
sér eru ekki óvitlausar nafngiftir til
að spá í ef einhver lesandi kynni að
eiga óskírt afkvæmi. -ARH.
Iðnrekendur senda þingmönnum línu:
Viljum fá aðlögun-
argjaldið f ramlengt
—en viðskiptaráðuneytið situr fast við sinn keip og segir
þaðafogfrá
Iðnrekendur hafa sent þingmönnum
bréf og farið þess á leit að þeir beiti
sér fyrir að svonefnt aðlögunargjald
iðnaðarins verði framlengt en lög um
aðlögunargjald falla úr gildi um ára-
mót. Segja forsvarsmenn iðnrekenda
að við það versni samkeppnisaðstaða
iðnaðarins um 3% eða um 14 milljarða
króna árið 1981.
Aðlögunargjaldið var lagt á 1. júlí
1979 til að hjálpa iðnaðinum í sam-
keppni við erlendan innflutning en
samkeppnisaðstaðan versnaði í fram-
haldi af inngöngu íslands í
Fríverzlunarbandalagið, EFTA.
Iðnrekendur telja að stjórnvöld hafi
ekki notað tímann sem vannst með
setningu laga um aðlögunargjald til
að búa þessa starfsgrein undir að
mæta samkeppninni þegar' gjaldið
yrði fellt niður. Því krefjast þeir þess
að aðlögunargjald verði tekið áfram
og ráðstafanir jafnframt gerðar af
hálfu stjórnvalda.
Viðskiptaráðuneytið sendi frá sér
plagg í gær vegna þessa máls og segir
þar að ófært sé að framlengja
aðlögunargjaldið þar sem Fríverzl-
unar- og Efnahagsbandalögin setji sig
mjög á móti því. Enda hafi því marg-
oft verið lýst yfir af hálfu islenzkra
stjórnvalda að það yrði ekki fram-
lengt. Vitna viðskiptaráðuneytismenn
í bréf frá Henrik Sv. Björnssyni
sendiherra hjá Efnahagsbandalaginu,
en fulltrúar íslands þar og hjá EFTA
hafa kynnt sér afstöðu þessara sam-
taka til málsins:
„Telja má fullvíst að bandalagið
sætti sig ekki við framlengingu
aðlögunargjaldsins og geti jafnvel
gripið til mótaðgerða sem skaði mikil-
væga viðskiptahagsmuni íslands.”
-ARH.
Tœplega er hœgl að segja að þessi vinalegi köttur sé jólakötturinn. En umhverfið er
jólalegt og nóg glennir hann gaphúsið. En í velferðarþjóðfélaginu fer vist enginn I jóla-
köttinn. DB-mynd Einar Ölason.
MASSIF
FURUHÚSGÖGN
Vönduð íslenzk
framleiðsla sem er feti
framar —
IMær handverki verður
vart komizt.
Eskifjöröur:
SÍLD FÆRD A
MILLITUNNA
— úr plasttunnum í trétunnur
Á Eskifirði er verið að færa tals-
vert magn af saltaðri síld á milli
tunna, úr plasttunnum í trétunnur.
Þegar síldarsöltun var i algleym-
ingi á Eskifirði i haust varð tré-
tunnuskortur, eins og menn muna,
og var þá gripið til þess ráðs að
salta í plasttunnur í staðinn. Nú
þykir slæmt að flytja síld utan í
plasttunnunum og því voru fengnar
fjögur þúsund trétunnur með
Skeiðsfossi fyrir söltunarstöðina
Auðbjörgu.
Eldey kom til Eskfjarðar i gær-
morgun til að taka mikið magn af
saltfiski hjá Hraðfrystihúsi Eski-
fjarðar. Sá fiskur er ætlaður á"
markað í Portúgal. -ÓV/Regína.
Þessi glæsilegu húsgögn eru úr massifri
furu og fást í Ijósum viðarlit og brún-
bæsuð.
Staðgreiðsluafsláttur og góð greiðslukjör.
jfenan
HUSGAGNAVERZLUN
Lítið inn,
það borgar sig.
FURUHÚSIÐ hif
Grettisgötu 46 — Sími 18580.
*(!iritfu miitiiitti ifBBti fMttiértii wmm »*\« e ■« * tc«r>t8 *•«!« MtmTss if« itfitiri iKfinisini nirtiK a* b i h bíii ittirr'