Dagblaðið - 09.12.1980, Page 15
141
Úrslitaleikur
íkörfunni
Í kvöld fer fram sá leikur sem getur vafalitiö haft
úrslitaáhrif i úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Valur
og KR mœtast þá í Höllinni kl. 20. Valsmenn með 4
töp á bakinu hafa svo gott sem afskrifaö sina mögu-
leika á titlinum en KR-ingar hafa ekki tapað nema
tveimur leikjum og eru eins og stendur eina liðið,
sem ógnað getur veldi Njarðvíkinga. KR þarf nauð-
synlega að sigra i kvöld til að geta veriö með í barátt-
unni og sigur Vals myndi gera vonir KR-inga að nær
engu. Það má því búast við hörkuslag eins og
reyndar alltaf er þessi tvö félög mætast.
Dalglish kominn
meðfótígifs
— missir af leiknum við Ipswich
Kenny Daiglish er kominn með fótinn i gifs eftir
meiðsli sem hann hlaut gegn Tottenham á Anfield sl.
laugardag. Hann verður því ekki með i hinum
mikilvæga leik gegn Ipswich nk. laugardag þar sem
I.iverpool verður að sigra lil að eiga möguleika í
baráttunni við Angliu-liðið á toppnum. Dalglish
hefur leikið hvern og einn einasta 1. deildarleik fyrir
Liverpool frá því hann var keyptur, eða 147 talsins.
Fashanou sagði nei
við nýjum samningi
Justin Fashanou sagði neí við nýjum samningi
sem Norwich bauö honum i gærdag. Fashanou, sem
aðeins er 19 ára gamall og talinn efnilegasti miðherji
Englands í dag, hefur gert 15 mörk á keppnistíma-
bilinu og mörg félög hafa litið hann hýru auga.
Lceds hefur haft augastað á honum um tíma og
bauð fyrst 500.000 pund í hann. Því var hafnað og
aftur fékk Lceds nei þótt féiagið hækkaði boð sitt í
800.000 pund. Ensku blöðin hafa verið að tala um 2
milljónir punda fyrir hann en Fashanou sagði i BBC
i gær: „Ég er ekki þeirrar upphæðar virði. Ein
milljón punda væri e.t.v. nær lagi.” Þá kom það
fram að Fashanou er þegar farinn að líta megin-
landið hýru auga og vill reyna fyrir sér þar.
Meðbrotinnmark-
mann til Póllands
ipswich Town hélt i gærkvöld áleiðis til Póllands,
þar sem liðiö mætir Widzem Lodi i síöari lcik
liðanna i UEFA-keppninni. Aðeins einn mark-
vörður, Paul Cooper, var með I förinni, og hann er
nefbrotinn. Laurie Sivell gal ekki tekið stöðu hans
þar sem hann er enn verr mciddur en Cooper. Staða
Ipswich er þó varla í hættu þvi Lodz iá 5—0 á
Portman Road i fyrri leiknum.
Jones skorinn og
Smith á sölulista
Tottenham hefur sett Gordon Smith, sem liðið
keypti frá Aston Villa fyrir 150.000 pund fyrir u.þ.b.
ári á sölulista. Smith hefur ekki náð að komast í
aðallið Spurs og vill nú fá að spreyta sig annars
staðar. Þá hefur Chris Jones verið skorinn upp
vegna meiðsla i ökkla, sem hann hefur átt viö að
striða um hriö.
Metvinningur
í 16. leikviku kom fram einn seðill með 11 réttum
og var vinningur fyrir hann kr. 8.797.000. Eigandinn
er Reykvikingur, sem fékk þcnnan vinning fyrir 8
raða seðil. Fyrir 10 rétta, sem reyndust vera í 31.
röð, koma kr. 121.600.-
Vetur konungur er að halda innreið sina á Bret-
landscyjum, og kemurhann fyrst illa við norðlægari
héruðin, svo scm Skotland og nyrztu héruð
Englands, en þar átli einmitt leikur Newcastle og
Blackburn að fara fram. Vegna fannkomu varö að
fresta leiknum og segir það nokkuð um „getspeki”
þess sem velur leikina á getraunaseðliitum, að hilta
á eina leik 2. deildar, sem féll niður á laugardag.
:r.*trr.
lón Jörundsson rekinn af velli í sögulegum leik ÍR og ÍS í gærkvöld:
ÍR-ingar þoldu ekki mót-
lætið og ÍS fór á kostum
—Óvæntustu úrslit vetrarins í körfunni er Stúdentar möluðu ÍR-inga 103-71
Óvæntustu úrslitin í úrvalsdeildinni
í vetur urðu tvimælalaust i gærkvöld í
íþróttahúsi Hagaskólas er 18 áhorf-
endur sáu ÍS gersigra ÍR með 103
stigum gegn 71 eftir að hafa leitt 54—
27 í hálfleik. Á meðan ÍR-ingar börðust
við skapið f sjálfum sér og tuðuðu sí-
fellt i annars anzi mistækum dómurum
notuðu Stúdentar tækifærið og gengu
inn og út um vörn þeirra. Strax í
upphafi varð Ijós hvert stefndi og ekki.
bættu úr skák vægast sagt kátbroslegar
innáskiptingar IR-inga f upphafi
leiksins. Þeir bræður Jón og Kristinn,
Kolbeinn, Andy Fleming og Sigmar
hófu leikinn og eftir 5 mín. var staðan
10—6 ÍS í vil. Þá var öllu byrjunar-
liðinu eins og það lagöi sig skipt út af
og varamennirnir komu inn á í fullri
baráttu. Hún dugði hins vegar skammt
og er þeim var skipt út af eftir 2 mín.
veru á vellinum var staðan orðin 18—6.
Það skipti engu máli þótt byrjunar-
liðið kæmi inn á aftur. Leikmenn ÍR
höfðu allt á hornum sér út leiktímann
og uppskeran varð ótal tæknivíti og
Jóni Jörundssyni var siðan vísað út af í
kaupbæti fyrir eitthvað er hann lét út
úr sér. Eftir leikinn lá hins vegar ekki á
lausu hvað það var og læðist að manni
sá grunur að Þráinn Skúlason dómari
hafi e.t.v. verið aðeins offljótur á sér.
Það þarf ekkert að vera að rekja
Borg enn kjör-
inn sá bezti!
Björn Borg var í gærkvöld útnefndur
tennisleikari ársins 1980 og kemur það
vist fæstum á óvart. Það var tímaritið
Tennis Magazine sem stóð að kjörinu.
John McEnroe varð annar í kosning-
unni en hann hefur háð skemmtilega
hildi við Borg á árinu. Jimmy Connors
varð þriðji, þá kom Ivar Lendl frá
Tékkóslóvakíu, Guillermo Vilas frá
Argentínu, Gene Mayer, Bandaríkjun-
Lens sigraði
Lens, félagið, sem Teitur Þórðarson
gengur að öllum líkindum til liðs við
innan skamms, sigraði Tours 3—0 i
frönsku 1. deildinni un helgina, en úr-
slit annarra leikja urðu þessi: Auxerre-
Strasbourg 1-1, Laval-Bordeaux 2-4,
Metz-Nancy 2-0, Monaco-Lyons 2-1,
Nantes-Nice 4-1, Paris St. Germain-
Lille 4-1, St. Etienne-Bastia 3-0,
Sochaux-Nimes 2-1, Valenciennes-
Angers 0-0.
St. Etienne og Nantes leiða nú
deildina með 31 stig hvort félag,
Bordeaux kemur þá með 28 og Paris St.
Germain með 26.
StaðaníBelgíu
Anderlecht
Beveren
Standard
Lokeren
FC Brugge
Courtrai
Molenbeek
Lierse
Waregem
Winterslag
Berchem
CS Brugge
Gent
Waterschei
Antwerpen
Beerschot
Beringen
FC Liege
Staðan
Staðan í Bunedsligunni:
Bayern Múnchen 16 12 2
Hamburger
Kaiserslautern
Dortmund
Stuttgart
Frankfurt
Köln
Leverkusen
Núrnberg
Bochum
Duisburg
Karlsruhe
Gladbach
Uerdingen
1860 Múnchen
Dússeldorf
Schalke 04
Bielefeld
40-19 26
38-18 24
32- 17 21
36-27 19
33- 24 19
29-30 18
31-27 17
25-22 15
29-28 15
24-24 15
21-24
19-29 13
8 23-34
7 22-27
7 21-26
7 24-32
9 22-45
10 20-36
13
12
12
9
7
um.Vitast Gerulaitis Bandarikjunum,
Harold Salomon, enn einn Kaninn,
Jose Luis Clerc frá Argentínu og 10.
varð Brian Gottfried frá Bandaríkjun-
um.
í kosningunni hjá konunum var það
Chris Evert Lloyd sem varð efst en
sigurvegarinn frá i fyrra, Martina
Navratilova frá Tékkóslóvakíu, varð
aðeins 4. í ár. Tracy Austin varð önnur
og Evonna Goolagong frá Ástralíu
varð þriðja en hún er enn i fullu fjöri
þrátt fyrir að vera komin vel til áranna.
í fimmta sætinu varð Hanna Mandli-
kova frá Tékkóslóvakiu.
Benfica efst
Benfica er enn langefst í Portúgal
eftir 4—1 sigur á Belenenses um
helgina. Porto, sem kemur næst á eftir
sigraði Academico de Viseu 2—0 og
Portimonese komst i 3. sætið með 1—0
sigri yfir Sporting Lissabon, sem er í 4.
sætinu. Guimaraes er í 5. sæti eftir 1—
2 tap fyrir Amora.
Bylting í GR!
Alger bylting varð i for-
mannskjöri hjá Golfklúbbi
Reykjavíkur fyrir skömmu og
féll formaðurinn, Magnús
Jónasson, með miklum at-
kvæðamun á aðalfundinum.
Svan Friðgeirsson var kjörinn
formaður með 58 atkvæöum
gegn 35 atkvæðum er Magnús
fékk. -SSv.
gang leiksins. Þrjátíu stiga munur ÍS
hélzt nær óbreyttur allan síðari hálf-
leikinn og Stúdentar kunnu greinilega
að meta frelsið, sem þeir fengu í sókn-
inni. Coleman fór á kostum þó hann
sýndi kæruleysi undir lokin. Jón Odds-
son byrjaði af fítonskrafti en dalaði er
á leikinn leið. Var engu að síður liði ÍS
geysimikill styrkur. Þá lék Gunnar
Thors með eftir talsvert hlé og stóð sig
stórvel. Gísli barðist eins og alltaf
geysilega vel og var að auki lunkinn vel
undir körfunni. Það voru þeir Gísli,
Árni og Jón, sem fóru hvað verst með
ÍR-ingana er þeir skoruðu hverja
körfuna á fætur annarri úr hraðaupp-
hlaupum. ÍR-ingarnir sátu einfaldlega
eftir og sá eini sem virtist hafa áhuga á
verkefninu var gamla kempan Kristinn
Jörundsson, sem aldrei gafst upp.
ÍR-ingar voru allan tímann sann-
færðir um að dómar leiksins væru á
móti þeim. Gengust þeir upp í þvi að
vera með sífellt röfl og leiðindi — allir
nema Andy Fleming, sem sýndi að
vanda staka kurteisi. Sömu sögu má
reyndar segja um kollega hans í ÍS-
liðinu, Mark Coleman, sem leikur alla
leiki með bros á vör hvort heldur illa
gengur eða ekki. Auk Kristins voru það
þeir Fleming og Guðmundur Guð-
mundsson sem vöktu athygli og Kol-
beinn virtist geta skorað þegar hann
vildi. Viljinn virtist hins vegar vera tak-
markaður!
Það þarf ekki að leiða getum að því
að ÍS getur hæglega bjargað sér frá
falli í vetur leiki liðið af sama krafti og í
gær. Leikmenn geisluðu allir af leik-
gleði og er það annað en hefur verið
uppi á teningnum að undanförnu. Hins
vegar þurfa þeir varla að gera sér vonir
um að fá jafnlitla mótstöðu aftur í bráð
og í gær. ÍR-liðið fellur nú þriðja árið í
röð í sömu gryfjuna. Liðið springur á
limminu og liðsandinn virðist ekki vera
upp á það allra bezta. Hæfileikarnir
eru hins vegar fyrir hendi hjá Ieik-
mönnum liðsins en það dugir ekki að
Iáta þá ónotaða.
Stigin. ÍS: Mark Coleman 36, Jón
Oddsson 18, Gísli Gislason 16, Gunnar
Thors 14, Árni Guðmundsson 11,
Bjarni Gunnar Sveinsson 4, Ingi
Stefánsson 4. ÍR: Andy Fleming 18,
Kristinn Jörundsson 17, Guðtnundur
Guðmundsson 14, Kolbeinn Kristins-
12, Jón Jörundsson 6, Björn
son
Leósson 4.
-SSv.
Ársæll er hér ásamt konu sinni, Björk Georgsdóttur, og syninum Jóhanni Birki með heljarmikla ávisun, sem DB útbjó í tilefni atburðarins 1 gærkvúld.
DB-mynd Einar Ólason.
IÞETTA V0RU ERFIÐAR
ISEX KLUKKUSTUNDIRl
—sagði Ársæll Friðriksson, sem vann stærsta vinninginn í sögu Getrauna er hann fékk 8,8 milljónir
„Ég er varla farinn að trúa þessu —
maður er ennþá í gleðivímu,” sagði
Ársæll Friðriksson, þrítugur Reykja-
víkurbúi, sem vann tæpar 9 milljónir í
Getraunum um helgina. Upphæðin var
Kristinn
yf irgefur Fylki
Allt bendir til þess að Fylkismenn
missi annan máttarstólpa liðsins undan-
farin ár er Kristinn Guðmundsson bak-
vörður fer til Svíþjóðar innan skamms.
Kristinn vill freista gæfunnar eins og
svo margir aðrir en verði af þvi að hann
fari, hafa Fylkismenn missl tvo af
beztu mönnum sínurn, hann og Hilmar
Sighvatsson. -SSv.
reyndar nákvæmlega 8.797.000 og fékk
Ársæll hana fyrir að vera með alla leiki
seðilsins — 11 að tölu — rétta. Einum
leik, viðureign Newcastle og Black-
burn, var frestað. „Ég var með tvö lítil
kerfi — annað 36 raða og á það fékk ég
vinninginn og hitt upp á 81 röð,” sagði
Ársæll.
„Ég hef nú ekki tippað mikið að
undanförnu en gerði mikið að því hér
áður fyrr. Hins vegar var ég nýfarinn
að tippa aftur. Ég hef alltaf fylgzt vel
með ensku knattspyrnunni og á þar
mitt uppáhaldslið etns og flestir, Man-,
chester United. Þeir hafa hins vegar oft
reynzt mér erfiðir á seðlinum og svikið
þegar maður treysti á að þeir ynnu sína
leiki.
Ég dlkynnti Getraunum það í gær
kl. 11 að ég væri með 11 rétta og
Eina klappið er
Gunnar birtist
— FH vann Fylki 27-18 í 1. deild handboltans í Hafnarfirði
Kristján Arason skorar hér eitt marka sinna i gærkvöld.
DB-mynd S.
Ekki þurftu FH-ingar að taka á hon-
tm stóra sinum i gærkvöld til að vinna
itórsigur á Fylki i 1. deild íslandsmóts-
ns I handknattleik i íþróttahúsinu i
Jafnarfirði. Lokatölur 27-18 eftir að
FH hafði náð átta marka forustu i fyrri
lálfleik. Skoraði átta siðustu mörkin í
Það var ekki rismikill handknatt-
, sem liðin sýndu en það gladdi
jreinilega áhorfendur í Hafnarfirði,
ægar Gunnar Einarsson kom inn á og
ék síðasta stundarfjórðunginn með
'H. Hann handarbrotnaði í fimmta
eik mótsins.
Fylkir skoraði tvö fyrstu mörk leiks-
ns og hafði tveggja marka forustu um
íma, 1-3 og 2-4. FH jafnaði í 4-4 og
eig svo fram úr, 6-4, en Fylkir jafnaði.
ryrst í 7-7, siðan 8-8. Þá virdst allt út-
lald búið hjá Árbæingum. FH skoraði
átta mörk á síðustu níu mínútum fyrri
hálfleiksins. Fylkir ekkert. Staðan
breyttist i 16-8, og það voru tölurnar í
hálfleik. Öll spenna úti.
í síðari hálfleiknum jókst munurinn
strax í tiu mörk, þegar FH skoraði þrjú
fyrstu mörk hálfleiksins, 19-9. Eftir
það hélzt níu til tíu marka munur og
FH keyrði á öllum sinum leikmönnum.
Geir Hallsteinsson sáralítið með. Fylkir
átti aldrei möguleika og ekki bætti úr
skák að einn bezti maður liðsins, Einar
Ágústsson, meiddist í fyrri hálfleikn-
um. Gat ekki leikið meira eftir það.
Það var helzt spenna um það hvor
skoraði fleiri mörk Kristján Arason í
FH eða Gunnar Baldursson í Fylki. Þar
varð jafntefli. Báðir skoruðu níu mörk
en Gunnar lét Gunnlaug Gunniaugs-
son, markvörð FH, verja frá sér tvö
víti. Kristján komst í annað sætið yflr
markaskorara mótsins. Hefur skorað
74 mörk eða að meðaltali 7,4 mörk í
leik. Gott hlutfall það. Gunnar er í
fjórða sæti með 64 mörk.
Mörk FH i leiknum skorðu Kristján
9/2, Sæmundur Stefánsson 5, Þorgils
Mathiesen 3, Guðmundur Árni
Stefánsson 3, Hans Guðmundsson 2,
Pálmi Jónsson 2, Geir, Guðmundur
Magnússon, Valgarður Valgarðsson
eitt hver. Mörk Fylkis: Gunnar 9/3,
örn Hafsteinsson 3, Einar Ágústsson
2, Stefán Gunnarsson, Stefán
Hjálmarsson, Magnús Sigurðsson og
Ásmundur Kristinsson eitt hver.
Dómarar Björn Kristjánsson og Óli
Olsen. FH fékk þrjú víti. Jón Gunnars-
son varði eitt frá Kristjáni. Fylkir fékk
5 víd. ‘Gunnar skoraði úr þremur.
Engum leikmanni Fylkis var vikið af
velli — þremur úr FH. Guðmundi Árna
tvívegis, Sæmundi og Valgarði.
-hsím.
þeir höfðu þá þegar fundið seðilinn
minn. Mér var sagt að ég væri sá eini og
það tók 6 klukkustundir að fá staðfest-
ingu á að enginn annar væri með 11
rétta. Þetta voru erfíðir 6 tímar. Ég
hringdi með reglulegu millibili niður á
skrifstofu til þeirra og þegar ég loks
fékk að vita að ég væri einn um hituna
ætlaði ég vart að trúa mínum eigin eyr-
um. Ég bjóst aldrei við þvi að fá efsta
vinninginn einn — hvað þá að hann
væri svo gífurlega hár sem raun ber
vitni.”
Hvað ætlarðu svo að gera við pen-
ingana?
,,Ég er nú varla farinn að hugsa svo
langt ennþá. Það er bezt að sleppa öll-
um draumórum og halda sig við
jörðina og lofa vimunni að renna af
manni. Það þarf auðvitað ekki að taka
það fram að þessir peningar koma sér
ákaflegá vel því við hjónin erum í íbúð
sem við þurfum að kosta talsverðu upp
á,” sagði Ársæll og fagnaði með konu
sinni og tveimur börnum, og hver getur
svo sem láð honum það.
- SSv.
Kristján æfir á Húsavík
gæti farið svo að hann léki með Völsungi næsta sumar
Kristján Olgeirsson er kominn aftur
til Húsavíkur og mun dveljast þar
a.m.k. fram í marz og æfa með fyrrver-
andi félögum sínum i Völsungi. Sögu-
sagnir hafa gengið þess efnis að hann
ætlaði sér að leika með Völsungi í
sumar en enn mun allt óráðið um það.
DB hafði í gær samband við Kristján
og vildi hann ekkert láta hafa eftir sér
um málið. Þá var og rætt við knatt-
spyrnuráðsmann á Húsavík, en hann
vildi heldur ekki tjá sig um málið. DB
hefur þó eftir árelðanlegum heimildum
að Húsvikingar hafi leitað hófanna hjá
Kristjáni og það kæmi vart á óvart þótt
Fram
malaði Þór
íslandsmeistarar Fram f 1. deiid
kvenna i handknattleik höfðu ekki
mikið fyrir þvi að sigra stöliur sínar
úr Þór á Akureyri um helgina.
Lokatölur urðu 23—12 Fram í vil
eftir að staðan hafði verið 11—8 í
hálfleik.
Jafnt var framan af og t.d. var
staðan 5—5 á 18. mínútu, en eftir
það sigldi Fram fram úr og aldrei
varð nein spurning um sigurvegara.
Mörk Fram: Guðríður Guðjóns-
dóttir 7, Jóhanna Halldórsdóttir 7,.
Oddný Sigsteinsdóttir 3, Margrét
Blöndal 3, Kristin Orradóttir og
Sigrún Blomsterberg 1 hvor. Þór:
Þórunn Sigurðardóttir 6, Dýrfinna
Torfadóttir 3, Anna Gréta
Halldórsdóttir 2 og Magnea
Friðriksdóttir 1. -GSv.
hann léki með Völsungi næsta sumar.
Félagi hans úr Skagaliðinu, Jón Gunn-
laugsson, hefur gerzt þjálfari hjá Völs-
ungi og mun jafnframt leika með liðinu
og verða því mikill styrkur. Þá stóð um
tíma til að Börkur Ingvarsson, mið-
vörður KR, færi til Húsavikur, en hann
hætti við. Bræðurnir Hafþór og Helgi
Helgasynir hafa verið orðaðir við
félagið á ný og greinilegt er að gróska
er i knattspyrnunni á Húsavík um þess-
armundir. -SSv.
Naumur sigur
ÍBK gegn Þór
—heimamenn sigruðu 83-81
KörfuknatUelkur, l-delld. fBK-Þör Ak. 83-81 (B0-48I.
Ef Valdimar, sem var nýkominn inn
á fyrir Garry Schwartz, hefði ekki
leikið knettinum út fyrir hliðarlinu,
nokkrum sekúndum fyrir leikslok, er
aldrei að vita nema Þór hefði jafnað
metin. Staðan var þá 83—81 og
vissulega timi til að senda knöttinn i
körfuna. í framlengdum leik gat lika
allt gerzt, en heimamenn höfðu
knöttinn og leiktíminn rann út. Þar
með hafði IBK bætt við sig fimmta
sigrinum, og fetar i fótspor nágranna
sinna Njarðvikinganna, eru með fullt
húsíl.deildhtni. ---------
Annars leit heldur illa út fyrir ÍBK
þegar Terry Read fékk fimmtu villuna,
að vísu umdeilanlegt atriði, þegar um
mínúta var til hlés og staðan 46—44.
Bjuggust þá flestir við að liðið myndi
veikjast að mun en það fór á annan
veg. LJr tveggja stiga forskoti í byrjun
séinni hálfleiks, juku heimamenn bilið
upp í 11 stig, þegar mest var, en þegar
Axel Nikulásson, einn sterkasti maður
ÍBK, fékk sína fimmtu villu, tók að
syrta í álinn. Norðanmenn söxuðu á'
forskotið, en fyrir óheppni í
körfuskotum og klaufaskap tókst þeim
ekki að knýja fram sigur, þótt litlu
munaði. Líkast til hefur brottför Garry
undir Iokin verið þyngst á metunum í
þeimefnum.
Einar Steinsson var geysilega
sterkur, bæði í vörn og sókn. Skoraði
hann 23 stig, en næstur kom Axel
Nikulásson, Jón Kr. Gislason ogTerry
Read 12stig, fyrir ÍBK.
Af norðanmönnum var Garry
Schwartz hæstur með 31 stig, Alfreð
Tulinius 22 og Jón Héðinsson 16.
Dómarar voru þeir Björn Ólafsson og
Hilmar Hafsteinsson og dæmdu vel.