Dagblaðið - 09.12.1980, Síða 16
16
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1980
FÓLK
Katla María sendir frá sér jólaplötu:
„Skemmtilegra að
syngja en lœra”
„Langar til að syngja
inn á fleiri plötur”
— en þá veröur einhver að biðja mig um það, segir Nini De Jesus,
sem vakti mikla athygli í sjónvarpsþœtti með Hauki Morthens
,,Mér finnst mjög skemmtilegt að
syngja inn á plötu. Nei, eg hlusta
ekki mikið á plöturnar mínar — eða
það er misjafnt, fer eftir lögunum,”
sagði Katla Maria, sem nú sendir frá
sér sina aðra hljómplötu. Það er
jólaplata, sem kemur nú frá Kötlu
Maríu, 12 erlend lög með íslenzkum
textum, þar af tveir textar eftir afa
hennar, Guðmund Guðmundarson.
Þess má geta að hann samdi alla texta
á fyrri plötu Kötlu Maríu.
,,Ég er í 5. bekk D í Mela-
skólanum” segir Katla María, er við
spurðum um námið. „Mér finnst
eiginlega miklu skemmtilegra að
syngja heldur en að laera. Ég er í
Melaskólakórnum og í honum laerum
við að syngja undir stjórn Magnúsar
Péturssonar. Á fimmtudaginn eigum
viðað syngja á elliheimilinu Grund,”
segir Katla María.
Hún segir að Ellý Vilhjálms sé
bezta söngkonan og Pálmi Gunnars-
son bezti söngvarinn. Aðspurð hvort
hún ætli að vera söngkona þegar hún
verður stór segir Katla Maria: „Það
væri auðvitað skemmtilegt að verða
söngkona, en ég gæti alveg eins verið
búin að missa röddina þá. Annars er
ég ekkert farin að hugsa um hvað ég
ætla að verða,” segir hún svo. ,,Ég
hugsa að ég fari í söngskólann.”
Greinilega á söngurinn allan hug
Kötlu Mariu, enda er hún ung og
efnileg söngkona. Katla María kom
fram í Jólastundinni okkar fyrir
tveimur árum og söng þá lagið,
Kveikjum kertum á, við undirleik
Brunaliðsins. í Jólastundinni okkar
Stundinni okkar,” segir hún og bætir
við:„Mér fannst ógurlega skritið að
sjá sjálfa mig I sjónvarpinu.”
-ELA.
nú i desember mun Katla María
einnig koma fram og syngja.
Katla María er 11 ára, hálfur
íslendingur og hálfur Spánverji. Hún
er yngst þriggja systkina. Þegar við
spyrjum hvað sé skemmtilegast á eftir
söngnum svarar hún að bragði: „Að
lesa ljóð.” Móðir hennar, Helga
Guðmundsdóttir, segir okkur að það
sé rétt, Katla María lesi mikið Ijóð og
sé einnig dugleg að læra þau.
-ELA.
Ég fæ jólagjöf nefnist nýútkomin
hljómplata með Kötlu Mariu. Katla
María heldur hér á plötunni fyrir
Ijósmyndarann og tók það skýrt fram
að hún syngi lika bakraddir.
-DB-mynd Einar Ólason.
„Þetta var í fyrsta skipti sem ég
kom fram og söng. Fyrst var ég
voðalega feimin, þegar allir voru að
stara á mig, en svo var alit I lagi,”
sagði Nini De Jesus, 11 ára gömul
stúlka, sem vakti mikla athygli í sjón-
varpsþætti með Hauki Morthens á
dögunum. Nini syngur með Hauki í
einu lagi á nýútkominni hljómplötu
hans.
„Ég held að það hafi byrjað
þannig að Haukur hafði samband við
frænku mína Sigriði og sagði henni
að hann vantaði millirödd. Hún benti
á mig og það varð til þess að ég fór að
syngja á þessari plötu,” sagði Nini er
við spurðum hvernig hún hefði verið
uppgötvuð.
,,Mér finnst mjög gaman að
syngja, hef sungið með Melaskóla-
kórnum,” segir Nini. Þess má geta
að Katla María er vinkona hennar og
bekkjarsystir og báðar eru þær í
skólakórnum, „Annars er ég líka í
myndlistarskólanum að læra að
teikna og búa til úr leir. Ég hef þess
vegna eiginlega ekki tima til að vera i
kórnum, svo ég er að hugsa um að
hætta. En mig langar að syngja inn á
fleiri plötur. Ég get það bara ekki
sjálf, það verður einhver að biðja mig
um það,” segir þessi unga en þó full-
orðinslega söngkona.
Nini De Jesus er dóttir Onnu Geirs
og Ning De Jesus. „Pabbi minn er
frá Filippseyjunt, en ég fæddist í
Kaliforníu,” sagði Nini. Hún er
yngst fimm systkina.
— Ætlarðu að koma fram í
sjónvarpi aftur fljótlega?
„Bryndis Schram kom i kórinn
til okkar og ég held að það komi i
Þrír ungir
á Jjalir Þjóð-
leikhússins
Leikritið Oliver Twist frumsýnt íjanúar:
Kötlu Mariu sem viðtöl eru við hér á
siðunni.
„Ég sá myndina Oliver Twist í
sjónvarpinu og þótti hún mjög góð.
Hins vegar hef ég ekki lesið bókina,”
sagði Börkur. Hann sagðist aldrei
hafa leikið fyrr, ekki einu sinni í
skólaieikritum. „Jú, ég kvíði nú
soldið fyrir að leika fyrir fullu húsi,
en ég hugsa að það venjist,” segir
hann.
Sá Oliver
í London
Sigurður Sverrir sagðist nokkrum
sinnum hafa leikið i skólaleikritum í
Hvassaleitiskólanum, en aldrei fyrr i
leikhúsi. „Ég sá Oliver Twist i
sjónvarpinu og svo sá ég söngleikinn í
London 1978. Það var mjög flott að
sjá það,” sagði Sigurður Sverrir.
Hann sagðist syngja með kór
Hvassaleitisskóla. Kórinn hefur
m.a. sungið í Háskólabiói og í
Bústaðakirkju.
Þeir Börkur og Sigurður munu
skiptast á að leika Oliver Twist þegar
aðsýningunum kemur.
Jón Gunnar, sá er leikur Dick, er
ekki eins óvanur að koma fram og
þeir Sigurður og Börkur, hann hefur
leikið í Hemma, sem Leikfélag
Reykjavíkur sýndi, í útvarpsleikritum
hefur hann leikið og i kvikmyndinni
Snorri Sturluson sem verið er að
vinna að. „Jú, mér finnst
skemmtilegra að leika en ég held að
ég vildi ekki verða leikari,” segir
hann. „Miklu frekar dýralæknir.”
Eins og hinir tveir sá Jón Oliver
Twist I sjónvarpi, en ekki sagðist
hann hafa lesið bókina. „Ég hef bara
lesið handritið okkar,” segir Jón
Gunnar. Hann er eins pg Börkur,
Katla María og Nini I Melaskólanum,
svo segja má mcð sanni að þar sé að
finna upprennandi listamenn. Jón
Gunnar sagðist vera i Melaskóla-
kórnum, én ekki er hann sérlega
ánægður. „Það eru svo fáir strákar í
kórnum, svo ég held ég hætti bara,”
segir hann.
Ekki var ráðlegt að tefja þessa
ungu menn lengur, þvi erfiðar æfing-
ar eru framundan og enginn tími má
fara til spillis. -ELA.
Jón Gunnar Þorsteinsson 10 ára verður í hlutverki Dicks, Siguröur Sverrir
Stephensen 12 ára fer með hlutverk Olivers Twists á mótí Berki Hrafns-
synillára. DB-mynd Gunnar örn.
Æfingar eru hafnar á leikritinu
Oiiver Twist sem Þjóðleikhúsið
áætlar að frumsýna um miðjan
janúar. Tveir ungir drengir, Börkur
Hrafnsson 11 ára og Sigurður Sverrir
Stephensen 12 ára, voru valdir í hlut-
verkið úr hóp 14 drengja. Þá var Jón
Gunnar Þorsteinsson (Gunnarssonar
leikara) 10 ára fenginn i hlutverk
Dicks. Blaðamaður ræddi við þessa
þrjá drengi en þeir voru við
upplestursæfingu með leikstjóranum
Brieti Héðinsdóttur.
Bekkjarbróðir Niniar
og Kötlu Maríu
„Það var hringt í mig og ég
beðinn að taka þetta hlutverk,”
sagði Börkur er við spurðum hvernig
hann he.fði fundizt í hlutverkið.
Börkur er í Melaskólanum og svo
skemmtilega vill til að hann er
bekkjarbróðir þeirrar Niniar og
Nini De Jesus var stödd hjá
ömmu sinni i Safamýri er við litum
inn tíl hennar. Amma Niniar er
ekki alveg óvön að taka á mótí
blaðamönnum, það þurftí hún að
gera lengi vel, er dætur hennar
tvær urðu fegurðardrottningar,
Sirrý Geirs og Anna Geirs, móðir
Niniar.
DB-mynd Einar Ólason.