Dagblaðið - 09.12.1980, Qupperneq 28
4
frfálst, áháð dagblað
Fundað næturlangt í Karphúsinu um bankadeiluna:
„Styttist íþurrk-
inn, góði minn”
—verkfallsvaktir áfram í miðbænum
ÞRIÐJUDAGUR 9. DES. 1980.
Fulltrúaráð sjálfstæðis-
fétaganna íReykjavík:
Guðmundur H.
sjálfkjörinn
formaður
„Geirsmenn” höfðu
annars betur f stjómar-
og f lokksráðskosningum
Guðmundur H. Garðarsson var í
gærkvöld kjörinn einróma formaður
Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík. Nokkur slagur varð um
aðra stjórnarmenn og menn í flokks-
ráð, og höfðu „Geirsmenn” öllu betur
en ,,a'ndófsmenn”.
Sex voru kjörnir í stjórn með Guð-
mundi. Geirsmenn telja sig hafa vinn-
inginn, 4:2, í þeim hópi. Kosin voru:
Sigurður Hafstein 324 atkvæði. Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson 318, Ingibjörg
Rafnar 293, Gunnlaugur B. Daníelsson
260, Gísli Baldvinsson 232 og Jóna
Gróa Sigurðardóttir 230. Tólf formenn
sjálfstæðisfélaganna í borginni eru
einnig í stjórn. Aðrir, sem hlutu at-
kvæði, voru Sveinn Björnsson kaup-
maður 190, Guðni Jónsson 174 og
Kristján Kjartansson 147.
í flokksráðskosningunum fékk
Sigurður Hafstein flest atkvæði, 298.
Magnús L. Sveinsson hlaut 297, Davíð
Oddsson 297, Páll Gíslason 274, Ingi-
björg Rafnar 261, Hulda Valtýsdóttir
258, Sigurjón Fjeldsted 254. Einnig
voru kosin í flokksráð i þessari röð:
Pétur Rafnsson, Gunnlaugur G-
Snædal yngri, Matthías Jóhannessen,
Þórir Lárusson, Gunnlaugur Snædal
eldri, Hörður Einarsson, Sigríður
Ásgeirsdóttir, Ragnar Kjartansson,
Garðar Ingvarsson,' Magnús Jóhanns-
son, Sveinn Björnsson kaupmaður,
Sólveig Pálmadóttir, Anders Hansen
og Áslaug Ottesen.
- HH
,,Við sitjum sem fastast,” sagði
Vilhjálmur Hjálmarsson sáttasemjari
í bankamannadeilunni i morgun þeg-
ar DB-menn heilsuðu upp á hann í
Karphúsi sáttasemjaraembættisins
við Borgartún. Samningafundur sem
hófst kl. niu i gærkvöld stóð þá enn
og óljóst um framhaldið. Vilhjálmur
vildi litið spá í hvort samningar væru
innan seilingar. Spurningu þess efnis
svaraði hann með sögu af karli sem
inntur var eftir þvi hvort vænta
mætti þess að þurrkurinn kæmi
fljótlega. „Það styttist i hann, góði
minn,” svaraði karl.
Og það voru reyndar einu
fréttirnar, sem hægt var að fá
staðfestar í morgun:,Það styttist i
samninga. Að vísu kvaðst Vilhjálmur
hafa pantað sér flugfar austur á
heimaslóðirnar i jólaleyfi
sunnudaginn 21. desember. Má
hugga sig við að þá verður í síðasta
lagi samið við bankamenn!
Á verkfallsvakt bankamanna
fengust þær upplýsingar í morgun að
staðnar væru vaktir við vinnustaði
þeirra á miðborgarsvæðinu, fyrst og
fremst til að gæta þess að menn noti
ekki næturhólf bankanna. Gizkað
vará að 60—70 manns væru á þess-
um vöktum, en auk þess eru tal-
stöðvarbílar á ferð um borgina, sem
eru i sambandi við skrifstofu
Sambands bankamanna.
•ARH.
Tímaritið Economist
um ísland:
Bæði „bezta”
og„versta”
efnahags-
stjómíEvrópu
,,í hvaða landi i Evrópu er efna-
hagsmálum bezt stjórnað?” spyr
brezka timaritið Economist. „Á ein-
um mælikvarða, atvinnuleysinu, er
íslandi ótvírælt bezt stjórnað,” segir
timaritið. ,,Þar hafa landsmenn haft
fulla atvinnu allan síðasta áratug.”
„En í hvaða landi er efnahagsmál-
um verst stjórnað?” spyr tímaritið
aftur. „Miðað við annan mæli-
kvarða, verðbólguna, er svarið
greinilega, að islandi sé verst stjórn-
að af Evrópulöndum. . . ” segir
tlmaritið.
Timaritið segir, aö þessi þversögn
eigi rætur i þvi, hve háð island sé
fiskvciðum. Hækkun fiskverðs á
erlendum mörkuðum leiði þegar i
stað til launahækkana. Lækkun fisk-
verðsins valdi verri viðskiptakjörum,
sem leiöi til gengisfellingar krónunn-
ar og verðhækkana. Þegar olluhækk-
un bætist við verði afleiðingin suður-
anterisk verðbólga. Economist getur
skýrslu Efnahagssamvinnu og
þróunarstofnunarinnar OECD og til-
lagna hennar um aögerðir í efnahags-
málum, sem hér hefur verið getið í
fréltum, en segir, aö litil bjartsýni
riki á aðgerðir, þótt tillögurnar séu
góðar.
-HH
Ufðuháttá
stolinnimill-
jónáAkureyri
Ung kona sent rekur verzlun í
Sandgerði saknaði á laugardags-
morgun tösku sem i voru að hennar
áliti 1150 þúsund krónur. Hafði hún
komið í hús þar sem gleðskapur var
ogþarhvarftaskan.
Á mánudag fundust þjófarnir, þrír
17 ára piltar. Voru þeir þá á Akureyri
ásamt fjörða rnanni úr Reykjavík
sem þeir buðu i ævintýrafcrðina.
Höfðu allir lifað hátt um helgina,
hafl herbergi á mörgum hótelum,
skipt um verustað milli nátta og sums
staöar ekki sofið. Alls staðar höfðu
þcir notað fölsk nöfn, bæði i flugi og
á hótelum.
Þcgar þeir voru handteknir áttu
þeir 68 þúsund krónur eftir. Fullyrða
þcir að í töskunni hafi ekki verið
ncma 900 þúsund kr. þó eigandinn
segi 1150þúsund.
- A.St.
Bókastríð Hagkaups og bóksala:
MÖRG LAGABR0T K0MA TIL SK0DUNAR
—Niðurstaða um hluta málsins á morgun
„Aðalspurningin setn fjallað var
um á tveggja og hálfs tima fundi
Samkeppnisnefndar í gær var hvort
sölukerfi bókaútgefenda hefði i för
með sér skaðlegar hömlur á sam-
keppni og það svo að jafnvel bryti i
bága við iög,” sagði Björgvin
Guðmundsson í samtali við DB.
Samkeppnisnefndin hefur að und-
anförnu haft til meðferðar strið það
er upphófst er Bóksalafélagið neitaði
Hagkaupi um bóksöluleyfi. Er málið
viðtækt að dónti nefndarinnar og
skýrsla sú sem nefndin fól Gylfa
Knudsen að taka saman um lög-
fræðileg atriði málsins var upp á 30
síður .
Björgvin sagði að samkvæmt
skýrslunni kæmi til álita brot á
mörgum greinum laganna um verðlag
og samkeppnishömtur.
Nefndin stefnir að þvi að taka á-
kvörðun um einhvern hluta málsins
aðininnstakostiámorgun. -A.Sl,
Dómur í Landsbankamálinu:
DÆMDURITVEGGJA 0G
HÁLFS ÁRS FANGELSI
—fyrír liðlega 51 millj. króna fjárdrátt, skjalafals og brot í opinberu starfi
Haukur Heiðar, fyrrum forstöðu-
maður ábyrgðadeildar Landsbanka
fslands, var á föstudaginn dæmdur í
tveggja og hálfs árs fangelsi í saka-
dómi Reykjavíkur fyrir fjárdrátt,
skjalafals og brot í opinberu starfi.
Mál Hauks, Landsbankamálið
svokallaða, kom upp um jólin 1977,
þegar uppdagaðist að hann hafði i
starfi sínu við bankann dregið sér um
51,5 milljónir á sjö undangengnum
árum. Lengra aftur náði rannsóknin
ekki.
Haukur Heiðar var hnepptur i
gæzluvarðhald er málið kom upp og
ekki látinn laus fyrr en að tæpum
þremur mánuðum liðnum. Dregst sá
tími frá fangelsisvistinni. Við rann-
sókn málsins kom m.a. í Ijós að hann
hafði flutt megnið af fénu úr landi og
á bankareikninga í Sviss.
Ákærði, Haukur Heiðar, var
einnig dæmdur til að greiða allan
sakarkostnað. Lögmaður hans var
Sveipn Snorrason hrl., en dóminn
kváðu upp Gunnlaugur Briem saka-
dómari, sem var forseti dómsins, <jg
hæstaréttarlögmennirnir Axel Krist-
jánsson og Ragnar Ólafsson. Búizt er
við að dómnum verði áfrýjað til
hæstaréttar.
-ÓV.
Þvagprufan
órannsökuð
enn
Rannsóknardeild lögreglustjóra-
embættisins í Reykjavík er enn að
rannsaka gang ölvunarakstursmálsins
sem DB skýrði frá á laugardag. Þá
neituðu læknar á slysadeild að taka
blóðsýni úr ákveðnum manni, enda bar
flutning mannsins að slysadeild að með
óvenjulegum hætti, þ.e.a.s. í sjúkrabíl.
Niðurstaða af þvagprufu sem
læknar sendu lögreglunni í stað
blóðsýnis liggur enn ekki fyrir. Bifreið
hins grunaða er enn í porti lög-
reglustöðvarinnar. -A.St.
Samningamenn bankamanna skoðuðu skrif morgunblaðanna um kjaradeilu þeirra í fundarhléi í morgun I Karphúsinu. Hér
velta þeir vöngum yfir Mogganum. DB-mynd: Sig. Þorri.
LUKKUDAGAR
9. DESEMBER 21418
Sharp vasatöiva CL 8145
Vinningshafar hringi
í síma 33622.