Dagblaðið - 02.01.1981, Qupperneq 1
/
/
f frfálst,
Júháð
fdaghlað
7. ÁRG. — FÖSTUDAGUR 2. JANÚAR 1981. — l. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11.—AÐALSÍMI 27022.
Olíumöl hf. verður ekki gjaldþrota:
Ríkiö bjargar og
yfirtekur Olfumöi
■ sveitarfélögin ganga
útúrfyrirtækmu
og greiða upp ábyrgðir
sínar
- söluskattsskuldinni
breytt íhlutafé ríkisins
Framkvæmdasjóður
tekurvið rekstrinum
Fjárveitinganefnd Alþingis
samþykkti á fundi sínum milli jóla og
nýárs, að fjármálaráðherra nýti
heimild í fjárlögum 1980 um að
breyta kröfum ríkissjóðs á hendur
Olíumöl hf. í hlutafé. Hér er um að
ræða söluskattsskuld fyrirtækisins,
sem hefur verið að velkjast í kerfinu
frá haustinu 1978 og nemur um 300
milljónum króna.
Ekki er vitað annað en fjármála-
ráðherra muni nýta þessa heimild,
þannig að söluskattsskuldin verður
hlutafé ríkissjóðs í Olíumöl. Með
þessari aðgerð á ríkið vonarpening í
þessari skuld, en ekki er ágreiningur
um að peningar þessir hefðu tapazt ef
fyrirtækið hefði verið gert upp.
Með þessum aðgerðum ríkisins er
séð til þess að olíumöl verður ekki
gjaldþrota en eignaraðild að fyrir-
tækinu breytist. Sveitarfélög þau,
sem átt hafa hlut í fyrirtækinu ganga
út úr því. Þau afhenda Út-
vegsbankanum hlutabréf sín, borga
þær tryggingar, sem þau voru ábyrg
fyrir og standa fyrir gjaldföllnum
skuldum.
Framkvæmdasjóður kemur áfram
inn i fyrirtækið með fjármagni til
þess að halda því gangandi. Upphaf-
lega stóð til að sveitarfélögin leggðu
fé í fyrirtækið, en sú leið var ekki
talin fær. Ábyrgðir þær, sem þau
munu greiða nema á þriðja hundrað
milljóna króna.
Með þeirri leið sem farin verður er
viðurkennt að fyrri eignaraðild hefur
ekki gefizt vel. Fyrirtækið lýtur ekki
venjulegum markaðslögmálum, þar
sem viðskiptavinir eru ríki og sveitar-
félög. Með nýskipan mála er Olíumöl
þannig alfarið komið yfir á ríkið.
Framkvæmdasjóður verður rekstrar-
aðili, a.m.k. til að byrja með og Út-
vegsbankinn einnig stór aðili.
-JH.
Bergþóra Skúladóttir gjaldkeri I Múlaútibúi telur þarna fram hina nýju seðla. DB-m.vnd Sigurður Þorri.
„ÞÚ An EKKIAÐ HUGSA
í GÖMLUM KRÓNUM í DAG”
„Munu
halda verð-
bólgunni
Í40%”
- segir Páll Pétursson
um efnahagsaðgerðir
ríkisstjómarinnar
,,Ég get ekki annað sagt en ég sé
mjög bjartsýnn á fyrirhugaðar
ráðstafanir ríkisstjórnarinnar í efna-
hagsmálum n?: að stöðva framgang
verðbólgunnar, ’ sagði Páll Péturs-
son, formaður þingflokks Fram-
sóknarflokksins, í viðtali við DB í
morgun.
„Kostir þessara aðgerða eru
margvíslegir en þær ráðstafanir sem
ætlað er aö sjá við verðbólgunni eru
þyngstar á metunum. Með þeim geri
ég mér vonir um að halda megi
verðbólgunni i kringum 40% í stað
68—70%, ef ekkert hefði verið
aðhafzt svo það er tvímælalaust
betur af stað farið en heima setið,”
sagði Páll ennfremur.
Aðspurður sagðist Páll einnig vera
bjartsýnn á lífdaga ríkisstjórnarinnar
og engan vafa leika á að hún sæti út
árið a.m.k.
-SSv.
ÓlafurG.Einarsson:
Skammtíma-
aðgerdir”
„Mér þykja efnahagsráðstafanir
ríkisstjórnarinnar ekki merkilegar í
sjálfu sér,” sagði Ólafur G. Einars-
son formaður þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins í morgun. „Þetta eru
aðgerðir, sem duga ekki nema til
skamms tíma. Það er verið að koma á
áframhaldandi verðstöðvun, sem er
ekkert nýtt, hún hefur verið í gildi í
áratug. Þá er vcrið að krukka i gerða
samninga og lækka kaupið um 7%.
En alvarlegast í þessu er aö það á
að halda uppi atvinnuvegunum með
styrkjum og lánum. Þeir eiga ekki að
standa undir sér. Sagt er að þessar
aðgerðir eigi að minnka verðbólguna
og ég geri ekki lítið úr því. Þessar
aðgerðir duga á fyrsta timabilinu, en
það stefnir í sama farið er liður á
árið. Þá er gert mikið úr
vaxtalækkun, en viöbrögð bankanna
hljóta aö verða þau, að útkoman
verði vaxtahækkun.”
JH.
Nýr gjaldmiðill hefur verið tekinn
upp í landinu. I dag verða bankar opnir
til þess að skipta gamla gjaldmiðlinum í
annan hundrað sinnum verðmeiri. í
morgun er DB menn voru á ferð í
Múlaútibúi Landsbankans, var aðal-
gjaldkerinn, Svana Samúelsdóttir, ein-
mitt að láta sína menn fá hinn nýja
gjaldmiðil að setja i skúffur sínar.
Greinilegt er að meira að segja banka-
fólkið er ekki allt of visst í hinum nýja
miðli og menn töluðu hver upp í annan
um gamlar krónur og nýjar. Loks kvað
Svana upp úr með að „þú mátt ekki
hugsa í gömlum krónum í dag!” Slíkt
er einnig dagskipunin til annarra.
ALLIR eiga að hugsa í nýjum krónum.
Um nýju krónuna má sjá nánar á
Neytendasiðunni bls. 4 i dag.
-DS.
„Tek ekki
þátt i að
fella
stjórniná”
— segirAlbert
Guðmundsson
„Ég mundi ekki taka þátt i því að
fella þessa ríkisstjórn, eins og mál
standa,” sagði Albert Guðmundsson
alþingismaður- i viðtali við DB í
morgun. Athyglin beinist mjög að
Albert, því að ríkisstjórnin gæti ekki
komið fram málum í neðri deild án
fulitingis Alberts, ef Guðrún Helga-
dóttir hættir stuðningi við stjórnina.
„Eigi að-fella ríkisstjórnina, verða
þeir sem að því standa að sýna mér,
að þeir geti boðið eitthvað betra,”
sagði Albert.
Albert sagði, að við iifðum óróa-
samt timabil og hefði svo verið lengi,
margar ríkisstjórnir og margra
mánaða þref um stjórnarmyndun.
„Landið hefur ekki efni á slíku,”
sagði Albert, ríkisstjórn, hvort sem
hún væri góð eða miður góð, væri
betri enengin.
Albert sagði, að afstaða stjórnar-
andstöðunnar nú hefði einkennzt af
heift og væri „meira í stil viö
hermdarverkastarfsemi” en málefna-
Iega andstöðu.
Albert sagöi, að afstaða sín til
stjórnarinnar færi eftir málum. Hann
hefði enn ekki tekið neina afstöðu til
efnahagsaðgerðanna.
-HH.
— sjánánarábaksíðu
Banaslys
fHnífsdal
Það slys varð aðfaranótt nýárs-
dagsins að 16 ára piltur frá ísafirði
lenti undir lítilli rútubifreið og beið
bana nær samstundis. Pilturinn hafði
farið ásamt félögum sinum á dansleik
i Hnífsdal. Eftir dansleikinn gengu
þeir eftir isafjarðarvegi, en hinn látni
lenti einn sér. Ekki er fullljóst
hvernig slysið varð, en lögreglan á
ísafirði vinnur nú að því að taka
skýrslur af vitnum. Ekki er hægt að
birta nafn piltsins að svo stöddu.
-ELA.
Skrúfað fyrir alla bensínsölu
„Ég tel öll líkindi á því að af-
greiðsla verði stöðvuð til þessara
fimm bensínstöðva,” sagði Halldór
Björnsson hjá Dagsbrún í samtali við
blaðamann DB í morgun. Klukkan
tíu átti að hefjast fundur trúnaðar-
mannaráðs um þessi mál.
„Við erum búnir að ræða fram og
aftur við þessa bensínsala, en þeir
taka engum sönsum,” sagði Halldór.
„Þessar stöðvar sem um ræðir eru í
Hafnarfirði, Kópavogi, Mosfellssveit
og síðan eilífðarvandamálið Bæjar-
leiðir.”
Halldór sagði að afgreiðsla á
bensíni hefði verið hafin úr tanki
BSR, en hún hefði farið fram án vit-
undar yfirmanna þar. Skrúfað var
fyrir þá söíu þegar er hún fréttist.
f morgun hafði ekki verið
boðaður fundur í deilu
bensínafgreiðslumanna og viðsemj-
enda þeirra.
-ÁT