Dagblaðið - 02.01.1981, Síða 6
6
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. JANÚAR 1981.
Friösæl áramót um allt land
Varðstjóri í Reykjavíkurlög-
reglunni, með 35 ára starfs-
reynslu, lýsti áramótunum um
allt land í gær svo að þau
hefðu verið „ákaflega góð og
róleg — með því bezta, sem ég
hefkynnzt.”
Lögreglumenn um allt land
voru sammála um, þegar DB
ræddi við þá síðdegis í gær, að
landsmenn hefðu kvatt gamla
árið og fagnað því nýja mjög
kurteislega og bar nær engan
skugga á hátíðahöldin, ef frá er
talið banaslys á ísafirði og mis-
heppnað bankarán i Vest-
mannaeyjum.
Veður á gamlárskvöld og
nýársnótt var yfirleitt mjög
gott eftir óveður nóttina og
morguninn áður. Ölvun var
víðast hvar í lágmarki — að
minnsta kosti oili hún ekki
vandræðum.
-ÓV.
fteykvíkingar kvöddu gamla ériö með eldglæringum, og kinverjasprenging- aö festa Ijósadýrðina 6 filmu. Og ekki bar á öðru en að vel hafi tíl tekizt Og
um um alla borg. Sigurður Þorri baukaði við það úti i garði undir miðnættíð Aður en nokkur vissi af var nýtt ér komið og tvö núll duttu af krónunni.
Pollarnir undu velhag sinum i birtu og ylsem lagði fré einni afétjén bronnum
i höfuðstaðnum ó gamlérskvöld. Brennur i Reykjavik hafa um érabil ekki
verið svo fóar en að þeim kom samt fjöldi fólks á öllum aldri tíl að horfa á
gamla érið eyðast i vafurlogum. DB-myndir Gunnar örn.
Ungir sem aldnir skemmtu sér um óramótín — að visu i flestum titfaKum með nokkuð misjöfnum hættí. Þessi
ungi maður skemmtísér konunglega með stjömuljósið sitt DB-mynd: Sig. Þorri.
Daman tíl vinstri ó myndinni kvaddi
órið é sinn hétt Með stjömuijósi.
Landsmenn sendu að vanda é loft
flugekfa og alls kyns furðuhlutí fyrir
nokkra milljónatugi fornkróna. Um
miðnættíð var himinhvotfið yfir
Reykjavik eltt Ijósahaf og andrúms-
loftíð lyktaði af púðurreyk eins og
þegar kúrekum í villta vestrinu lentí
saman i skotbardögum. Og svo var
allt i einu komið nýtt ér.
sala reyndust hafa gikia éstæðu en
ekkl var annað að sjé um miðnættí
en að Reykvikingar hefðu keypt
flugelda fyrir ótaldar milljónir
gamalla króna.
DB-mynd: Einar Ólason.
Hetrtu flugeldasalar voru að hafa
éhyggjur af þvi fyrir éramótín að
sala yrði minni í ér en endranær og
kæmi þar einkum tíi skammur
sökrtími og slæm veður. Ekki skal
fullyrt hér hvort éhyggjur flugelda-
Forsetinn útdeildi
fálkaorðum á
nýársdagað vanda:
Átján
fengu orðu
á brjóst
Vigdís Finnbogadóttir, forseti
íslands, sæmdi 18 íslendinga
heiðursmerki hinnar íslenzku
fálkaorðu á nýjársdag. Þeir eru:
Árni Kristjánsson píanóleik-
ari, stjörnu stórriddara, fyrir
störf að tónlistarmálum. Bjarni
Björnsson forstjóri, riddara-
krossi fyrir störf að félags- og
iönaðarmálum. Bragi Eiríksson
ræöismaður, riddarakrossi, fyrir
störf að útflutningsverzlun. Einar
Arnalds fv. hæstaréttardómari,
stjörnu stórriddara, fyrir embætt-
isstörf. Geir Kristjánsson Gigja
náttúrufræðingur, stórriddara-
krossi, fyrir rannsóknar- og
fræðistörf. Guðmundur Bene-
diktsson ráðuneytisstjóri, stór-
riddarakrossi, fyrir embættis-
störf. Ingibjörg Guðmundsdóttir,
riddarakrossi, fyrir listaverkagjöf
til Háskóla Islands. Jóhannes
Snorrason yfirflugstjóri, stór-
riddarakrossi fyrir störf i þágu
flugmála. Jón ívarsson fram-
kvæmdastjóri, riddarakrossi,
fyrir störf að félags- og atvinnu-
málum. Konráð Gislason
kompássmiður, riddarakrossi,
fyrir störf að öryggismálum.
MagnúsÁgústssonfyrrum héraðs-
læknir í Hveragerði, riddara-
krossi, fyrir líknar- og heilsu-
gæzlustörf. Magnús Gamalíels-
son framkvæmdastjóri á Ólafs-
firði, stórriddarakrossi, fyrir
störf að útgerðar- og atvinnumál-
um. Ólafur Björnsson prófesor,
stórriddarakrossi, fyrir embættis-
og fræðistörf. Ólafur Ólafsson
landlæknir, riddarakrossi, fyrir
embættisstörf. Sólveig Guðrún
Halldórsson hjúkrunarfræðing-
ur, riddarakrossi, fyrir líknar- og
hjúkrunarstörf. Stefán Reykjalín
byggingarmeistari á Akureyri,
riddarakrossi, fyrir störf að fél-
agsmálum. Sverrir Sigurðsson
fyrrum framkvæmdastjóri, ridd-
arakrossi fyrir listaverkagjöf til
Háskóla Islands. Þór Vilhjálms-
son hæstaréttardómari, riddara-
krossi, fyrir embættisstörf.
-ARH.