Dagblaðið - 29.01.1981, Síða 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1981.
Bréfritari vill ekki að við látum erlenda auðhringa hirða hagnaðinn af vatnsorkunni. Myndin er af álverinu í Straumsvik sem er f eigu Svisslendinga.
GRÍPUM GÆSINA
—meðan húngefst
Garðar Björgvinsson útgerðarmaður,
Raufarhöfn, skrifar:
Ætla mætti að einkunnarorð ^l-
þýðubandalagsmanna væru „betra er
illt að gera en ekkert”. Vegna þrýst-
ings frá þeim er svo komið að umsvif
varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli
hafa stórlega dregizt saman. Af-
leiðingarnar blasa nú við í formi at-
vinnuleysis á Suðurnesjum og land-
flótta.
Það er aðeins eitt sem alþýðu-
bandalagsmenn hafa unnið sér til lífs
að mínum dómi. Það er andstaða
þeirra gegn stóriðju. Mér fmnst það
vera nokkurt áhyggjuefni hve fólk
flýtur sofandi að feigðarósi í málefn-
um stóriðju hér á landi. Fagurgali
einstakra manna virðist ætla að
glepja fólk, en með erlendum auð-
hringum hér á landi er einungis verið
að dæma íslendinga um ókomna
framtíð til þrælkunarvinnu.
Það er ljóst að hinn nýi forseti
Bandaríkjanna, Ronald Reagan,
ætlar að efla varnarmátt NATO, þess
vegna eigum við að grípa gæsina
meðan hún gefst og leyfa Bandaríkja-
mönnum stóraukin umsvif hér á
landi gegn hárri leigu.
Við erum hvort eð er of lítil að af-
vopna heimsbyggðina. Til að halda
hernaðarjafnvæginu þarf að efla
NATO. Við þörfnumst fjármagns til
að beizla vatnsorkuna án þess að
selja landið í hendur erlendra auð-
hringa. Okkur vantar ekki færi-
bandavinnu fyrir æsku landsins eða
mengun lofts og lagar.
\tutt og skýr bréf
Enn einu sinni minna lesenJadálkar DB alla þá. er
hyggjast sencla þœttinum llnu. að lála fylgja fullt nafn. .
heimilisfang. símanúmer lefum þaó er aó rœóa) oy y
nafnnámer. Þetta er lltil fyrirhöfn fyrir hréfritara okkur
og til mikilla þœginda fyrir DB.
Lesendur eru jafnframt minntir á aó hréfeigu aó
rera stutt og skýr. Áskilinn erfuUur réttur til aó '
stytta bréfog umorða til að spara rúm og koma
efni betur til skila. Bréf œttu hélzt ekki aó vera
lengri en 200—300 orð.
Simatími lesendadálka DB er milli kl.
13 og 15 jrá mánudögum til fostudaga.
a ^ •*** 1 n
Hver var
Eiríkur Fjalar?
3075-6317 skrifar:
Við erum hérna nokkrir félagar í
smáþrætumáli sem við vonumst til að
einhver geti upplýst fyrir okkur. Það
er í sambandi við áramótasúpu sjón-
varpsins, sem var aldeilis stórkostleg
að okkar mati, en ágreiningur er um
hver lék Eirík Fjalar. Einn okkar
heldur því fram, að þarna haft farið
Róbert Sigurðsson forstöðumaður,
sem lítið eitt hefur fengizt við
skemmtanir, en við hinir segjum að
þetta haft verið hinn landskunni
Laddi.
Svar:
Samkvæmt áreiðanlegum heimild-
um var Eiríkur Fjalar leikinn af Þór-
halli Sigurðssyni, eða Ladda.
Spurning
dagsins
Lestu blöðin?
Arndis Þorsteinsdóttirskrifstofu-
stúlka m.m.: Já, ég les blöðin eftir því
sem ég hef tíma til, myndasögurnar og
auglýsingarnar.
Þórður H. Bergmann, prentari: Já,
það geri ég, alveg upp til agna.
Einar Slgfússon bankafulltrúi: Já, ég
gríp svona niður i eitt og annað.
. AskrHt?<w
EHt símtal,-eða miðann* í póst.
Þannig verður þú áskrifandi að Eiðfaxa: Hringir í síma (91)85111 eða
(91)25860. Þú getur líka fyllt út hjálágðan miða og sent okkur. Síðan
sjáum við um að þú fáir blaðið sent um hæl. Flóknara er það ekki.
* I
Eiðfaxi er mánaðarrit
um hesta og hestamennsku.
Vandað blað að frágangi,
prýtt f jöjda mynda.
EIÐh
Pósthólf 887 121 Reykjavik
Sími 8 5111/25860
Ég undirritaður/undirrituð óska að gerast áskrifandi að Eiðfaxa:
□ Það sem til er |—• |—. frá og með
af blöðum frá upphafi. I____I frá áramótum 80/81. |____| næsta tölublaði.
PÓSTNÚMER P
Eiðfaxi hóf göngu sina 1977 og hefur komið út mánaðarlega siðan.
Hvert eintak af eldri blöðum kostar nú 15 Nýkr.
Fyrrí hluti 1981, janúar-júní kostar 90 Nýkr.
Guðmundur Þorstelnsson verzlunar-
maður Ólafsfirði: Já, ég les þau blöð
sem ég næ I, allar merkilegar fréttir.
Þórunn BaJdvinsdóttir búsmóðlr: Já,
yfirleitt fletti ég blöðunum og les sumt.
Jóhanna Beinteinsdóttir. afgreiðslu-
maður: Ég fietti þeim, les alitaf
stjörnuspana og stundum mynda-
sögurnar.