Dagblaðið - 29.01.1981, Blaðsíða 18
18
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1981.
Spáö ar hægviöri vföast hvar á
landinu, bjart veflur á Noröur- og
Auaturlandi an vaxandi aunnanátt
vaatanlanda. Slydda aöa rign.'ng
þagar líöur á daginn. Vastanlands
mun hlýna seinnipartinn.
Klukkan 6 var austan 2, láttskýjafl
og —5 stig [ Raykjavlc; sunnan 4,
rigning og 5 stjg á Gufuskálum; sunn-
an 3, slydda og 1 stig á Galtarvits
suösuöaustan 1, léttskýjafl og -3
stig á Akureyri; sunnen 3, láttskýjafl
og —6 stig á Raufarhöfn; breytilag átt
2, skýjafl og 8 stig á Höfn; sunnen 2,
alskýjafl og —1 stig á Dalatanga; og
norflan 2 láttskýjað og 0 stig á Stór-
höffla.
( Þórshöfn var rigning og 9 stig,
súld og 2 stig ( Kaupmannahöfn,
þoka og —3 stig í Osló, þokumófla og
1 stig ( Stokkhólml, súld og 6 stig í
London, súld og 2 stig ( Hamborg,
heiflskirt og 0 stig ( París, haiflskfrt
og -4 stig í Madrid, hálfskýjafl og 12
stig í Lissabon, og abkýjafl og 3 stig (
New York.
Andlát
Magnús Magnússon rafmagnsverkfr.,
sem lézt 21. janúar, fæddist 2. október
1904 í Reykjavík. Árið 1934 tók hann
próf í rafeindafræði i Dresden í Þýzka-
landi og starfaði frá þeim tíma til ársins
1946 hjá Landssíma íslands. Frá
1946—52 starfaði Magnús við Raf-
tækjasölun hf. í Reykjavík. Síðan vann
hann hjá Landssímanum í nokkur ár,
einnig var hann í tvö ár hjá Hitaveitu
Rvk. Frá árinu 1962 rak Magnús eigin
verkfræðistofu. Árið 1929 kvæntist
Magnús Jónbjörgu Björnsdóttur, eign-
uðust þau 2 syni. Magnús verður
jarðsunginn í dag, 29. janúar kl. 13.30
frá Dómkirkjunni.
Arni Þórir Hall, sem lézt 21. janúar,
fæddist 19. marz 1922 í Reykjavík.
Foreldrar hans voru Ragnheiður K.
Árnadóttir og Niljónus Hall. Árni
stundaði nám í Verzlunarskóla íslands
og stundaði lengst af skrifstofustörf
hjá Vélaverkstæði Björns og Halldórs
en nú hin siðari ár hjá Vélsmiðjunni
Nonna. Fyrri kona Árna var Dóra Þor-
valdsdóttir og áttu þau 2 syni. Seinni
kona hans var Katrín Lárusdóttir og
áttu þau 3 börn. Katrín átti einn son
fyrir sem Árni ættleiddi. Árni verður
jarðsunginn í dag, 29. janúar kl. 13.30
frá Fossvogskirkju.
Þorgeir Bjarnason bóndi, Hærings-
stöðum Stokkseyrarhreppi, lézt í
Sjúkrahúsi Selfoss þriðjudaginn 27.
janúar.
Hallfríður Jóna Jónsdóttir, Meðalholti
8, verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju föstudaginn 30. janúar kl. 15.
Sigþór Karl Þórarinsson hreppsstjóri,
Einarsnesi, sem lézt 23. janúar, verður
jarðsettur að Borg á Mýrum laugar-
daginn 31. janúar. Útförin fer fram frá
Borgarneskirkju kl. 14.
Karólina Kristjánsdóttir, Vatnsnesvegi
25 Keflavík, lézt 27. janúar.
Jónína Kristjánsdóttir frá Þórshöfn,
Hvassaleiti 153, lézt að Hátúni 10B
þriðjudaginn 27. janúar.
Anna Guðmundsdóttir sem lézt i
sjúkrahúsinu á Húsavík 26. janúar
verður jarðsungin frá Húsavíkurkirkju
laugardaginn 31. janúar kl. 14.
Ragnheiður Ó. Stephensen, Greni-
grund 14 Kópavogi, verður jarðsungin
frá Dómkirkjunni föstudaginn 30.
janúar kl. 13.30.
Björn Jónsson fyrrverandi verkstjóri í
Landssmiðjunni sem lézt föstudaginn
23. janúar verður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju föstudaginn 30. janúar kl.
13.30.
Kveðjuathöfn um Jón Guðbrandsson,
Höfða Vatnsíeysuströnd, verður gerð
frá Fossvogskirkju 31. janúar kl.
10.30. Jarðarförin fer fram frá Kálfa-
tjarnarkirkju sama dag kl. 14.
Aðalfundir
Knattspyrnudeild
Víkings
heldur aðalfund sinn 30. jan.. kl. 20 i Félags
heimili Vikings v/Hæðargarð.
Kvenfélag
Árbæjarsóknar
Aðalfundur félagsins verður haldinn mánudaginn 2.
febrúar kl. 20.30. i Safnaðarheimilinu. Dagskrá:
Venjulcg aðalfundarstörf. Þorramatur á mjög vægu
verði. Mætið vel og stundvislega.
Kvenfélag
Háteigssóknar
minnir á aðalfundinn þriðjudaginn 3. Icbrúar kl. 20.30
i Sjómannaskólanum. Mætið vel og stundvislega.
Fundsr
IMeskaupstaður
Bahá'íar bjóða ibúum Neskaupstaðar til umræöufund
ar um bahá'í-trúna og ofsóknir á hendur bahá'ium i
Iran að Blómsturvöllum 15 föstudaginn 30. janúar kl.
20.30.
Bindindisfélag
ökumanna Reykjavik
Bindindisfélag ökumanna. Reykjavikurdeild lieldur
fund fimmtudaginn 29. jan. nk. i Templarahöllinni við
Eiríksgötu kl. 20.30.
SpiSakvöld
Kvenfélag Fríkirkjusafn-
aðarins í Reykjavík
Spila- og skemmtikvöld verður haldið fimmtudaginn
29. janúar kl. 20.30 að Hótel Sögu. Lækjarhvammi og
er það fyrir allt safnaðarfólk og gesti þess. Næsti
félagsfundur kvenfélagsins verður mánudaginn 2.
febrúar í Iðnó uppi.
Ferðaiög
Útivistarferðir
Flúðir, Hrunamannahreppi á fiistudagskvöld. Cióó
gisting. hitapottar. Gönguferðír. kvöldvaka. jxirra
blót. Fararstj. Jón I. Bjarnason. Farscðlar á skrifst.
Lækjarg. óA.simi 14606.
Alþýðubandalagið
Reykjanesi
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins i Reykjaneskjör
dæmi boðar til Opins fundar með Hjörleifi Gull
ormssyni iðnaðarráðherra um þróun iðnaðar á næstu
árum. málefni Álversins í Straumsvík og önnur
viðfangsefni rikisstjórnarinnar. Fundurinn verður
haldinn i Gúttó i Hafnarfirði i kvöld kl: 20.30.
Rangæingar
Rangæingar
Framsóknarfélag Rangárvallasýslu gengst fyrir .il
mennum fundi um skattamál i kvöld kl. 9 i FélagN
heimilinu Hvoli. Á fundinn mæta Halldór Ásgrims
son alþingismaður og Hálfdán Guðmundsson skatl
stjóri Hellu.
Hafnfirðingar-
Garðbæingar
Almennur fundur verður haldinn í Framsóknarheim
ilinu að Hverfisgötu 25 i kvöld kl. 20.30. Fundarefni:
Tómas Ámason viðskiptaráðherra ræðir um cfna
hagsráðstafanirnar og stjórnmálaviðhorfið.
Félag sjálfstæðismanna
í Laugarneshverfi
boðar til fundar með
umdæmafulltrúum
i kvöld kl. 20.30 I Valhöll. Háaleitisbraut I. Á fund
inn mæta Guðmundur H. Garðarsson. Gunnlaugur
B. Daniclsson og Davíð Oddsson. Umdæmafulltrúar
eru hvattir til að mæta stundvíslega.
Málfundafélagið Óðinn
heldur félagsfund i kvöld kl. 20.30 i Valhöll. Háaleitis-
braut 1. Fundarefni: Pétur Sigurðsson. alþingismaður.
ræðir um efnahagsráðstafanir ;ikisstjórnarinnar og
verkalýðsmál.
mr
I
GÆRKVÖLDI
„Þegiðu og haltu áfram að róa”
Fréttastofa sjónvarps fékk dálitla
umsögn i dálki þessum í gær og það
ekki að ófyrirsynju. Fréttir sjónvarps
hafa það umfram fréttir annarra fjöl-
miðla að þar talar myndmálið hvað
ljósast. Ein mynd segir meira en þús-
und orð, segir einhversstaðar, og
hvað má þá segja um kvikmyndina,
helzta og bezta tjáningarmáta sjón-
varpsins. Skrifari þessara lina átti því
láni ^ð fagna að starfa með starfs-
fólki á fréttastofu sjónvarpsins fyrstu
fimm árin, þegar sjónvarpið staul-
aðist á óburðugum barnsfótum inn í
íslenzkt þjóðlíf. Einhvern veginn
finnst mér að betur hafi oft tekizt til
við að glæða sjónvarpsfréttir lífi á
þeim tíma þegar fréttamennirnir voru
aðeins tveir og annað starfslið eftir
því. Á timum breyttrar fjölmiðlunar
og á meðan fréttastofa útvarpsins
hefur tekið marga góða spretti hefur
fréttamennska sjónvarpsins staðnað,
og ekki væri ástandið þar björgulegt
ef ekki væru þau Ómar og Frúin til
staðar, eins og fréttir af flóðunum á
Suðurlandi sýndu i gær, og frá skrið-
unni að Lundi á þriðjudaginn.
Hvað erlendar fréttir i sjónvarpi
áhrærir þá er von til þess að þær fái
væna vítamínsprautu þegar móttaka
á beinum sendingum á fréttafilmum í
gegum jarðstöðina Skyggni hefst,
væntanlega á þessu ári. Á meðan við
bíðum eftir því, verðum við að láta
okkur nægja svipuð svör og víkingur-
inn fékk frá svissnesku álfurstunum
„þegiðu og haltu áfram að róa!”
Önnur not mín af ríkisfjölmiðlun-
um í gær fyrir utan fréttir voru ekki
mikil. Ég greip niður í býsna
skemmtilegan þátt um vetraríþróttir.
Að þessu sinni sýndi sundkappinn
okkur hvernig maður ber sig að í
keppni á sleðum og viðurkenndi
hreinlega að hann varð skíthræddur á
sleðanum. Ég hefði orðið það líka.
Vöku og Vændisborg lét ég framhjá
mér fara, en hlustaði á Áfanga, sem
ávallt er jafn áheyrilegur þáttur, þrátt
fyrir að hann sé fyrir löngu búinn að
slíta barnsskónum.
Leifur Hauksson las í gærkvöldi
smellna smásögu um hjón sem lifðu í
dálítið sérkennilegum heimi, hann í
gömlum dagbókum en bún í heimi
martraða og dulspeki. Lipur saga
með óvæntum endalokum. Það er til
eftirbreytni að fjalla um höfundinn
og verk hans, eins og gert var á eftir
lestri sögunnar.
l tilkyimingar "
Nýr sendiherra
Belga á íslandi
Nýskipaður sendiherra Belgiu. hr. Jacques A.F.
Vermer afhenti 21. janúar forseta Islands trúnaðar
bréf sitt. Viðstaddur athöfnina var Ólafur Jóhannes
son utanrikisráðherra.
Síðdegis þá sendiherrann boð forseta að Bessa
stöðum ásamt fleiri gestum.
Holland,
land og þjöfl
Komin er út hjá bókaútgáfunni Bjöllunni bókin Hol
land, land og þjóð. Hún er fimmta bókin i flokknum
Oliuinnflutningur gæti þó minnkað um 25% og
hlutdeild oliu i orkunotkun landsmanna lækkaðofan i
34% ef upphitun húsa með olíu yrði úr sögunni og ef
jafnframt kæmi til sá sparnaöur sem tiltölulega
auðvelteraðná.
Orkuvinnsla norðlenzkra virkjana er' nú 183
GWh/ár (0.183 T.Wh/árl. en óvirkjuð vatnsorka á
Norðurlandi að frátalinni Jökulsá á Fjöllum er talin
um 2900 GWh/ár.
Varðandi Blönduvirkjun kom fram að bráðlega
hefjast fundahöld fulltrúa svcitastjóma beggja vegna
Blöndu og Rafmagnsveitna rikisins. sem er virkjunar
aðili fyrir hönd stjórnvalda.
Framleiðslukostnaður raforku i nýjuni virkjunum
hér á landi er nú um II aurar lll gkrl á hverja
kilówattstund. Til samanburðar má nefna. að i Banda
rikjunum er sama orkueining scld á 15 aura til orku
freks iðnaðar.
Þetta sýnir að Island hefur nokkurt forskot hvaö
varðar verð raforkunnar og talið er. að þar scm unnt
er að nýta orku jarðhitans sé forskotið enn meira.
Samkvæmt athugunum. sem gerðar hafa verið á
mögulegum nýjum framleiöslugreinum orkufreks
iðnaðar. er framleiðsla kisilmálms mjög álitleg.
Framleiðsla þessi er á margan hátt mjög hliðstæð
kisiljárnframleiðslu. sem fer fram á Grundartanga.
Eftirspurn eftir kisilmálmi fer nú mjög vaxandi en
75% hans er notaður i álblöndur. Aðalhráefnið cr
kvartz. sem flutt er út frá Portúgal og virðist vænlegt
að leita eflir kaupum á þvi þaöan. með viðskiptahags
muni vegna saltfisksútflutnings í huga.
Aðrir möguleikar á nýjum orkufrekum iðnaði. sem
athugaðir hafa verið. eru eldsncytisframleiðsla.
magnesíumframleiðsla. vinnsla á natriumklórati.
pappirsvinnsla og framlciðsla á þungu vatni.
Vorið 1979 skilað samstarfsnefnd um iðnþróun
skýrslu til Iðnaðarráðuncytis og komst aö þeirri niður
stöðu um stóriðju að gera eigi á raunsæjan hátt ráð
fyrir þætti stóriðju i uppbyggingu atvinnulifs i
landinu. Hvatti nefndin til. að lcitað vcrði lciða til að
nýta auðlindir landsin's með þeim kostum. sem stór-
rekstri fylgja. og sem samræmst geta þjóðfélagslegum
‘markmiðum og viðtæk samstaða getur tekizt um.
Jónina Guðrlður Þórhallsdóttir, sem
dvelst nú á Hrafnistu, Hafnarfirði,
verður 90 ára i dag, 29. janúar. Hún
tekurámótigestumídagfrákl. 15—19
hjá einu barnabarna sinna í JM-húsinu
við Hringbraut i Hafnarfirði.
Úlfar Karlsson, Eskihlíð 12. er 85 ára i
dag. 29. janúar. Hann tekur á móti gest-
um i Domus Medica sunnudaginn 1.
febrúar frá kl. 15—17.
iFÍSNAR-félagar
Þorrablótið verður haldið 31. janúar i Snorrabæ kl.
19. Þátttaka tilkynnist til Andreu. s. 84853. Sigur
bjargar. s. 77305 cða Bergþóru. s. 78057 fvrir 25.
janúar.
Landabækur Bjöllunnar. Áður eru út komnar Stóra
Bretland. Sovétríkin. Spánn og Frakkland.
I landabókum Bjöllunnar er m.a. rakinn uppruni
þjóða. stofnun ríkja. saga þeirra og siðir.-iþrótlir og fri
stundaiðkan. atvinnuhættirog áh;if þerra á samfélag
þjóða. Frásagnir og lýsingar eru knappar. en þó yfir-
gripsmiklar og styðjast mjög við myndir. þ.á m. fjölda
litmynda. Mörg kort og töflur cru i hverri bók lesanda
til frekari glöggvunar.
Höfundur Hollandser Frank E. Hugget. en Ingi Karl
Jóhannesson hefur þýtt bókina á íslenzku. Hún er 64
blaösiður i allstóru broti. Bókin var prcntuö i Bret
landi. en Prentstofa G. Benediktssonar annaðist setn
ingu. umbrot og filmuvinnu.
Ráflstefna um orkubúskap
og orkufrekan iðnað
Ráðstefna um orkubúskap og orkufrekan iðnað var
haldin 16. og 17. jan. sl. á vegum iðnþróunar- og
orkumálanefndar Fjórðungssambands Norðlendinga.
Hér verða rakin nokkur atriði sem fram komu á
ráðstefnunni.
Árið 1979 var 44% af þetrri orku. sem Islendingar
notuðu. fengin úr olíu. 38% úr jaröhita og 18% var
vatnsorka. Stærsti hluti orkunnar fór til húshitunar. j
eða 45%, 29% fór til iðnaðar og 11% til samgangna.
Þrátt fyrir að 44% orkunnar sé innflutt hafa aðeins
5—10% nýtanlegra orkulinda landsins verið nýttar. I
því sambandi þarf þó að hafa i huga að 55% af oliunni
er notuð við fiskveiðar og i samgöngum. og þar verður
vart öðrum tegundum orku viðkomið.
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING Nr. 19 — 28. janúar 1981 Ferðamanna- gjaldeyrir
Eining ki. 12.00 ■Kaup Sala Sala
1 Bandaríkjadoliar 0,230 8,248 6^73
1 Steriingspund 14,988 15,031 16534
1 Kanadadollar 5,219 5,234 5,767
1 Dönskkróna 0,9714 0,9742 1,0716
1 Norsk króna 1,1526 1,1560 1,2716
1 Sœnskkróna 1,3680 U720 1,5092
1 Finnskt mark 1,5820 1,5866 1,7453
1 Franskur franki U979 1,3017 1,4319
1 Belg. franki 0,1866 0,1871 0,2058
1 Svissn. franki 3,3088 3,3181 3,6499
1 Hollenzk florina 2,7536 2,7015 3,0377
1 V.-þýzktmark 2,9907 2,9994 33993
1 (tölsklíra 0,00630 0,00632 0,00695
1 Austurr. Sch. 0,4214 0,422» 0,4649
1 Portug. Escudo 0,1134 0,1137 0,1251
1 Spánskur peseti 0,0760 0,0762 0,0838
1 Japansktyen 0,03066 0,03074 0,03381
1 (rsktpund 11,200 11,232 12356
SDR (sórstök dróttarréttindi) 8/1 7,8402 7,8029
* Breyting fró siflustu skróningu. Simsvari vegna gcmgisskráningar 22190.