Dagblaðið - 29.01.1981, Blaðsíða 11
t
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1981. 11
> . . i
Uppsagnir starfsmanna í Súkkulaðiverksmiðjunni Lindu á Akureyri voru
„Uppsláttarvitleysa í Mogga”
—ekki umtalsverður samdráttur í janúar - en mér lízt verr á febrúar,” segir forst jórinn
„Starfsmenn í verksmiðjunni eru
17 faerri en i j anúar í fyrra, sem stafar
af þvi að menn hafa hætt og aukinn
vélarkostur komið í staðinn. Að ég
hafi sagt upp þessu fólki er bara upp-
sláttarvitleysa í Mogganum sem
Pétur sjómaður studdist svo við í
þinginu. Ég hef ekki sagt upp nokkr-
um manni síðan ég byrjaði hér
1948,” sagði Eyþór H. Tómasson
forstjóri í súkkulaðiverksmiðjunni
Lindu á Akureyri þegar Dagblaðið
spurðist fyrir um starfsmannahald í
fyrirtækinu. Tilefnið var orðaskipti
þingmanna á Alþingi þar sem annars
vegar því var haldið fram — og
vitnað til Morgunblaðsfréttar sl.
laugardag — að vörugjald ríkis-
stjórnarinnar hefði orsakað samdrátt
i sölu framleiðsluvara Lindu og þess
vegna hafi 17 starfsmenn fengið
„reisupassann”. Þessari fullyrðingu
var mótmælt sem ósannri af öðrum
þingmönnum og því þótti tilefni til að
spyrja forstjóra Lindu sjálfan hvað
rétt væri í deilunni.
Eyþór sagðist ekki sjá fram á að
tilfinnanlegur samdráttur yrði í fram-
leiðslunni í yfirstandandi mánuði
samanborðið við janúar 1980, „en
mér lízt verr á febrúar.” Forstjórinn
gerði skattheimtu ríkisins að umtals-
efni og sagði fyrirtæki á borð við
Lindu vera orðin „innheimtustofn-
anir fyrir ríkið”. Vörugjaldið hafi
verið „allt of stórt stökk” og ekki
myndi ástandið batna, ef fyrirtæki
þyrftu að skila vörugjaldinu á 2ja
mánaða fresti í stað 3ja mánaða eins
og nú er, á sama tíma og viðskipta-
menn fengju vörurnar á 60—70 daga
víxlum.
-ARH
Kerfið er frumstætt en gerir sitt gagn. Siangan er lcidd niður 1 vaskinn, þannig að
vatnið fer rétta boðleið. DB-mynd Bjarnleifur.
Iðnskóli Hafnarf jarðar:
Vatnsslöngur taka
við lekanum og
leiða ívaskana
ÞORRA BLÓTAÐ BAKI
BROTNU Á ESKIFIRDI
— matvælaráðherrann gleymdi ekki að leggja hrútspungana í súr
Sérkennilegum búnaði, en þó
nauðsynlegum, hefur verið komið upp í
Iðnskóla Hafnarfjarðar. Leki mikill
hefur lengi hrjáð þá sem starfa í skóla-
húsinu, en um þverbak hefur keyrt nú
síöustu daga. Rigningarvatnið hefur
bunað beintniður.
Því var komið fyrir vatnsslöngum
uppi í loftinu og þær leiddar niður í
vaska skólans. Heldur frumstaeður
búnaður en gerir sitt gagn. Jafnframt
voru skúringafötur og klútar í brúki til
þess að þurrka upp það sem fór á
gólfið.
„Þetta er vandamál eins og gengur í
húsum, sem eru með pappa á þaki,”
sagði skólastjóri Iðnskólans í gær.
„Það er þó verið að undirbúa viðgerð á
þessu og peningar eru fyrir hendi á fjár-
hagsáætlun. Bæjarverkfræðingur
ákveður hvað gert verður til úrbóta.
Þessar slöngur sem settar voru upp eru
til þess að vernda gólfið.”
Eskfirðingar héldu þorrablót sitt á
laugardagskvöldið. Hófst það með
borðhaldi þar sem 320 gestir sátu undir
matarmiklum borðum. Sigurður
Sæmundsson deildarstjóri í matvöru-
deild Pöntunarfélagsins og matvæla-
ráðherra Eskfirðinga sá um að kaupa
og útbúa allan mat. Reyndist hann
góður, ekta þorramatur. Súrmeti var
gott, en oft vill gleymast að súrsa
lundabagga, hrútspunga og fleira sem á
að vera súrt.
Margt var til skemmtunar: Úlfar
Sigurðsson söng vísur eftir Þorbjörgu
Eiriksdóttur um fólkið í undirbúnings-
nefnd blótsins. Gunnar Finnsson flutti
annál ársins, áheyrilegur lesari sem
fyrr. Gunnar minnir mig á Helga heit-
inn Hjörvar. Helgi las Bör Börsson, þá
ómerkilegu bók, í útvarp og aðeins þess
vegna fannst flestum hún skemmtileg
og jafnvel merkilegar bókmenntir.
Hjónin Margrét Sveinsdóttir og
Guðmundur Óskarsson, auk Þórhalls
Þorvaldssonar, stjórnuðu fjöldasöng
undir borðum og tókst það Ijómandi
vel. Gaisi var kominn í mannskapinn
og allir tóku undir sönginn. Það er ekki
sama hvernig stjórnað er fjöldasöng.
Þá var spurningaþáttur þar sem þrenn
hjón voru látin svara. Fyrst konurnar,
sem fengu spurningar um hvar þær
hafi fyrst hitt mannsefni sín, hvað körl-
unum þætti bezt að fá að borða og
hvað skemmtilegast að gera. Síðan
fengu eiginmennirnir sömu spurningar
og ekki pössuðu nú svörin alltaf
saman! Af því varð mikill hlátur.
Jón Ólafsson lögregluþjónn flutti
stutt og laggott minni þorrans. Gestir
blótsins voru prestshjónin Brynhildur
Sigurðardóttir og Sigurður H. Guð-
mundsson úr Hafnarfirði. Þau fluttu
frá Eskifirði fyrir 4 árum. Blótsstjóri
var Hafsteinn Guðvarðarson. Á efdr
var dans til kl. 4 þar sem hljómsveit
Árna ísleifs frá Egilsstöðum sá um
fjörið.
Eskifjörður:
Miklir
umhleyp-
ingar
Fjögur loðnuskip komu til
Eskifjarðar á þriðjudagsmorgun.
Með afla þessara skipa hefur
loðnubræðslan tekiö við 8—9
þúsund lestum af loðnu frá ára-
mótum. þá var 650 Jestum skipað
út af loðnumjöli.
í fyrradag var 13 stiga hiti á
Eskifirði og þurrkur afsuðvestri
Mönnum bregður því við frá
frostunum sem áður voru. Um-
hleypingarnir eru miklir. Hitan-
um fylgdi mikil hláka. Tvær
konur hafa beinbrotnað hér á
svellbunkum. Eldra fólk ætti ekki
að fara út, nema á góðum brodd-
um.
- Regina, Eskifirfli.
8 hjón og einhleypur piltur og ein-
hleyp stúlka voru að venju í undirbún-
ingsnefnd. Komið hefur fyrir að ein-
hleypingarnir í þorrablótsnefndinni
yrðu síðar hjón og þess óskaði blóts-
stjórinn einnig nú. Ég dáist að því
hvernig fólkið sem vinnur að undirbún-
ingnum getur skemmt fólki ár eftir ár
með nýrri og nýrri dagskrá. Engir
lærðir skemmtikraftar koma fram.
Þarna er þó grátið úr hlátri á sama tíma
og menn brosa varla að áramótaskaup-
um sjónvarpsins sem kosta offjár. —
- Regína, Eskifirfli.
TRÉSMIÐIR -
VERKAMENN
Trésmiðir óskast strax í innréttingasmíði. Einnig verka-
menn vanir byggingavinnu. Uppl. i síma 71730 — 71699.
Kvöldsími 23398.
Reynir hf., byggingafélag
Smiðjuvegi 18, Kóp.
AUGLÝSING
Staða heyrnarfræðings (sérkennara sérmenntaðs í heyrnar-
kennslu) er laus til umsóknar við Heyrnar- og talmeinastöð
Íslands.
Staðan veitist frá l. apríl 1981.
Umsóknarfrestur er til l. marz nk.
Umsóknir sendist
stjórn Heyrnar- og talmeinastöðvar íslands,
Háaleitisbraut 1 Reykjavík,
pósthólf 5265. Simi 83855.
KS FURUNÁLAFREYÐIBAÐ
jafn ömissandi
Símar 12800 og 14878.
-JH.