Dagblaðið - 29.01.1981, Side 14
14
£
Iþróttir
Iþróttir
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1981.
[ e j i-í .
1Í1
DAGBLADIÐ. FIMMTUDAGUR 29. JANUAR 1981.
K2
15
rottir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
D
Leicester steinlá í Exeter
Bikardraumur Leicester fékk snögg-
an endi 1 gær er liðið steinlá fyrir 3.1
deildarliðinu Exeter, 1-3 á útivelli. Það
var Tony Kellows sem var hetja smá-i
liðsins. Hann skoraði öll mörk þess.
McDonald jafnaði fyrir Leicestet1 á 57.
mín. en 5 mín. síðar hafði Kellow
komið Exeter yfir. Hann skoraði þriðja
markiöá87. mín.
Heimsmet
Tékkneska konan Jarmila Kratoch-
vilova stórbætti heimsmet sitt innan-
húss i gær i 400 m hlaupi á móti i
Vinarborg. Hljóp á 49,69 sek. Eldra
heimsmetið var 51,02 sek.
Lánið lék ekki við vesalings Enfield.'
Rúmlega 27.000 manns fylgdust með
leik iiðsins og Barnsley á White Hart
Lane. Trevor Aylott kom Barnsley yfir
snemma í leiknum og síðan bætti Tony
Galvin öðru marki við á 60. mín. í kjöl-
farið fylgdu tvö sláarskot og eitt
stangarskot hjá Enfleld. en inn vildi
boltinn ekki. Á iokasekúndum leiksins
bætti Aylot þriðja markinu við, 3-0.
Bristol City malaði Carlisle óvænt,
5-0. Tom Ritchie kvaddi með tveimur
mörkum og lagði það þriðja upp. Hann
heldur á morgun til liðs við Sunder-
land, sem gekk frá kaupunum á honum
í gær á 200.000 pund. Nýja liðið hans,
Sunderland, gerði sér lítið fyrir og
sigraði Manchester United 2-0 á Roker
Páll Pálmason, hinn síungi mark-
vörður Eyjaliðsins í knattspyrnu var í
gærkvöld útnefndur íþróttamaður árs-
ins 1980 í Eyjum. Það er Rótaryklúbb-
ur Vestmannaeyja er útnefnir íþrótta-
mann ársins og var þetta í þriðja sinn er
sú útnefning fór fram. Páll er vel að
þessari viðurkenningu kominn. Hann
hefur verið í eidiinunni í knattspyrn-;
unni allt frá árinu 1962, er hann léki
fyrst með meistaraflokki ÍBV, þái
aðeins 17 ára gamall. Hann hefur tví-
vegis orðið bikarmeistari með ÍBV-iið-'
inu, 1968 og 1972, og varð að sjálf-
sögðu einnig f slandsmeistari með liðinu
1979 er Eyjamenn unnu langþráðan
sigur. Páll lék í landsliðinu árið 1969 —
gegn Bermúda, og hefur að auki leikið
nokkra leiki með íslenzkum úrvals-
liðum gegn erlendum liðum. Páll er nú
35 ára gamall og er kvæntur Guðrúnu
Guðjónsdóttur og eiga þau tvo drengi,
5 og 14 ára.
-FÓV.
Park í 1. deildinni í gærkvöld. Þeir I Við sigurinn færðist Sunderland upp
Chisholm og Rowell skoruðu mörkin.1 | um 5 sæti í 1. deildinni.
PÁLL BEZTUR í EYJUM
vnm
5. tbl. 4.3. ári>. 29. jan. 1981.
Vcró 18 inkr.
IMóvv V »*i 1«
8 iiis ijoU
/lUimai
Klijhbtiiiinlokn
Manntalið-
hvað er þðð?
Snzy Quatro
i miiTri Vikir
2000 m tinriif
jnrOiimi
«>«j íitlii í Immii
Stæltir vöðvar
Líkamsrækt til
betri heilsu 09
að halda línun
um i ia(}i
Tapílandsleikn
um við Frakka
ígærkvöld, A
21-22:
iTi 7
VIII
ÍSLENZKA LANDSLIÐIÐ
ALGJÖRLEGA ÓMÓTAÐ 3
UM FYRIR B-KEPPNINA
íslenzkur handknattleikur varð fyrir
áfalli í gærkvöld í fjölum Laugardals-
hallarinnar. Tap i fyrsta landsleiknum
við Frakka — af þremur — 21-22. All-
an aga skorti i leik islenzka landsiiðs-
ins. Stjórnlaust og inn i það fléttaðist
að fslenzku strákarnir höfðu áreiðan-
lega talið leikinn létt unninn fyrirfram.
Svo þegar i óefni var komið var ekki
hægt að snúa dæminu við. Áhugaieysi
lengsturn og máttarstólpar liðsins náðu
sér aldrei á strik. Framan af hélt maður
að islenzka liðið mundi vinna sigur.
Frakkarnir langt frá þvf sterkir en þeim
óx kraftur eftir þvi sem á leikinn leið.
Sjálfsöryggið varð ráðandi þáttur i
leik þeirra, þegar f ljós kom, aö
Frakkar gátu sigrað.
Varnarleikur íslenzka liðsins var
dapur nær allan leikinn og af því mót-
aðist nokkuð markvarzlan. Frakkar
eiga allgóðar langskyttur og flest
marka þeirra voru skoruð með góðum
langskotum.
Eftir þessi úrslit í gær fer ekki hjá
því, að möguleikar íslands til að standa
sig í B-keppninni í Frakklandi virðast
litlir. fslenzka landsliðið er algjörlega
ómótað ennþá. Furðulegt að liðið skuli
ekki endanlega skipað aðeins þremur
vikum fyrir heimsmeistarakeppnina.
Enn eru þama ldkmenn, sem lítíð erindi
eiga til Frakklands. Ef ekki verður
gjörbreytíng á leik íslenzka liðsins í
þeim tveimur leikjum, sem það á eftir
að leika við Frakka — á föstudag og
sunnudag — er litlar vonir hægt að
gera í B-keþpninni. Það verður erfitt að
vinna Frakka á þeirra heimaslóðum svo
dæmi sé tekið. í hópnum franska hér
eru 13 leikmenn, sem munu leika í B-
keppninni.
Fáum leikmönnum islenzka liðsins
verður hælt fyrir frammistöðuna í gær.
'Helzt að Bjarni Guðmundsson gerði
góða hluti en átti einnig sínar villur.
Axel Axelssyni urðu ekki á margar
villur en var ekki afgerandi í leik sín-
'um. Sigurði Sveinssyni brást skotfimin
að þessu sinni. Skoraði aðeins úr vít-
um. Sama má einnig segja um Þorberg
Aðalsteinsson — ekki hans skotdagur.
Rétt er að taka fram, að þeir Sigurður
og Þorbergur voru í mjög strangri
gæzlu.
Frakkarnir virtust ekki sterkir fyrstu
mínútur leiksins en þó tókst þeim að
halda alveg í við íslenzka liðið. Allar
jafnteflistölur upp í 7-7 eftir 17 mínút-
ur. Þá loks hristi íslenzka liðið af sér
slenið og náði þriggja marka forustu.
Þrjú mörk í röð. Axel tvívegis, annað
úr víti, og síðan skoraði Bjarni gott
mark eftir hraðaupphlaup. Liðin skipt-
ust á að skora það sem eftir var hálf-
leiksins. 12-10 fyrir fsland í hálfleik.
Upphafsmfnútur síðari hálfleiks
voru skemmtilegasti kafli leiksins.
Frakkar skoruðu fyrsta markið.
Sigurður kom fslandi í 13-11 úr víta-
kasti. Aftur skoruðu Frakkar en síðan
sveif Bjarni inn úr horninu og fékk
sendingu frá Sigurði. Skoraði glæsi-
lega. Frakkar léku sama leik hinum
megin — svifið inn úr horninu. Sending
óg skorað — og Frakkar náðu aftur
fallegri fléttu frá miðjunni, en Kristján
Sigmundsson varði með tilþrifum.
Eftir þessar sýningar kom ljótur
kafli hjá íslenzka liðinu. Frakkar
skoruðu fjögur mðrk i röð. Breyttu
stöðunni úr 15-13 fyrir ísland í 17-15
fyrir Frakkland á 43. mín. Ljót mistök
áttu sér stað og sökudólgarnir voru
margir. En smám saman vann fsland
upp muninn. Þorbergur jafnaði í 18-18
og maður hélt að íslenzka liðið mundi
'snúa leiknum sér í hag. En það var
öðru nær. Eftir að staðan hafði verið 1
19-19 skoruðu Frakkar tvö mörk.
Gerðu út um leikinn 21-19 og aðeins
rúm mínúta eftir. Sigurður skoraði úr
víti, þegar 37 sek. voru til leiksloka, 20-
21 og leikið maður á mann þær sek-
úndur, sem eftir voru. Hvort lið.
skoraði eitt mark. Michel Cicut, sem
lítið hafði leikið 1 franska liðinu,
skoraði tvö síðustu mörkin fyrir lið sitt.
Mörk íslands í leiknum skoruðu:
Bjarni 5, Sigurður 5/5, Stefán Hall-
dórsson 3, Axel 3/1, Þorbergur 3/1,
Páll Björgvinsson 1 og Brynjar Harðar-
son 1. Mörk Frakka skoruðu Geoffroy
6, Serinet 5, Germain 4/3, Cailleaux,
Curial og Cicut tvö hvor, Casagrande
.1.
Dómarar voru Danirnir Pelle
Tomansen og Steen Andersen. Það var
ekki hægt að kvarta undan dómgæzlu
þeirra. Ef nokkuð var voru þeir
íslenzka liðinu hagstæðir. ísland fékk
■átta vítaköst. Sjö nýtt. Axel mistókst
tað skora úr einu. Frakkar fengu þrjú
vítaköst. öll nýtt. Tveimur leikmönn-
;um íslands var vikið af velli í tvær
mínútur, Þorbirni Guðmundssyni og
Þorbergi. Þremur Frökkum, Cailleaux,
Geoffroy ogCurial. -hsím.
42% nýting íslökum leik
Þrátt fyrir hið óvænta tap fyrir
Frökkunum í gær og slakan leik lands-
liðsins náðist engu að síður 42%
sóknarnýting. fslenzka liðið fékk 50
sóknir og skoraði 21 mark. f þessum 50
sóknum voru 37 skot, en eigi sjaldnar
en 13 sinnum töpuðum við knettinum
— þar af 10 sinnum vegna rangra send-
inga.
Nýting einstakra leikmanna fer
hér áeftir. Fyrst kemur fjöldi skota, þá
skoruð mörk, síðan hversu oft menn
glötuðu knettinum og Ioks fískuð víti.
SigurðurS. 10 5 1 1
Stefán H. 6 3 2 3
Bjarni G. 7 5 0 1
Þorbergur 6 3 2 0
Axel 4 3 10
Brynjar 2 111
PállBj. 113 0
Jóhannes 0 0 12
Steindór 10 10
KristjánS. 0 0 10
Þorbjörn G. 0 0 0 0
| ' Kristján varði 4 skot — Einar sömu-
leiðis.
Slakt hjá Grikkjum
Grikkland sigraði Luxemborg 2-0 f gær i Salonica I 5. riðli
Evrópu f heimsmeistarakeppninni i knattspyrnu. Grikkir skor-
uóu bæði mörk sin f fyrri hálfleik — Kouis á 8. mfn. og Kosti-
kos á 38. min. Áhorfendur 14 þúsund.
Bjarni Guðmundsson var bezti maður
ísl. liðsins f gær en þama brást honum
bogalistin. Reyndi að vippa knettinum
yflr Marcel Merland en tókst ekld. Þá
voru 10 min. til leiksloka og staðan 18-
17 fyrir Frakkland.
DB-mynd Einar Ólason.
„Það nýtur sín í fallegu umhverfi EVRÓPUEFNIÐ frá Johan Rönning hf.“
Enda hafði kaupandinn glöggt auga fyrír listrænum munum og
vissi hvað hentaði best við aðra húsmuni. T.d. við bronspottinn
undir blómið frá ömmu, styttuna frá starfsfélögunum og mál-
verkið sem keypt var fyrir stuttu.
Já, konan keypti svo sannariega inn fyrír heimilið.
Ekki bara matvæli.
Hún hafði aldrei ve': því fyrír sér fyrr en daginn sem hún sá
EVRÓPUEFNIÐ á vegg við hliðina á litríku málverki og
fögrum munum, hve þýðingarmikið það er að hafa allt í sam-
ræmi. „Glöggt er ge: s augað“ segir máltækið.
EVRÓPUEFNIÐ ei nýja línan sem hentar flestum heimilum
og býður valmöguleika í útfærslum á rofum, tenglum og ljósa-
stillum.
EVRÓPUEFNIÐ er auðvelt í meðförum og hannað með það
fyrir augum að vera yndisauki á vegg.
EVRÓPUEFNIÐ fæst hjá rafverktökum og í flestum raf-
tækjaverslunum.
Næst þegar innkaup eru gerð fyrir
heimilið ættu flestir að hafa á bak við
eyrað: „Það nýtur sín í fallegu umhverfi
EVRÓPUEFNIÐ frá
Johan Rönning hf.“
w^FISnng
51 Sundaborg
HF. Síml 84000-104 Reykjavfk
ÍSLENDINGAR
ERIIENN BETRI
— en við vonumst til að komast fram
úríB-keppninni
„Ég er himinlifandi með sigurinn i kvöld,” sagði liðsstjóri
franska liðsins, Michel Germain, er við hittum hann að máli
eftirleikinn. „Það er alltaf gaman að sigra i landsleikjum —
ekki sfzt á tslandi. Þá er ég ánægður með liðið, sem er ný-
komið úr erfiðum æfingabúðum f Búlgariu og leikmenn eru þvi
treyttir.”
Höfðuð þið stúderað islenzka liðið eitthvað fyrir leikinn?
„Nei, ósköp lítið. Við höfum heyrt af þeim Sveinssyni og
Aðalsteinssyni af afspurn og ég lét mína menn vera á varð-
bergi gagnvart þeim. Ég er sérstaklega ánægður hvernig þeim
tókst að gæta Sveinssonar. Af islenzku leikmönnunum fannst
mér Guðmundsson vera beztur — geysilega skemmtilegur
hornamaður.”
Er þetta bezta lið ykkar?
„Já, við erum með okkar bezta lið að þremur mönnum und-
anskildum, sem ekki áttu heimangengt. Þeir verða allir með í
B-keppninni heima í febrúar. Um möguleika okkar gegn
tslandi þar? Við höfum alltaf talið lslendinga vera okkur
fremri á handknattleikssviðinu og ég er enn þeirrar skóðunar.
Hins vegar höfum við verið að þoka okkur upp að hlið þeirra
undanfarin ár og vonandi förum við fram úr í B-keppninni.”
-SSv.
VIDHÖFUM
ENGA AFSÖKUN
— sagði Hilmar Björnsson
brúnaþungur eftir leikinn í gærkvöld
„Þetta var engan veginn nógu gott, en við höfum ekkert til
að afsaka okkur með,” sagði landsliðsþjálfarinn, Hilmar
Björnsson, brúnaþungur eftir tapið f gærkvöld. „Það vantaði
alla samstöðu, barátta var ekki til, yfirvegun var engin og leik
menn léku yfirhöfuð ekki eins og þeir geta bezt — fjarri þvf.”
Varstu ánægður með einhverja þætti?
„Nei, því er fljótsvarað. Það vantaði allt í þetta hjá okkur.
Vörnin var stöð og markverðirnir áttu slakan dag. Ég er
óánægður með hvernig langskyttur þeirra fengu að leika laus-
um hala en tel að markverðirnir hefðu átt að hirða mörg þess
ara skota. Ég held að hver leikmaður verði að svara fyrir sig
— það þýðir ekki fyrir mig að reyna að svara íyrir leikmenn.”
Kom franska liðið þér eitthvað á óvart?
„Nei, þetta er mjög svipað lið og þeir hafa verið með und-
anfarin ár. Lið, sem við eigum hæglega að vinna — jafnvel á
þess eigin heimavelli,” sagði Hilmar.
- SSv.