Dagblaðið - 29.01.1981, Page 16
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1981.
Hallnrimur Marinósson horfir um öxI.
Rifjuð upp liðin tíð
í Dagsbrúnarafinæli
Fyrstu hljómleikar
Fræbbblanna á þessu ári
— að Hótel Borg í kvöld
Ágúst er einn
með prókúru
Alþýðuflokksins
Alþýðuflokkurinn tilkynnti það
nýlega í Lögbirtingablaðinu að Ágúst
Einarsson hafi tekið við prókúruum-
boði fyrir flokkinn og að jafnframt
væru öll eldri prókúruumboð aftur-
kölluð. Fróðlegt væri að vita, hvort
'Ágúst er ekki eini maðurinn í heimin
um, sem hefur einn prókúruumboð
fyrir heilan stjórnmálaflokk. Alla
vega hljóta þeir að vera fáir, sem
hljótaslíkaábyrgð.
Ágiat Bnmrtton sannaði strax
égœtí sht sam g/aldkmri, nýkjörinn
i fíokksþingi AJþýðufíokkskis I
rióvember. M gekk hsnn 6 milli
með peppakasse undan israeisku
Carmel súkku/aðikexi og safrieði i
fíokkssfóðinn.
„Ég hef ekki tekió vlxil I 20 ár," sagði sá gamli til vinstri á myndinni með
. mikilli áherzlu. „Þuð er allt spennt I botn". Þeir voru hressir þessir gömlu
kunningjar og voru aldeilis ekki að skqfa af skoðunum sinum.
DB-myndir: Siguróur Þorri.
Litt var yfir mönnum. Hér eru þeir Gunnar Thoroddscn forsoetisráðherra,
FJnar Olgeirsson, nqfhkunnur baráttqjaxl vcrkalýðs, og gamallfélagi I Dags-
brún.
Freabbbtamir i siðustu hijómieikum sinum á Hótel Borg.
DB-mynd: Sig. Þorri.
Jóhann
biður
fytir
Bótinni
Lítil og nett klausa í Degi á Akur-
eyri, skrifuð af Jóhanni Konráðssyni
söngvara, vakti athygli okkar.
Jóhann stílar hana til skipulagnefnd-
ar og orðrétt hljóðar hún svo:
„Þessi orðsending er frá innfædd-
um innbæingi („ekta Akureyringi”).
síðar búsettum á Oddeyri, en nú á
Brekkunni. Hann biður ykkur að
loka ekki Bótinni (Hafnarstræti)
fyrir bílaumferð, nema eins og verið
hefur í einstöku tilfellum (t.d. 17.
júní, jólaös o.fl.). En gera heldur vel
við götuna svo betra verði að aka
eftir henni. Gamla gatan þarf að vera
iðandi af lífi og umferð.”
Verkamannafélagið Dags-
brún hélt upp á 75 ára af-
mæli sitt í Lindarbæ sl.
sunnudag. Margt var um
manninn í Lindarbæ og var
létt yfir mannskapnum.
Þarna hittu menn gömlu
kunningjana, þá sem þeir
höfðu þolað súrt og sætt
með. Ráðherrar og verka-
menn sátu saman og ræddu
málin eins og gamljr félagar.
Þrátt fyrir að stjórn Dags-
brúnar hafi ákveðið að gefa
styrktarfélögum fatlaðra og
aldraðra fé það sem áætlað
var til hátíðarhalds í tilefni
afmælisins, þá voru veit-
ingar ríflegar, nóg kaffi og
kökur fyrir alla. - GSE
„Þetta verður aðallega kynning á
lögunum á plötunni okkar. Við
höfum ekki haft tækifæri til að æfa
mikið af nýju efni upp á siðkastið, en
það stendur til bóta,” sagði Val-
garður Guðjónsson söngvari
Fraebbblanna í samtali við blaða-
mann DB. Hljómsveitin verður með
hljómleika á Hótel Borg í kvöld.
Hljómleikarnir í kvöld eru hinir
fyrstu, sem Fræbbblarnir leika á á
þessu ári. ,,Það hefur ýmislegt staðið
í veginum fyrir því að við höfum
getað verið fyrr á ferðinni,” sagði
Valgarður, ,,próf í Háskólanum og
sitthvað fleira hefur tafið fyrir.
(Þegið þið þarna fyrir aftan.) Þú
tekur það svo fram að það kostar
bara 25 krónur inn á hljómleikana og
þeir standa frá níu til eitt. — Aldurs-
takmarkið? Ætli það sé ekki átján
ár.” -ÁT'
Þessi akJni heiðursmaður heitir Þórlindur Mognússon oger 73 ára að
aidri. Hann kom i afmæli Dagsbrúnar tH að hitta gömlu kunningjana.
Þórlindur bjó á Eskifirði þangað til fyrir 10 árum, þá fluttist hann tH
höfuðborgarinnar. Siðan hefur hann unnið hjá Eimskipafólagi íslands.
Nú hofur honum verið sagt upp vegna aldurs og kvíðir honn þvi að
honum muni leiðast aðgerðaleysið.
Hyggst bakka
umhverfis tandið
„Það er búið að bjóða okkur
nokkrar bifreiðategundir fyrir þetta
bakk um landið. Meðal annars getum
við fengið Austin herjeppa sem hefur
fimm gíra afturábak,” sögðu rit-
stjórar tímaritsins Samúels er þeir
voru spurðir um fyrirhugaða hring-
ferð Hallgríms Marinóssonar húsa-
smiðs. Hallgrímur ætlar að aka hana
afturábak.
FÓLK
Hugmyndin að þessu skringilega
uppátæki er ekki alveg ný. Hall-
grímur stakk því að Samúelsmönnum
síðla sumars, hvort blaðið vildi ekki
vera með í slíku sprelli. Hins vegar
komst hugmyndin ekki til fram-
kvæmda þá. Hallgrímur leggur því
ekki af stað fyrr en í maí.
Hallgrímur hefur möguleika á að
komast íheimsmetabók Guinnesfyrir
hringferðina. Þar er aðeins getið um
tvær afturábak ferðir, báðar frá
fjórða áratugnum. önnur var farin
um steypta vegi í Bandaríkjunum.
Hin var á lokaðri braut. Leið Hall-
gríms um þjóðvegi íslands þætti hins
vegar fullboðleg í hvaða rall sem er
— jafnvel þótt ekið væri áfram.
- ÁT
Elías vill
hreinsanir
á Tímanum
Jón Sigurðsson hyggst hverfa úr
ritstjórastól á Tímanum um sauð-
burðinn. Fátt áreiðanlegt heyrist um
hvað hann hyggst taka sér fyrir
hendur. Kári Jónasson varafrétta-
stjóri Útvarpsins var orðaður við
Timaritstjórn á dögunum, en nú er
það Elías Snæland Jónsson rit-
stjórnarfulltrúi á Vísi sem þykir
standa starfinu næst. I viðræðum að-
standenda Tímans við Elías Snæland
hefur komið fram að hann setur það
skilyrði fyrir ráðningu sinni, að
„hreinsanir” fari fram á Tímanum.
Með öðrum orðum að ritstjórarnir
Þórarinn Þórarinsson og Jón Helga-
son hætti líka. Á þessari kröfu Elías-
ar strönduðu viðræðurnar í bili
a.m.k.