Dagblaðið - 16.02.1981, Blaðsíða 2
lartd
allt
neuasoiuDirgoir:
KRISTJÁNSSON HF.,
Símar 12800 og 14878.
Scania LB
1976
til sölu / mjög
góðu standi. Selst
pall- og kranalaus.
Til sýnis hjá ísarn
h/f Reykjanesbraut
12. Sími 20720.
Nýkomið mikið
af varahlutum frá
F1 Amerícan
Motors
Sendum ípróstkröfu
MÁLUN
Laugavegi 118-Sími 22240
SOLUSKMINN ARNBERGI
ÍÁ
800 SELFOSS — P.O. BOX 60
SÍMAR 1685 - 1888
os. 1
Fyrir hús, skip, gróðurhús og aNar aðrar piptðagnlr, auðvelt i flutn-
ingum, aðeins 16 kg f handtösku.
ÞJÓNUSTA í ÞJÓÐBRAUT
Brýn þörf fyrír hús-
næði handa öldruðum
Gaðaiaadur skrifar:
Algjört neyöarástand ríkir í mál-(
efnum aidraðra. Ég er undrandi á þvi
að þeir sem fara með fjármál þjóðar-
innar skuli geta látið sem þeir viti
ekki af vandanum og geri ekkert.
í byggingu eru hús sem koma til
með að leysa einhvern vanda, það er
B-áima Borgarspítalans og hjúkrun-
arheimilið við Snorrabraut. Þessar
byggingar verða ekki tilbúnar nærri
strax.
Þar sem þörfín er brýn þá finnst
mér afsakanlegt að grípa til neyðar-
úrræða.
Kommissararnir í Framkvæmda-
stofnun hafa sýnt mikinn dugnað við
að útvega fé til byggingar húss yfir
Framkvæmdastofnun. Mætti ekki
úthluta þeim því verkefni að útvega
húsnæði fyrir aldraða með það yfir
höfði sér að annars kæmust þeir ekki
strp inn í nýja húsið.
Ég er næstum viss að þá yrði eitt-
hvaðgert fljótt.
Aðalfundur Flugleiða nóv. 1980.
Flugleiðir hirta
ríkisstjómina
Hluthafi skrifar:
Eins og alþjóð er kunnugt hefur
hinu fjárvana og stjórnvana fyrirtæki
Flugleiðir h.f. verið haldið á floti
fyrir tilstuðlan Tíkisins með ábyrgð-
um á rekstrargjöldum þess svo að Is-
lendingar mættu halda uppi nauðsyn-
legum samgöngum við umheiminn.
í ,,þakklætisskyni” fyrir veitta að-
stoð ríkisins hefur nú stjórn Flugleiða
„boðið” ríkisstjórninni að breyta
samþykktum Flugleiða þannig að
ríkissjóði verði heimilað að ,,til-
nefna” tvo menn í stjórn fyrirtækis-
ins til viðbótar þeim sem fyrir eru,
þannig að alls verði 11 menn í stjórn-
inni!
Þetta er gert á sama tíma og eftir
að hundruðum manna hefur verið
sagt upp störfum hjá félaginu og
samdráttur verið í rekstri þess á alla
lund!
Einhver hefði nú talið að eitthvað '
annað en fjölgun í stjórn þessa fyrir-
tækis væri mikilvægara.
En það er ekki nóg með það,
heldur sendir stjórn Flugleiða ríkis-
stjórninni bréf sem hljóðar upp á það
að ríkisstjórnin taki ekki þátt í kosn-
ingum, heldur tilnefni aðeins sína
menn og þar með búið!
Auðvitað er það ekkert annað en
bíræfni af stjórn Flugleiða að ætla
sér að fjölga í stjórn um tvo menn
þegar svo stendur á sem nú hjá félag-
inu. Til þess þarf að breyta sam-
þykktum og halda hluthafafund.
Það er ekki nema von að dagblaðið
Tíminn slái slikri frétt upp á forsíðu
eins og gert var hinn 11. þ.m. — þetta
er slík furðufrétt að hún er forsíðu-
efni.
Með því að fjölga stjórnarmönn-
um um tvo er stjórn Flugleiða ekki
bara að þynna út atkvæðarétt hlut-
hafa í félaginu heldur er hún að hirta
ríkisstjórnina eins rækilega og hún
getur eftir að hún (ríkisstjórnin)
hefur lagt sig fram um að koma þessu
fjárvana fyrirtæki til aðstoðar.
Auðvitað eiga hluthafar að sam-
einast um á hluthafafundi (þegar og
ef hann verður haldinn) að fella það
að stjórnarmönnum verði fjölgað og
krefjast þess að áfram verði 9 menn í
stjórn og þar af verði hinir tveir ríkis-
kjörnu fulltrúar.
Skynsamlegast væri þó að stjórn
Flugleiða segði öll af sér á einu bretti
og nýir menn tækju þar við stjórnar-
taumunum, því undir núverandi for-
ystu er fyrirtækið dauðadæmt og
gjaldþrota.
Vonandi er að væntanlegur hlut-
hafafundur í Flugleiðum hf. marki
tímamót í flugsamgöngum lands-
manna, því núverandi skipan í flug-
samgöngum er einungis boðberi vá-
legra tíðinda.
DAGBLADIÐ. MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1980
Hús Framkvæmdastofnunar rikisins við Rauðarárstfg.