Dagblaðið - 16.02.1981, Blaðsíða 16
16
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1980
- ■
:■
s *
■
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþrótl
Stenmark
tapaði
Bandariski skíðamaðurinn Phil
Mahre sigraði Ingemar Stenmark, Svi-
þjóð, á heimavelli þess siðarnefnda í
svigi heimsbikarsins í gær. Það var í
Áre og Mahre var 3/100 úr sekúndu
betri en Stenmark — eins og það tekur
mann að blikka auga. Phil Mahre er nú
aðeins 41 stigi á eftir Stenmark í stiga-
keppninni, þvi Stenmark fékk ekki stig
fyrir annað sætið í gær. Hefur hlotið
120 stig í svigkeppninni — fimm beztu
mót hans talin — og getur aðeins bætt
við sig stigum með þvi að sigra. Fær þá
fimm stig. Hámark í sviginu eru 125
stig. Mahre hefur 75 stig i svigkeppni
en tvö svigmót eru eftir i keppni heims-
bikarsins.
Það var merkilegt í sviginu í gær, að
eftir fyrri umferðina var Stenmark
aðeins í 9. sæti — Phii Mahre i því tí-
unda. Timar 49.51 og 49.52 sek. en
Vladimir Andreev, Sovétríkjunum, var
beztur á48.94 sek.
Phil Mahre var hins vegar beztur i
síðari umferðinni. Fékk samanlagt
1:34.36 min. en Stenmark varð annar á
1:34.39 mín.l! — Franz Gruber, Aust-
urríki, varð þriðji á 1:34.51 mín. og
Bengt Fjællberg, Svíþjóð, fjórði á
1:34.77 min. Þetta er fyrsti sigur Phil
Mahre í svigkeppni heimsbikarsins frá
1979.
í stórsvigi í Áre á laugardag hafði
Stenmark hins vegar algjöra yfirburði.
Sigraði á 2:40.96 mín. en fékk ekki stig
þar sem hann hafði áður sigrað i fimm
stórsvigsmótum heimsbikarsins. Alex-
ander Zhirov, Sovét,- varð annar á
2:42.43 mín. og Phil Mahre þriðji á
2:42.84 mín.
Eftir þessi mót er stigatala efstu
þannig: Stenmark 260 stig og getur
aðeins bætt við sig fimm til viðbótar ef
hann keppir ekki í bruni. Phil Mahre
hefur 219 stig og er eini maðurinn, sem
getur ógnað sigri Ingimars. Peter
Miiller, Sviss, er með 140 stig í þriðja
sæti. -hsím.
Njarðvík
í undanúrslitin
Ókrýndir íslandsmeistarar UMFN
stefna nú hraðbyri i annan eftirsóttasta
titil körfuknattleiksins, bikarinn, með
þvi að sigra KR-inga suður i Njarðvík í
gærdag með 83:72 — eru þar með
komnir i fjögurra liða úrslitin. Heima-
menn höfðu forustuna allan leikinn og
varð sigri þeirra aldrei ógnað þó svo
að Jón Sigurðsson léki með KR að nýju
eftir nokkra fjarveru vegna meiðsla.
,,Ertu ekki enn búinn að þræða nál-
ina?” spurði Bjarni Valtýsson
kandídatinn á Heilsugæzlustöðinni
þegar hann kom með Jónas Jóhannes-
son, hinn hávaxna Njarðvíking,
þangað vegna skurðar sem Jónas hafði
hlotið á höfuðið í samhlaupi við KR-
ing. ,,Á maðurinn að fara inn á
aftur?” spurði kandídatinn. „Já, auð-
vitað,” svaraði Bjarni. Síðan voru sett
nokkur spor í sárið, ódeyft. Já, menn
verða að vera harðir af sér í körfu-
knattleiknum, bæði innan vallar og
utan. Jónasi hafði verið falið að gæta
Keith Yow í leiknum og hafði hann góð
tök á pilti, en Guðsteinn hafði auga
með Jóni Sigurðssyni framan af. Með
þeirri aðferð tókst heimamönnum að
ná afgerandi forustu snemma í fyrri
hálfleik, 28:15. Áttu þar einnig hlut að
máli Gunnar Þorvarðarson, sem átti
hörkuvarnarleik ásamt nokkrum körf-
um, svo og Danny Shouse, sem átti
hverja snilldarsendinguna á fætur ann-
arri.
Þótt erkifjendurnir væru að eigast
við gætti ekki bikarstemmningar í
leiknum. Hann var rólega leikinn, oft á
tíðum, sérstaklega af hálfu KR-inga,
sem ætluðu sýnilega að gæta þess að
láta ekki ofkeyra sig, enda með fáa
skiptimenn.
Það var raunar ekki fyrr en í seinni
hálfleik, þegar staðan var 48:35, að
heldur tók að lifna yflr leiknum —
kannski mest fyrir það að Garðar Jó-
hannesson, sem ekki gekk heill til skóg-
ar, kom inn á og Keith Yow fór að
reyna langskotin sem hvert á fætur
öðrú höfnuðu í UMFN körfunni.
Heimamenn skiptu nokkuð ört um
leikmenn þegar á leið og áttu þeir allir
mjöggóðanleik.
Stefán Jóhannesson KR-ingur átti
snarpan sprett undir lokin, og einnig
átti Árni Hallgrímsson mjög góðan
leik, en fór út af með fimm villur
skömmu fyrir lok. -emm
Snillingurinn Bjarni Guðmundsson svifur inn i teiginn og skorar 11. mark tslands. Júrgen Rohde kom engum vörnum við.
DB-mynd Bjarnleifur.
„MEGUM EKKIVERA
OF BJARTSÝNIR”
var viðkvæðið hjá leikmönnum og þjáHara íslenzka landsliðsins
eftir hinn stórkostlega sigur á A-Þjóðverjum f gærkvöld
„Þessi sigur gegn A-Þjóðverjunum
kom óneitanlega nokkuö á óvart en því
má ekki gleyma að þetta var einn af
þessum leikjum þar sem bókstaflega
allt gekk upp hjá okkur,” sagði Hilmar
Björnsson landsliðsþjálfari eftir leikinn
og sýndi engin svipbrigði venju fremur.
Að vanda rósemin uppmáluð. Hann
bætti við: „Við einsettum okkur að
reyna að taka bakkarana hjá þeim
framarlega og trufla Rost eins og frek-
ast var hægt og það tókst vel. Sóknar-
leikinn er ég hins vegar ekki nógu
ánægður með en þetta er e.t.v. ekki
tími til að tala um slíkt.”
Margir undruðust er Einar Þorvarð-
arson kom í markið eftir hina frábæru
frammistöðu kollega hans, Kristjáns
Sigmundssonar, á föstudag. ,,í minum
augum er Kristján ennþá fyrsti mark-
vörður landsliðsins, en Einar varði eins
og snillingur í þessum leik og þvi er
ekki hægt að horfa framhjá. Ég þekkti
styrkleika Kristjáns vel og Einar varði
mjög vel í Þýzkalandi. Ég vildi sjá
hvort hann héldi þannig áfram og
árangurinn kom í ljós.
Hvað um möguleikana í
B-keppninni?
„Þetta eru afar hættuleg úrslit fyrir
okkur. Það er alltaf sá möguleiki að
menn ofmetnist eftir slíkan árangur en
við verðum bara að vona að það gerist
ekki. Þetta lofar a.m.k. góðu en þróun-
in í B-keppninni verður bara að segja
til um hvernig þetta gengur upp hjá
okkur eða hvort þetta gengur upp,”
sagði Hilmar.
Næstan hittum við Bjarna Guð-
mundsson, sem var ekki að skafa utan
af hlutunum. Bjarni er að eðlisfari ró-
legur og yfirvegaður en gaf tilfinning-
unum lausan tauminn svona til hátíða-
brigða. „Þetta var í einu orði sagt un-
aðslegt. Þetta er einn af þessum leikj-
um þar sem allt gengur upp hjá okkur.
Við höfðum þá heppni, sem var, með
okkur og það hafði sitt að segja. Við
komust strax yfir og mér fínnst það
sýna verulegan klassa að geta haldið
þessu út allan leikinn gegn svo sterkri
þjóð. Málið var bara að þeir brotnuðu
undan álaginu — þoldu ekki að verai
undir i leiknum. Þetta var þó e.t.v. ofj
góður leikur svona rétt fyrir B-keppn-i
ina því það er alltaf hættan á að við fá-
um „down”-leik eftir svona sigur. Við
verðum bara að vona hið bezta,” bætti;
Bjarni við og félagi hans úr Val,
Steindór Gunnarsson, stakk svo inn í:|
„Nú verðum við bara að byrja aftur frá
grunni. Ná okkur niður og vinna;
stemmninguna upp á við á ný. ”
„Það er stórkostlegt að spila með
þessum strákum,” sagði ein aðalhetja
leiksins, Einar Þorvarðarson, mark-
vörður úr HK. „Ef framhaldið verður
eins og í B-keppninni þurfum við ekki
að hafa áhyggjur. Við sáum það vel í
þessum leik að þessir karlar eru bara
handboltamenn eins og við ef tekið er
almennilega á móti þeim. Þetta eru
engin vélmenni. Ég var búinn að stúd-
era skyttur þeirra vel þannig að skot
þeirra komu ekkert á óvart,” sagði
hann ennfremur.
-SSv.
irað
— Fyrsti tapleil
Islenzka landsliðið i handknattleik
vann stórafrek i gærkvöld á fjölum
Laugardalshallarinnar. Lagði sjálft
austur-þýzka stórveldið, bezta hand-
knattleiksliö heims, að velli i einum
mest spennandi leik, sem sézt hefur
hér. Frábær handknattleikur isl. liðsins
og sigurinn var mjög verðskuldaður.
Það fór ekki milli mála að betra liðið
þetta kvöld vann sigur. Einn stærsti, ef
ekki stærsti sigur islenzks landsliðs i
handknattleik. Þriggja marka sigur,
18—15, og það var ekki marki of
mikið. Frekar of litill sigur, því sænsku
dómararnir voru þýzku lelkmönnunum
hliðhollir svo ekki sé meira sagt. Það er
mikið afrek að vinna þetta sterka,
austur-þýzka lið — lið, sem ekki hefur
tapað leik i 10 mánuði, eða frá þvi f mai
1980 gegn Rúmenum. Frá HM 1978 er
hægt að telja töp A-Þjóðverja á fingr-
um annarrar handar. Ekki hægt fyrir
Þjóðverja að kenna þvf um, að þeir
hafi ekki verið með sina beztu leik-
menn. Það voru þeir en að sögn þjálf-
ara liðsins urðu þeim á fleiri mistök nú
en í mörgum leikjum áður. Sterkur
leikur islenzka liðsins kom þýzka liðinu
í opna skjöldu. Það þoldi ekki álagið,
þoldi ekki að vera undir og það skapaði
villur. Fyrsti sigur íslands á A-Þjóö-
verjum i ellefu landsleikjum.
Ólyrr 'b’meistararnir voru oft ráð-
villtir í leikjunum vegna frábærs varn-
arleiks íslenzka liðsins. Þar var erfitt að
finna glufu og að baki ísl. vörninni var
frábær markvörður, Einar Þorvarðar-
son, HK. Varði með miklum tilþrifum
og við erum ekki á flæðiskeri staddir á
því sviði. I fyrri leiknum á föstudags-
kvöld var Kristján Sigmundsson, mark-
vörður, bezti maður ísl. liðsins.
En þó liðsheildin, snjöll vörn og
markvarzla, hafi ráðið miklu um úrslit-
in þá var þó einstaklingsframtak
tveggja leikmanna ísl. liðsins, sem
skipti sköpum. Þeir Páll Björgvinsson
og Bjarni Guðmundsson voru hreint
frábærir. Stórleikur hjá báðum þess-
um leikreyndu köppum — Bjarni hefur
Leikurínnítölum
Sóknarnýting íslenzka liðsins i gær
var rétt rúmlega 39% eða 18 mörk i 46
sóknarlotum. I fyrri hálfleik voru þær
jafnmargar en mörkin hins vegar helm-
ingi færri. Einar Þorvarðarson varði 14
skot, þar af 11 sinnum svo islenzka
liðið fékk knöttinn. Markvarzla hans
geysilega góð allan leikinn. Jens Ein-
arsson kom þrivegis inn á í vítaköstum.
Tvívegis brást A-Þjóðverjum bogalist-
in. Hér á eftir fer nýting einstakra leik-
rnanna. Fyrst skot, þá mörk, siðan
knetti glatað. íslendingar fengu ekkert
vitakast gegn fimm hjá A-Þjóðverjum.
PállBj. 9 6 3
Bjarni 640
Sigurður 7 2 1
PállÓI. 6 2 1
Axel 2 1 0
ÓlafurH. 3 1 1
Steindór 1 1 1
Þorbergur 10 1
StefánH. 1 1 2
SSv.
„BEZTA LANDSUD
HÖFUM MÆTT FRÁ
sagði þjátfari a-þýzka landsliðsins eftir \
„Þetta er bezta landslið frá íslandi,
sem við höfum leikið gegn,” sagði
þjálfari a-þýzka landsliðsins er DB
spjallaði við hann i gærkvöld. „Þvi er
hins vegar ekki að neita að mínir menn
fóru illa að ráði sinu undir lokin og sið-
ustu 15 minútur leiksins glötuðu þeir
knettinum eigi sjaldnar en 8 sinnum —
við lékum á köflum bókstaflega illa.
Mínir menn eru orðnir þreyttir. Við
erum búnir að leika fjölda landsleikja á
undanförnum mánuðum en höfum
ekki tapað siðan i mai á sl. ári, er við
töpuðum fyrir Rúmenum. Ég tel að