Dagblaðið - 16.02.1981, Blaðsíða 19
Iþróttir
Iþróttir
I
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 16. FEBRUAR 1980
Iþróttir
Iþróttir
GLÆSILEGT MET JÓNS
FÉKKST EKKIGILT!
—hann keppti sem gestur oggatþví ekki unnið til verðlauna
Jón Oddsson varð fyrir þcirri und-
arlegu reynslu að selja nýtt glæsilegt
met í langstökki innanhúss á Meistara-
móti íslands innanhúss um helgina og
fá það ekki staðfest. Jón stökk 7,27
metra og varð langfyrstur i lang-
stökkinu en þar sem félagaskipti hans
eru enn ekki um garð engin varð hann
að keppa sem gestur. Gestir geta ekki
unnið til verðlauna né sett met sam-
kvæmt reglunum og þvi cr gamla metið
hans Friðriks Þórs Óskarssonar, 7,15
metrar frá árinu 1977, enn gott og gilt.
Þegar að er gáð eru þetta vægast
sagt fáránlegar reglur. Ekkert var at-
hugavert við það á sínum tíma þótt
Erlendur Valdimarsson gengi yfir í
Þær stöllur Geirlaug og Jóna Björg
eftir 50 metra sprettinn.
DB-mynd S.
Lægsta skorið ívetur
—Ármann náði aðeins 44 stigum gegn ÍR og tapaði
nésettmet
ÍR-ingar unnu yfirburðasigur á
Ármenningum með 76 stigum gegn 44
er liðin mættust í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik í Hagaskóla á laugar-
dag. Ármenningar, sem léku án Valdi-
mars Guðlaugssonar og Kristjáns
Rafnssonar, náðu að standa nokkuð
vel í ÍR i fyrri hálfleiknum en í þeim
siðari var um einstefnu að ræða.
Með þessum sigri sínum eiga ÍR-ing-
ar möguleika á að hirða 3. sætið i
deildinni. Fari svo er víst að leikmenn
geta vel við unað því þrátt fyrir áföll
fyrri hluta vetrar virðist liðið hafa náð
sér vel á strik að undanförnu og hefur
m.a. unnið 6 af síðustu 7 leikjum
sínum. Sigur yfir ÍS í lokaleiknum
myndi líkast til tryggja þeim 3. sætið
þvi keppinautarnir, KR, eiga eftir
að leika m.a. við Val og vinna þann leik
aldrei með sömu spilamennsku og verið
hefur uppi á teningnum undanfarið hjá
liðinu.
Framan af leiknum voru liðin
nokkuð áþekk. ÍR komst þó í 6—2, en
um miðjan hálfleikinn var staðan jöfn
14—14. Góður leikur Andy Fleming
einkum og sér í lagi færði ÍR forustu á
nýjan leik, 27—16. Ármanni tókst svo
að laga stöðuna fyrir hlé og stóð 29—
23 er flautað var til hálfleiks.
ÍR skoraði fyrstu 12 stigin í s.h. og
þar með var björninn unninn.
Munurinn var orðinn 28 stig, 57—29,
eftir 10 mínútur og sýnt hvert stefndi.
Þrátt fyrir að allar varaskeifur ÍR
fengju að leika meira og minna i leikn-
um varð sigurinn samt svo stór. Ár-
mannsliðið hlýtur að vera hætt að æfa
fyrir löngu því leikmönnum hefur
hrakað ótrúlega frá í haust.
Það var í raun fátt um fína drætti i
þessum leik. Fleming lék best í ÍR-
liðinu án þess að eiga einn stórleik. Jón
Jör. byrjaði afleitlega en tók svo loks
við sér t s.h. Kristján Oddsson lék og á-
gætlega, en mesta athygli að mati
undirritaðs vakti Björn Jónsson, ungur
piltur. Án þess að undirritaður viti
það fyrir víst fannst honum endilega að
piltur þessi hafi hér á árum áður búið í
Borgarnesi og vakið þar athygli fyrir
hæfileika í iþróttinni.
Af Ármenningunum voru þeir
Davið, Guðmundur og Atli skástir en
liðið lék engu að síður afar illa lengst af
og alvaran virðist löngu fokin út 'í
veður og vind og hver getur láð þeim
það.
Dómarar voru þeir Hörður Tulinius
og Bjartmar Bjarnason og þrátt fyrir
sínar villur — einkum þegar Andy
Fleming átti í hlut — er ekki fjarri lagi
að segja að þeir hafi komið bezt frá
leiknum.
Stigin. ÍR: Andy Fleming 22, Jón
Jörundsson 21, Kristján Oddsson 11,
Kristinn Jörundsson 8, Hjörtur Odds-
son 6, Óskar Baldursson 6, Sigmar
Karlsson 2 og Björn Jónsson 2.
Ármann: Atli Arason 16, Guðmundur
Sigurðsson 10, Davíð Ó. Arnar 9,
Hörður Arnarsson 4, Hannes
Hjálmarsson 4, Bogi Fransson 1.
-SSv.
Skautafélag Reykjavíkur og keppti
undir þeirra merki þó svo félagið hefði
alls engar frjálsar íþróttir á stefnuskrá
sinni. Það er margt skrýtið í kýr-
hausnum. En Jón er greinilega í
hörkugóðri æfingu og þess vegna
verður vart langt að bíða að hann slái
metið loks þegar hann er orðinn lög-
legur meðsínu nýja félagi, KR.
Árangur á þessu innanhússmóti
varð annars ekki meiri en í meðallagi.
Eitt piltamet var sett. Þar hljóp Viggó
Þ. Þórisson úr FH 800 metrana á
2:15,3 mín. Þá kom ung hnáta,
Geirlaug B. Geirsdóttir úr Ármanni, á
óvart með því að sigra í 50 m hlaupi
kvenna. Varð hún á undan stöllu sinni,
Jónu B. Grétarsdóttur. Þeir Hreinn
Halldórsson og Óskar Jakobsson háðu
mikið einvígi í kúluvarpinu og sigraði
Hreinn með kasti upp á 19,68 metra.
Óskar varpaði aðeins 8 sm syttra. Úr-
slitin á mótinu urðu annars sem hér
segir:
800 m hlaup karla mín.
Gunnar P. Jóakimsson, ÍR 2:03,7,
Guðm. Sigurðsson, UMSE 2:03,6
Egill Eiðsson, UÍA 2:06,0
800 m hlaup kvenna rrrín.
Thelma Björnsd., Á 2:20,6
Guðrún Karlsd., UBK 2:20,8
Hrönn Guðmundsd., UBK 2:24,8
Hástökk karla m
Stefán Þ. Stefánsson, ÍR 1,93
Njarðvík
meistari
Eftir stórsigur sinn á ÍS á föstudag
eru Njarðvíkingar loks orðnir verðugir
meistarar i fyrsta skipti. Staðan er nú
þessi þegar fáir leikir eru eftir af
mótinu.
Njarðvik-ÍS 120—79
ÍR-Ármann 76—44
Njarðvík 18 16 2 1789—1417 32
Valur 17 12 5 1485—1360 24
ÍR 19 10 9 1519—1526 20
KR 18 9 9 1489—1428 18
ÍS 18 6 12 1441—1581 12
Ármann 18 1 17 1264—1675 2
Hafsteinn Jóhanness., UBK 1,90
Hafliði Maggason, ÍR 1,80
Kúluvarp karla m
Hreinn Halldórss., KR 19,68
Óskar Jakobsson, IR 19,60
Guðni Halldórsson, KR 17,41
Árangur Óskars er hans bezti
innanhúss.
Kúluvarp kvenna m
íris Grönfeldt, UMSB 10,68
Soffía Gestsd., USAH 10,12
Jóhanna Konráðsd., UMSB 8,69
50 m hlaup karla sek.
HjörturGíslason, KR 5,8
Guðni Tómasson, Á 5,8
Sig. T. Sigurðsson, KR 5,9
50 m hlaup kvenna sek.
Geirlaug Geirlaugsd., Á 6,4
Jóna B. Grétarsd., Á 6,6
Sigríður Kjartansd., KA 6,7
Oddný Árnadóttir, ÍR 6,7
1500 m hlaup karla min.
Ágúst Ásgeirss., í R 4:12,8
Magnús Haraldss., FH 4:22,0
Óskar Guðmundss., FH 4:28,2
Hástökk kvenna m.
Sigríður Valgeirsd. ÍR 1,60
Guðrún Sveinsd., UMFA 1,55
Nanna Gíslad., HSK 1,56
Kristbjörg Helgad., Á 1,50
4x3 hringir boðhl. karla
Sveit ÍR 3:26,1 mín.
SveitFH 3:26,1 mín.
Sveit ÍR var dæmd á undan, en KR-
ingar gátu ekki teflt fram sveit af ein-
hverjum orsökum.
4x3 hringir boðhl. kvenna
SveitKA 3:49,4 mín.
SveitUBK 3:53,2 min.
50 m grind karla sek.
HjörturGislason, KR 6,9
Elias Sveinsson, Á 6,9
Valbjörn Þorláksson, KR 7,0
50 m grind kvenna sek.
Kristbjörg Helgad., Á 7,8
Elín Viðarsd., KR 7,9
Þrístökk karla min.
Guðmundur Nikuláss., HSK 13,97
Kári Jónsson, HSK 13,88
Stefán Þ. Stefánss., ÍR 12,63
Langstökk kvenna m
Bryndís Hólm, ÍR 5,53
Svava Grönfeldt, UMSB 5,31
SigríðurKjartansd., KA 5,30
-SSv.
Graeddur er
geymduroeyrir
Með verðtryggingu sparifjár
hefur þetta gamla orðtak fengið
fullt gildi á ný.
Nú býður Landsbankinn þér að
ávaxta sparifé á 6 mánaða reikn-
ingum, verðtryggðum og með 1 %
ársvöxtum að auki.
Þánnig tryggir æskan sér framtíð
og aldraðir öryggi.
LANDSBANKINN
Banki allra landsmanna
Sparifé, sem verðbólgan vinnur
ekki á.
Leggið inn í Landsbankann og
tryggið spariféð gegn verðbólg-
unni.