Dagblaðið - 16.02.1981, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1980
f
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
REUTER
V2
ATLI RÚIMAR
HALLDÓRSSOIM
Mitterand hitti
Kim ll-Sung
Francois Mitterand, leiðtogi
franskra sósíalista og forsetaframbjóð-
andi, er á flakki um Asíulönd þessa
dagana. Áður sótti hann Kínverja heim
en þaðan fór hann til Norður-Kóreu.
Þar átti hann ta! við elskaðan og virtan
leiðtoga þarlendra, Kim Il-sung, en
einnig ræddi Mitterand við Norodom
Sihanoiuk prins, fyrrum leiðtoga
Kampútseumanna.
Ætluðu að f Ijúga umhverfis jörðina í einum áfanga:
VINDGUÐINN SVEIK
LOFIBELGSFARANA
—hófu flugið f Egyptalandi á fimmtudaginn en neyddust til að lenda á Indlandi
Tveir Bandaríkjamenn, sem ætl-
uðu að svífa í loftbelg umhverfis
jörðina í einum áfanga, lentu óvænt
á Indlandi um helgina og hafa þar
með lokið tilraun sinni. Maxie
Anderson, 46 ára, og Don Ida, 47
ára, lentu loftbelgnum á akri nálægt
þorpi á norðanverðu Indlandi. Fyrstu
fregnir um að þeir væru að koma til
jarðar bárust frá pakistanskri far-
þegaflugvél og lítilli einkaflugvél.
Reyndust þær á rökum reistar. Þeir
flugkappar voru ærið svekktir yfir
óförum sinum þegar að var komið.
Þeir kváðust hafa þurft að lækka
flugið vegna þess að þá skorti meira
uppstreymi og betri vinda í háloftun-
um. En allt kom fyrir ekki.
,,Við urðum að taka erfiða
ákvörðun. Það leit allt út fyrir að
okkur myndi ekki takast þetta,”
sagði Anderson við fréttamenn.
Hann sagðist „vægast sagt vera von-
svikinn”. Anderson var titlaður flug-
stjóri i loftbelgnum Jules Verne sem
lagði upp frá Luxor í Egyptalandi á
fimmtudaginn. Allt gekk að óskum
hjá þeim félögum þar til þeir nálg-
uðust Nýju Delhi, höfuðborg Ind-
lands. Þá sveik vindguðinn þá og litlu
siðar lentu þeir heilu og höldnu.
il viöskiptamann
banka og sparisjóóa
Spariinnlán skiptast nú
í þrjá aðalf lokka
A
B
C
Verðtryggó innlán
Innlán með verðtryggingu, miðað við breytingar
á lánskjaravísitölu, auk 1% ársvaxta.
Hver reikningur hefur aðeins tvo útborgunar-
mánuði á ári, þannig að á sex mánaða fresti, talið
frá næstu mánaðamótum eftirstofnun reiknings,
verður unnt að taka út fjárhæð, sem staðið hefur í
fulla sex mánuði ásamt verðbótum. Seinni inn-
borganir eftir stofnun reiknings verða bundnar út
yfirstandandi 6 mánaða tímabil og til loka þess
næsta þar á eftir. Eigandi getur flutt úttektar-
heimild reikningsins yfir á aðra almanaksmánuði
með minnst sex mánaða fyrirvara. Vilji eigandi
sparifjár eiga kost á að losa það oftar þarf hann
að stofna til nýrra reikninga.
Verðbætur og vextir reiknast á óhreyfða stöðu
milli mánaðamóta, en um inn- og útborganir
gilda innan mánaðar sérstakar verðbætur, sem
nú eru hinar sömu og heildarvextir 12 mánaða
vaxtaaukareikninga.
Binditími tveggja ára verðtryggðra reikninga er
stofnaðir hafa verið frá 1. júlí 1980 styttist í 6
mánuði og falla þeir sjálfkrafa undir þennan
flokk.
Frá 1. apríl n. k. er viðskiptamönnum heimilt að
flytja innstæðurúr
12 mánaða vaxtaaukareikningum
6 mánaða bókum
12 mánaða bókum og
10 ára bókum
inn á nýju 6 mánaða verðtryggðu innlánin með
bindingu frá flutningsdegi.
Vaxtaaukareikningar Innstæður með 3j mánaða uppsögn Vextir alls á ári 40,5%
Innstæður með 12 mánaða uppsögn 46 %
Vextirfærðirumáramótog þálausirí 12mánuði. •
Sparisjóósbækur Almennar bækur, innstæða laus án fyrirvara. 35 %
Sparisjóðsbækur með 6 mánaða uppsagnarfresti. 36 %
Sparisjóðsbækur með 12 mánaða uppsagnarfresti. 37,5%
Nánari upplýsingarum innláns-og útlánskjöreru veittar í bönkum og sparisjóðum.
13.febrúar1981.
Samvinnunefnd banka og sparisjóóa