Dagblaðið - 23.02.1981, Síða 2
2
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1981.
Vestmannaeyingar
VINSÆLU TILBOÐIN
í HVERRIVIKU
HÓLAGÖTU 28
SÍM11593
Óskum eftir þriggja til
fjögurra herbergja íbúð
í lyftublokk í Heima- eða Vogahverfi í skiptum
fyrir sérhæð með bílskúr í Vogahverfi.
EIGNANAUST
LAUGAVEGI96 - SÍMI29555.
Jónatæki fyrir
atvinnuhúsnæði
Eigum aftur fyrirliggjandi jónatæki fyrir atvinnuhúsnæði.
'Pantanir óskast staðfestar. Takmarkað framleiðsluupplag.
Uppsetningarþjónusta og ráðgjöf tii staðar hjá okkur.
RAFRÁSH/F
Hreyfilshúsinu Fellsmúla 24—26
Símar 82980 og 84130
ÍSl Byggingadeild
l|l borgarverkfræðings
auglýsir eftir byggingaeftirlitsmanni. Verksvið er
tæknilegt og fjármálalegt eftirlit með verktökum
í nýbyggingu og viðhaldi á húseignum borgarinn-
ar.
Æskileg er einhver revnsla í mælingum.
Umsóknir skal senda byggingadeild borgarverk-
fræðings fvrir 6. marz nk.
—VELAVERKSTÆDI—-
Egils Vilhjálmssonar H/F
______SMIDJUVEGI9 A - KÓP. - SÍMI44445
• Endurbyggjum vélar
• Borumblokkir
• Plönum blokkir og head
• Málmfyllum sveifarása, tjakköxla
og aðra slitfleti m/ryðfriu harðstáli
• Rennum ventla og ventilsæti.
• Slipum sveifarása.
SÍMI
44445
SKAMMASTU ÞÍN
EKKIÍSLENDINGUR?
—deilur um keisarans skegg eru að ríða þjóðinni að fullu
Jónas Jónsson, Brekknakoti, skrifar:
Ekki er ég hér að spyrja „íslend-
inginn” litla á Akureyri, þann sem
færir okkur bæjarfréttirnar o.fl. Nei,
ég spyr þig og mig sjálfan, þjóð
mína?
Hvað er nú að? Lifum við ekki i
„vellystingum praktuglega” í einu
bezta landi heims, miklu framtíðar-
landi, þar sem nú deyja líklega fleiri
úr ofáti en úr ófeiti áður? Og erum
við ekki að „sýna verðbólgunni í tvo
heimana”, méð verðstöðvun á öllum
sviðum? — öllum? Nei, ekki í kaup-
greiðslunni. Um kaupið má enn
karpa, heimta launin enn hækkuð,
með kúgun og dómum og ekki sízt
hækkun til þeirra sem mest hafa
fyrir! í þeim málum vex enn ranglæt-
ið og misréttið — en „hinir” voru
búnir að festa sér meira, ná hagstæð-
ari launakjörum, — og þarna eru að
verki helzt þeir, sem stytzt eiga í ofát-
ið og „sólarlöndin”! — Og svo er
manni boðin sú kenning að kyngja,
að þeir með lágu launin fái (á ein-
hvern vandskýranlegan hátt) meiri
bætur með 2% viðbót, en hinir, með
háu launin, sem fá 2 til 6%!
„Ja, margt má nú segja,” endaði
gamla Strúna förukona ein fyrir 70
árum oft góða fréttaklausu. Mun
svo stundum enn.
— Hygginn bóndi, sem sér að bú-
rekstur ber sig ekki leitar skjótL or-
saka, og siðan úrræða. Honum dett-
ur óliklega í hug að flýta sér að semja
um hækkað kaup við fólk sitt og
mestar launabætur til ráðsmannsins,
sem þrátt fyrir lélega ráðsmennsku er
með tvöfalt kaup ötuls vinnumanns
og þrefalt vinnukonu- (þetta var víst
dagana fyrir lögfestingu jafnréttis-
ins!) Nei, bóndi myndi reyna aðra
leið. E.t.v. ræða við fólk sitt, sýna
fram á, að án alls ágóða af búrekstr-
inum gæti hann ekki haldið áfram
með sama mannahaldi. Hann vildi þó
reyna þetta og láta það halda sama
kaupi næsta ár og sjá svo til. Ef vel
gengi, mætti ætla, að vinnufólkið
fengi að bæta við kind og kind á
fóður til uppbótar á lágu kaupi. Nú
gæti það sjálft valið um: Vera við
þetta, eða fara. — Og skyldi honum
ekki líka fljúga í hug að skipta um
ráðsmann? — Og nú hefur húsbónd-
inn okkar, ríkisstjórnin — til viðbót-
ar kauphækkunum — tekið til sinna
ráða. Mál til komið — segja menn!:
Verðstöflvun á allt! Vitanlega er það
ekki mögulegt í framkvæmd, án ann-
arra aðgerða jafnframt. Við þurfum
að sækja margt og mikið út úr land-
inu, og sækjum fleira en við þurfum.
Og þar setjum við ekki verðstöðvun
á.
Og hvernig tókst til með nýju, litlu
krónuna okkar?
En það er þó ein verðstöðvun, sem
við höfum í eigin höndum og ráðum
við ef vil viljum: Launin. Og sú
stöðvun hefði áhrif á allt hitt.
Fyrir nær ári síðan ræddum við hér
nyrðra um það, að hækka í engu
launin í landinu í eitt ár! Þeim, með
lægstu launin, skyldi ívilnað á annan
hátt, t.d. i skatti.
Gaman væri að vita — og fróðlegt
— hve marga milljarða (gamla) við
hefðum nú handbæra, ef „safnað
hefði verið í sokk”, öllu því fé sem
greitt hefur verið á árinu 1980 í
hækkuðu kaupi og uppbótum (að
boði vitlausrar vísitölu) með kaup-
kröfum fengið, verkföllum, (til millj-
arðatjóns), kúgun þrýstihópa, og
síðast en ekki sízt, kjaradómi!
(Hverskonar undrafuglar eru þar
kvakandi og ráðandi?) Skyldi þá ekki
með þeim sjóði í sokk, mega lagfæra
eitt og annað í „kerfinu” um „bákn-
ið” eða láta vera einhverja lántök-
una, jafnvel þótt svo „hagstæð”!!
væri að við þyrftum ekkert að borga,
bara krakkar okkar og barnabörn,
2016!
Stundum mætti ætla að við, Is-
lendingar í hópum, værum skynlaus
vélmenni, sem ekki færu „í gang”
nema peningi væri stungið í rifuna!
Hvernig fer þegar eitt rekur sig á
annars horn? Hvernig lyktar núátök-
um í þrenningunni: sjómenn — út-
gerðarmenn — fiskvinnsiustöðvar?
Og það nú, þegar fiskstofninn er talinn
i hættu, markaðurinn tregur, óhag-
stæður? Jú, togstreyta, kröfur, verk-
fall í stað þess að leita að sameigin-
legu bjargráfli og sameiningu til
átaks. — Erum við á leið til stöðvun-
ar, atvinnuleysis, likamlegrar og and-
legrar ófeiti?
Á meðan við erum svo skammsýnir
að eyða orkunni í deilur og átök um
krónur og um „sneiðar af kökunni”,
sem búið er að éta upp, er vonlítið
um sigur yfir margnefndum
„fjanda” þeim, sem hart þjakar og
lamar eðlilegt þjóðlíf hvort sem lofað
er „einu pennastriki”, „leiftur-
sókn”, eða „niðurtalningu”. Og á
meðan við látum okkur detta í hug að
„bjarga okkur” með því að „slá
lán” og láta börn okkar og barna-
börn greiða, jafnframt þvi, sem við
drekkum í landinu áfengi fyrir
nokkra tugi milljarða (gamla) á einu
ári, þá verð ég að svara minni upp-
hafsspurningu: „Já ég skammast
mín! Vona, að svo sé um fleiri.”
H0Í'*,*ai*-09<rVggi„gamé/
*'? m&jttrðar -x 33,«%
n‘"mróar t ^
FétaOsmól
1?.1 milljaröur » 3,2%
ít>rl-?®°s hagsýsk,
- n,it|ia«Jur « 3,B%
Sjávarútvogsmái — - •
:s.Sí m 8,35mH4»rð»r ° 1.^*
------T-
• 1 V, _ mlllloWW — 0,a“*.
MenntamáI
76,4 mílljoröor - 14,6%
San>göngumá/
= AS%
/ ss r
Bréfritari segir að við eyðum orkunni í deilur um kökuna sem búið er að éta.
FULLKOMIÐ MÓTOR OG RENNIVERKSTÆÐI
EUROCARD
veitír greiðan aðgang
að góðri pjónustu
fjölmargra fyrirtækja í flestöllum viðskiptagreinum
Hringdu og fáöu sendan upplýsingabækling
um Eurocard þjónustuna.
E
Kreditkort h.f.Ármúla 28. Sími 85499
Minning Johns Leimon:
Frábærir hljómleikar
H.R. skrifar:
Á Lesendasiðu DB á dögunum var
verið að þakka aðstandendum hljóm-
leikana sem voru haldnir í minningu
Johns Lennon. Mig langar einnig til
að koma á framfæri þökkum til allra
þeirra sem stóðu að þessum hljóm-
leikum.
Þó get ég ekki annað en minnzt á
söng Pálma Gunnarssonar, hann
hefur ekki sungið svona vel svo árum
skiptir. Og vil ég þakka honum sér-
staklega fyrir frábæra frammistöðu
og vona að hann haldi áfram á þeirri
söngbraut sem hann er á. Þá eigum
við íslendingar von á góðum söng.
Hljómleikarnir umtöluflu i minningu
Johns Lennon.