Dagblaðið - 23.02.1981, Síða 7

Dagblaðið - 23.02.1981, Síða 7
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1981. 7 „Ekki riftun heldur indanfari riftinar” „Munum verjast í Irf og blóð” —segjr Sverrir Hermannsson um skaðabætur vegna Þórshaf nartogarans —hugsanlegt að bætur verði ekki yffir 100 miljdnir gamalkróna „Eigendur norska togarans hafa ekki rift samningum, en ég lít á telex- skeyti frá þeim, sem Framkvæmda- stofnun barst á laugardag, sem und- anfara riftunar,” sagði Sverrir Her- mannsson alþingismaður í viðtali við DB í gær. „Þetta er,gallhart skeyti, þar sem þeir krefjast af okkur að við borgum 10 prósent ábyrgð, sem við settum hinn 17. október. En sú ábyrgð var skilyrt. Hún opnast ekki fyrr en skipið er afhent og afhending fer ekki fram meðan fjármögnun er ófrágeng- in,” sagði Sverrir. „Við ætlum aldrei að borga þessa ábyrgð ef samningum er rift.” „Við munum að sjálfsögðu neita kröfu Norðmannanna nú. Ég tel, að þeir geri ráð fyrir að fá nei, og nei-ið muni hljóta að leiða þá til frekari að- gerða.” „Þess vegna tel ég skeytið vera undanfara riftunar.” Skaðabætur til Norðmanna? „Þetta eru hinir harðsnúnustu og sóknhörðustu menn. Það þekkjum við af fyrri reynslu,” sagði Sverrir Hermannsson um eigendur norska Gengið á vatni? Nei, hann gengur ekki á vatninu, piltur- inn. Þaö verður ekki leikið eftir. Hann var að skemmta sér i sundlaugunum I Laugardal um helgina þessi og Ijósmynd- arinn skellti af um leið og hann snerti vatnsflötinn. DB-mynd Einar Ólason. SKÓLAVÖRÐUSTÍG 41 - SÍMI20235. togarans Ingar lversen, þegar hann var spurður, hvort Norðmenn gætu heimtað skaðabætur úr hendi íslend- inga. „Menn hafa verið að velta fyrir sér að hámark skaðabóta gæti orðið 300—400 milljónir gamalla króna. Þá hafa menn haft í huga að kræft yrði hlutafé Útgerðarfélags Norður- Þingeyinga, þar sem hlutafjárloforð munu nema lOOmilljónum. Annaðer ekki af því félagi að hafa. Þá kynnum við ef til vill að missa þessa 10 pró- sent ábyrgð, en ég tel, að við mununt ekki missa hana,” sagði Sverrir Her- mannsson. „Við munum verjast í líf og blóð.” Sverrir var spurður hvort Norð- menn spilltu ekki möguleikum sinum til skaðabóta ef þeir riflu nú samn- ingum á slíkum forsendunt. Hann kvaðst ekki vilja gera því skóna, Framkvæmdastofnun yrði að fara varlega í yfirýsingum á þessu stigi. Þórshafnartogarinn úr sögunni? „Ég get ekki dæmt um viðbrögð ríkisstjórnarinnar,” sagði Sverrir Hermannsson, þegar hann var spurður hvort kaup á togara þessum fyrir Þórshöfn og Raufarhöfn væru nú dottin upp fyrir. Sverrir vitnaði til samþykktar stjórnar Framkvæmda- stofnunar, sem DB gat um á laugar- daginn, þar sem stjórnin bað rikis- stjórn um að skýra afstöðu sina til málsins. Ríkisstjórnin hygðist fjalla unt málið á morgun, þriðjudag. DB skýrði einnig frá þvi, að stjórnar- menn Framkvæmdastofnunar leldu kaup logarans nú í raun slöðvuð en beðið væri nánari afslöðu ríkissljórn- arinnar. Samningar við Norðmenn gerðu ráð fyrir að togarinn yrði afhentur 20. janúar. - HH Vió kynnum sumaráætlunina 1981 „SL-kjör“ Samvinnuferðir-Landsýn býður farþegum sínum ný og hagstæð greiðslukjör, sem tryggja þeim örugga vöm gegn gengisbreytingum eða hækkunum á verði sólarlandaferðanna. Með innborgun fyrir 1. maí má festa verð ferðarinnar i réttu hlutfalli við innborgun og komast þannig hjá hækkunum er líður á sumarið. „SL-kjörin“ auðvelda þannig raunhæfa fjárhagsáætlun þrátt fyrir ótryggt efnahagsástand og örar gengisbreytingar. Allar upplýsingar í bæklingunum Nýir og sérstaklega vandaðir sumarferðabæklingar liggja nú frammi á skrifstofunni í Austurstræti og hjá umboðsmönnum um land allt. Þar eru famar ótroðnar slóðir og veittar upplýsingar um smæstu sem stærstu atriði, s.s. gistingu, skoðunarferðir, ferðatilhögun, ýmsar aðstæður og aðbúnað, helstu veitinga- og skemmtistaði, opnunartíma verslana og banka o.fl. o.fl. o.fl. AOildarfélagsafslættir - barnaafslættir Samvinnuferðir-Landsýn býður nú í fyrsta sinn öllum aðildarfélögum sínum fullan afslátt í allar hópferðir til Rimini, Portoroz, Danmörku og Möltu. Rétt á aðildarafslætti eiga allar fjölskyldur sem tengjast félögum innan vébanda ASÍ, BSRB, Landssambands íslenskra samvinnustarfs- manna, Stéttarsambands bænda eða Sambands íslenskra bankamanna. Afslátturinn nemur kr. 500.- fyrir hvem aðildarfélaga og maka hans, en kr. 250 - fyrir böm. Sérstakur barnaafsláttur er einnig veittur og er hann allt að kr. 1.500.-. Þegar allt er talið getur því t.d. fjögurra manna fjölskylda fengið allt að kr. 4.500 - í afslátt og munar svo sannarlega um minna! Ítalía RIMINI Ein af allra bestu og vinsælustu baðströndum Evrópu - iðandi af lífi og fjöri allan sólarhringinn. Endalaus spennandi verkefni fyrir alla fjölskyld- una á leikvöllum, í skemmtigörðum, tívolíum og víðar. Veitingahús og skemmtistaðir í sérflokki, stórkostleg baðströnd og síðast en ekki síst fyrsta flokks íbúðargisting á Giardino, Bonini og Rinaldi. Hótelgisting á City, Excelsior og Atlantico. Júgóslavía PORTOROZ Friðsæl og falleg sólarströnd sem aldrei bregst tryggum aðdáendum sínum. Margra ára reynsla Samvinnuferða-Landsýnar í Portoroz tryggir Júgóslavíufarþegum besta fáanlegan aðbúnað á allan hátt. Hótelgisting á hinum viðurkenndu hótelum Palace samsteypunnar, Grand Palace, Appollo og Neptun. fæði m/hálfu Alltaf eitthvað nýtt og spennandi Samvinnuferöir - Landsýn AUSTURSTRÆT112 - SÍMAR 27077 & 28899 Kanada TORONTO Samvinnuferðir-Landsýn efnir nú í fyrsta sinn á íslandi til reglubundins leiguflugs vestur um haf. Stefnan er sett á stórborgina Toronto, sem á engan hátt þykir gefa eftir frægustu borgum Bandaríkjanna í fjölskrúðugu stórborgarmannlífi sínu. Frá Toronto liggja leiðir til allra átta fyrir þá sem vilja t.d. fljúga til stórborga í Banda- ríkjunum og er rétt að benda sérstaklega á hag- stæð flugfargjöld innanlands, sem sjálfsagt er að notfæra sér í hinum 3ja vikna löngu Toronto ferðum. Með þessu reglubundna sjálfstæða leigu- flugi opnar Samvinnuferðir-Landsýn bæði stórum og litlum hópum nýja og áður útilokaða möguleika á verulegum hópafslætti í ferðum til Ameríku. VHRÐ FRÁ KR. 3.300 Danmörk SUMARHÚS í KARRIBÆKSMINDE, KARLSLUNDE OG HELSINGÖR Einstaklega ódýrar og skemmtilegaT ferðir með sjálfstæðu leiguflugi í hin vinsælu sumarhús í -Karlslunde, auk þess sem nú býðst einnig dvöl í svipuðum sumarhúsum í Karribæksminde og Helsingör. Danmerkur ferðimar eru tilvaldar fjölskylduferðir, þar sem allir aldurshópar finna sér sameiginleg áhugamál og verkefni, jafnt á baðströndinni sem á fjöl- mörgum ævintýrastöðum nálægra borga og bæja. VERÐ FRÁ KR. 3.300 VHRD FRÁ KR. 4.450 MALTA MeUieha Holiday Centre Nýr og spennandi áfangastaður fyrir íslenska hópferðafarþega. Gisting í einstaklega glæsi- legum sumarhúsum í Mellieha Holiday Centre, - fullkominni ferðamannamiðstöð við eina glæsi- legustu baðströnd Möltu. Þessi einstæða ævintýraeyja Miðjarðarhafsins hefur löngum þótt sérstakur og óvenjulegur sumarleyfisstaður, þar sem í senn má njóta fullkomins ferðamanna- aðbúnaðar og kynnast um leið fábrotnu og hefö- bundnu mannlífi eyjarskeggja. VERÐ FRÁ KR. 5.900 VERÐ FRÁ KR. 4.210

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.