Dagblaðið - 23.02.1981, Síða 20
20
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1981.
Veðrið
Gert er ráð fyrir allhvassri eða
hvasari suðaustan átt með slyddu
eða rígningu á sunnan og austan-
verðu landinu. Annars staðar mun
Ifklega snjóa.
Klukkan 6 var suðauatan 6, rigning
og 3 atig I ReykjavBt; suðoustan 5,
rigning og 3 stig á Gufuskálum;
austan ö, snjókoma og 3 stig á Galtar-
vita; suðaustan 3, skýjað og -1 atig á
Akureyri; suðaustan 2, skýjað og -2
stjg á Raufarhöfn; sunnan 4, skýjað
og 0 stig á Dalatanga; breytileg ótt 3,
skýjað og -3 stig á Höfn og
suðaustan 8, slydda og 2 stig á Stór-
höfða.
í Þórshöfn var skýjað og 4 stig,
hoiflskírt og -17 stig ( Osló, skýjafl og
-8 stig í Stokkhólmi, snjókoma og 0
stig ( London, þokumófla og -4 stig (
Hamborg, þokumófla og -6 stig (
París, og hoiðskfrt og -3 stjg (Madríd.
Jón Ingimarsson Akureyri, sem lézt 15.
febrúar sl., fæddist 6. febrúar 1913 á
Akureyri. Foreldrar hans voru Ingimar
Jónsson og María Kristjánsdóttir. Árið
1934 réðst Jón til starfa hjá Ullarverk-
smiðjunni Gefjuni og þar starfaði hann
til ársins 1945. Þá verður hann starfs-
maður verkalýðsfélaganna á Akureyri
til 1962 er hann varð eingöngu starfs-
maður Iðju á Akureyri en Jón var einn
af stofnendum félagsins og var hann
formaður Iðju á Akureyri sl. 36 ár.
1946—1970 var Jón varabæjarfulltrúi
og bæjarfulltrúi á Akureyri. Árið 1934
kvæntist Jón Gefn Geirdal og áttu þau
5 börn en ólu einnig upp eina fóstur-
dóttur.
Þorbjöm S. Jónsson bifreiðarstjóri,
sem lézt 12. febrúar sl., fæddist 9. jan-
úar 1922. Foreldrar hans voru Jóna
Þorbjörnsdóttir og Jón Guðmundsson.
Þorbjörn bjó með föður sínum að Úlf-
arsá til ársins 1944 þegar hann fluttis!
til Reykjavíkur. Hóf hann þá störf hjá
Byggingarfélaginu Stoð hf. Árið 1960
réðst hann til B.M. Vallá sem bifreiðar-
stjóri og starfaði hann hjá þvi fyrirtæki
allt til dauðadags. Árið 1956 kvæntist
Þorbjörn Vibeke W. Jónsson og áttu
þau 3 börn, einnig ólu þau upp tvær
fósturdætur.
Þórhildur Guflmundsdóttir, sem lézt
13. febrúar sl., fæddist 21. september
1893 að Gýgjarhóli í Biskupstungum.
Foreldrar hennar voru Guðmundur
Einarsson og Dagbjört Brandsdóttir.
Árið 1918 giftist Þórhildur Kjartani
Kristjánssyni og áttu þau 2 börn en þau
slitu samvistum. Árið 1937 kynntist
hún Sigurði Gíslasyni og bjuggu þau
saman þar til Sigurður lézt 1974. Hún
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í
dagkl. 13.30.
Kristin Ingvandóttir, sem lézt 12.
febrúar sl., fæddist 27. júnl 1911 á ísa-
firði. Foreldrar hennar voru Sigríður
Á. Ólafsdóttir og Ingvar Gunnlaugs-
son. Kristin stundaði nám við Hús-
mæðraskólann Ósk eitt ár. Árið 1942
giftist Kristín Steindóri Þorsteinssyni
og áttu þau einn son sem lézt ungur,.
Steindór lézt árið 1949. Árið 1962 gift-
ist Kristin Birni Þórðarsyni, varð þeim
ekki barna auðið. Kristín verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju í dag 23. feb.
kl. 13.30.
Ágústa Jóhannsdóttir, Flókagötu 35,
lézt á Grensásdeild Borgarspítalans
föstudaginn 20. febrúar.
Fannar Guflmundsson lézt á Landspít-
alanum 20. febrúar sl.
Eysteinn Jakobsson, Steinagerði 11,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju í
dag, 23. febrúar, kl. 14.
Sveinn Anton Stefánsson skipstjóri,
Holtagerði 67, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju þriðjudaginn 24. febrú-
ar kl. 10.30.
Margrét Ketilsdóttir, Mávahlíð 45, sem
lézt 15. febrúar sl. verður jarðsett frá
Fossvogskirkju miðvikudaginn 25.
febrúar kl, 15.
Kristbjörg Jónsdóttir frá Hvammi,
Fellsmúla 5, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni þriðjudaginn 24. febrú-
arkl. 13.30.
Óttar Eggert Pálsson lézt í Borgarspít-
alanum 20. febrúar sl.
Guflbjörn Jensson skipstjóri lézt á
gjörgæzludeild Borgarspítalans 19.
febrúarsl.
Steinn Steinsen fyrrverandi bæjarstjóri
lézt á Landspítalanum fimmtudaginn
19. febrúarsl.
Jón Friðriksson.Toronto Ontario Kan-
ada, áður í Montreal, Iézt 18. febrúar
sl.
Sigríður Vilhjálmsdóttir lézt 7. febrúar
sl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrr-
þey.
Halldórs Davíðssonar frá Syðri-Steins-
mýri, Meðallandi, verður minnzt frá
Dómkirkjunni í dag, 23. febrúar, kl.
15. Jarðsett verður frá Prestbakka-
kirkju laugardaginn 28. febrúar kl. 14.
Tímapantanir
13010
Rakarastofan Klapparstíg
Sími12725
Hárgreiöslustofa Klapparstíg
ÞYNNKA í LITUM
Þessi helgi var mér að því leyti sér-
stæð til fjölmiðlarýni að ég horfði í
fyrsta sinn á eigið litasjónvarp. Loks-
ins hafði ég látið undan betri helm-
ingi heimilismanna og fest með
honum kaup á þessu undratæki sem
skartar á vel flestum heimilum lands-
manna. Satt að segja verð ég að
viðurkenna, bæði fyrir betri helm-
ingnum og öðrum, að það er geysi-
legur munur að horfa á stórt litasjón-
varp miðað við litla, gamla,
svart/hvíta tækið sem við áttum. En
öll litadýrð heimsins nær samt ekki
að breiða yfir það hversu dagskráin
er orðin þunn á köflum.
Upp úr þynnkunni standa þættir
eins og Þjóðlíf sem var sérlega góður
í gærkvöldi. Kjarkur og þor umsjón-
armannsins ræður þar ugglaust miklu
og eins það að þættinum virðist
skenkt meira fé en almennt gerist. Að
minnsta kosti komu fram fjölhæfir
listamenn um allt land sem varla hafa
gert þaðkauplaust.
Bíómyndir helgarinnar voru í
ágætu meðallagi. Föstudagsmyndin
um geðveika brennuvarginn sem
reyndist þegar allt kom til alls heil-
brigðari en „heilbrigð” skólastúlka
var einstaklega áhrifamikil. Laugar-
dagsmyndin var ágæt enda valinn
maður þar í hverju rúmi. En hefði
ekki verið í lagi að hafa hana fyrr
á dagskrá, þannig að öll börn sem
lesið hafa söguna gætu horft á hana?
Söngvakeppni sjónvarpsins náði
hvergi að risa upp fyrir meðal-
mennskuna. Skelfing er að vita til
þess hversu lítið úrval við eigum af
góðum lagahöfundum svo ekki sé
minnzt á textahöfunda. Flest „ljóð-
in” sem sungin voru voru hreint bull
og óhönduglega orðuð að auki, elleg-
ar þá ljóð eftir löngu kunn skáld sem
fagna ugglaust lítið lögunum við
ljóðin. Mér hefði líka fundizt í lagi að
hafa fleiri söngvara með. Hvað með
Ragga Bjarna? Hvað með alla ungu
krakkana í hljómsveitum úti um allt
land? Svona til dæmis. Þetta stjórn-
ast líklega af hinu margfræga pen-
ingaleysi.
Útvarpið fór mikið fram hjá mér
þessa helgi vegna sjónvarpsins. Þó
náði ég að hlýða á ágætan barnatíma
á laugardagsmorgun og á skemmti-
lega smásögu Guðmundar Hagalín á
laugardagskvöld. Lunganum úr er-
indi Gísla Pálssonar um íslenzkt mál
náði ég líka og fannst það sérlega
merkilegt miðað við það sem sagt
hefur verið í þættinum Daglegu máli
svo lengi sem ég man eftir mér.
Viðtal Böðvars Guðmundssonar var
athyglisvert og hlýddi ég á fyrri hlut-
ann af því að ég gleymdi að kveikja
aftur eftir að Hermann var búinn að
lýsa. Ég er ein af þeim sárgfáu, að því-
er virðist, sem nenna ekki að hlusta á
íþróttalýsingar, mér nægja úrslitin.
Spurningaþáttur Jónasar var virki-
lega spennandi í fyrsta sinn í langan
tíma. Ótrúlegt hvað þátttakendur
vissu af öllu mögulegu.
Nú er búið að semja við leikarana,
þannig að við fáum útvarpsleikritin
brátt aftur og eitt sjónvarpsleikrit í
mánuði. Er þessu vitaskuld að fagna
þó ég viti ekki frekar en aðrir hvar
sjónvarpið ætlar að taka peningana
til þess arna. En það hlýtur að koma í
ljós.
-DS.
Sigurveig Illugadóttir, sem lézt á Elli-
og hjúkrunarheimilinu Grund þann 13.
febrúar sl„ verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju í dag 23. febrúarkl. 15.
Guðlaug J. Sveinsdóttir frá Hvilft i Ön-
undarfirði erlátin.
Aðalfundir
Kvenfélag
Breiðholts
heldur aðalfund sinn i anddyri Breiðholtsskóla
miövikudaginn 25. febrúar kl. 20.30. Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf, önnur mál. Ennfremur
verður kynning á sildarréttum. Allir velkomnir.
AA-samtökin
I dag mánudag verða fundir á vegum AA-samlakanna
sem hér segir: Tjarnargata 5b (kvennadeild) kl. 21 og
14. Tjarnargata 3c kl. 18 og 21. Langholtskirkja
(opinn) kl. 21. Suðureyri Súgandafirði kl. 21, Akur-
eyri. Geislagata 39 (s. 96-22373). kl. 21. Vestmanna
eyjar Heimagata 24 (98-1140) kl. 20.30. Hafnarfjörð
ur. Austurgata 10. kl. 21. Mosfellssveit. Brúarland
(uppi). kl. 21 og Hvammstangi Félagsheimili kl. 21.
1 hádeginu á niorgun þriðjudag verða fundir sem
hér segir: Tjarnargata 3c kl. 12. Tjarnargata 5b kl. 14.
Keflavíkurflugvöllur (Svavar) kl. 11.30.
i
lorgan
SÆPÆtommtÆ*
® Knne
Þetta er dauðinn
Senor Kane
Úl er komin 24. bókin i bókaflokknum um Morgan
Kane og ber hún nafnið „ÞETTA ER DAUÐINN
SENOR KANE".
Frá landamæraþorpunum meðfram Rio Grande
slæddust morðingjar, ræningjar og aðrir afbrotamenn
inn í Mcxíkó ... hvit úrþvætti. sem tekið var opnum
örmum af hryðjuverkamönnum sem héldu Chi-
huahua í járngreipum.
Þessi úrþvætti lifðu á þvi að beita byssum sínum.
þeir rændu og rupluðu. nauðguðu konum og drápu
fólk miskunnarlaust, algjörlega samviskulausir.
Rurales — mexíkönsku varðliðarnir — leituðu ásjár
amerískra yfirvalda. Þeir þörfnuðust gringo, sem gæti
brugðiðsér i hlutverk útlaga, fengið þannig inngöngu í
glæpamannaflokkinn og splundrað honum innanfrá.
Morgan Kane varðfyrir valinu.
Fyrirlestur um
búferlaflutninga
Næsti fyrirlestur Landfræðifélagsins verður i Félags
stofnun stúdenta mánudaginn 23. febrúar. Dr. Bjarni
Reynarsson flylur erindi um búferlaflutninga á höfuð-
borgarsvæðinu 1974—1976. Fyrirlesturinn hefst kl.
20.30.
Félagslíf eldri
borgara í Reykjavík
Dagskráin þar til i júni hefur nú verið ákveðin. Á
mánudögum verður dagskráin i Lönguhlið 3 sem hér
segir:
Kl. 13 Spilaðogteflt.
Kl. 13 Fjölbreytt handavinnaogsalaá föndurefni.
Kl. 13 Fótaaðgerðir, pantanir i sima 34505 eftir há-
degi á þriðjudögum.
Kl. 15 Kaffiveitingar.
Mánudagsdagskrá fyrir-Norðurbrún 1 þar til i júni
verðursem hér segir:
Kl. 13 Fjölbrcytl handavinna og sala á föndurefni.
Kl. 13 Smíðaföndur. útskurðuro.fl.
Kl. 13 Leirmunagerð.
Kl. 13 Fótaaðgerð. pantanir i sima 36238 kl. 10—
12. mánudaga og fimmtudaga.
Kl. 14 Enskukennsla.
Kl. 15 Kaffiveitingar.
Kjalarnes — Kjós
Sjálfstæðisfélagið Þorsteinn Ingólfsson, heldur
aðalfund sinn að Félagsgarði Kjós i kvöld. kl. 21.
Gestir fundarins verða Matthias A. Mathiesen
alþingismaður, Ólafur G. Einarsson alþingismaður.
Salome Þorkelsdóttir alþingismaður. Félagar hvattir
til aðfjölmenna. Kaffiveitingar.
Alþýðubandalagið
á Akranesi
Félagsfundur verður haldinn i Rein mánudaginn
23. febrúar kl. 20.30. Málefni: Forvalsreglur Alþýðu-
bandalagsins. — Afgreiðsla Fjárhagsáætlunar bæjar
ins. — Áður auglýstur fundur um stöðu verkalýðs-
hreyfingarinnar. sem féll niður af völdum óveðursins
16. febrúar sl.. verður haldinn í Rein mánudaginn 2.
niarzkl. 20.30.
Skagamenn sýna
Sjóleiðina til Bagdað
Föstudaginn 13. febrúar frumsýndi Leikflokkurinn
sunnan Skarðsheiðar leikritið Sjóleiðina til Bagdad
eftir Jökul Jakobsson. Leikendur eru sjö og leikstjóri
er Auður Jónsdóttir. Þetta er áttunda leikár leikflokks
ins sem sýnir nú í annaðsinn verk eftir Jökul.
Sýnt verður í félagsheimilinu Hlöðum Hvalfjarðar-
strönd. Miðapantanir eru i síma 93-1212 milli kl. 13
og 16. Formaður leikflokksinser Elín Kolbeinsdóttir.
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING Ferflamanna-
Nr. 36 — 20. febrúar 1981 gjaldeyrir
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 BandardcJadollar 6,441 6,459 7,104
1 Steríingspund 14,882 14,924 16,416
1 Kanadadollar 5,382 5,379 6,936
1 Dönsk króna 0,9951 0,9979 1,0976
1 Norsk króna 1,2159 1,2193 1,3412
1 Sœnskkróna 1,4250 1,4290 1,5719
1 Rnnsktmark 1,5991 1,6035 1,7638
1 Franskur franki 1,3173 1,3210 1,4531
1 Belg. franki 0,1897 0,1902 0,2092
1 Svissn. franki 3,4407 3,4102 3,7512
1 Hollonzk florina 2,8108 2,8187 3,1005
1 V.-Þýzktmark 3,0664 3,0750 3,3825
1 Itölsk l(ra 0,00642 0,00643 0,00707
1 Austurr. Sch. 0,4334 0,4347 0,4781
1 Portug. Escudo 0,1147 0,1150 0,1265
1 Spánskur pesetj 0,0756 0,0758 0,0833
1 Japansktyen 0,03137 0,03146 0,03461
1 IrsktDund 11,368 11,400 12,540
SDR (sórstök dráttarróttindi) 8/1 8,0114 8,0334
* Breyting frá siðustu skráningu. Sknsvari vegna gengisskráningar 22190.