Dagblaðið - 16.03.1981, Blaðsíða 16
16
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 16. MARZ 1981.
íþróttir
Iþróttir
Bþróttir
Bþróttir
Iþrótt
Köppen
og Frost unnu
— á opna danska meist-
aramótinu íbadminton
Dönsku stórstjörnurnar, Lena Köpp-
en og Morten Frost, sigruðu í gær í ein-
liðaleik á opna danska meistaramótinu
í badminton. Það var háð í Kaup-
mannahöfn og flest bezta badminton-
fólk heims meðal keppenda.
í einliðaleik karla sigraði Frost
Prakash Padukone, Indlandi, 15-7 og
15-5. Indverjinn er búsettur í Dan-
mörku, sigurvegari á síðasta A!l-Eng-
land-móti. Hinn öruggi sigur Morten
Frost kom nokkuð á óvart. í úrslitum i
einliðaleik kvenna hafði Lena Köppen
algjörlega yfirburði gegn Saori Kondo,
Japan. Sigraði 11-1 og 11-2.
í tvíliðaleik karla sigruðu Chandra
og Christian Hadinata, Indónesíu,
Svíana Thomas Kihlström og Stefan
Karlsson 15-5, 15-18 og 15-10. í tvíliða-
leik kvenna sigruðu Nora Perry og Jane
Webster, Englandi, Yonekura og
Tokuda, Japan 15-12 og 18-15. í
tvenndarkeppni sigruðu Mike Tredgett
og Perry, Englandi, Christian og
Imelda Wigoeno, Indónesíu, 15-5 og
15-12.
Af úrslitum 1 áhugaverðum leikjum
má nefna, að Rudy Hartono vann
Svend Pri 15-12 og 15-4, Ray Stevens,
Englandi, 15-4 og 15-1 áður en hann
tapaði fyrir Padukone 5-15, 15-9 og 15-
6. Padukone átti í erfiðleikum með
Danann Michael Kjeldsen. Vann þó 18-
14 og 15-3 og hann lenti líka i hörðunt
leik við Flemming Delfs, Danmörku, í
3. umferð. Vann í tveimur lotum, 15-10
og 17-14. Padukone vann Hartono í
undanúrslitum og þar vann Morten
Frost, Danmörku, auðveldan sigur á
Hadiyanto, Indónesiu, 15-4, og 15-6. í
3. umferð vann Frost Syed Modi, Ind-
landi, 15-3 og 17-14. Síðan Sture
Johansson, Svíþjóð, 15-9og 15-3.
Göppingen
sigraði
Mikill Islendingaslagur var í
Göppingcn á laugardag. Þar áttust
við Göppingenog Bayer Leverkuscn i 1.
umferð þýzku bikarkeppninnar i hand-
knattleik. Leikurinn var spennandi og
tvisýnn. Göppingen sigraði 15-13 eftir
8-5 i hálfleik. Bayer Leverkusen jafn-
aði f 9-9 og sfðan skiptust liðin á að
skora. Göppingen komst i 14-13.
Leverkusen með knöttinn en missti
hann og Göppingen skoraði siðasta
mark leiksins rétt fyrir leikslok.
Sigurður Gunnarsson iék sinn fyrsta
leik með Bayer Leverkusen frá því
hann meiddist á ökkla sl. haust. Átti
ágætan leik þó hann skoraði ekki. For-
ráðamenn félagsins voru mjög ánægðir
með frammistöðu hans. Eins og áður
var Viggó Sigurðsson aðalmaður Bayer
Leverkusen. Skoraði sex af 13 mörkum
liðsins þrátt fyrir stranga gæzlu. Ágúst
Svavarsson var mjög sterkur i vörn
Göppingen en hann skoraði ekki í
leiknum.
{ 2. deildinni í knattspymunni lék
Fortuna Köln við Wattenscheid á úti-
vclli. Sigraði 0-1. -hsím.
Færeysku pilt-
arnir betri
Kvenna- og unglingalandslið piita i
blaki léku tvo landsleiki hvort f Færeyj-
um um helgina. Upphaflega áttu þessir
leikir að fara fram um siðustu helgi en
veðurguðirnir hömluðu þá flugsam-
göngum.
íslenzku stúlkurnar unnu báða sína
leiki, þann fyrri sem fram fór í Þórs-
höfn á föstudag, 3-1 (hrinuúrslit 16-14,
7-15, 11-15 og 9-15) og þann síðari sem
fram fór í Vogi á laugardag, 3-0 (14-16,
5-15 og 13-15). Er þetta minnsti munur
sem verið hefur á kvennaliðum þjóð-
anna hingað til en þess ber að geta að
nokkrar af beztu blakkonum íslands
léku ekki með.
Piltunum gekk ekki eins vel og stúlk-
unum. Þeir töpuðu báðum sínum leikj-
um, fyrri leiknum 3-0 (15-11, 15-9 og
15-6) og þeim siðari einnig 3-0 (17-15,
15-10 og 15-13). -KMU.
Brasilía vann
Brasiliumenn sigruðu Chile 2-1 i vin-
áttulandsleik um helgina. Mörk
Brasiliu: Zico, Reinaldo. Chile:
Cassely.
SIGGISVEINS
HJA DANKERSEN
— Hélt til Vestur-Þýzkalands á f östudag
Stórskyttan í Þrótti, Sigurður
Sveinsson, hélt til Dankersen á
föstudag til að kynna sér aðstæður hjá
félaginu. Hann er væntanlegur heim
aftur á fimmtudag. Dankersen hefur
nokkuð lengi verið á eftir Sigurði.
Hafði fyrst samband við hann fyrir
áramót — og greiddi nú fyrir hann
fargjöld til Vestur-Þýzkalands.
Miklar líkur eru á að félagið bjóði
honum samning en hins vegar eru litlar
líkur á að Sigurður undirriti nokkuð í
þessari ferð. Kynnir sér hins vegar vel
það sem félagið hefur upp á að bjóða.
Það tekur um tvo mánuði eftir samning
að geta byrjað áð leika með félaginu.
Axel Axelsson hélt eftir B-keppnina
til Dankersen og mun innan skamms
byrja að leika með félaginu. Hann
gerði þar garðinn frægan áður. Varð
Þýzkalandsmeistari með Dankersen og
Ólafur H. Jónsson einnig. í þýzku
blöðunum var skýrt frá því rétt fyrir
helgi, að Axel geti nú leikið með Dank-
ersen. Hafi leyfi til þess en áður en
Axel hélt út, taldi hann að það yrði í
fyrsta lagi 7. apríl, sem hann fengi
leikleyfi.
Dankersen er í mikilli fallhættu.
Milbertshöfen frá Miinchen og
Heppenheim eru þegar fallin. Danker-
sen hefur 13 stig en Bayer Leverkusen,
sem Viggó Sigurðsson og Sigurður
Gunnarsson leika með, hefur 15 stig.
Einnig HUttenberg. Þrjú lið falla niður.
Dankersen á eftir að leika við bæði
Bayer Leverkusen og Huttenberg á úti-
völlum.
-hsím.
Stórsigur Standard og
Ásgeir skoraði 3 mörk
—7-1 gegn Berchem og gott veganesti í leikinn gegn Köln
Ásgeir Sigurvinsson var aðalmaður-
inn bak við stórsigur Standard Liege í
1. deildinni belgísku i gær. Standard
sigraði þá næstneðsta liðið í deildinni,
Berchem með 7-1 í Liege og Asgeir
skoraði þrjú af mörkum Standard.
Þetta var kærkominn sigur eftir slæmt
gengi að undanförnu og kemur á rétt-
Unnu þrefalt
Broddi Kristjánsson og Kristín
Magnúsdóttir, TBR, urðu bæði
þrefaldir meistarar á Reykjavikur-
meistaramótinu í badminton sem fram
fór um helgina. Vegna gifurlegra
þrengsla f blaðinu i dag verða nánari
úrslit að bfða morguns.
Logi til Þórs?
Allar Ifkur eru nú taldar á því að FH-
ingurinn Logi Öiafsson gangi til liðs
við Þór á Akureyri i sumar. Logi fór
fyrir skömmu til Akureyrar og ræddi
við forráðamenn félagsins og leizt vel á
lífið fyrir norðan. Logi lék með FH f
fyrra en var ekki fastamaður i liðinu.
Engu að síður vel liðtækur leikmaður
þegar hann vill það við hafa. -SSv.
um tima. A miðvikudag leikur Stand-
ard síðari leik sinn við Köln í UEFA-
keppninni. Sá leikur veröur i V-Þýzka-
landi en jafntefli, 0-0, varð í fyrri leikn-
um.
Við sigurinn komst Standard upp í
þriðja sæti í 1. deild. Komst upp fyrir
Lokeren, sem lék ekki í gær. Leik liðs-
ins við Beerschot var frestað. Ander-
lecht vann enn einn stórsigurinn og
meistaratitillinn er svo gott sem í höfn.
Brilssel-liðið er níu stigum á undan
Beveren, sem er í öðru sæti, og 12 stig-
um á undan Standard.
Úrslit í 1. deildinni í Belgíu urðu
annars þessi.
Anderlecht-Lierse 6—2
Waterschei-Molenbeek 0—2
Waregem-Winterslag 1 — 1
Gent-CS Brugge 2—0
Standard-Berchem 7—1
Beringen-FC Liege 1—1
FC Brugge-Courtrai 2—0
Antwerpen-Beveren 2—1
FC Brugge 25 12 4 9 55—37 28
Antwerpen 25 10 8 7 37—39 28
Beerschot er neðst með 15 stig.
Berchem og Waterschei hafa 16 stig.
Beringen 18 stig.
Ragnhildur Sigurðardóttir varði titil sinn
2. deild Islandsmótsins í handkna
Enn herðist hnil
— HK og Breiðablik töpuðu bæði
Leik Lokeren og Beerschot var
frestað. Staða efstu liða er nú þannig.
Anderlecht 25 20 3 2 52—16 43
Beveren 25 15 4 6 41—21 34
Standard 25 13 5 7 50—35 31
Lokeren 24 13 4 7 52—30 30
Fjórir ieikir voru háðir i 2. deild
karla um helgina og eftir þá viröist
deildin opnari en nokkru sinni og enn
eiga 6 lið af 8 möguleika á að komast í
1. deildina þótt möguleikarnir séu
eðlilega misgóðir. Blikarnir fengu
óvænt tap i hausinn á föstudagskvöld
er þeir töpuðu fyrir Aftureldingu,
17—18. Með sigri i þeim leik hefði
Breiðablik nær tryggt sér 1. deildar
sæti, en þótt likurnar séu enn góðar
minnkuðu þær talsvert við tapið.
Þá sigruðu ÍR-ingar Ármenninga
25—19 — einnig á föstudagskvöld.
Sigur ÍR skapaðist ekki fyrr en í Iokin
því t.d. var jafna 14—14, er síðari hálf-
leikurinn hafði slitið bamsskónum.
Lokasprettur ÍR-inganna var mun
kröftugri en hjá Ármanni og því lenti
sigurinn þeim megin. Ármenningar eru
því í bullandi fallhættu og ekkert nema
sigur í báðum leikjum liðsins sem eftir
eru getur bjargað því frá falli, ef það þá
dugar til. Bjarni Bessason skoraði mest
fyrir ÍR, 9 mörk, Hinu megin skoraði
Björn Jó. mest að vanda, 7 stykki.
HK hélt norður til Akureyrar um
helgina og hafði aðeins tvö stig með sér
suður. Vonin um að endurheimta 1.
deildarsætið hangir því á bláþræði.
Stórsigur FH, Margrét
með 14 og mótið vannst
— FH Islandsmeistari í 1. deild kvenna eftir stórsigur á Víkingi, 23-14
FH-stúlkurnar tryggðu sér íslands-
meistaratitilinn í 1. deild kvenna í
handknattlcik á laugardag er þær sigr-
uðu Vfking með yfirburðum, 23-14, í
Hafnarfirði. Sigur FH var allan timann
ákaflega öruggur en byggðist eins og
oft áður í vetur geysilega mikið á einka-
framtaki Margrétar Theodórsdóttur,
sem lék þennan leik af snilld. Hún
skoraði 14 mörk i 17 skottilraunum og
slik nýting er harla sjaldgæf. Svo hart
lagði hún að sér í leiknum að hún varð
að fara út af um tima — hreinlega
örmagnaðist um stund. Með afreki
Margrétar er þó ekki verið að kasta
rýrð á hinar stúlkurnar f liðinu. Eink-
um og sér i lagi var varnarleikur þeirra
geysilega stcrkur og baráttan f góðu
lagi.
Það var aðeins rétt í byrjun að Vík-
ingur hélt í við FH en síðan ekki söguna
meir. Eftir 15 mín. leik var staðan
orðin 6-3 FH í vil og Hafnarfjarðarlið-
ið leiddi 11-6 í hálfleik. Munurinn jókst
síðan jafnt og þétt í síðari hálfleiknum
og mestur varð hann 10 mörk, 21-11.
Lokatölurnar hafa áður komið fram.
Víkingsliðið lék þennan leik ekki vel,
ef undan eru skildar ágætar fléttur sem
gengu út á það að opna í vinstra horn-
inu. Það tókst nokkrum sinnum ágæt-
lega en Sigurrós Björnsdóttir var
óheppin með skot sín eða þá að Gyða
Úlfarsdóttir varði vel. Ingunn
Bernódusdóttir var í nokkrum sér-
flokki og markvarzlan var góð þrátt
fyrir mörkin 23. Hins vegar kom litið
út úr landsliðsstúlkunni Eiríku Ásgeirs-
dóttur.
Hjá FH var það sem fyrr Margrét
sem var sér á báti. Gyða varði markið
stórvel og í vörninni var Katrín eins og
klettur. Hildur læddi inn fallegum
mörkum endrum og sinnum en
Kristjana virðist vera hætt að horfa á
markið. Skorar sáralítið miðað við það
sem áður var.
Mörkin. FH: Margrét Theódórsdótt-
ir 14/7, Hildur Harðardóttir 4, Anna
Ólafsdóttir 2, Kristjana Aradóttir,
Katrín Danivalsdóttir, Kristín Péturs-
dóttir. Víkingur: Ingunn Bemódus-
dóttir 8/4, Sigurrós Björnsdóttir 2,
Hildur Árnadóttir, Eiríka Ásgrímsdótt-
ir, Dögg Harðardóttir og Nanna
Snorradóttir 1 hver,
Fram—Haukar 17-11
Þrátt fyrir öruggan sigur á Haukun-
um missti Fram af íslandsmeistaratitl-
inum í fyrsta skipti í 5 ár. Um leið og
Haukar töpuðu þessum leik færðist
fallið nær og nú er fátt sem getur orðið
þeim til bjargar eftir sigur ÍA á Akur-
eyri. Staðan i hálfleik í þessum leik var
10-5 Fram í vil og höfðu þær allan tím-
ann tögl og hagldir. Mörkin. Fram:
Þórlaug 5, Jóhanna 4, Guðriður 4,
Sigrún 2, Oddný 1 og Kristin 1.
Haukar: Hólmfríður 4, Svanhildur 4,
Guðrún G. 2 og Björg 1.
Þór-ÍA
11-14
Með sigri i þessum leik tryggði
Skagastelpurnar sér næstum örugglega
1. deildarsætið. Þær leiddu 6-4 í hálf-
leik og ekki sakar að geta þess að öll
mörk Þórs voru gerð úr vítaköstum. í
síðari hálfleiknum héldu Skagastúlk-
urnar uppteknum hætti og sínum hlut
um leið og sigurinn var öruggur. Mörk-
in. Þór: Valdís 6/4, Freydís, Dýrfinna,
Þórunn, Soffía og Hrefna eitt hver. íA:
Ragnheiður 5, Kristín R. 3, Lára 2,
Laufey 2, Kristín A. og Ellý 1 hvor.
Valur-KR 10-10(4-6)
Þessi leikur fór fram undir miðnætti1
á föstudagskvöld og því vjtum við ekki
nein ósköp um gang mála. KR komst í
5-0 og það var ekki fyrr en Harpa Guð-
mundsdóttir rauf varnarmúr KR á 17.,
mín. úr vítakasti að Valur komst á
blað. Áður hafði Erna Lúðvíksdóttir
þrumað víti framhjá. Val tókst að laga
stöðuna fyrir hlé og jafna metin.
Staðan í 1. deild kvenna er þá þessi:
FH 13 11 1 1 259- -165 23
Valur 12 7 3 2 181- -141 17
Fram 11 8 0 3 194- -142 16
Víkingur 12 4 4 4 165- -171 12
KR 11 4 2 5 133- -148 10
Akranes 12 3 3 6 138- -199 9
Haukar 12 2 2 8 139- -164 6
Þór, Ak. 13 1 1 9 170- -249 3
-SSv.