Dagblaðið - 16.03.1981, Blaðsíða 19
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 16. MARZ 1981.
1
Menning
Menning
D
—Punktur, punktur, komma, strik kvikmynd fyrir alla
fjölskylduna
Punktur, punktur, komma, strik.
Leikatjón: Þorsteinn Jónsson.
Leikendur: Eriingur Gislason, Kristbjörg Kjeld,
Pétur Bjöm Jónsson og Heliur Helgason.
Kvikmyndafélaglð Óölnn.
Frumsýningar á íslenskum kvik-
myndum eru ekki á hverjum degi og
verða víst aldrei, miðað við aðstöð-
una sem kvikmyndagerðin býr við
hér á landi. Mikilvægi þess fyrir ís-
lendinga að sjá íslenskar kvikmyndir
sem fjalla um islenskan veruleika
verður þó seint undirstrikað nægi-
lega. Það er því ákveðið gleðiefni
þegar íslensk kvikmynd er frumsýnd
og sérstaklega ef ágætlega hefur
tekist til, eins og í þessu tilfelli.
Þegar ég heyrði fyrst að Þorsteinn
Jónssonætlaði að kvikmynda sögu
Péturs Gunnarssonar, Punktur,
punktur, komma, strik (hér eftir köll-
uð Punkturinn, til þæginda) var ég
vantrúaður á árangurinn. Það er
nefnilega ekkert hiaupið að því að
kvikmynda bókina. f fyrsta lagi er
bókin oft hugleiðingar og vanga-
veltur sögumanns en ekki bein sam-
töl. í öðru lagi gerist bókin á
ákveðnum tíma i sögunni og nær yfir
alllangan tíma.
Árangurinn sem áhorfendur geta
séð á hvíta tjaldinu hefur, að athug-
uðu máli, eytt nær öllum efasemdum
sem ég hafði í garð myndarinnar.
Andri I og Andri II
Óhætt er að segja, að kvikmyndin
sé í tveim hlutum sem þó mynda
heild. Fyrri hlutinn er um Andra,
svona átta til tólf ára. Seinni hlutinn
fjallar svo um Andra á unglingsár-
um.
Fyrri hlutinn hefur engan eigin-
legan söguþráð, heldur er brugðið
upp myndum úr æsku Andra. Fyrir
bragðið verður kvikmyndin nokkurs
I Andrí yngrí, leildnn af Pétri Birni
I Jónssyni, með kunnuglega mjólkur-
I brúsa.
Með aðstoð kassabilsins náði Andrí
að brjóta brunaboðann en allt komst
upp.
konar þroskasaga, líkt og bókin sem
hún byggir á. Flestir sem lifðu sina
æsku og unglingsár á milli ’55 og ’65
munu þekkja sjálfa sig í mörgum at-
riðum myndarinnar, ég veit að ég
gerði það.
Það er í fyrri hlutanum sem gæði
myndarinnar liggja. Atburðarásin er
nokkuð hröð (mætti þó vera hrað-
ari), atriðum skemmtilega raðað
saman og allt stórlega sposkt. Þó get
ég ekki stillt mig um að geta þess að
sum atriði eru alls ekki nógu vel
undirbúin, t.d. kallinn sem bjargaði
boltunum oggaf öllum límonaði.
Seinni hluti myndarinnar
(unglingsárin) er hins vegar ekki
alveg nógu sterkur. Hér finnst mér
tempó myndarinnar raskast fullmikið
og stafar það líklega af því Þorsteinn
er að leikstýra sinni fyrstu löngu
kvikmynd. Samt sem áður kemst ailt
til skila og atriði eins og kennarastof-
an þegar Kennedy er skotinn eru
minnisstæð.
Kvikmynd og bók
Þegar kvikmyndaðar eru jafnvin-
sælar bækur og Punkturinn, þá spyr
fólk ósjaldan: er myndin eins góð og
bókin? Við spurningum sem þessum
eru náttúrlega ekki til nein svör.
Bækur og kvikmyndir geta aldrei
verið líkar þar sem þessir miðlar eru
of ólíkir. Bók byggir á orðum, kvik-
mynd byggir á myndum. Punkturinn
er kvikmynduð bók sem þó stendur
sjálfstætt. Kvikmyndin er einna best
þegar henni tekst að skapa þennan
„fíling” sem elnkenndi árin milli ’50
og ’60 og það er ósjaldan sem það
tekst. Á köflum er myndin — það
sem hefur verið mikið í tísku síðustu
ár — nostalgísk, en án allrar væmni.
Það sem ég sakna helst úr bókinni
er hinn gegnumgangandi pólitíski
þráður sem var i henni. Til dæmis
vantar flest fullorðinssamtölin í
myndina, sem þjónuðu þeim tilgangi
í bókinni að skerpa vitund lesandans.
Þrátt fyrir að Þorsteinn sleppi sem
sagt nokkru í handritinu, þá dregur
hann upp ágæta mynd af foreldrum
Andra sem lífsgæðakapphlaups
fólki. T.a.m. er Erlingur Gislason
ágætur sem hinn verðandi ríki-í-
gegnum-herinn-heildsali, sem gegnir
engu hlutverki I fjölskyldu nema
Kvik
mýndir
hlutverki fyrirvinnu. Hann er til
dæmis svo mengaður af peninga-
hugsunarhætti og Könum að hann er
orðinn útlendingur við Andra, sem
ranglega bendir honum á „mig
hlakkar” i stað „mér hlakkar”, í
stað „ég hlakka”.
Góð byrjunarmynd
Punkturinn er kvikmynd sem er
alls ekki laus við galla, en ég kýs að
lita framhjá þeim og skrifa þá á
kreditið sem allir byrjendur í gerð
langra kvikmynda hafa. í sjónvarp-
inu sá ég Þorstein lýsa því yfir að það
erfiðasta við kvikmyndina hefði verið
að sjá hana alla fyrir sér og víst er að
það er einmitt uppbygging myndar-
innar sem er gölluð. En þetta eru
byrjunarörðugleikar.
Einn galla við myndina get ég þó
alls ekki fellt mig við og er það
hljóðið. Það komu fyrir kaflar í
myndinni sem ég heyrði alls ekki
hvað hver var að segja og ef ekki
hefði komið til kunnátta mín á texta
bókarinnar hefði ég misst af samtals-
atriðum.
Öll önnur vinna er hins vegar lýta-
laus. Kvikmyndataka Sigurðar
Sverris Pálssonar er virkilega fag-
mannsleg, en er það misskilningur
hjá mér að kvikmyndavélin hafi
framan af myndinni verið i hæð
krakkanna? Sviðsmynd og búningar
er náttúrlega kapítuli út af fyrir sig,
sjaldan hefur maður upplifað tímabil
í ævi manns í gegnum leikmynd og
búninga eins vel og í Punktinunj.
Leikur í Punktinum er öruggur og
áreynslulaus. Það er kannski fullmik-
ið sagt að allir undirleiki (van), en
einhvern veginn finnst mér eins og
enginn geti verið áberandi — öllu er
haldið niðri, svolitið safalaust. Andr-
arnir eru eðlilega mest áberandi per-
sónurnar í myndinni og eru þeir
leiknir af Pétri Birni Jónssyni og
Halli Helgasyni. Báðir eru þeir
ágætir, þó sérstaklega Pétur Björn.
Hallur, eins og flestir í seinni hluta
myndarinnar, á í vandræðum með
uppbyggingu leiks.
Skemmtun fyrir alla
Ef á heildina er litið kemst Þor-
steinn Jónsson vel frá sinni fyrstu
kvikmynd. Hann hefur skapað trú-
verðuga mynd, sem allir ættu að geta
haft gaman af. Á vissum stöðum
hefur Þorsteinn jafnvel gert hluti sem
engum hefur dottið í hug áður í
islenskum kvikmyndum. Eitt minnis-
stæðasta atriði myndarinnar er líka
skólabókardæmi um góða töku, gott
tempó og klippingu, en það er atriðið
þegar strákarnir eru að skoða
„fræðslubókina” og guttinn er að
brjóta brunaboðann. Einmitt í þessu
atriði sýnir Þorsteinn djörfung í
handriti og kvikmyndagerð.
Fleira mætti tína til, sem bíður
betri tíma. Punkturinn er orðinn að
veruleika. Það má vel vera að ekki
verði allir sáttir um myndgerðina, al-
menningur á eftir að fella sinn dóm.
Ég get hins vegar sætt mig við þessa
kvikmynd og get því sagt að ég
hlakka aðeins til að sjá hana aftur.
Það er ekki á hverjum degi sem kvik-
myndahúsin bjóða upp á íslenskar
kvikmyndir.
E.S.,
Eftir að þessi grein var skrifuð,
komst undirritaður að þvi að bæði
hljóð og mynd f Punktinum virtust i
fullkomnu lagi i Laugarásbiói, þann-
ig að ummælin hér að ofan um hljóð
eiga fremur við sýningartæki
Háskólabiós.
-ÖÞ.
ÆSKUMINNINGAR
SEM SVÍKJA ENGAN
Dodge Ramcharger 1974, 8 cyl.
(318). Beinskiptur. Verð kr. 56 þús.
Ford Granada Chia 1979. Rauð-
brúnn m/viniltopp, 6 cyl., sjálfsk.,
m/öllu. Glæsilegur 2ja dyra sport-
bíll. Verð kr. 110 þús. Skipti á
ódýrarí.
Subaru 1600 DL 1978, ekinn 17 þús.
Blásanseraður, útvarp, snjód. og
sumardekk. Verð 58 þús.
V
Lada 1500 station 1979. Kremlitaður,
ekinn 17 þús. km. Útvarp, nagla-
dekk. Verð kr. 45 þús.
Daihatsu Charmant station 1978.
Rauðbrúnn, ekinn 35 þús. km.
Fallegur blll. Verð kr. 55 þús.
Toyota Starlet 1980. Gulur, 3ja dyra,
ekinn 17 þús. km. Verð kr. 72 þús.
Honda Accord EX 1980. Silfurgrár,
3ja dyra, Sjálfskiptur, aflstýri o.fl.
(m/úllu). Ekinn 17 þús. km. Verð kr.
102 þús.
Citroen CX 2400 Pallas 1978. Gull-
fallegur, beinskiptur, ekinn aðeins
21 þús. km. Verð kr. 120 þús.
SÝIMISHORN ÚR
SÖLUSKRÁ
Honda Accord 1979. Silfurgrár 4ra
dyra, sjálfskiptur, ekinn 21 þús. km.
Verð Itr. 93 þús.
Datsun 120 Y 1977. Rauðbrúnn, 4ra
dyra, ekinn 39 þús. km. Verð kr. 40
þús.
Daihatsu Charade 1980. Rauður, 5
dyra, ekinn 7 þús. km. Verð kr. 60
þús.
.......' __________________________
Honda Accord 1979. Kremgulur, 4ra
dyra, 5 gíra beinskiptur, ekinn 17
þús. km. Verð kr. 92 þús.
Ford Bronco dlsil 1979. Rauður og
hvitur. Ný 6 cyl. Perkings disil vél,
4ra gíra beinsk. Mjög góð innrétting.
Verð kr. 230 þús.
Toyota Tercel 1979. Blásanseraður, 5
gira framdrifsbfll. Upphækkaður,
silsalistar, ekinn 25 þús. Itm. Verð kr.
72 bús.
Daihatsu Charmant árg. 1979 Blá-
sanseraður, eklnn aðeins 12 þús. km.
Útvarp, ný snjódekk og sumardekk.
Verð 62 þús.
Galant 1600 G.L. 1979. Gulur, ekinn
35 þús. km. Verð kr. 73 þús.
Renault 20 TL 1978. Brúnsanserað-
ur, 5 dyra. Snyrtilegur bfll. Verð kr.
63þús.
International Dfsil Pick Up m/fram-
drifi árg. 1971. Gulur. Vél: Ford D-
300 4ra gira beinskiptur, 6 manna
hús. Verð kr. 65 þús. Ýmis skipti.
Volvo 244 1977, rauðbrúnn, ekinn
aðeins 41 þús. km. Verð 78 þús.
Skipti möguleg á ódýrum bil.
Subaru 1600 (fjórhjóladrif). 1978.
Kremlitaður, (USA útgáfa). Ekinn
aðeins 25 þús. mflur,. Fallegur blll.
Verð kr. 58 þús.
Ford Fairmont 1978. Kremgulur, 4
cyl., beinskiptur. Ekinn 40 þús. km.
Verð kr. 60 þús. Skipti á ódýrari.
ÍLA-
MARKAÐ-
URINN
GRETTISGÖTU
sími 25252