Dagblaðið - 16.03.1981, Qupperneq 32
Æfingaferðin breyttist í björgunarferð:
„ERFIÐUR OG SEIN-
LEGUR LEIÐANGUR”
segja Gunnar
Pétursson og
Böðvar Ásgeirsson
björgunarsveitar-
menn úr Ingólfi um
björgunina íLand-
mannalaugum
SEIÐSKRATTISEM
MESTR MÁni VERDA
Gísla saga Súrssonar greinir frá
manni sem Þorgrímur hét og var
kallaður nef. Hann bjó á Nefsstöðum
fyrir innan Haukadalsá og var „fullr af
gemingum ok fjölkynngi ok var
seiðskratti, sem mestr mátti verða.”
Þorgrímur nef var í sögunni fenginn til
að leggja seið á Gísla fyrir þá sök að
drepa Þorgrím goða. Gísli hafði lagt
spjótið Grásíðu I gegnum Þorgrím
goða, þar sem hann lá í lokhvílu við
hlið Þórdísar konu sinnar og átti sér
einskis ills von.
Þorgrímur nef lagði seið á Gísla
Súrsson að honum yrði hvergi vært á
landinu. Og sá viðburður var settur á
svið í Krísuvík i gær, þegar fyrsta at-
riðið 1 kvikmyndinni Útlaginn var tekið
upp á vegum ísfilm. Björn Einarsson
úr Kópavogi fer með hlutverk Þorgríms
nefs. Skeggja, aðstoðarmann hans við
að magna seiðinn, leikur Hilmar
Hauksson. Auk þeirra kom 10 karlar
og konur fram í atriðinu.
I dag átti að festa á filmu víg Þor-
gríms nefs í Krísuvík. Þá kemur við
sögu sjálfur Gísli Súrsson, leikinn af
Arnari Jónssyni. En veðurguðirnir
settu strik í reikninginn og framlengdu
líf Þorgríms.
Næstu daga, vikur og mánuði.
„Við vorum í skálanum við Veiði-
vötn er menn komu til okkar frá
Landmannalaugum um hálffimm og
báðu um aðstoð. Félagar þeirra tveir
höfðu farið til Sigöldu þá um kvöldið
og voru ekki komnir aftur til baka.
Fyrir tilviljun höfðum við hitt þessa
menn áður þannig að þeir vissu af
ferðum okkar við Veiðivötn,” sögðu
Gunnar Pétursson og Böðvar
Ásgeirsson, félagar úr Björgunar-
sveitinni Ingólfi, i samtali við DB í
morgun. Ingólfur var í æfingaferð
við Veiðivötn um helgina, er æfingin
breyttist skyndilega í björgunarferð.
„Við gerðum Slysavarnafélaginu
strax viðvart og óskuðum eftir að fá
þyrlu til hjálpar. Við vorum 20 úr
björgunarsveitinni með sex sleðá og
snjóbíl. Mennirnir sem komu til
okkar höfðu svipazt um eftir félögum
sinum á leiðinni, en erfitt var um vik
vegna hrímþoku. Þarna var 11 stiga
frost og við vissum að leitin gæti
gengið erfiðlega.
Við tókum snjóbílinn með okkur
þar sem í honum er sterk og góð tal-
stöð og einnig vorum við með litlar
stöðvar sem voru í sambandi við vél-
sleðana. Er við vorum á leiðinni inn í
Landmannalaugar sáum við spor
eftir sleða sem lá í öfuga átt við okkar
leið. Okkur þótti full ástæða til að
Báðir höfðu mennirnir verið rænu-
litlir um nóttina og vissu þeir ekki af
hvor öðrum.
Þeir voru báðir blautir og kaldir.
Við þurftum að skera af þeim skóna
sem voru nánast ekkert nema klaki.
Við sendum strax einn sleðann á
undan okkur inn í Landmannalaugar
til að hita upp skálann og undirbúa
komu mannanna. Sjúkraflutningur-
inn var mjög erfiður, við vissum ekki
nema annar mannanna væri með inn-
vortis meiðsli. Þrátt fyrir hve sein-
legur og erfiður flutningurinn var
gekk hann mjög vel eftir aðstæðum.
Við vorum síðan í skálanum i
Landmannalaugum í klukkustund
áður en þyrlan kom. Við lögðum í
björgunarleiðangurinn um sexleytið,
mennirnir voru fundnir rétt fyrir sjö
og á Borgarspítalann voru þeir
komnir um hádegi. Okkur langaði til
að gefa þeim eitthvað heitt að
drekka i skálanum en þorðum því
ekki enda kom í ljós að betra var að
við gerðum það ekki,” sögðu þeir
Gunnar og Böðvar.
Þeir vildu einnig taka fram að
menn ættu ekki að vera á ferð á snjó-
sleðum eftir að myrkva tekur og
alltaf ætti að vera álpokar og neyðar-
blys í snjósleðum.
-ELA.
voitir sðr umbúð eftir venju sinni ok
gerir sár hjall, ok fremr hann þetta
fjölkynngiliga með allri ergi ok
skelmiskap." Seiðkarlinn Þorgrfmur
nef baðar út höndum og Iftur til
himins, aðstoðarmaður hans Skeggi
er til vinstri, og seiðkerlingin lengst
til vinstri er f raun engin önnur en
Silja Aðalsteinsdöttir.
DB-mynd: Helgi Már Halldórsson.
verður kvikmyndun haldið áfram af
krafti í stúdíói í Reykjavík, í Borgar-
firði, nágrenni Reykjavíkur og á Vest-
fjörðum. Henni á að vera lokið um
mitt sumar og við fáum væntanlega að
sjá árangur erfiðisins á hvíta tjaldinu
snemma á næsta ári. Útlaginn er lang-
viðamesta og dýrasta kvikmynd, sem
íslendingar hafa lagt í að framleiða,
enn sem komið er.
-ARH.,
björgunarsveitin Ingólfur var hress f gær eftir að hafa bjargað tveimur mönn-
um f Landmannalaugum. Vélsleðinn sem þeir eru með á myndinni kom sér vel i
ferðinni, en hann hafa þelr björgunarsveitarmenn nýlega fengið. í heilt ár biðu
þeir eftir að fá fellda af honum tolla en tókst ekki.
DB-mynd S.
kanna þessa slóð. Enda höfðum við standa skammt frá og annan er var
ekki farið langt er við sáum mann að reisa sig upp um 10 metrum frá.
frjálst, áháð daghlað
MÁNUDAGUR 16. MÁRZ 1981.
Jón L. efstur
á helgarmóti
Jón L. Árnason sigraði á Helgar-
skákmótinu á Sauðárkróki með 5,5
vinninga. Karl Þorteins, Gunnar
Gunnarsson og Ásgeir Þ. Árnason
komu næstir með 5 vinninga og síðan
Sævar Bjarnason, Helgi Ólafsson,
Jóhann Hjartarson og Gylfi Þórhalls-
son með 4,5 vinninga.
Helgi Ólafsson sem verið hefur
sigursælastur á helgarskákmótunum
tapaði nú sinni annarri skák frá því
þessi mót hófust og í báðum tilfellum
hefur það verið Sævar Bjarnason sem
hefur lagt hann að velli, í keppninni
um 10 þúsund nýkróna aukaverð-
launin, sem veitt eru fyrir beztan
samanlagðan árangur úr fimm helgar-
skákmótum, er keppnin æsispennandi
á milli Jóns L. og Helga.Helgi hefur 58
stig og Jón 57 þegar eitt mót er.eftir.
Kvennaverðlaunin að þessu sinni hlaut
Ásrún Ámadóttir með 2 vinninga og
unglingaverðlauninDavíð Ófafsson með
3 vinninga.
-GAJ.
Nýtt heimildarmanna-
máládöfinni
Lögreglufélag
Reykjavíkur
kref st rannsóknar
áásökunumí
„læknamálinu”
— yf irheyrslur
hafnarhjá
Rannsóknarlögreglu
Nýtt heimildarmannamál kann að
vera í uppsiglingu varðandi Dagblaðið.
Vegna fréttar um kröfu lögreglunnar
um blóðsýnitöku, sem læknir synjaði
um, hefur Rögnvaldur Þorleifsson
læknir mætt hjá RLR. Samkvæmt
heimildum sem DB telur áreiðanlegar
fór hann þess á leit að kannað yrði hver
væri heimildarmaður DB að ofan-
greindri frétt.
Jónas Kristjánsson ritstjóri DB hefur
verið boðaður til þess að mæta hjá
Rannsóknarlögreglu ríkisins út af þessu
máli, enda taldi ríkissaksóknari í bréfi
til RLR eðlilegt að hlutur DB í umfjöll-
un málsins yrði rannsakaður.
Yfirheyrslur eru nú hafnar hjá Rann-
sóknarlögreglu ríkisins um „læknamál-
ið” sem svo hefur verið nefnt.
Vegna aðdróttana og áburðar sem
lögreglan telur að fram hafi komið í frá
sögn DB af samskiptum lögreglu og
lækna vegna kröfu um blóðsýnistöku
var málið tekið fyrir á fundi hjá Lög-
reglufélagi Reykjavíkur.
Var þar samþykkt að krefjast rann-
sóknar málsins. Svala Thorlacius hrl.
fer með málið fyrir Lögreglufélagið.
Ritaði lögmaðurinn ríkissaksóknara
bréf þar sem rannsóknar er óskað. Fól
ríkissaksóknari RLR rannsókn
málsins.
Eins og frá var sagt í DB hefur þvi
verið dróttað að lögreglu að hún
ofsækti menn í annarlegum tilgangi. Þá
er haft eftir lækni sem færður var til
blóðsýnitöku vegna gruns um ölvunar-
akstur að hann teldi hugsanlegt að
lögregla spillti óinnsigluðu blóðsýni,
meðal annars með því að blanda í það
alkóhóli.
-J.H.