Dagblaðið - 03.04.1981, Síða 4

Dagblaðið - 03.04.1981, Síða 4
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1981. Forskot á sæluna: Bragðað á páskaeggjum — ekki úr vegi að eggin væru merkt f ramleiðsluári Það er nú orðinn árviss atburður á ritstjórnarskrifstofum DB að þau páskaegg sem við finnum í einhverjum stórmarkaðinum eru keypt og smakka blaðamennirnir á eggjunum. Þeim er síðan gefin einkunn eftir bragði en ekki er tekið tillit til innihalds eggjanna. Að þessu sinni tóku tíu blaðamenn þátt í eggjaprófuninni. Þótt þeir séu e.t.v. ekki neinir sérstakir súkkulaðisér- fræðingar hafa þeir samt sinn smekk. Verð á páskaeggjum er nokkuð misjafnt og fer að sjálfsögðu eftir þyngd eggjanna. Ódýrustu skreyttu eggin sem á boðstólum voru hjá SS í Glæsibæ voru frá Nóa og kostuðu 13 kr. Ódýrustu eggin frá Víking kostuðu 16 kr. Þá eru einnig til óskreytt egg í mislitu bréfi, á stærð við andaregg, á 8 kr., einnig egg, sem eru lítið stærri en væn hænuegg á 2,50 og útlend egg á7,50. Fjöguregg frá þremur framleiðendum Nói, Crystal og Víkingur voru framleiðendur eggjanna sem við keyptum. Þau voru á boðstólum í SS „Innmatur” eggjanna var kannaður nákvæmlega. í sumum reyndist nokkurt úrval af sælgæti en I öðrum voru aðeins nokkrir „lúnir” konfektmolar . „Innmatur” pinueggjanna. Útlenda eggið var „fóðrað” með Ijósri sykurhúð. Það var Ijómandi bragðgott en kilóverðið i þvi var langsamlega hæst. Litlu eggin voru ekki með í bragðkönnuninni. DB-myndir Sig. Þorri.- Greinilegt er að súkkulaðið i páskaeggjunum fráCrystal er mun þykkara heldur en i Vikings- og Nóaegginu. Crystaleggin eru i miðjunni. Páskaeggin sem smakkað var á í bragðprófun tiu blaðamanna Dagblaðsins. Fljótt á litið virðast eggin vera mjög lik á stærð, en það léttasta vó 255 g, egg nr. 4, frá Nóa, og það þyngsta vó 500 g, egg nr. 2 frá Crystal. Egg nr. 1 er frá Víkingi og vó 350 g og egg nr. 3 var frá Crystal og vó 388 g. Glæsibæ. Fljótt á litið virðast páskaegg vera með nákvæmlega sömu skreytingu í ár og þau voru fyrir þrjátíu til fjörutíu árum, mikið ef ekki eru sams konar ungar og sams konar molar utan á eggjunum. Verður það að teljast lítil hugkvæmni í eggjaskreytingum. Innihald eggjanna er einnig mjög svipað. Ekki ber á neinum nýjum og spennandi sælgætistegundum. Páskaeggin eru heldur ekki með dagstimpli sem ætti að vera sjálfsögð þjónusta við neytendur. Kannski er dagstimpill ekki beinlínis nauðsynlegur en í það minnsta ætti að merkja eggin með framleiðsluári. Ekki er nokkur hemja að neytendur geti lent í því að kaupa ársgömul páskaegg, eða jafnvel eldri, sem hafa þá e.t.v. verið geymd við léleg skilyrði. Eru dæmi um að slíkt hafi komið fyrir. Innihald eggjanna í öllum páskaeggjunum voru málshættir. Innihald eggjanna frá Nóa og Víkingi var svipað en aðeins eru fáeinir konfektmolar í eggjunum frá Crystal. Innihald eggjanna var talið mjög nákvæmlega og var sem hér segir: Víkingsegg: Tvær súkkaðilengjur, þrjár karamellur, þrír konfektmolar og átta brjóstsykursmolar (mjög góðir). Crystalseggið, stærra: Níu konfekt- molar, mjög lítið spennandi, dálítið „lúnir”. Crystalseggið, minna: Fimm konfektmolar. Nóaegg: Tvær karamellur, þrír konfektmolar, sex súkkulaðirúsínur (gamlar), tveir brjóstsykursmolar og tvær stórar súkkulaðikúlur. í pínuegginu frá Nóa voru tvær súkkulaðirúsínur, einn brjóstsykurs- moli, ein stór karamellukúla og máls- háttur. Litla Víkingseggið var tómt en inni í silkibréfinu var málsháttur. Úr erlenda egginu kom plasthylki, sem i var lítill plastkarl tjl þess að setja saman. í því var enginn málsháttur. -A.Bj. Nóaeggið bezt af þeim sem prófuð voru súkkulaðið væri kornótt og var helzt sykurinn í egginu væri svona grófur! komizt að þeirri niðurstöðu að -A.Bj. 89 króna munur á hæsta og lægsta kílóverðinu — Af „stóru” eggjunum var það bezta dýrast Egg sem merkt var númer fjögur og reyndist vera frá sælgætisgerðinni Nóa var greinilega bezt. Það fékk 23 piúsa og engan mínus. Egg sem merkt var númer tvö var Crystal, stærra eggið, var næstbezt, fékk 10 plúsa, en einnig 6 mínusa og eina einkunn sem hljóðaði upp á að það væri bragðlaust. Eggið frá Víkingi (merkt nr. 1) var þriðja bezt með 6 plúsa og 4 mínusa og eitt atkvæði bragðlaust. Minna eggið frá Crystal (merkt nr. 3) fékk einnig 6 plúsa en 10 mínusa þannig að það verður að teljast lakast. Súkkulaðið í eggjunum frá Crystal er mun þykkara heldur en í eggjum frá öðrum framleiðendum en það er mjög kornótt og brotnar illa. Einn „dómarinn’” hafði orð á að Eggin sem við prófuðum virtust öll af svipaðri stærð að sjá og kostuðu frá 45 kr. upp í 63 kr. stykkið. Óraunhæft er að bera verðið saman öðruvísi en að finna út kílóverðið. Við fengum af- greiðslumann í kjötdeild SS til þess að vigta fyrir okkur eggin á ná- kvæmri vigt verzlunarinnar. Síðan reiknuðum við út kílóverðið: grömm kflóverð Nói é 45 kr. vó 255 178 kr. Crystal 1 á 63 kr. VÓ500 128 kr. Vfklnguré 45,50 kr. vó 350 130 kr. Crystal II á 55 kr. VÓ388 141 kr. PÍNUEGGIN Nói á 8 kr. vó 50 180 kr. Vikingur á 2,50 kr. vó 20 125 kr. Útlent á 7,50 kr. vó 35 214 kr. A.Bj.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.