Dagblaðið - 09.04.1981, Blaðsíða 1
7. ÁRG. — FIMMTUDAGUR9. APRÍL 1981 — 84. TBL. RITSTJÓRN SlÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOI.TI 11.-AÓAI.SÍMI 27022.
' . ■ :
, V
Hekla rumskaði ínótt:
Gos eða gufusprengingar
—samdöma álit að umbrotin séu minni háttar, enda koma þau ekki fram á
jaröskjálftamælum—lítió öskufall
Eldgos hófst um kl. 3 í nótt i
norðausturhliöum Heklu, eða á
svæðinu frá Skjólkvium að Litlu-
Heklu, að því er best var vitað i
morgun.
„Miðað við mökkinn er gosið ákaf-
lega lftið. Venjulegur Heklugosmökkur
á að ná 30 þús. feta hæð mjög fljót-
lega en þessi er aðeins í u.þ.b. 12 þús.
fetum,” sagði Axel Björnsson
jarðeðlisfræðingur. Hann flaug á-
samt fréttamönnum yfir gosstöðvarnar
snemma í morgun.
„Heklugos byrja með miklum
krafti, en siðan dregur yfirleitt úr
þeim. Það hefur ennþá enginn séð i
rautt. Mökkurinn er litill, öskufall
lítið. Vel er hugsanlegt að þetta séu
aðeins einhvers konar gufu-
sprengingar.”
Hekia var hulin skýjum ofan við 600
metra hæð og þvi ekki hægt að sjá til
gosstöðvanna úr lofti þegar DB-menn
flugu yfir í morgun. Gosmökkurinn
sást hins vegar greinilega, þar sem hann
lagði til norðausturs frá Heklu i átt aö
Loðmundi. Aska hafði fallið á hvitan
snjóinn norður af fjaliinu og virtist
öskufallið hafa verið f minna lagi.
Mökkurinn var óvenju ljósleitur:
brúngulur, sem bendir til þess aö i
honum sé lítil gosaska.
Er komið var upp fyrir skýja-
bakkann, sem lá yfir öUu Suðurlandi i
10 þús. feta hæð, mátti greina hvar
gosbólstrar stigu upp. Um tiuleytið
höfðu þeir náð 12 þús. feta hæð.
Samdóma áUt jarðvisindamanna var
i morgun að hér væri um að ræða
óvenjulitið gos, miðað við fyrri elds-
umbort i og við Heklu. Jarðhræringar
mældust til dæmis alls ekki á
jarðskjálftamælum, að sögn Páls
Einarssonar jarðeðUsfræðings á
Raunvisindastofnun. Af þvf dró hann
þá ályktun að hér væri „ekkert stórgos
ígangi.”
Jón Grétar, vaktmaður í Isakoti,
inntaki Búrfellsvirkjunar, sagði við DB
á tfunda tímanum að hann hefði séð
bólstra stíga upp frá Heklu og miklar
drunur og dynkir heyrðust frá
umbrotunum. Þau virtust vera í
suðausturhlíðum fjallsins. Hann tók
fram að snjór hefði ekki bráðnað i
fjallinu að því er bezt sæist. Engan eld
hafði hann séð en sagði að annar vakt-
maður hefði talið sig sjá eldsumbrot
ofarlega i Heklu, um kl. 4.15 í nótt.
Frá bæjum við Hekiurætur sast
ekkert til eldsumbrota í morgun.
-KMU/ARH.
FLUGMANNAVERKFALL A MIÐNÆTTI
—f lugmenn að skera sína eigin mjólkurkú, segir blaðaf ulltrúi Flugleiða
„Það er eins og það sé alveg sama
hvernig tekið er á þessu, það strandar
allt á sömu atriðunum,” sagði Guð-
laugur Þorvaldsson ríkissáttasemjari
i morgun. Verkfall flugmanna Flug-
leiða, sem eru í FÍ A, hefst á miðnætti
náist samkomulag ekki fyrir þann
tima.
„Mér lízt þunglega á þetta,” sagði
Guðlaugur. „Ég get ekki séð annað
en það stefni í verkfall. Fundurinn í
gær var árangurslítill en nýr sátta-
fundur hefur verið boðaður kl. 16 í
dag.
Flugleiðir höfðu skrifað þeim flug-
mönnum FÍ A sem hefja áttu þjálfun
á nýja vél en mættu ekki til nám-
skeiðs bréf með fresti til að endur-
skoða afstöðu sína. Frestur var gef-
inn til dagsins i gær. Gunnar Guð-
jónsson stjórnarmaður í FÍA sagði í
morgun að þeir tíu FÍA-menn sem
mæta áttu á námskeiðinu hefðu mætt
í gær. FÍA liti hins vegar svo á að
fleiri af þeirra mönnum hefðu átt rétt
á nýjum stöðum. Líta mætti á þessa
mætingu FÍA-manna sem skref í
samkomulagsátt.
Gunnar sagði að ef til verkfalls
kæmi, ætti hann ekki von á þvi að
flugmenn Arnarflugs hlypu i skarðið.
Þeir væru einnig félgar í FÍA og hann
ætti von á samstöðu innan stéttar-
félagsins.
„Það stöðvast allt innanlandsflug
og flug til Norðurlanda og Bretlands,
komi til verkfalls,” sagði Sveinn
Sæmundsson, blaðafulltrúi Flug-
leiða, í morgun. „Arnarflug flaug
fyrir okkur í gær og ég á von á að svo
verði áfram en geta þess er auðvitað
takmörkuð. Verkfall stórskaðar
félagið. Staðan er óviss núna en
maður vonar það bezta og sér til í
dag. Flugmenn gera sér það Ijóst að
þeir eru að skera sína eigin mjólkur-
kú með þessum aðgerðum.”
- JH