Dagblaðið - 09.04.1981, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1981
Áhugamenn um norræna sjónvarpsgerfihnöttinn vonbetri eftir Norðurlandaráðsþingið
íKaupmannahöfn:
Veréur NORDSA T aö veruleika?
eða setja Svíar
strikíreikning-
inn með f jar-
skiptahnettinum
TELE-X?
7
Verður samnorræni sjónvarps-
gervihnötturinn NORDSAT einhvern
tíma meira en orðin tóm? Vandi er
um slíkt að spá, en svo virðist þó sem
áhugamenn um NORDSAT séu öllu
vonbetri að afloknu þingi Norður-
landaráðs í Kaupmannahöfn í marz-
byrjun en þeir voru fyrir þingið.
Mörgum til furðu voru þingliðar í
Höfn mun jákvæðari þegar þetta mál
bar á góma en þekkzt hefur á fyrri
Norðurlandaráðsþingum. Og næstu
mánuði skal áfram vinna að könnun
á NORDSAT með það fyrir augum
að endanleg ákvörðun ráðherra-
nefndar Norðurlanda (menntamála-
og samgönguráðherra) liggi fyrir
áður en nýtt ár gengur í garð. Full-
trúar á næsta Norðurlandaráðsþingi í
Helsinki um mánaðamótin febrúar-
marz 1982 munu þá væntanlega
greiða atkvæði um hvort þeir vilja
eða vilja ekki NORDSAT.
Athyglisvert var á Norðurlanda-
ráðsfundinum í Kaupmannahöfn, að
norskir fulltrúar voru hvað ákafastir
að fá sjónvarpshnöttinn. Einnig kom
fram eindreginn stuðningur margra
íslenzkra fulltrúa við hnöttinn (allir
stjórnmálaflokkarnir að Alþýðu-
bandalaginu undanskildu hafa tekið
jákvæða afstöðu til NORDSAT).
Danir voru fremur fáorðir um málið,
en sænskir og finnskir fulltrúar töl-
uðu mikið, en ósamhljóða. Sumir
Finnar og Svíar voru ákaflega
hlynntir hugmyndinni, aðrir ákaflega
mótfallnir — og allt þar á milli.
Þannig birtist mismunandi afstaða
pólitísku flokkanna í löndunum til
málsins.
Danmörk: Sjón-
varpsgósenland
innan fárra ára
Hans Fredrik Dahl menningarrit-
stjóri norska Dagblaðsins ræddi
gervihnattasjónvarp, þar á meðal
NORDSAT, í ágætum fyrirlestri í
Norræna húsinu á dögunum (þar sem
voru alltof fáir áheyrendur!) Hann
sagði einfaldlega að Norðmenn og
íslendingar væru manna æstastir í að
fá NORDSAT af því að lega land-
anna og landslag gerði erfitt um vik
að ná sendingum frá öðrum löndum
eða öðrum hnöttum en NORDSAT.
Danir væru áhugalausir af því þeir
næðu hvort eð er sendingum frá
Þýzkalandi eða Svíþjóð (30%
danskra sjónvarpsnotenda hafa
komið sér upp útbúnaði til að ná
sendingum þýzku stöðvanna, allt að
40% eiga kost á að ná tveimur rásum
sænska sjónvarpsins þó ekki allir
noti sér það). Þegar svo Þjóðverjar,
Luxemborgarbúar, Frakkar og fleiri
Evrópuþjóðir senda upp eigin sjón-
varpshnetti innan fárra ára, geta
Danir auðveldlega „stolið” sér geisla
frá þeim án þess að þurfa að borga
stórfé fyrir. Og Fredrik Dahl fannst
ekki undarlegt að þeim væri því
nokkuð sama um hvort NORDSAT
kæmist á loft eða ekki. Norski rit-
stjórinn sagði það heldur ekki undar-
legt að Svíar tækju fremur dræmt
undir NORDSAT-hugmyndirnar.
Samkvæmt núgildandi samningum
um norrænt menningarsamstarf yrðu
þeir að borga stærstan hluta gífurlegs
kostnaðar við hnöttinn, eða 41,4%
(hlutur Dana er 23,7%, Finna
16,0%, Noregs 18,0% og íslands
0,9%). Hans Fredrik Dahl spurði
sem svo: Ætli Svíum þyki ekki til full-
mikils ætlazt að þeir borgi manna
mest til þess eins að fá aðgang að
sjónvarpsdagskrám sem eru í mun
lakari gæðaflokki en það sem þeir
framleiðasjálfir?!
„Einleikur"
Svía í sjónvarps-
hnattarmálinu
Ræðumenn á Norðurlandaráðs-
þinginu í Kaupmannahöfn (þ.e.
stuðningsmenn NORDSAT) lögðu
meiri áherzlu en áður á þýðingu
hnattarins fyrir norrænt samstarf á
sviði iðnaðarmála. í „6 punkta til-
lögu” ráðherranefndarinnar um
málið sem samþykkt var í Höfn er
einmitt vikið að þessu atriði:
„Að því er hina iðnpólitísku
möguleika varðar er ráðherranefnd-
inni ljóst, að í könnun málsins hefur
ATLI RUNAR
HALLDÓRSSON
einnig verið vikið að þeim atriðum.
Vegna þess hvernig könnunarverk-
efnið var afmarkað hafa þau hins
vegar ekki sætt neinni rækilegri at-
hugun. Þvi er ástæða til að bæta við
þau gögn sem lögð verða til grund-
vallar ákvörðun i málinu athugun er
varpi ljósi á iðnpólitískar forsendur
og afleiðingar norræns hljóðvarps-
og sjónvarpssamstarfs með notkun
gervitungla.”
En í þessu sambandi er vert að
minna á „einleik” Svíþjóðar, nefni-
lega hugmynd Svía um að skjóta á
loft fjarsiciptahnettinum TELE-X
árið 1986. Þetta yrði tilraunahnöttur
fjármagnaður af sænska rikinu. í
gegnum hann yrði hægt að stunda
tölvufjarskipti innan Skandinavíu og
jafnvel ná talsambandi við sænska
flutningabílstjóra á vegum hér og þar
í Evrópu! Svíar áætla að verja tugum
milljóna sænskra króna til þessa
verkefnis strax á næsta ári. Gagn-
stætt NORDSAT, sem talað er oftast
um sem menningarfyrirbæri, er yfir-
lýst markmið TELE-X að þjóna iðn-
aðinum. Athyglisvert er líka að
sænsku flokkarnir sem hafa tekið
opinbera afstöðu gegn NORDSAT,
styðja eindregið TELE-X. Má nefna
sósíaldemókrata, miðflokksmenn
(centern) og kommúnista (Vánster-
partiet kommunisterna).
Margar spurningar
en minna um svör
Það má því orða spurningarnar
þannig: Fer NORDSAT á loft? Fer
TELE-X á loft? Eða fer hvorugur á
loft? Fer TELE-X á loft fyrst og
síðan NORDSAT?
Svörin eru óviss sem stendur, en
þegar líður nær áramótum komast
Erþetta framtíðarsýnin á ís-
landi: aö fóik sé með eigin
stöðvar tH að taka á móti
efhi frá tugum sjónvarps-
gervihnatta?
< 'm.
hlutirnir væntanlega meira á hreint.
Og í síðasta lagi 10. desember verður
endanlega ákvörðun ráðherra-
nefndarinnar um NORDSAT að
liggja fyrir, eigi að halda tímaáætl-
anir um að koma hnettinum marg-
úmtalaða í gagnið. Gert er ráð fyrir
að tilraunasendingar með 5 rásum til
austursvæðis Norðurlanda og 3
rásum til vestursvæðis (þar á meðal
íslands) geti hafizt í fyrsta lagi 6 ár-
um eftir að ákvörðun er tekin um að
koma NORDSAT-kerfinu á laggirn-
ar.
- ARH
Má bjóða þér
ÁSTRALSKA TÓNUST
EBA ÍTALSKT KLÁM?
—af nógu verður að taka fyrir sjónvarpsáhorfendur í Evrópu þegar allir
f jarskiptahnettimir komast í gagnið
Móttökutækið á þakinu hjá þér
nær geisla frá gervihnetti 20 þúsund
mílur úti í geimnum. Þú getur fylgzt
með beinni útsendingu frá hljómleik-
um í Ástralíu, klámmynd frá ein-
hverju Evrópulandinu, kúrekamynd
frá öðru og pólitískum áróðri frá enn
öðru landi.
Þannig lýsir brezka tímaritið NOW
því hvernig framtíðin í fjarskiptum
horfi við John eða Jane í Bretlandi,
meðalbretunum sem setjast við sjón-
varpstækin sín að loknum vinnudegi
og fara að velja og hafna því fjöl-
breytilega efni sem gervihnettir
spræna yfir þjóðlöndin. Bretár, eins
og margar Evrópuþjóðir, geta
bráðum farið að velja úr fjölda sjón-
varpsrása, allt í gegnum þessi tækni-
undur geimaldarinnar sem sigla um
himinhvolfið. Bandaríkjamenn eru
lengst komnir á þeirri braut að notast
við gervihnetti, ekki aðeins til að
hljóðvarpa og sjónvarpa stranda á
milli, heldur einnig í margvíslegum
öðrum tilgangi. Stórblöðin senda til
dæmis efni sitt frá aðalstöðvunum i
gegnum gervihnetti. Móttakendur
eru prentsmiðjur hingað og þangað
um landið og þannig er hægt að
prenta blaðið samtímis á mörgum
stöðum.
Fimm sjónvarpsdagskrár
tiS íslands
ísland kemst inn á gervihnatta-
myndina, ef NORDSAT verður að
veruleika, norræni sjónvarps- og
hljóðvarpsgervihnötturinn margum-
talaði. Og raunar kann að vera að
notendur sjónvarps og hljóðvarps á
afmörkuðum svæðum landsins geti
líka krækt í einhverja geisla frá
öðrumhnöttum.
Á alþjóðlegri ráðstefnu um fjar-
skipti í Genf árið 1977 var útdeilt
rásum frá gervihnetti til rikja. Þar
fengu Norðurlöndin, þar á meðal
ísland, ákveðinn fjölda rása, bæði
rásir sem ná til allra landa sameigin-
lega og til eigin landsvæða. Þannig
tryggðu íslendingar sér allgóða að-
stöðu í nánustu framtíð, en
ákvarðanir ráðstefnunnar gilda í
a.m.k. 15 ár.
NORDSAT-hugmyndir gera ráð
fyrir að senda allar sjónvarpsdag-
skrár Norðurlanda til austurhluta
svæðisins (Danmörk, Finnland,
Noregur og Svíþjóð). Mest yrði hins
vegar hægt að senda fimm sjónvarps-
dagskrár til vesturhlutans (ísland,
Færeyjar, Grænland). Öllum ellefu
hljóðvarpsdagskránum yrði hægt að
útvarpa til austurhlutans og hugsan-
lega a.m.k. tíu hljóðvarpsdagskrám
til vesturhlutans. Þessar upplýsingar
og þær sem á eftir koma eru úr
skýrslu menntamálaráðherra til
Alþingis í janúar 1980, þar sem
NORDSAT-málið var reifað.
Hallast menn að
léttmetinu?
Gert er ráð fyrir að sjónvarpsnotk-
un á Norðurlöndum aukist og að
gæta muni tilhneigingar til að velja
„hið léttara efni á grannlandarásun-
um”, jafnframt því sem fólk horfi þá
minna á léttmeti í heimasjónvarpinu.
Ennfremur kunni að verða vart til-
hneigingar í þá átt að „hafna fræð-
andi dagskrárefni.” Talið er að
hljóðvarpsnotkun muni „tæplega
aukast að ráði.”
Byrjað verður á þýðingum sjón-
varpsefnis í smáum stíl en síðan
aukið við þá starfsemi. Miðað er við
að verulegur hluti íslendinga geti
skilið atalaða eða textaða dönsku,
norsku og sænsku. „Þýðingar á og af
finnsku og af íslenzku ættu að hafa
forgang,” segir þó i skýrslu ráðherr-
ans.
Auglýsingamálið þarfnast sér-
stakrar skoðunar. Hérlendis eru
auglýsingar bæði í sjónvarpi og
hljóðvarpi. Danir, Svíar og Norð-
menn hafa bannað slíkt með lögum í
ríkisfjölmiðlunum, en Finnar auglýsa
aðeins í sjónvarpinu.
Hverjir geta náð NORDSAT-
geisla. í skýrslunni segir um þetta:
„Unnt verður að nota venjuleg sjón-
varpsviðtæki i sambandi við NORD-
SAT-kerfið, en viðbótarbúnaður
verður nauðsynlegur til að ná send-
ingum frá gervitunglunum, hvort sem
um er að ræða einstaklingsmóttöku
eða móttöku um sameiginlega loft-
netsmiðstöð.”
Mikið gaman — og
ákaflega dýrt
Og hvað kosta svo öll herlegheitin?
Fljótsvarað er, að sá kostnaður er
mikill! í janúar 1979 reiknaðist
mönnum til að hinn opinberi
kostnaður (sendikerfi og dagskrár-
efni) væri um það bil 15 danskar
krónur á hvern fbúa á Norðurlöndum
eða 40 dkr. á hvert „sjónvarpsheim-
ili”. Að meðaltalsársgreiðslur fyrir
Norðurlöndin öll, fyrir stofnkostnað
og rekstur, yrði 280—350 milljónir
dkr., þar af yrði hlutur íslands 4—5
milljónir. Heildarútgjöld vegna
stofnkostnaðai viðNORDSAT yrði á
verðlagi janúar 1979 2 milljarðar
danskra króna. Þá er ótalinn
kostnaður sjónvarpsnotenda við að
ná geislunum góðu. Einstaklingsmót-
taka (búnaður og uppsetning) myndi
kosta 4500—6500 d.krónur.
Stjórnmálamenn hafa á Norður-
landaráðsþingum haft mörg fögur
orð um markmiðið með NORDSAT.
Og þó ekki allir, því sumir þingfull-
trúar finna hnettinum þeim flest til
foráttu. Það er talað um að
NORDSAT muni „efla norræna
menningarsamvinnu”, „styrkja nor-
rænt menningarsvæði gagnvart
áhrifum annars staðar frá”, „stuðla
að gagnkvæmum málskilningi”
o.s.frv. Ómögulegt er að segja hvort
fagurgalinn stenzt, og hvort áhrifin
af NORDSAT verða til góðs eða ills
þegar til lengri tíma er litið (komist
hnötturinn á loft á annað borð!).
Hitt er jafnvist og að dagur fylgir
nóttu.að fjarskipti um gervihnetti er
það sem koma skal — líka á Norður-
löndum. Og þá hlytur NORDSAT að
vera álitlegur kostur fyrir Norður-
landabúa.
- ARH