Dagblaðið - 09.04.1981, Qupperneq 10
10
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1981
d
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
Leynilegar viöræður Peresar
við Arabaleiðtoga umdeildar
— Moshe Dayan kann að fá lykilaðstöðu í fsraelskum stjórnmálum eftir f yrirhugaðar þingkosningar
Deilurnar hófust þegar E1 A1 707
þota Shimons Peres, Ieiðtoga
stjórnarandstöðunnar í ísrael, lenti á
Ben Gurion flugvellinum í Tel Aviv.
ísraeiska sjónvarpið greindi frá þvi
að Peres hafi tekið hliðarspor á ferð
sinni til Vestur-Evrópu og átt
leynilegar viðræður við Hassan
Marokkókonung og hann hafi einnig
rætt við leynilegan sendifulltrúa frá
Jórdaníu, sem aðrar heimildir greina
að hafi verið Hassan krónprins,
bróðir Husseins konungs og helzti
ráðgjafi hans í pólitískum efnum.
Leynilegir fundir ísraelsmanna
með leiðtogum Araba eru ekkert nýir
af nálinni en nú eru aðeins þrír
mánuðir til kosninga í ísrael og
Peres, leiðtogi Verkamanna-
flokksins, er helzti keppinautur
Menachems Begins forsætisráðherra
í þeim kosningum. Begin mun enda
allt annað en ánægður með þetta
tiltæki Peresar og einn af samstarfs-
mönnum forsætisráðherrans hafði
þetta að segja: „Aldrei áður hefur
leiðtogi stjórnarandstöðunnar hafið
viðræður við ráðamenn í rikjum sem
eiga í stríði við ísrael. Slík stjórnar-
andstaða sýnir rikinu ekki lengur
eðlilega þegnskyldu.”
Peres, sem hefur umtalsverða
forystu gagnvart Begin í fylgi kjós-
enda ef marka má skoðanakannanir,
lét ásaknir þessar ekki koma sér úr
jafnvægi. Án þess að staðfesta
fréttina um leynifundina gaf hann
sterklega til kynna að fundirnir hefðu
átt sér stað. Tilgangurinn með
fundunum var að sannfæra Araba
um að stjórn Verkamannaflokksins
mundi beita sér fyrir sjálfstjórn
Palestínumanna á vesturbakkanum
og Gazasvæðinu. Sjálfur sagði
Peres: „Við verðum að sjá við hverja
við getum náð samkomulagi og
hverja ekki. Ég þarf ekki á leyfi neins
aðila að halda til þess.”
Strax i októbermánuði síðast-
Jórdaníu minna á, að aðeins þremur
vikum áður höfðu Abba Eban og
aðrir leiðtogar Verkamannaflokksins
gagnrýnt Moshe Dayan fyrrv. utan-
ríkisráðherra fyrir að birta atriði úr
viðræðum er hann átti við leiðtoga
Araba árið 1977. Dayan lét ýmislegt
uppi um þessar viðræður i nýtút-
komnum endurminningum sínum.
Eban hélt því fram að slík afhjúpun
tefldi leynilegum framtíðarviðræðum
ísraelsmanna við Arabaríkin í hættu.
Meginástæðan til þess að Eban
réðist að payan með þessum hætti er
þó vafalaust önnur. Dayan hefur
tilkynnt að hann muni ekki fylgja
Verkamannaflokknum í komandi
kosningum heldur bjóða fram
sjálfstætt.
Talið er að framboð þessarar
gömlu stríðskempu gæti fengið allt
að 15—20 sæti í ísraelska þinginu
Knesset. Þar með væri Dayan
kominn með lykilaðstöðu í þinginu.
Hann gæti myndað stjórn hvort sem
honum sýndist vænlegra með Verka-
mannaflokknum eða Likudbandalagi
Begins forsætisráðherra.
Dayan gæti þá þvingað fram
breytingar á stefnunni í sjálf-
stjórnarmálum Palestínumanna.
Hann er andstæðingur sam-
komulagsins við Jórdaníumenn sem
þeir Shimon Peres og Abba Eban
hafa talað fyrir að undanförnu.
Hann er hlynntur sjálfstjórn
Palestínumanna á vesturbakkanum
og Gazasvæðinu en aðeins að því
marki að hersveitir ísraelsmanna
verði þar áfram með aðsetur og að
ekki verði heldur hróflað við búsetu
ísraelsmanna á þessum svæðum.
Dayan segir um málamiðlunar-
tillögu þeirra Peresar og Eban: „Það
er algjörlega óraunhæft að halda að
Hussein muni fallast á slika tillögu.”
Eftir að leyniviðræðurnar eru
orðnar á hvers manns vörum í ísrael
virðast Jórdaníumenn enda hafa
misst áhugann á framhaldi þeirra.
Þegar Peres reyndi fyrir opnum
tjöldum að fá Saudi-Arabíu til
viðræðna um framtíðJerúsalemborg-
ar þá var því þegar í stað hafnað.
Þessa dagana hafa hugsanlegar
viðræður ísraels og Arabaríkjanna
þó fallið í skuggann af heimsókn
Alexanders Haig, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, til Miðausturlanda.
Yfirlýsingar Haigs við komuna til
ísraels féllu í mjög góðan jarðveg hjá
heimamönnum en þar sagði Haig að
Bandaríkin myndu ekki brcgðast
ísrael og þau mætu mikils þýðingu
Shimon Peres: Tilgangur hans með
leynifundunum var að sannfæra
Araba um að stjórn Verkamanna-
flokksins mundi beita sér fyrir sjálf-
stjórn Palestínumanna á vestur-
bakkanum og á Gazasvæðinu.
ísraels sem vígis gegn auknum á-
hrifum Sovétríkjanna í þessum
heimshluta.Haig hefur látið í ljós von
um að mynda mætti bandalag
ísraels, íraks, Jórdaníu, Sýrlands og
Saudi-Arabíu gegn auknum áhrifum
Sovétmanna.
Hætt er þó við að slikar hug-
myndir séu loftkastalar einir og fáir
verða til að taka undir með Haig á
möguleikum á slíku bandalagi.
Ákvörðun Bandaríkjastjórnar að
selja Saudi-Aröbum vopn og hug-
myndir um að setja á stofn banda-
rískar friðargæzlusveitir á Sinaískaga
eru augljóslega settar fram í þeirri
von að með því megi auka áhrif
Bandaríkjanna í Miðausturlöndum
og að sama skapi sporna við áhrifum
Sovétríkjanna í þessum heimshluta.
(Time og Reuter).
Menachem Begin, sem hér sést faðma Sadat Egyptalandsforseta, á nú mjög i
vök að verjast heima fyrir og skoðanakannanir benda til að flokkur hans muni
bíða ósigur í þingkosningunum eftir þrjá mánuði.
liðnum hóf Peres að senda Hussein
Jórdaníukonungi orðsendingar með
leynilegum sendiboðum þess efats að
stjórn Verkamannaflokksins 'yrði til
viðræðna um öll atriði er tengdust
hugsanlegum friðarsamningum, þar
með talin væri hið viðkvæma
Jerúsalemmál.
Einkum var Peres umhugað að fá
Jórdaníumenn til að ræða mála-
miðlun varðandi vesturbakkann. Slík
málamiðlun fæli það í sér að ísraels-
menn létu af hendi tvo þriðju hluta
svæðisins við sameignlegt ríki
Jórdaníumanna og Palestínumanna
sem yrði undir sérstöku eftirliti
Jórdaníu. Hussein konungur hefur
raunar áður lýst því yfir að hann
fallist ekki á slíka tilhögun og Verka-
mannaflokkurinn telur að Jórdaníu-
menn muni ekki þegar til lengdar
lætur sjá sér fært að fúlsa við
þessum landsvæðum. Niðurstaða
Peresar mun einmitt hafa orðið sú
eftir leyipiviðræðurnar að
Jórdaníumenn kynnu að fallast á
þetta þó smáatriði slíks samkomulags
hafiekki veriðrædd.
Þessar hálfleynilegu viðræður
Peresar við fulltrúa Marokkó og
MosheDayan ásamt konu sinni, Rahel. Liklegt er aö hann muni hafa
lykilaðstöðu f israelskum stjórnmálum eftir næstu kosningar.
ísraelskir skriðdrekar. Dayan vill að israelsmenn hafi áfram hersveitir á vestur-
bakkanum og Gazasvæðinu.
V