Dagblaðið - 27.04.1981, Blaðsíða 17

Dagblaðið - 27.04.1981, Blaðsíða 17
16 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. APRÍL 1981. cv vörukynning B- # # ■ m w ■ r jl. ■ ■ á áleggi í SS búóinni Austurveri í dag kl 2-6 Komið og bragðið á ■ ■ Ostertapaði í úrslitunum Ekkl varfl Telti Þórðarsyni að ósk sinni er hann vonaðist eftir þvi að geta orðið sænskur bikarmeistari með öster óður en hann héldi til Frakkiands. Úrslitaleikur sænsku bikarkeppninnar fór fram fyrir réttum hálfum mánuði og sigraði Elfsborg þá öster 1—0 i úrslitaieiknum. -SSv. Feyenoord náði jöfnu íVín Feyenoord lék i fyrri viku æfingaleik við austurriska landsiiðið og varð jafn- tefli, 1—1. Leikurinn fór fram i Vínar- borg. Pétur Pétursson lék ekki með Feyenoord, að sögn í mótmæiaskyni við framkomu forráðamanna félagsins ihansgarð. -SSv. Kalli Þórðar úrgifsinu Karl Þórðarson, tengiliðurinn knái hjá La Louviere, er nýkominn úr gifsi á ökkla, sem hann varð að ganga með eftir að hafa tognað illilega fyrir háifum mánuði. Karl hefur nýlega haflð æfingar aftur en ekk) er hægt að segja að lánið hafi leiklð við hann f vetur. -SSv. Halldór náði lengst — Varðí 7.-11. sætiá brezka meistaramótinu í judo Fimm islenzkir judomenn tóku þátt i opna brezka meistaramótinu f judo um helgina með sæmllegum árangri. Þeir komust áfram i keppninni en beztum árangri náðl Halidór Guðbjömsson. Hann var í 7.—11. sæti í sinum þyngdarflokkl. Sociedad meistari Real Sociedad varð f gær spánskur meistari f knattspyrau er liðlnu tókst að ná jafntefll, 2—2, á útivelli við Sport- ing Gijon. Jöfnunarmark Sociedad kom á lokamfnútunnl. Tap hefði þýtt að Real Madrid hefði rænt Sociedad titlinum i annað sldptið f röð. Úrslitin á Spáni urðu þessi: Valladolid — Real Madrid 1 —3 Almeria — Zaragoza 3—1 Atl. Bilbao — Salamanca 6—1 Sevilla — Barcelona 1—1 Real Murcia — Hercules 2—2 Sporting Gijon — Real Sociedad 2—2 Valencia — Las Palmas 3—1 Ad. Madrid — Osasuna 1—1 Espanol — Real Betis 1 —2 Lokastaðan varð því þessi á toppn- um: Real Sociedad 34 19 7 8 52—29 45 Real Madrid 34 20 5 9 66—37 45 Valencia 34 17 8 9 59—41 42 AtLMadrid 34 16 10 8 46—39 42 Barcelona 34 18 5 11 66—41 41 Á Spáni gildir sú regla að verði lið efst og jöfn ráða innbyrðisviðureignir félaganna og þar hafði Sociedad betur. Tapaði 0—1 í Madrid en sigraði 3—1 á heimavelli. Aðeins tvenn 3ju verð- laun á NM í lyftingum Uppskera isienzku lyftingamann- anna á Norðurlandamótlnu, sem háð var f Sarpsborg i Noregi um helgina, var heldur rýr að þessu sinnl. Aðeins i tveimur flokkum tókst tslendingunum að komast á verðlaunapallinn, Þorkeil Þórsson, KR, varð þriðji i 60 kg flokki og Haraldur Ólafsson, ÍBA, varð einnlg þriðjl f 75 kg flokld. Niu íslend- ingar voru meðal keppenda á mótlnu. Svfar hlutu flesta meistara, eða fimm, - Svíar hlutu f imm Norðurlandameistara Finnar þrjá og Norðmenn tvo. Bezti lyftlngamaður mótsins var Finninn Taplo Kinnonen i 75 kg flokki. Snaraði 140 kg og jafnhattaði 170 kg. Samtals 310 kg. Árangur islenzku keppendanna i einstökum flokkum varð þessi. Þorkell Þórsson, KR, varð þriðji í 60 kg flokki. Snaraði 80 kg og jafnhattaði Úrslit um Evrópu- sæti HSÍ fkvöld? - Þá leika FH og Valur í Hafnarfirði Úrslitaleikurinn f keppnl HSÍ um Evrópusætið i handknattlelk verður f kvöld i Hafnarfirði. Þá lelka FH og Valur, kl. 19.00 en þessi lið hafa sigrað i leikjum sinum hlngað til. Hafa sex stig og mlklar Ifkur á að liðið sem sigrar i kvöld tryggi sér Evrópusætið. Tveir aðrir leikir verða á dagskrá, Haukar-Fram og Fylldr-Vfkingur. íslandsmeistarar Viltlngs hafa að engu að keppa i þessu móti. Þeir leika auð- vitað i Evrópukeppni meistarallða næsta keppnistimabil. Þróttur i Evrópukeppni bikarhafa. Á föstudag urðu úrsllt þau f keppu- Inni, að Vfldngur sigraði Fram 24—21, Haukar unnu KR 28—21 og FH sigraði Fylld 25—24. Vfldngur hefur flmm stig, Haukar fjögur, KR þrjú en Fram og Fylldr hafa enn ekld hlotið stlg. 95 kg. Samtals 175 kg. Valdimar Runólfsson, KR, varð sjö- undi f 67.5 kg flokki með 90 og 115 kg. Samtals 205. Þorsteinn Leifsson, KR, varð sjötti í 82.5 kg flokki. Lyfti samtals 285 kg. Freyr Aðalsteinsson, ÍBA, varð þar í sjöunda sæti með samtals 280 kg. Kristján Falsson, ÍBA, varð sjötti 1 90 kg flokki með 125 og 157.5 kg. Samtals 282.5 kg. Ingvar Ingvarsson, KR, sem aðeins er 17 ára, varð sjötti i 100 kg flokki með 110 og 150 kg. Samtals 260 kg. Birgir Þór Borgþórsson varð fjórði í 110 kg flokki með 145 kg og 182.5 kg. Samtals 327.5 kg. Sáralitlu munaði að Birgir snaraði 150 kg og jafnhattaði 190. Ef það hefði tekizt hefði hann hlotið silfurverðlaun. Óskar Kárason, KR, varð i sjötta sæti 1 þessum flokki með 145 og 175 kg. Samtals 320 kg. Aðstaða í Sarpsborg var frábær að sögn íslenzku lyftingamannanna. -hsim. Pinero varð langfyrstur Manuel Pinero frá Spáni sigraðl i gær i Madrid-open golfkeppninni. Lék á 279 höggum og var 5 höggum á undan Des Smyth frá trlandi sem var á 284 höggum. Baidovino Dassau frá ítalfu varð næstur með 286, þá Bera- hard Langer, V-Þýzkalandi á 288 ásamt þeim Antonio Garrido og Jose Canizares frá Spáni. Sovétmenn unnu létt Sovétmenn urðu heimsmeistarar i isknattlelk en úrslitakeppninni lauk i Gautaborg i gær. í lokaielk sfnum gerðu Rússarair 1—1 jafntefli við Tékka en voru þegar öraggir með slgur i keppninni áður en lelkurinn fór fram. Sovétrfldn 6 4 2 0 38—12 10 Svfþjóð 6 3 1 2 16—26 7 Tékkóslóv. 6 2 2 2 20—22 6 Kanada 6 0 1 5 16—30 1 í raunverulegum úrslltaleik mótsins sigruðu Rússar Svia 13—1 á laugardag Lyftingakapparnir, sem tóku þátt í Norðurlandamótinu í Noregi. Frá vinstrí: Valdimar Runólfsson, Freyr Aðalsteinsson, Þorsteinn Leifsson, Ingvar Ingvarsson, Birgir Þór Borgþórsson, fararstjóri og keppandi, Kristján Falsson, Haraldur Ólafs- son og Þorkell Þórsson. Oskar Kárason, KR, kom frá Svfþjóð til keppnmnar og er þvf ekki á myndinni. DB-mynd S. DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. APRÍL 1981. 17 Ingl Þór Yagvason varð glimukóngur tslands á tslandsglimunni sem háð var á Laugum i Þingeyjar- sýslu á laugardag. t öðra sæti varð tvfburabróðir hans Pétur og i þríðja sæti enn elnn Þingeylngurinn Eyþór Pétursson. Keppendur voru átta. Myndin að ofan er af Inga Þór. DB-mynd Bjaraleifur. Juventus efst 26. umferðin var háð i itölsku knattspyrnunni i gær. Juventus vann Udinese 2—0 og hefur nú eins stigs forustu, 37 stig. Roma er f öðru sæti með 36 stig. Gerði óvænt jafntefll 0—0 f Ascoli en Napoli, sem er f þriðja sæti, tapaði fyrir neðsta Uðinu Perugia. NapoU hefur 35 stig. Inter er f fjórða sæti með 31 stig. Hreint borð hjá Kínverjum — íheimsmeistarakeppninni íborðtennis Kinverjar skráðu nýja kafla f sögu heimsmeistara- mótanna i borðtennis þegar þeir hiutu aUa meistara- titlana i keppninnl i Novl Sad i Júgóslaviu, sem lauk i gær. Keppendur voru frá 68 þjóðum. Viðamesta heimsmeistarakeppni sem um getur f fþróttum á einum stað. Keppendur skiptu þúsundum. Keppt var um sjö heimsmeistaratitla. Fyrr i siðustu viku sigr- uðu Kinverjar f floldcakeppnl karia og kvenna. Um helgina var svo keppt f einUðaleik, tvUiðaleik og tvenndarkeppni. Kinverjar sigruðu alls staðar. f einUðalelk karla slgraði Guo Yuehua landa sinn Cal Zhenhua, sem var raðað i efsta sæti, með 21— 14, 17—21, 21—14 og 21—16 og f fréttaskeytl frá Reuter segir að báðlr hafl sýnt afburðatækni. SvUnn SteUan Bengtsson, sem var heimsmeistarí fyrír tiu árum, komst i undanúrsUt en tapaði þar fyrír Cal Zhenhua i flmm lotum. 21—14, 21—9, 13—21, 17—21 og 21—16. Áður hafði Bengtsson slgrað tvo Kfnverja og það þyklr orðið gifurlegt afrek i borðtennis. Bengtsson vann Shi Zhihao 24— 22,10—21, 21—17 og 21—18 og hann vann Huang Liand 21—14,20—22,21—13,17—21 og 21—10. ýelnUðaleik kvenna sigraðl Tong Ling, Kina, f úrslitum löndu sina Cao Yanhua 21—19, 16—21, 21—17,18—21 og 21—15. Yanhua varð helmsmelst- ari i tvUlðalelk með Zhang Deying. í tvUiðaleik karla urðu Cai Zhenhua og Ll Zhenshi heimsmeistarar. Xie Saike og Huang Junqun urðu heimsmeistarar i tvenndarkeppni. t flokkakeppn! karía sigraði Kina heimsmeistarana frá i fyrra, Ungverja, i úrsUtum með 5—2 en i úrsUtum kvenna sigraði Kina Suður- Kóreu 3—0. -hsim. ÍSLENZKU STRÁKARNIR AÐEINS í FJÓRÐA SÆTI —á Norðurlandamótinu í handknattleik í Svíþjóð íslenzku strákaralr á Norðurlanda- móti unglingalandsliöii, 18 ára og yngri, töpuðu mjög óvænt fyrir Finn- um i sfðasta leik sinum á mótlnu f gær i Trollhátten. Finnar, sem iitið höfðu sýnt á mótinu, sigruðu 18—12. Fyrr í gær vann ísland Noreg 13—12 og stefndi þá aUt f þriðja sætlð eftlr frekar Iftll töp gegn Svium og Dönum. Sviar urðu Norðurlandameistarar, sigruðu Dani örugglega i gær með 23—19. Keppnin hófst á föstudag og voru þá tveir leikir á dagskrá. Úrslit. Noregur — Finnland 17—17 Svíþjóö — Ísland 17—13 Guðmundur Albertsson, KR, og Óskar Þorsteinsson, Víking, voru markhæstir í islenzka liðinu með þrjú mörk hvor. Á laugardag voru fjórir leikir á dag- skrá. Úrslit. Danmörk — Noregur 17—13 Sviþjóð — Finnland 32—14 Danmörk — Ísland 24—20 Svíþjóð — Noregur 22—12 Guðmundur Albertsson var mark- hæstur gegn Dönum með átta mörk. Óskar og Óttar Mathiesen, FH, skoruðu þrjú mörk hvor. í gær lauk svo keppninni með fjórum leikjum. Úrslit. Danmörk — Finnland 27—12 ísland — Noregur 13—12 Finnland — ísland 18—12 Svíþj óð — Danmörk 23—19 Gísli Felix Bjarnason, KR, átti mjög góðan leik í marki gegn Norðmönnum. Mörk íslands skoruðu Óskar 4, Guðmundur, Óttar, Hermann Björns- son, Fram, og Björgvin Guðmundsson, FH, tvö mörk hver, og Aðalsteinn Jónsson, UBK, eitt. Ekki er okkur kunnugt um hverjir skoruðu mörkin gegn Finnlandi. Lokastaðan í mótinu var þannig: Svíþjóð 4 4 0 0 94—58 8 Danmörk 4 3 0 1 87—68 6 Finnland 4 1 1 2 61—88 3 ísland 4 1 0 3 58—71 2 Noregur 4 0 1 3 54—69 1 -hsim. SKILAFRESTUR ER TIL 20. MAI. Dómnefnd skipa: Siguröur Hreiöar Unnur Arngrímsdóttir Ottó Ólafsson Faglegir ráögjafar okkar veröa MÓDEL- SAMTÖKIN. Ábendingar sendist ritstjóm Vikunnar, Síðumúla 23. Nánari upplýsingar fást í síma 27022. Dóm- nefnd velur fyrst álit- legan hóp úr ábend- ingunum og veröur hann kynntur í HOLLYWOOD 3. júní. Úrvals- hópur, 10 manns kem- ur svo fram í Hollywood 10. júní. Ljósmyndastofan ÍMYND tekur studio myndir af öllum í úrvalshópnum. Þær munu birtast á forsíðum Vikunnar. Módelsamtökin gefa öllum í úrvalshópnum þátttöku í námskeiöi fyrir veröandi módel næsta haust. Þeim bestu veröur komiö á framfæri viö viöurkendar um- boösskrifstofur erlendis. Vikan býöur síðan efnilegustu dömunni og herranum í viku kynnisför til NEW YORK VIKAN VILL NÚ HAFA UPP Á ÖLLUM ÞEIM SEM EFNILEGIR ERU í MODELSTÖRF.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.