Dagblaðið - 27.04.1981, Blaðsíða 18

Dagblaðið - 27.04.1981, Blaðsíða 18
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. APRÍL 1981. Ipswich á enn möguleika eftir sigur á Man. City. Gífurleg spenna í sambandi við þriðja fallsætið í 1. deild Leikmenn Aston VUIa hlupu sigur- hríng á Villa Park á laugardag eftir að þeir höfflu unnið auðveldan slgur i Middlesbrough. Fögnuður 38 þúsund áhorfenda var gifurlegur — maðui hefur sjaldan heyrt önnur eins hróp I BBC — og þó eru leikmenn Viila ekkl orflnir enskir meistarar. Sigurhríngur- inn frekar hlaupinn til að þakka hinum tryggu áhorfendum mlkinn stuðning á Villa Park á leiktfmabUinu en ibúai Birmingham, þessarar annarrar stærstu borgar Englands, fögnuflu þelm sem meisturum og velfuflu spjöldum, sem á var letrafl Vifl erum meistarar. Mögu- leikamlr eru vissulega miklir — eltt stig gegn Arsenal á Highbury i Lundúnum á laugardag nægir. En Arsenal-lifllfl er i stuði. Hefur sigrað f sex af sfflustu sjö leikjum sinum og Ipswich, eftir sigur á Man. City á Portman Road á laugar- dag, getur náfl sextiu stigum eins og Villa hefur nú. Á eftlr tvo lelki. Vifl Middlesbrough á útivelll nk. laugardag, slðan Southampton heima. Þafl er þvf alls ekki hægt að afskrífa möguleika Ipswich, þó smáir séu. Vetur konungur tók völdin á ný á Bretlandi á laugardag og mörgum leikj- um varð að fresta vegna snjókomu. Viðast var leikið þó erfitt væri, mikill kuldi. En leikmenn Aston Villa létu það ekki á sig fá. Léku Middlesbrough sundur og saman frá fyrstu minútu tii hinnar síðustu á Villa Park. Árangur- inn var þó ekki nema þrjú mörk en að auki small knötturinn fjórum sinnum í tréverki Middlesbro-marksins. Þá átti Jim Platt stórleik i marki Boro. Varði hvað eftir annað af hreinni snilld. Leik- menn Viila gátu þó varla farið sigur- vissir i leikinn gegn Boro. Aðeins skorað eitt mark og hlotið eitt stig í sjö síðustu leikjunum við Middlesbrough. En þegar á þurfti að halda á laugardag var aðeins eitt lið á veliinum. Strax á fyrstu min. fór Aian Evans, sem nú lék með á ný eftir leikbanniö, í sóknina og sendi knöttinn i þverslá marks Middlesbrough. Síöan var leik- urinn að mestu í og við vítateig en Villa skoraði ekki fyrsta markið fyrr en á 23. mín. Villa fékk þá aukaspyrnu, sem Colin Gibson tók. Gaf á Peter Withe, sem sendi til Gary Shaw og leikmaður- inn ungi skoraði sitt 21. mark á leik- tímabilinu. Gibson, sem hélt stöðu sinni i Villa-liðinu þó Evans léki með, átti einnig þátt í öðru markinu, sem Peter Withe skoraði á 52. min. Skaliaði alveg óvaldaður í mark. Þriðja markið skoraði Evans á 82. mín. og það var áttunda mark þessa sterka, skozka varnarmanns. Hann var áður miðherji. Lokamínúturnar var knötturinn nær stanzlaust í vítateig Boro. Swain átti stangarskot — Withe hitti þverslána en oftar fór knötturinn ekki i markið. Lika einstefna f Ipswich Ipswich, án Thijssen, Mariner og Gates, sótti einnig nær stanzlaust gegn Man. City á Portman Road. City án MacDonald, Hutchison, Caton og Gow, átti aldrei möguleika. Stórleikur Joe Corrigan í marki City kom í veg fyrir stórtap Manchester-liðsins auk þess, sem lánið lék ekki við leikmenn Ipswich. John Wark og Alan Brazil áttu báðir skot í þverslá og misnotuðu einnig góð tækifæri. Eina mark leiksins var skorað á 51. mín. Wark sendi knöttinn fyrir markið og miðvörðurinn hávaxni, Terry Butcher, skallaði knött- inn í City-markið, algjörlega óverjandi fyrir Corrigan. Þessir tveir eru hæstu leikmennirnir i ensku knattspyrnunni, um 1,94 m á hæð. Veruleg þreyta kom fram i leik Ipswich sfðustu 20 min. þó það kæmi ekki að sök. En litum þá á úrslitin á laugardag. 1. delld A. Villa — Middlesbro 3—0 Coventry — Southampton 1 —0 C. Palace — Nottm. For. 1 —3 Everton — Stoke 0—1 Ipswich — Man. City 1—0 Leeds — WBA frestað Peter Shilton bjargar fyrir Nottingham Forest í leiknum við Aston Villa fyrra laugardag — Peter Withe og Gary Shaw hættulega nærri. Þeir skoruóu báðir gegn Middlesbrough á laugardag og um það er rætt á Englandi nú, að Shilton sé á leiðinni til Manchester Unitcd. Leicester — Birmingham 1—0 Man. Utd. — Norwich 1—0 Sunderland — Brighton 1—2 Tottenham — Liverpool 1—1 Wolves — Arsenal 1—2 Blackbum — Nescastle 3—0 Bristol City — Shrewsbury 1—1 Grimsby — Cardiff 0—1 Luton — Oldham 1—2 Notts Co — Watford 1—2 QPR — Cambridge 5-0 Swansea — Chelsea 3—0 Wrexham — Bristol Rov. 3—1 Leikjum Derby—Preston, Sheff. Wed.—West Ham var frestað vegna snjókomu. 3. delld Blackpool — Barnsley 1—0 Brentford — Rotherham 2—1 Carlisle — Charlton 1—2 Chesterfield — Exeter frestað Fulham — Reading 1—2 GiIIingham — Chester 2—1 Hull — Sheff. Utd. 1—1 Newport — Colchester 1—0 Plymouth — Bumley 2—1 Portsmouth — Huddersfield 1—2 Walsall — Swindon 2—1 Með sigrinum i Carlisle við landa- mæri Skotlands tryggði Lundúnaliðið Charlton sér sæti í 2. deild á ný. Liðið er undir stjóm Úlfa-leikmannsins fræga hér á ámm áður, Mike Bailey. Rother- ham er efst með 59 stig. Charlton hefur 57 stig, Barnsley 55 stig og þarf tvö stig til viðbótar til að komast í 2. deild. Á tvo leiki eftir. Huddersfield hefur 54 stig og á aðeins einn leik eftir. 4. deild Aldershot — Vork 1—1 Bournemouth — Lincoln 0-1 Bury — Stockport 0—1 Darlington — Crewe 2—1 Peterbro — Hartlepool 1—1 Torquay — Southend 0—3 Tranmere — Scunthorpe 1—2 Wigan — Wimbledon 1—0 Leikjum Mansfield—Doncaster, Rochdale—Northampton var frestað. Southend hefur 66 stig, Lincoln 62 og nær öruggt er, að Doncaster og Wimbledon fylgja þeim upp i þriðju deild. Gffurleg fallbarátta Fallbaráttan i sambandi við þriðja neðsta sætið í 1. deild er gífurleg. C. Palace fallið og Leicester féll á laugar- dag þrátt fyrir sigur á Birmingham þar sem fallliðið hafði mikla yfirburði. Aðeins eitt mark þó, sem bakvörðurinn Tom Williams skoraöi. Úlfarnir eru nú i þriðja neðsta sætinu með 32 stig en þeir eiga þrjá leiki eftir, svo möguleikar þeirra að bjarga sér eru miklir. Ekki þó með sama áframhaldi og i síðustu leikj- um, þar sem Úlfarnir hafa tapað og tapað. Á laugardag á heimavelli fyrir Arsenal. Þar vann Lundúnaliðið sinn sjötta sigur i sjö siðustu leikjunum. UEFA-sætið að verða öruggt. John Richards skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Úlfana en síðan varð miðvörður- inn stóri, George Berry, fyrir þvi að senda knöttinn i eigið mark. Jafnt 1—1 i hálfleik en Frank Stapleton skoraði sigurmark Arsenal í siðari hálfleik. Sunderland, Brighton og Norwich hafa 33 stig og þar virðist staða Sunder- land erfiðust. öll eiga iiðin eftir einn leik. Sunderland útileik við Liverpool, Brighton Leeds heima og Norwich á Leicester eftir á heimavelli. Norwich átti enga möguleika gegn Man. Utd. sem vann sinn sjöunda sigur í röð. Aðeins eitt mark þó skorað í leiknum. Joe Jordan skoraði sigurmarkið á 57. mín. Bjargað var frá Lou Macari á marklínu Norwich og Chris Wood, markvörður, lánsmaður frá QPR, bjargaði hvað eftir annað af snilld. Einkum þó tvívegis frá Gary Birtles, sem lauk því keppnistimabilinu án þess að skora mark á Old Trafford. Sigur Brighton í Sunderland var ákaflega þýðingarmikill fyrir lið Allan Mullery, enska landsliösmannsins hér á árum áður. Ósanngjarn þó í mesta máta, því Sunderland var lengstum miklu betra liðið. Mike Robinson náði forustu fyrir Brighton á 35. min. mjög gegn gangi leiksins. Hans 22. mark á leiktímabilinu. í siöari hálfleik jafnaði Alan Brown fyrir Sunderland og þannig var staðan, þegar 90 mín. voru liðnar. En dómarinn hélt leiknum aðeins áfram og það nægði Brighton, þvi i meiðslatímanum splundraði Gordon Smith vöm Sunderland og Gary Williams, bakvörður, skoraði markið þýðingarmikla fyrir „Máv- ana”. Everton hefur 34 stig og er enn i fall- hættu. Hefur aðeins unnið einn leik af siðustu 12. Áhorfendur innan við 15 þúsund gegn Stoke á laugardag og enn eitt tapið. Adrian Heath skoraði eina mark leiksins fyrir Stoke. Þá er Coventry ekki alveg sloppið þrátt fyrir tvo góða sigra að undanförnu. Á laugardag gegn Dýrlingunum frá Southampton.Coventry var þar miklu betra liðið og Gary Thompson skoraði eina mark leiksins á 53. mín. Þar með fauk UEFA-sætið á brott hjá Kevin Keegan og félögum hans. Hins vegar er óliklegt að Coventry fái fleiri stig. Á eftir að leika við Forest i Nottingham og Forest stefnir á UEFA-sæti. Marka- talan hjá Coventry mjög slæm þannig, að liðið getur fallið ef Norwich, með góðum sigri á Leicester, Brighton, Sunderland sigra á siöasta laugardegi deildakeppninnar, auk þess, sem Úlfarnir taka sig á og Everton hlýtur eitt stig. Möguleikarnir eru því margir í sambandi við þriðja fallsætið í 1. deild. Svertinginn skoraði Tottenham og Liverpool gerðu jafn- tefli í skitaveðri í Lundúnum. Howard Gayle, fyrsti svertinginn, sem leikur með Liverpool — fæddur þar í borg — náði forustu fyrir lið sitt en Glen Hoddle jafnaði fyrir Tottenham með miklum þrumufleyg. Bang — gull af marki. Kenny Dalglish lék ekki með Liverpool og verður ekki með skozka landsliðinu gegn ísrael á Hampden á miðvikudag. Heldur ekki Andy Gray, Úlfunum, en stjóri Úlfanna, John Barnweil, neitaði honum um leyfi í HM-leikinn vegna hinnar slæmu stöðu Úlfanna i 1. deild. Gray tók því illa, skiljanlega. Nottingham Forset hefur nú góða möguleika á UEFA-sæti eftir sigurinn á Palace á laugardag. Stewart Gray og Ian Wallace skoruðu fyrir Forest i fyrri hálfleik, Norðmaðurinn Einar Aas, sem staðið hefur sig vel í Forest-liðinu, þriðja markið. Neil Smillie skoraði mark Palace. Peter Shilton leikur sinn siðasta leik með Forest nk. laugardag gegn Coventry. Mikið er nú skrifað i ensk blöð að ef Shilton kemst ekki til liðs á meginlandinu fari hann til Man. Utd. i skiptum fyrir Gary Birtles. Mikil spenna er enn á toppi 2. deildar. West Ham auðvitað löngu búið að tryggja sér sæti f 1. deild og Notts County hefur enn góða mögu- leika þrátt fyrir tap á heimavelli á laugardag fyrir liði Elton John, Wát- ford. Blackbum og Swansea keppa um þriðja sætið og gæty reyndar bæði komizt upp ef Notts County gefur eftir. Blackburn á þó aðeins einn útileik eftir. Gegn neðsta liðinu, Bristol Rovers. Notts County og Swansea eiga tvo leiki eftir — Swansea m.a. erfiðan útileik i Preston. Ef að líkum lætur ráðast úrslit ekki fyrr en síðasta dag keppninnar. Staðan er nú þannig: 1. deild A. Villa 41 26 8 7 72—38 60 Ipswich 40 23 10 7 74—38 56 Arsenal 41 18 15 8 59—45 51 Nottm. For. 41 19 11 11 61—43 49 WBA 40 19 11 10 56—40 49 Southampton 41 19 10 12 73—54 48 Man. Utd. 42 15 18 9 51—36 48 Liverpool 39 15 17 7 59—40 47 Tottenham 40 14 15 11 68—63 43 Leeds 40 17 9 14 39—45 43 Stoke 41 11 18 12 48—58 40 Man. City 40 14 10 16 55—57 38 Birmingham 41 13 11 17 49—60 37 Middlesbro 40 15 5 20 50—58 35 Coventry 41 13 9 19 47—67 35 Everton 40 13 8 19 54—57 34 Sunderland 41 13 7 21 51—53 33 Brighton 41 13 7 21 52—67 33 Norwich 41 13 7 21 47—70 33 Wolves 39 12 8 19 40—52 32 Leicester 41 12 6 23 37—65 30 C. Palace 41 6 6 29 46—82 18 2. deild West Ham 39 26 9 4 77—29 61 Notts Co. 40 16 17 7 45—38 49 Blackburn 41 15 18 8 41—29 48 Swansea 40 17 13 10 59—41 47 Luton 40 17 11 12 56—44 45 Derby 40 15 14 11 56—50 44 Grimsby 40 14 15 11 41—36 43 QPR 41 15 12 14 53-43 42 Sheff. Wed. 39 17 8 14 51—46 42 Chelsea 41 14 12 15 46—39 40 Newcastle 41 13 14 14 27—44 40 Watford 39 13 13 13 47—44 39 Shrewsbury 41 11 16 14 43—44 38 Wrexham 40 12 14 14 43—44 38 Cambridge 40 16 6 18 48—62 38 Bolton 40 14 9 17 59—61 37 Orient 39 13 11 15 49—51 37 Oidham 41 11 15 15 37—48 37 Cardiff 40 12 10 18 44—60 34 Preston 40 10 14 16 38—58 34 Bristol City 41 7 16 18 29—49 30 Bristol Rov. 41 5 13 23 34—64 23 -hsim. Sovétríkin heims- meistarar — Sigruðu Svía 13-1 í íshokkí á laugardag Sovétrikin unnu stórsigur á Svíþjóð, 13—1, (0—0, 6—0 og 7—1) í heims- meistarakeppninni í ishokkí i Gauta- borg á laugardag. Mefl sigrinum tryggðu sovézku leikmennirnir sér heimsmeistaratitilinn. Rúmlega 11 þús- und áhorfendur i skautahöllinni f Gautaborg voru sem lamaðir eftir þvi sem á leikinn leið. Svfamir algjörlega yfirspilaðir. Staflan f rifllinum: Sovétrikin 5 4 1 0 37—11 9 Sviþjóð 5 2 1 2 12—23 5 Tékkóslóvakia 5 2 12 19—21 5 Kanada 5 0 1 4 13—26 1 I B-riðlinum var lokastaðan þannig: Bandaríkin 6 4 1 1 35—28 9 Finnland 6 3 2 1 33—21 8 V-Þýzkaland 6 3 1 2 40—30 7 Holland 6 0 0 6 22—51 0 Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Leikmönnum Aston Villa fagnað sem meisturum á Villa Park á laugardag: Þurfa þó eitt stig til við- bótar í meistaratitilinn!

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.