Dagblaðið - 27.04.1981, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 27.04.1981, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. APRlL 1981. I S Erlent Erlent Erlent Erlent Konungur dýranna sýnir tennurnar Ekki cr þaó nú bcint árcnnilcat ijóhit) á myndinni />ar scm /rnó grettir sig illilcga og sýnir bcittar vigtennurnar. En stúlkan jtarf ckki aó ha/á áhyggjur. Itán ttg Jasper, cn svo hcitir Ijóttió, cru bcztu vinir. Ilán hjákraói honum nvicga cr hunn var vcikur ttg rcyndar ót hán hann upp alvcg frá þvi hann var lítill Ijónsungi. Stálkan heitir Kim Simmons ttg cr 22 áru dóttir givzlumánns í dýraguróinum i Cambridgc á Englundi. Rock Hudson hefur misst trúna á sjálfan sig: Sœkir huggun í áfengið Rock Hudson er enn stórt nafn i kvikmyndaheiminum. En það er ekki alltaf auðvelt að halda sér á toppnum og það hefur Hudson fengið að reyna. Þau hlutverk sem hann hefur fengið síðustu árin hafa orðið veigaminni með hverju ári. Sagt er að hinn 55 ára gamli leikari eyði miklum tíma í eigin sýningaher- bergi og horfi þar á sínar gömlu kvik- myndir með glas í hendi. Hann er sagður hafa misst allt álit á sjálfum sér. Lítur hann á kvikmyndir sínar sem hreinasta rusl og feril sinn misheppn- aðan. Og huggun hefur hann sótt í áfengið. „Það er ótrúlegt að eftir 60 kvik- myndir skuli ein af stærstu stjörnum Hollywood vera í þann veginn að hafa algjör umskipti á lífi sínu. Það er leitt vegna þess að hann er enn frambær/ legur leikari,” segir kunningi Hudsons sem hefur verulegar áhyggjur af stifri drykkju leikarans. Áfengisdrykkja Roek Hudson er sögó stíf um þessar mundir. Meó Doris Day í kvikmyndinni Send Me No Flowers frá 1964. Þingmenn skulu slökkva Ijósin Hinir 635 fulltrúar í neðri málstofu brezka þingsins hafa fengið bréf þar sem þeir eru beðnir um að slökkva öll. ljós áður en þeir yfirgefa skrifstofur sínar. Bréfið minnir þingmennina á að það eru fjármunir skattborgar- anna sem „brenna upp” ef ljósin eru látin loga. Rafmagnsreikningur vegna neðri málstofunnar er í ár talinn munu hljóða upp á 300 þúsund pund sem eru um 4,3 milljónir íslenzkra króna. Liberace elskar hundana sína — segist vera löngu hœttur að kippa sér upp við rœtnar athugasemdir «C Liberace með einn af hundunum sinum: „Ég kalla þá börnin min. Þeir eru dásamlegir og ég elska þá.” skýringar á opinberum vettvangi um það hvers vegna hann hefði aldrei kvænzt. ,,1 dag lifum viö á slíkum frjálsræðistimum að ég held að fólk hafi ekki lengur áhyggjur af því sem einhver annar gerir bak við lokaðar dyr,” sagði Liberace nýlega í viðtali við bandaríska sjónvarpsstöð. „Þetta hneykslar ekki lengur. Á fimmta áratugnum var öll hegðun í þessa átt ákaflega varasöm og kallaði fram viðbrögö. En í dag eru breyttir tímar. Ég elska börn. Ég harma aö ég skuli ekki hafa eignazt nein börn,” segir Liberace en í stað þeirra hefur hann safnað að sér fjöida hunda sem hann hugsar um sem væru þeir hans eigin afkvæmi. „Hundarnir eru alveg eins og börn, er það ekki?”spyr hann. „Égkallaþá börnin mín. Þeir eru dásamlegir og ég elskaþá.” Hinn glysgjarni píanóleikari Liberace segist ekki iengur kippa sér upp viö rætnar athugasemdir um pipar- sveinslif sitt. Eitt sinn höföaði hann mál gegn manni einum sem setti fram VINIUUEFTIRLIT RÍKISINS Siðumúla 13,105 Reykjavik. Simi 82970 Auglýsing um gildistöku nýrra lagaákvæða um hvíldartíma og f rídaga: Samkvæmt 52. gr. laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. scnt gildi tóku hinn 1. janúar sl., skal haga vinnutíma þannig að á hverjunt sólarhring. reiknað l'rá byrjun vinnudags, fái starfsmenn a.m.k. 10 klukkustunda samfellda hvíld. Samfelldan hvíldartima má stytta í 8 klukkustOndir þegar uni er að ræða: Vaktavinnu. störl' að land búnaði, björgun verðmæta, svo sent sjávarafla, frá skenimdunt. Samkvæmt 55. gr. fyrrgreindra laga skulu starfsmenn á hverju sjö daga timabili fá a.nt.k. einn viku legan frídag sem tengist beint samfelldum daglegum hvildartima sbr. 52. gr. Aösvo ntiklu leyli sem því verður við komið skal vikulegur frídagur vera á sunnudegi og skulu allir þeir sent starl'a i fyrir tækinu fá frí á þessum degi. Ef nauðsyn krefur ntá fresta vikulcgum frídegi og gel'a |x’ss í stað fri siðar: a| Þeim sem starfa í heilbrigðis- og vistarstofnunum eöa viö önnur hjúkrunar- og liknarstörl. b) Þeim sem vinna við vörslu dýra og gróðurs, c) þeim sent annast framleiðslu og þjónustustörf þar sern sérstakar aðstæður gera slik frávik nauð synleg, d) Þeini sem annast þau störf sem nauðsynleg eru vegna öryggismála og varðveislu verðmæta. Frávik ntá gera frá ofangreindunt ákvæðum um hvildartíma og fridaga |xgar truflun verður á starf semi vegna ytri aöstæðna eða ófyrirséðra atburða að þvi marki scnt nauðsynlegt er til þess að koma í veg fyrir verulegt tjón þar til regluleg starfsemi kemst á að nýju. Vinnueftirlit ríkisins getur ennfremur veitl undanþágur frá ákvæðunt þessunt þegar starfið er |x’ss eðlis aðekki er unnt aðstöðva starfsemina eða gera á henni hlé, ellegar sérstakir atvinnuhættir gcra frávik nauðsynleg. Slík frávik má þó gera í undantekningartilvikum án þess að slíkt leyli hal'i verið fengið ef ekki hefur verið unnt að afla þess i tæka tið. Atvinnurekandi skal tilkynna slík frávik til Vinnueftirlits ríkisins tafarlaust. Þegar sérstakar ástæður eru fyrir hcndi getur Vinnueftirlil rikisms ákveðið timabundnar undanþágur frá ákvæðum um vikulega frídaga. Ofangreind lagaákvæði gilda ekki um sjómenn og áhafnir flugvéla. Framkvæmd frávika þeirra sem að ofan greinir skal vera í samræmi við samkomulag aöila yinnu markaðarins samkvæmt 52., 53., 54., 55. og 56. gr. laga nr. 46/1980. Reykjavík 15. apríl 1981. Geymið auglýsinguna og festið upp á vinnustöðum. Léku fótbolta í 120 tíma Fyrir nokkrum árum gekk yfir ísland sannkallað maraþonæði. Hver íþróttahópurinn á fætur öðrum reyndi þá að setja met í þvi að leika iþróti sína sem lengst en þessar mettilraunir hættu snarlega er æðstu menn íþróttamála lýstu vanþóknun sinni á þeim og töldu þær ekki samræmast anda íþróttahreyfingar- innar. En í Vestur-Þýzkalandi telja menn allt í lagi að setja maraþonmet í fót- bolta. Nýlega slógu 36 þarlendir menntaskólanemar metið er þeir léku i samtals 120 klukkustundir. Gamla metið var 76 klukkustundir. 1 knatt- spymuleiknum sem var samfelldur, voru skoruð hvorki fleiri né færri en 4492 mörk.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.