Dagblaðið - 27.04.1981, Blaðsíða 19
'..f'v
Ómar Torfason lætur hér þrumufleyg riða af rétt utan vítateigs. Þetta skot rataði þó ekki i netið.
DB-mynd S.
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. APRÍL 1981.
Iþróttir
Iþróttir
Aðeins einum tókst að
skora í bráðabananum!
— Þorsteinn Sigurðsson tryggði Val sigur yf ir Víkingi með
eina marki bráðabanans
Valsmenn unnu Víking i Reykja-
vfkurmótinu i knattspyrnu 6 laugardag
með 2 mörkum gegn 1 eftir bráðabana.
Óhætt er að segja að nokkur heppnis-
stimpill hafi verið á sigri Valsmanna
þvi lengst af voru Vikingarnir sterkari
aðiiinn.
Lárus Guðmundsson kom þeim yfir í
fyrri hálfleiknum en aðeins 5 min. fyrir
leikslok jafnaði Þorvaldur í. Þorvalds-
son eftir góðan undirbúning Hilmars
Harðarsonar, fyrrum Leiknismanns.
Það varð því að gripa til bráða-
banans umdeilda og þrátt fyrir 10 til-
raunir tókst aðeins einu sinni að koma
knettinum í netið og það var í fyrstu til-
raun. Þorsteinn Sigurðsson skoraði þá
örugglega framhjá Diðrik Ólafssyni í
Vikingsmarkinu. Öðrum tókst ekki að
skora — ýmist misstu menn boltann of
langt frá sér eða þá að skotin voru ekki
hnitmiðuð.
Leikurinn á laugardag var fyrir
margra hluta sakir skemmtilegur. Vik-
ingar beittu mikið stuttu og nettu sam-
spili og síðan stungum inn á Lárus mið-
herja. Spil Valsmannanna var hins veg
ar mun meira á þverveginn og ekki
nándar nærri eins beitt fyrir vikið.
Greinilegt að margir hinna nýju leik-
manna Vals eiga eftir að aðlagast liðinu
betur.
Þá sigraði Ármann Þrótt 4—3 eftir
bráðabanakeppni í gær. Jafnt var, 0—
0, eftir venjulegan leiktíma. Staðan í
mótinu er nú þessi:
Fylkir 3 3 0 0 9-3 6
Valur 3 2 0 1 4-3 4
yíkingur 4 2 0 2 7-9 4
Ármann 3 2 0 1 6-13 4
Fram 3 10 2 12-5 3
Þróttur 4 1 0 3 6-8 2
KR 2 0 0 2 4-7 0
Fram fékk aukastig fyrir leik sinn
gegn Ármanni á dögunum. Næsti
leikur er í kvöld kl. 19 á milli KR og
Fram.
NETTELSTEDT HAFÐISIGUR
í KEPPNIBIKARHAFA
— sigraði a-þyzka liðið Hansa Rostock f úrslitum
Nettelstedt, sem sló Haukana út f 2.
umferðinni, varð 1 gær Evrópumeistari
bikarhafa eftir 17—14 sigur á Hansa
Rostock frá Austur-Þýzkalandi.
Leikurinn fór fram í Lilbbecke og
þurftu leikmenn Nettelstedt að vinna
þriggja marka sigur til að bera sigur úr
býtum þvi Rostock vann heimaleikinn
18—16. Það tókst og þaö var Harry
Keller sem skoraði 17. markið tæpum
tveimur mínútum fyrir leikslok. Ro-
stock-liðinu tókst ekki að svara fyrir sig
og þar með var bjöminn unninn.
a
Nettelstedt-liðið vakti ekki ýkja
mikla athygli hér heima í vetur. Sigraði
Haukana 21—18 í Firðinum eftir meiri
háttar basl. Útileikurinn var síðan
erfiðari fyrir Haukana sem töpuðu
12—19.
-SSv.
Möguleikar Dortmund á
UEFA-sæti aukast á ný
— Gladbach tapaði í eina Bundesliguleiknum um helgina
Stuttgart sigraði Borussia Mönchen-
gladbach 3—1 á útivelli i v-þýzku
Tap Lokeren
íBelgíu
Standard Liege vann góðan sigur,
3—0, á einu botnliðanna, Beerschot, f
belgísku 1. deildinni um helgina. Á
sama tfma tapaði Lokeren 1—3 fyrir
meisturunum, Anderlecht, á útivelli.
önnur úrslit urðu annars sem hér
segir:
Waregem — Beringen 2— 1
Gent — FCLiege 3—1
Beveren — Courtrai 1 — 1
Berchem — Molenbeek 1—3
CS Brugge — Lierse 2— 1
Waterschei — FC Brugge 2—2
Antwerpen — Winterslag 1 — 1
Anderlecht er fyrir löngu orðið
meistari og hefur nú 51 stig. Lokeren
og Beveren hafa bæði 40, Standard
Liege 39 og FC Brugge 35.
Bundesllgunni um helgina. Þessum lelk
var frestað fyrr i vetur vegna veðurs.
Kaiserslautern heldur þó enn 3. sætinu
i deildinni þrátt fyrir þennan sigur en
staðan er nú þannig á toppnum:
Bayern 29 17 9 3 68—38 43
Hamborg 29 19 5 5 67—37 43
Kaisersl. 29 14 9 6 54—33 37
Stuttgart 29 15 7 7 57—39 37
Frankfurt 29 13 9 7 53—40 35
Bochum 29 8 14 7 45—38 30
Gladbach 29 12 6 11 51—54 30
Dortmund 29 11 7 11 61—53 29
Köln 29 10 9 10 48—47 29
Það er nú ljóst að 7. sætið gefur sæti
í UEFA-keppninni. Um tíma var jafrí-
vel möguleiki á að 8. sæti gæfi sæti í
UEFA en eftir að Bayem féll út fyrir
Liverpool varð ljóst að svo yröi ekki.
Það verður Hamborg eöa Bayern sem
fer í Evrópukeppni meistaraliða.
Kaiserslautern og Frankfurt leika til úr-
slita um bikarinn þannig að ekki nema
annað þeirra fer í Evrópukeppni bikar-
hafa næsta ár. V-Þjóðverjar fá 5 lið í
UEFA-keppnina.
- SSv.
Gunnar þjálf-
ari Leifturs
Gunnar Gunnarsson hefur ráðið sig
sem þjálfara hjá Leiftri á Ólafsfirði
fyrir sumarið og er ekki að efa að hann
er þeim norðanmönnum góður fengur.
Gunnar lék hér á árum áður með KR
og hefur að baki um 70 mflleiki með
iiðinu. Þá lék hann einnig um tima með
KA á Akureyri og hefur þjálfað bæði
ísfirðinga og Ólafsvíkinga með góðum
árangri.
Rakarastofan Klapparstíg
Sími 12725
Hárgreiöslustofa Klapparstíg
Tímapantanir
13010
Vé/amenn — verkamenn
Viljum ráða vélamann og nokkra verkamenn strax.
Uppl. á skrifstofutíma í síma 50877.
Loftorka sf.
Verzlunarfólk Suðurnesjum!
Orlofshús — Tekið verður á móti umsóknum um dvöl í
orlofshúsum VS í Ölfusborgum og Svignaskarði á skrif-
stofu félagsins að Hafnargötu 28 frá og með mánu
deginum4. maí. Opiðkl. 16—18.
Þeir sem ekki hafa dvalið í húsunum sl. 5 ár hafa
forgang til 10. maí. Vikuleigan, kr. 400,00, greiðist við
pöntun.
Ekki tekiðá móti pöntunum í síma.
Verzlunarmannafélag Suðurnesja.
Kynningarfundur hjá Sam-
hygö mánudaga og fímmtu-
daga kL 20.30 að Tryggva-
götu 6.
CA TERPILLAR D-4
Eigum til afgreiðs'n strax Caterpillar D-4 75 ha powei
skipta, árg. 1974.k • 'ði -400 tíma. Sem nýr und -vagn,
gott verð, góð kjör.
TÆKJASALAN HF.
Skemmuvegi 22 Kóp. — Sími78210
Sjúkrahúsið
á Akureyri
Tilboð óskast í uppsteypu 1.—3. hæðar og
utanhússfrágang og þak á tengiálmu við
Sjúkrahúsið á Akureyri. Húsið er 952 ferm að
stærð.
Verkinu skal lokið að fullu 15. ágúst 1982.
Utboðsgögn verða afhent frá þriðjudeginum
28. apríl nk. á skrifstofu vorri og hjá
umsjónarmanni verkkaupa á Akureyri gegn
1.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð í skrifstofu Innkaupa-
stofnunar ríkisins, Borgartúni 7 Rvk. fimmtu-
daginn 14. maí 1981. kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
- SSv.