Dagblaðið - 06.05.1981, Blaðsíða 1
7. ÁRG. —MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 1981 - 100. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 1 L—ADALSÍMI 27022.
r
Foreldrar Ragnhildar, Elin
Ingólfsdóttir og Guðmundur Þ. Jónsson,
ræða við blaðamann DB á Borgarspitalanum I
gærkvöld: „Eigum engin orð til að lýsa Rögnvaldi iækni og
starfsfólkinu hér.” DB-mynd: Sig. Þorri.
„Kraftaverk ef f ramhaldið
verðureftirþessu”:
RAGNHILDUR GETUR NU
HREYFT FJÓRA FINGUR
—s|á íþróttir
íopnu
t..............
Reyna
grænfrið-
ungar að
sökkva
íslenzk-
um hval-
veiðiskip-
umíhöfn?
— sjá bls. 5
Þúsundir
vottuðu
Sands virð-
ingu sína
Eiginkonu
Sutcliffes
var sparkað
— sjá erl. fréttir
bls.6-7
Dallas byrjar
íkvöld
—sjásjónvarp
bls. 27
ÞETTA ER TOPPURINN”
segir Ásgeir Sigurvinsson, sem skrifaði undir
samning við Bayern Miinchen á mánudag til þriggja ára
„Ég fór til MUnchen í Vestur-
Þýzkalandi um helgina og skrifaði
undir samning við Bayern MUnchen
til þriggja ára á mánudag. Ég er f sjð-
unda himni. Þetta er toppurinn í
knattspyrnuheiminum,” sagði Ásgeir
Sigurvinsson, landsliðsmaðurinn
snjalU í knattspyrnunni, þegar DB
ræddi við hann i Liege í Belgíu i gær-
kvöld. Bayern MUnchen er eitt fræg-
asta knattspyrnulið heims og fræg-
asta knattspymuUð knattspyrnuþjóð-
arinnar miklu. Hefur þrívegis sigrað í
Evrópubikarnum, keppni meistara-
Uða.
„Það er allt klárt milU min og
félagsins en Bayern Mtlnchen og
Standard Liege eiga enn eftir að
semja sín á milU. Ég verð 26 ára nú I
vikunni og þetta er síðasti möguleik-
inn fyrir mig að koma mér betur
fyrir. Ég hefði ekki farið frá Stand-
ard nema tU algjörs toppfélags og
Bayem Múnchen er það,” sagði Ás-
geir ennfremur. Hann hafði um tvö
önnur fræg félög að velja, Ajax, Hol-
landi, og Köln.
Þá símaði Hilmar Oddsson, frétta-
maður DB í MUnchen, hingaö heim i
gærkvöld og sagði að MUnchenar-
blöðin hefðu mjög slegiö því upp i
gær, þriðjudag, að Ásgeir Sigurvins-
son hefði gert samning við stórveldið
Bayern MUnchen. Mun vera um
geysilegar upphæðir þar að ræða.
Blöðin greina itarlega frá þessu máU
og í viðtaU viö UU Hoeness, fram-
kvæmdastjóra Bayem, segir hann, að
Standard Liege hafi viljað fá 1.5
miUjónir marka fyrir Ásgeir. Bayern
er reiðubúið að greiða eina milljón
marka — þrjár milljónir króna —
fyrir Ásgeir. Náist ekki samkomulag
um þá upphæð muni Bayern leita til
UEFA — Knattspyrnusambands
Evrópu — sér til stuðnings, sagði
Hilmar Oddsson. Sjá nánar iþróttir í
opnu. -hsíra.
—átti ekki orð til að lýsa tiif inning
um sínum þegar hún vaknaði og
sá að hún hélt öllum f ingrum
v ■ .........................—
„Þetta er frábært og ef áframhaldið
verður eftir þessu er þetta kraftaverk.
Við sáum hreyfingar á öllum fingrum
Ragnhildar nema litla fingri, en hann
var Iíka mjög reifaður,” sögðu foreldr-
ar RagnhUdar Guðmundsdóttur í gær-
kvöldi. Eins og fram kom í DB i gær,
varð Ragnhildur, sem er 16 ára stúlka,
fyrir því slysi að hægri hönd hennar fór
nánast af þvert yfir handarbak í haus-
ingarvél í söltunarstöð Miðness í Sand-
gerði. Rögnvaldur Þorleifsson skurð-
læknir á Borgarspitalanum reyndi þá
einstæðu aðgerð hérlendis, að græða
hönd Ragnhildar við á nýjan leik.
Foreldrar Ragnhildar, Elin Ingólfs-
dóttir og Guðmundur Þ. Jónsson frá
Keflavík, heimsóttu dóttur sína í gær-
kvöldi en hún liggur á gjörgæzludeild
Borgarspítalans. Blaðamaður DB
fylgdi þeim Eh'nu og Guðmundi á spít-
alann. Þau fengu að vera hjá dóttur
sinni á annan tíma og áttu vart orð tU
þess að lýsa gleði sinni er þau komu frá
henni á niunda tímanum.
„Það er gaman að sjá hana svona
hressa og furðulegt eftir svona stuttan
tima frá þessari miklu og löngu aðgerð.
Ragnhðdur sagðist fmna eins og æða-
slátt í ágræddu fingrunum. Það þarf
ekki að lýsa þeúri tilfmningu hennar í
gær þegar hún vaknaði með alla fingur
á höndinni en henni hafði verið sagt
það eftir slysið að hún myndi missa
fingurna.
Rögnvaldur Þorleifsson læknir kom
inn tU okkar meðan við vorum hjá
RagnhUdi. Hann skoðaði hana og
sagði að þetta lofaði góðu en of
snemmt væri að segja tU um árangur.
Hann vildi ekkert segja að svo stöddu
um mátt í hendinni.
En okkur finnst það stórkostlegt ef
hún fær að halda hendinni, þar sem
hún var alveg skorin frá og hékk aðeins
við þumalfingur. Við eigum ekki til lýs-
ingarorð tU þess að lýsa starfsfólki
Borgarspítalans og þá sérstaklega
Rögnvaldi Þorleifssyni lækni. Þetta
fólk er frábært. Þá biður Ragnhildur
okkur aö skila þakklæti dl verkstjór-
anna beggja í Miðnesi fyrir aðstoðina
eftir slysið og eins til piltsins, sem
fylgdi henni í sjúkrabUnum til Reykja-
víkur.”
-JH.
—sjá nánarum
vinnuslysið í
Sandgerðiá
bls. 11