Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 06.05.1981, Qupperneq 14

Dagblaðið - 06.05.1981, Qupperneq 14
14 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ 1981. DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ1981. 15 « Sþróttir Iþróttir iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir I Ásgeir skrifaði undir 3ja ára samning við Bayern MUnchen — „ Allt klárt milli mín og Bayern en félögin eiga eftir að semja sín á milli,” sagði Ásgeir Sigurvinsson í gærkvöldi „Ég er í sjöunda hlmnl. Mjög ánægður með lifið. Þetta er toppurinn i knattspymuheiminum. Ég fór til Miinchen i Vestur-Þýzkalandl um heig- ina og skrifaði undir samning við Bay- ern Miinchen, eitt frægasta knatt- spyrnufélag heims, á mánudag. Samn- ingurinn er tll þriggja ára og það er allt klárt milli min og félagsins,” sagði Ás- gelr Sigurvinsson, þegar DB hringdi til hans f gærkvöld til Llege en Ásgeir var þá aftur kominn tll Belgiu. „Ég hafði um þrjú félög að velja, auk Bayem Múnchen, Ajax í Hollandi og Köln i Vestur-Þýzkalandi. Samning- urinn minn við Standard Liege rennur út um þessar mundir og það var létt fyrir mig að velja Bayem. Ég verð 26 ára nú í vikunni og þetta er síðasti möguleikinn að koma sér betur fyrir. Ég hefði ekki farið frá Standard Liege nema til algjörs toppfélags og Bayern MUnchen er það. Ég vil heldur vera í MUnchen en Köln. Það er failegri borg og léttara yfir fólki þar,” sagði Ásgeir ennfremur. „Þó allt sé klárt milli mín og Bayern eiga Standard og Bayern eftir að semja sín á milli um kaupverðið. Ég veit að Petit, stjórnarformaður Standard, verður harður eins og hann hefur alltaf verið. Erfiður. En það breytir vonandi engu fyrir mig. Ég er ákveðinn að fara til Bayem. Ef félögin ná ekki sam- komulagi þá hætti ég hjá Standard. Kem heim til islands og ég hef ekki trú áað Petit viljiþað.” Blööin í Miinchen nefna ákveðnar tölur i samningum félaganna. Bayern vUjl greiða eina milijón marka. Hvað segir þú um það? „Það er auðvitað út í hött að vera að nefna einhverjar ákveðnar tölur þegar félögin hafa ekki samið sín á milli. Það á eftir að koma i ljós á næstu dögum og ég vona að það verði á næstu dögum.” SETTl NYTT NORSKT METíTUGÞRAUT Norðmaðurinn Guðmund Olsen frá Sigdal náði nýlega 7823 stigum i tug- þraut á móti i Pennsylvaniu i Banda- rikjunum. Það er nýtt norskt met. Það eldra áttl Olsen sjálfur, 7718 stig. Bætti þvi árangur sinn um lOSstig. Rétt er að taka fram að handtimataka var i hlaup- unum á mótlnu i Bandarikjunum. Árangur Guðmund Oisen i einstök- um greinum var þannig: 100 m hlaup langstökk kúluvarp hástökk 400 m hlaup 110 m grindahlaup kringlukast stangarstökk spjótkast 1500 m hlaup 11.5 6.85 14.96 2.00 51.9 15.3 45.24 4.50 66.16 4:27.4 Hilmar Oddsson skrif ar f rá Vestur-Þýzkalandi: Eru dagar Bundeslígunnar taldir? Áhorfendum fækkar stöðugt. Flest félög eiga við fjárhagsvandræði að etja. Eru laun leikmanna of há? Nú fer senn að liða að lokum Bundesligunnar (þýzku 1. deildarinnar) og spennan er i algleymingi, bæði á toppnum, þar sem Hamborgarar reyna nú sem mest þeir mega að endurheimta meistaratitilinn sem þeir glopruðu i hendur Bæjara á sfðasta ári og á botn- inum, þar sem hvorki meira né minna en flmm llð berast á banaspjótum. Vist er að þrjú þeirra munu fylla flokk „lltlu” liðanna næsta keppnistimabil, þ.e. falla i hina nýstofnuðu sameinuðu 2. deild. t fljótu bragði hljómar þetta prýðilega; knattspyrna er keppni og keppni á að vera spennandi. En er ekki eitthvað meira en lítið að, þcgar þriðj- ungur iþróttafréttaþýzkrudagblaða og timarlta fer i þá glórulausu og örvæntingarfullu keppni sem fer aðal- lega fram á bankaskrifstofum og á stjórnarfundum knattspyrnufélaganna. Vist er þessi keppni utan vallar ekki siður spennandi en sú sem fram fer leikvöngunum, en hún á þó altént meira skylt vlð bissness og brask en knattspyrnu. Mergurinn málsins er nefnilega sá, að samtals skulda öll félög Bundeslig- unnar og hinna tveggja annarra deilda u.þ.b. 74 milljónir marka (Upp með litlu tölvumar!). Þetta eru þó smápen- ingar miðað við þær 300 milljónir marka sem vafalaust fjölga andvöku- stundum italskra knattspyrnubossa. Og ástandið er víða slæmt. Þannig sitja deildirnar í Englandi, Frakklandi, Hollandi og Belgiu allar í hnausþykk- um skuldasúpum. Áhorfendum fœkkar en kaup leikmanna hœkkar En litum nánar á ástandið innan þýzku knattspyrnunnar: Ein höfuðors- sök þessa mikla fjárhagsvanda er sú að áhorfendum fækkar stöðugt á pöllun- um — aðgangseyrir er dýr og svo finnst mörgum það ólikt hentugra að njóta hinnar ágætu þjónustu þýzku sjón- varpsstöðvanna og sjá öll mörk bæði í slóvmósjon og riplei. Sé tekið mið af vertíðinni 1977—78, þá hafa u.þ.b. 2 milljónum færri áhorfendur mætt til leiks á þessari vertið, sem senn er á enda. önnur veigamikii orsök þessa vanda er einfaldlega sú að útgerð hvers félags er of dýr. Á síðustu 10 ámm hafa grunntekjur leikmanna hækkað um helming og nú er svo komið að mörgum leikmönnum finnst kominn tími til að spoma við þessari þróun. En leikmenn fá ekki aðeins greiðslur frá illa stöddum félögum sinum; þeir verða jú að lifa eins og hver annar. Stórfyrir- tæki sjá til þess að þeir lendi ekki á vergangi með fjölskyldur sínar. Franz Beckenbauer, 35 ára knatt- spyrnumaður og fyrir löngu milljóner fær 500 þýzk mörk í mánaðarlaun að viðbættum þeim 1500 mörkum er hann- fær fyrir hvert unnið stig. En svo hann eigi fyrir hinu sihækkandi bensíni, fær hann árlega 1 milljón marka frá BP fyrir að bera merki þess á barmi sér (sem og aðrir HSV-leikmenn) og fyrir að sjá um þáttinn „Fit mit Franz” á síðum fyrirtækisbæklings þessa vold- uga oliufyrirtækis. Þar gefur hann ungu fólki holl ráð og kennir því að forðast eiturlyf ýmiss konar. En sagan er ekki öll. Þrátt fyrir að bifreiðafyrir- tækið Lancia greiði honum 350.000 mörk fyrir auglýsingar og skóverskmiðj- an Adidas 250.000 mörk nær Franz kallinn þó ekki að þéna jafnmikið og Kevin Keegan tókst síðasta ár sitt f Hamborg. Margur er knár, þó hann sé smár. f gegnum auglýsingasamninga við BP og önnur fyrirtæki tókst Tjalla þeim að koma árstekjum sinum i upp í 3 milljónir marka (brúttó). Vafasamur leikur En það eru ekki aðeins stjömur HSV sem fá sitt (og vel það) frá BP. Þannig fær gjaldkeri Hamborgarliðsins 4,8 milljónir marka tii ráðstöfunar á næstu fjómm ámm. Forseti féiagsins, Dr. Wolfgang Klein hefur viðurkennt að án þessa stuðnings stórfyrirtækja, væri ekki einu sinni hægt að greiða leik- mönnum laun. Útgerð hinna fyrrver- andi (og e.t.v. tilvonandi) Þýzkalands- meistara kostar 1 milljón marka á mánuði og mun reyndar vera sú dýrasta i Bundesligunni. Auðvitað eru önnur Bundesligulið einnig háð utanaðkomandi hjálp. Bayern MUnchen þiggur árlega 750.000 mörk frá Magirus-Deutsch-tmkkasam- steypunni fyrir auglýsingar, FC Köln 650.000 mörk frá Pioneer-hljómtækj- um og Bomssia Dortmund fær 400.000 mörk fyrir að auglýsa UHU, sem bók- staflega límir allt. Samningur á borð við þann er HSV og BP hafa gert með sér, gerir það að verkum að reksturinn „gengur” jafn- vel með hálftómum áhorfendastæðum. En fyrir hvern eru þá þessir 25 menn (með dómara og línuvörðum) að erfiða viku hverja? Maður hefur hingað til staðið i þeirri trú að atvinnuknatt- spyrna væri hugsuð sem eins konar skemmtun eða dægrastytting fyrir háa sem Iága og reyndar tíðkuðust ekki ósvipaðar múgssamkundur á dögum Rómarveldis, þótt leikreglur væru kannski dálitið annars eðlis. í staö þess að reyna að lokka til sín áhorfendur með opnari og liflegri knattspyrnu (eða öðmm tiltækum ráðum t.d. lækkun aðgangseyris) er reynt að treysta fjár- haginn með auglýsingaskmmi og „mjólkun” auðhringja, sem félögin em þ.a.l. háð. Reynslan hefur þegar sýnt að þetta er vafasamur leikur: TSV 1860 (Miinchen), hugsanlegur fall- kandídat, hefur að undanförnu rambað á barmi gjaldþrots og hafa stjórnarherrar féiagsins því nánast gripið tii hinna undarlegustu ráða svo bæta mætti slakan árangur og hressa mætti upp á hinn ótrúlega siæma fjár- hag. Þannig fékk dr. Erich Riedl, for- seti „Ljónanna”, eins og félagið er gjarnan nefnt, fasteignasalann Roland Holly til að kaupa fyrir sig fjóra leik- menn fyrir samtals, 2,55 milljónir marka, sem Holly leigir svo félaginu. Fasteignasalanum er það að sjálfsögðu i mun að „ljónin” sin falli ekki í verði og þjálfari liðsins er þ.a.l. undir stöðugum þrýstingi, þvi aldrei skal neinn þessara fjögurra verma vara- mannabekkinn. „Þettaerhreineridaleysa” erhaft eftir Hermanni Neubeger, forseta þýzka knattspyrnusambandsins, en hann gleymir þvi hins vegar að knatt- spymusambandið er einmitt að stuðla að aukinni skuldasöfnun nokkurra félaga, sem skipa munu hina nýju sam- einuðu 2. deild, með kröfur á hendur þeim um áhorfendastæði fyrir 20.000 manns og fullkominn nóðljósaút- búnað. Þó eru litlar iíkur taldar á að þessar tuttugu þúsund hræður láti nokkurn tima sjá sig og enn minni líkur á þvi að leikið veröi aö kvöldlagi. Bœjarfólög veigra sór við að veita aðstoð I Þýzkalandí eru iþróttaleikvangar yfirleitt almenningseign. Borgar- og bæjarfélög hafa verið iðin við að skatt- leggja atvinnufélögin, en gjarnan gengizt i ábyrgð fyrir þau og hlaupið undir bagga með þeim er illa hefur árað. En timamir breytast. Nýlega neitaði borgarráð Bremen að fjár- magna endurnýjun á úr sér gengnum áhorfendastæöum og fyrir skömmu barst stjóm HSV tUkynning um að vallarleiga fyrir Volksparkstadion, heimavöll liðsins, næmi héðan i frá 10% tekna féiagsins í stað þeirra 6% sem félagið hefur hingað til greitt. „Bundesliga"! Hvað er nú það? Sálfræðiprófessorinn Fritz Stemme frá Bremen hefur gert athugun á þvi, hvað almenningur tengi orðinu „BundesUga”. Komið hefur í ljós, að sifellt fleiri nefna orð í Ukingu við „peningar”, „lán”, „tekjur” og „skuldir”, en æ sjaldnar dettur mönnum í hug orð eins og „íþrótt”, „spenna”, „fristundaeyðsla” eða „mörk”, Það er þvi ljóst að BundesUg- an hefur tapað sinni réttu ímynd. En em leikmenn tilbúnir að koma til móts við félögin og t.d. sætta sig við tUtölulega lág grunnlaun, en viðbótar- greiðslur eftir frammistöðu? Komið hefur á daginn að 116 af 198 leikmönn- um sem vikublaðið Stern spurði þessarar spurningar em tU umræðu um slika hluti. Nú, hvernig væri þá að hefja viðræður áður 'en gengið hefur verið af atvinnuknattspymunni dauðri? Dæmi em tU þess að 18 ára pattar, nýsetztir á varamannabekkinn, þéni 12.000 mörk mánaðarlega, sem að sjáifsögðu er langt frá þeirri upphæð sem sómakær stórstjarna getur sætt sig við. Já, og svo em menn að setjast á skólabekk! MUnchen> 27. apríl 1981 Hilmar Oddsson (Að hluta tU byggt i Stem) „Við eigum tvo leiki eftir í 1. deUd- inni í Belgíu og auk þess er Standard komið í undanúrsUt belgisku bikar- keppninnar. Ég mun leika þá leiki með Standard og eins ef liðið kemst i úrsUt i bikarkeppninni. KeppnistimabUinu lýkur 7. júní og eftir það held ég og unnusta mín tU Milnchen. Við fáum þar ágæta íbúð. Ég mun ekki selja hús mitt í Liege þó ég breyti nú til, heldur leigja það, að minnsta kosti tU að byrja Ásgeir Sigurvinsson samdi til þriggja ára við Beyern Miinchen. yfir ÍFH Samúel Grytvlk, sem gekk úr ÍBV i Val hér fyrr i vetur, hefur nú haft fé- lagaskipti yfir i FH og mætti á sina fyrstu æfingu f gærkvöld. Samúel er 18 ára framherji og ætti að geta orðið FH iiðsstyrkur i sumar. -SSv. með,” sagði Asgeir að lokum. Ásgeir Sigurvinsson hefur leikið með Standard Liege í átta ár. Gerðist at- vinnumaður hjá félagmu aðeins 18 ára. Varð strax einn af máttarstólpum Uðs- ins og hefur undanfarin ár verið í hópi beztu knattspyrnumanna Evrópu. Ekki þarf að efa að frami hans verður enn meiri þegar hann byrjar að leika með frægasta knattspyrnuUði knattspyrnu- þjóðarinnar miklu, Vestur-Þýzkalands. Hjá Bayern eru meðal annars Karl- Heinz Rummenigge, knattspyrnu- maður Evrópu 1980, Paul Breitner og fleiri frægir kappar. hsím. Hilmar Oddsson símar f rá Miinchen: Köln bauð Ásgeiri betri samn- ing en Bayern Munchen Samningur Ásgeirs við Bayern forsíðuf rétt Miinchenarblaða Frá Hilmari Oddssyni, fréttaritara DB f Miinchen i gærkvöid: Ef marka má skrif tveggja Munchen- arblaða i dag, virðist svo sem Ásgeir Sigurvinsson hafi gert samning við stórveldið Bayern Miinchen og mun vera um geysUegar upphæðir að ræða. Bæði Tage- og Abendzeitung siógu þessari frétt upp á forsíðu og þetta var einnlg aðalfréttin á iþróttasiðum blaðs- ins. „Der Islándische Nationaleif-kapi- tán nach Bayern” segir í Tagezeitung og „Der Star von Standard Lúttich nach Bayem” er á forsíðu Abendzeit- ung. Bæði blöðin greina mjög itarlega frá þessu máli og i öðru þeirra er m.a. við- tal við Uli Toeness, framkvæmdastjóra Bayem, þar sem hann segir frá því að Standard hafi farið fram á 1,5 milljónir marka fyrir Ásgeir, en Bayern sé reiðubúið að greiða Liege-Iiðinu 1 milljón marka. Náist ekki samkomulag um þá upphæð muni Bayern leita til UEFA sér til stuðnings„Standai dfcetur ekki krafizt slíkrar upphæðar fynr Sig- urvinsson,” sagði Hoeness. „Hann er frábær leikmaður en 1,5 milljón marka er of mikið.” Bayern hefur lengi fylgzt með Ás- geiri og fyrir tveimur árum fór njósnari á vegum liðsins til að fylgjast með hon- um. Fleiri þýzk félög, þ.á m. Köln og Hamborg, hafa einnig sýnt honum mikinn áhuga, en útslagið hefur lík- ast til ieikur Kölnar og Standard í UEFA-keppninni á dögunum gert. Þar átti Ásgeir frábæran leik og aðstoðar- maður Pal Czernai, þjálfara Bayern, hafði umsvifalaust samband við Höe- ness og sagði honum að þar væri maður sem Bayem vantaði. Köln sýndi honum engu minni áhuga og í öðru áðurnefndra dagblaða i dag er sagt frá því að Ásgeir hefði aðeins átt eftir að skrifa undir samninginn viö Köln þegar Bayem komst í spilið. Köln bauð Ásgeiri hærri upphæð en Bayem, en skv. Abendzeitung vildi unnusta Ás- geirs heldur flytja til Míinchen en Köln- ar og mun það hafa ráðið miklu um ákvörðunÁsgeirs. Að sögn Tagezeitung hefur Ásgeir um 300.000 þýzk mörk í árslaun og þarf varla að gera öðm skóna en hann fái hærri tekjur hjá þessu evrópska stórveldi. Ásgeir kemst ekki til öllu sterkara félags, og ekki er að efa að hann á eftir að standa sig vel þar eins og annarsstaðar. -HO, Munchen / -SSv. MAGNUS SL01GEGN — skoraði þrjú af f imm mörkum liðsins og allar líkur á að hann leiki í byrjunarliði Borussia Dortmund næstkomandi laugardag „Það mi hiklaust segja það að Magnús Bergs hafi slegið f gegn með Borussla Dortmund i keppnisferð, sem lið félagsins fór nýlega i tll Englands, Spánar og ítalfu. Magnús skoraði þrjú af fimm mörkum Borussia i keppnis- ferðinni,” sagði Atli Eðvaldsson, þegar DB ræddi við hann f gærkvöldi. „Ég hef mikla trú á því að Magnús verði i fyrsta sinn í byrjunarliði Boruss- ia Dortmund á laugardag, þegar keppnin í Bundesiigunni hefst á ný. Við eigum fimm leiki eftir og þurfum að hljóta sjö stig úr þeim til að tryggja okkur UEFA-sæti. Keppnistimabiiinu hér í Þýzkalandi lýkur 13. júli og við Magnús komum ekki heim fyrr en eftir það. Borussia Dortmund mun leika 24. maí við Barcelona á Spáni og ef við Magnús sleppum við að fara í þá ferð getum við tekið þátt i HM-leik Tékkó- slóvakíu og íslands 27. mai i Tékkósló- vakíu. Ekki hefur þó endanlega verið gengið frá því máli,” sagði Atli enn- fremur. Magnús Bergs er hér ásamt félaga sfnum Atla Eðvaldssyni. Magnús átti stórleiki meó Dortmund i nýafstaðinni keppnisferð liðsins. Lið Borussia Dortmund lék við Leeds á Englandi 27. mai — við 1. deildarlið enska Uðsins. Tapaði 2—0 en nokkra leikmenn Borussia vantaði. Til dæmis BilrgsmUller, sem var bundinn við landsliðið. Síðan var haldið til Spánar og leikið þar í Paloma 29. mai. Borussia sigraði 4—3. Magnús kom inn sem varamaður fyrir Atla í leiknum og skoraði tvö af mörkum Borussia. Þá var haldið til Ítalíu og leikið við AC Milano í Milano. Jafntefli varð 1—1 og Magnús skoraði mark Borussia í leikn- um. Hann lék allan leikinn — Atli kom inn sem varamaður. Það er nú mikið skrifað um það í biöðin i Dortmund, að Barcelona hefur boöið Udo Lattek þjálfarastarf hjá fé- laginu og umsjón með aðalliöinu. Það era engir smápeningar þar — Barce- lona býður Lattek 700 þúsund vestur- þýzk mörk nettó á ári. Auk þess bón- usa. Ekki er enn komið í ljós hvað þjálfarinn frægi gerir i málinu. Samn- ingur hans við Borussia Dortmund rennur ekki út fyrr en 1983. -hsim. Þriðji tapleikur Portúgal í Izmir Belgiumenn sigruðu Ungverja i ákaf- lega tvisýnum leik i B-keppninni i körfuknattleik i Istanbul i Tyrklandi i gær. Lokatöiur Belgia 95 — Ungverja- land 92 eftir að Ungverjar höfðu tveggja stiga forskot i hálfleik. 59 gegn 47. Belgíumaðurinn Mens var Ungverj- um ákaflega erfiður undir körfunni. Skoraði 29 stig, Vander Bosch var næstur með 16 stig. Morgen skoraöi flest stig Ungverja eða 30. Kucsera var næstur með 18 stig. I Izmir sigruðu Vestur-Þjóðverjar Hollendinga í gær, einnig í tvisýnum leik, með 81—79. Staðan í háifleik 45—42 fyrir þýzka liðið. Pappert skor- aði flest stig eða 29 fyrir Þýzkaland. Zander 15 og Heidrich 14. Hjá Hol- landi var Cramer stigahæstur með 27 stig. Akerboom skoraði 21 og Hagens 14. f sömu borg vann Rúmenía Portúgal 91—75 eftir 47—32 í hálfleik. Þriðji tapleikur Portúgal í keppninni. Liaboa skoraði flest stig Portúgala eða 28, Santiago 17 og Dias 16.1 Istanbul vann Grikkland England 80—74 eftir að hafa haft yfir 42—38 i hálfleik. Firmakeppni Knattspyrnudeildar Stjörnunnar utanhúss Verður haldin helgina 15,—17. maí ef næg þátttaka fæst. Þátttaka tilkynnist i síðasta lagi miðvikudag. 13. maí. Nánari upplýsingar í síma 42902 og 77077 á kvöldin. Stjómin. Valurvill leikafyrr , ákvöldin flslandsmótinu Knattspyrnumenn Vals vilja breyta hinum hefð- bundna leiktlma á leikjum sinum í 1. deildinni i sumar. í stað þess að hefja leikina kl. 20.00 eins og verið hefur hafa Valsmenn óskað eftir vlð móta- nefnd KSÍ að leikirnir hefjlst kl. 18.15 eða fimmtán min. yfir sex. Áhorfendur gætu þá fariö næstum beint úr vinnu á Laugardalsvöilinn og siðan heim. Náð þar sjónvarpsfréttunum. Heimaieikir Vals eru niu og verða háðir á þessum dögum samkvæmt mótaskrá: 16. mai — Valur—KR, laugardagur 3. júní — Valur—KÁ, miðvikudagur 21.júní — Valur—UBK, sunnudagur 27. júni — Valur—Þór, laugardagur S.júlí — Vaiur—ÍA, sunnudagur 27. júlí — Valur—FH, mánudagur 30. júlí — Valur—Vikingur, fimmtu- dag. 16. ágúst — Valur—ÍBV, sunnudagur 2. sept. — Valur—Fram, miðvikudag. Fái Valsmenn leiktfma sinum breytt kann vel að vera að fleiri félög feti i fótspor þeirra, einkum ef þessi tilraun tekst vel. Tap og sigur FH á Húsavík! FH-ingar héldu til Húsavikur um helgina og léku tvo leiki við Völsung. Þann fyrri unnu heimamenn 4—3 og komu þau úrslit verulega á óvart en þann siðari unnu FH-ingarnir 1—0. -SSv. Fram vann Val Fram sigraði Val 1—0 á Reykjavikurmótinu i knattspymu i gærkvöld. Hávaðarok og erfitt um vik fyrír leikmenn liðanna. Marteinn Geirsson, fyrirliði Fram, skoraði eina mark ieiksins fimm minútum fyrir leikslok. Fékk stungubolta frá Pétri Ormslev og skoraði með föstu skoti frá vitateig. Liðin hafa lokið leikjum sfnum á mótinu. Fram hlaut níu stig en Vaiur fjögur. Vikingur er i efsta sætl með 10 stig en Fylldr, sem leikur við Ármann i kvöld kl. 20.00, getur komizt i 11 stlg. Sfðasti leikur mótsins veröur svo milli KR og Þróttar. -hsim. Loksins sigur hjá Liverpool Liverpool vann loksins leik i gær og það á útivelli. VannMiddlesbro 2—1. Við sigurinn komst Liver- pool upp i sjötta sætl i 1. deild. í 2. delld vann Notts County Cambridge 2—0 f Nottingham. Hefur lokið leikjum sinum. Hlaut 53 stlg. Stjórnarformaður Man. Utd., Martln Edwards, óskaðl eftlr þvf f gær við stjórn Southampíon að fá leyfl til að ræða við Laurie McMenemy, fram- kvæmdastjóra Southampton. Svar hafði ekki borizt honum siðast, þegar fréttlzt. Man. Utd. er nú i keppnisför i ísrael en stjórnarformaðurinn fór ekki með liðinu þangað. Bond búinn að velja lið sitt John Bond, stjórí Man. City, valdi í gær liðið, iem leikur gegn Tottenham i úrslitum ensku bikar- keppninnar á Wembley-leikvanginum f Lundúnum á laugardag. Hann valdl sömu leikmenn og slógu Ipswich út i undanúrslitum. Þeir Tommy Booth og Dennis Tueart komust þvi ekld i iiðið. Lið Man. City verður þannlg skipaö. Joe Corri- gan, Ray Ranson, Bobby MacDonald, Nicky Reld, Tommy Caton, Paul Power, Tommy Hutchison, Gerry Gow, Steve McKenzie, Kevin Reeves og Dave Bennett. Varamaður, 12. leikmaður liðsins, verður Tony Henry. -hsim.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.