Dagblaðið - 06.05.1981, Blaðsíða 6
6
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. MAÍ1981
Trésmiðir óskast strax
á verkstæði og í innivinnu. Uppl. í síma 71730 og
á kvöldin í síma 23398.
Reynir h.f., byggingarfélag.
PLEXIGLAS
Acryl-gler í háum gæðaflokki.
Eigum fyrirliggjandi Plexiglas í glæru og
ýmsum litum, t.d. undir skrifstofu-
stóla, á svalir, sólveggi og handrið, í Ijósaskilti,
gróðurhús, vinnuvélar og fleira
— Skerum og beygjum.
AKRON H/F
Síðumúla 31
Sími 33706
Innheimtustavf
Okkur vantar hæfan starfsmann í inn-
heimtudeild okkar. Aðeins vanur kemur til
greina. Umsóknir sendist auglýsingadeild
DB fyrir 10. þ.m. merkt „símainnheimta”.
BIAÐIÐ
— innheimtudeild
REYKJAVÍKURHÖFN
Reykjavíkurhöfn vinnur að því að gcra byggingarhæfar
lóðir á tveim athafnasvæðum við höfnina:
I. Á fyllingu utan Grandagarðs:
Lóðir þarna eru ætlaðar fyrir fyrirtæki sem tengd
eru sjávarútvegi, fiskvinnslu og þjónustu við útgerð.
II. Svæði við Skútuvog við Klcppsvík:
Þar eru lóðir hugsaðar fyrir fyrirtæki, seni áherslu
leggja á skipaviðgerðir.
Þeir sem áhuga hafa á að koma til greina við lóðaúthlut-
anir á svæðum þessum sendi skriflegar umsóknir til Hafn
arskrifsfofunnar, Hafnarhúsinu v/fryggvagötu. I'yrir 20.
maí
Ailar nánari upplýsingar veitir undirritaður.
Hafnarstjórinn í Reykjavik
1X2 1X2 1X2
34. leikvika — leikir 2. maí 1981
Vinningsröð: 1X1—2X1—2X1 — 122
1. vinningur: 11 réttir — kr. 40.250.-
11872 37095(4/10)
2. vinningur: 10 réttir — kr. 1.015.-
792 3676 7629 18927+ 25728(2/10) 36761 +
1098 3910 9862 19551 29190 37885
2815 6050 9920 20440 31414 39526+
3139 6629 14789 20446 34229 41100
3552 7166 17616 22554 35028+
Kærufrestur er til 25. maí kl. 12 á hádegi. Kærur skulu
vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum
og á aðalskrifstofunni í Reykjavík. Vinningsupphæðir geta
lækkað, ef kærur verða teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seðla (+) verða að framvísa stofni
eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heim
ilisfang til Getrauna fyrir lok kærufrests.
GETRAUNIR - íþróttamiðstöðin - REYKJAVÍK
SÁ RÚSSANA DREPA
2500 Á EINUM DEGI
—óf agrar lýsingar á f ramferði sovézka hersins í Afganistan
„Ég hef sjálfur séð Rússana drepa
2500 manns á einum degi. Mér er kunn-
ugt um fjöldanauðganir og handtökur
þar sem afganskar konur hafa verið
fórnarlömb Rússanna. Sjálfur hef ég
séð hús eitt í Jalabad-héraði þar sem
Rússarnir hafa safnaö saman miklum
fjölda afganskra kvenna,” sagði
afganski skæruliðinn Abdul Karim á
blaðamannafundi í Osló um daginn.
Þangað var hann kominn ásamt félög-
um sínum til að skýra frá óhæfuverk-
um Rússa í Afganistan. Nauðganir og
fjöldamorð sögðu þeir að lýstu ofbeldi
sovézka hersins í landinu.
Jafnframt því að greina frá óhæfu-
verkum Rússa upplýstu skæruliðarnir
að ennþá héldu afganskir skæruliðar
uppi öflugri andspyrnu gegn þeim.
Meðal annars skýrðu þeir frá því að
skæruliðar hefðu fyrir skömmu náð
bænum Kandahar í suðurhluta
Afganistan á sitt vald.
„Siðustu fréttir frá Kandahar greina
raunar frá því að Rússamir hafi hafið
stórsókn, meðal annars með 800 skrið-
drekum, til að ná bænum aftur á sitt
vald. Gegn slíku ofurefli liðs er von-
laust að halda bænum,” sagði Ahmad
Jallal, einn skæruliðanna.
Olof Palme gerir sér vonir um að tlokkur hans, Jafnaðarmannaflokkurinn, fengi hreinan meirihluta á þingi ef kosið yrði nú.
„Nýjar þingkosningar
eru hið eina rétta”
—segir Olof Palme, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Svíþjóð
„Nýjar kosningar eru nú hið eina
rétta,” sagði Olof Palme, teiðtogi
sænsku stjórnarandstöðunnar í gær
eftir að Gösta Bohman, leiðtogi hægri-
manna (Moderatarna) og fráfarandi
fjármálaráðherra skýrði frá því að
hann mundi styðja vantraustsyfirlýs-
ingu á stjórn Falldins ef forsætisráð-
herrann segði ekki af sér.
Palme kveðst þó vilja gefa Falldin
nokkurra daga umþóttunartíma vegna
verkfalla um sautján þúsund starfs-
manna við útflutning. Palme og félagar
hans gera sér vonir um hreinan meiri-
hluta á þingi ef kosningar færu fram nú
og skoðanakannanir benda til að
liægrimenn, undir forystu Bohmans,
gætu einnig búizt við verulegri fylgis-
aukningu, einkum á kostnað Mið-
flokksins, fiokks Fálldins forsætisráð-
herra.