Dagblaðið - 07.05.1981, Side 1
f
Í
i
7. ÁRG. —FIMMTUDAGUR 7. MAÍ1981 — 101. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLVSINGAR OG AFGRKIDSLA ÞVERHOI.TI 11,—AOALSÍMI 27022.
r
mmc F M.__f ______* I mm m _____ mmm m m rmmm m m
Tveir fisksalar íKópavogi slepptu laxa-, bleikju-,
og urriðaseiðum í Reykjavíkurtjörn:
Tilvalið að sleppa þess-
um greyjum íTjörnina
„Okkur fannst sniðugt að setja seiði
í Tjörnina í Reykjavík. Það er komið
sumar og gott veður og tilvalið að
sleppa þessum greyjum í Tjörnina,”
sögðu þeir félagarnir og fisksalarnir í
Kópavogi, Birgir Guðmundsson og al-
nafni hans Birgir Guðmundsson. Þeir
tóku sig til í sólskininu í hádeginu í gær
og slepptu á annað hundrað laxa-,
bleikju- og urriðaseiðum í Reykjavík-
urtjörn.
„Þetta eru eins til tveggja ára seiði
og komin víða að,” sögðu þeir nafn-
arnir. ,,Við höfum m.a. veitt þau í
Elliðaánum en síðan hðfum við alið
þau upp í fiskbúð okkar að Borgar-
holtsbraut 68 í Kópavogi. Þau hafa
verið þar i stóru keri og hafa fengið
gott æti.
Það verður gaman að sjá hvað úr
þessu verður og við lifum í voninni að
þetta fái að dafna hér. Ætli maður eigi
ekki von á því að sjá menn með veiði-
stöng á næsta ári. Við ætlum síðan að
bæta við þetta 300—400 seiðum á
næstunni.
Nokkur hópur manna safnaðist að
þeim félögum þar sem þeir voru að
sleppa seiðunum í Tjörnina og bolla-
lögðu menn um lífsmöguleika þeirra.
En hver veit nema menn sjáist næstu
sumur sitjandi á tjarnarbakkanum með
veiðiglampa í augum og von um sprikl-
andi silung eða lax. En fleiri gerðu sér
augsýnilega vonir um veiði. íbúar
Tjarnarinnar, endur og álftir, héldu sig
i hæfilegri fjarlægð og fylgdust með er
girnilegir 10—15 sentimetra langir lax-
ar og silungar tóku fyrstu sundtökin í
nýjum heimkynnum.
-JH.
Nafnarnir og fisksalamir Birgir Guð-
mundsson og Birgir Guðmundsson
sleppa seiðunum f Tjörnina f Reykjavfk
f gær. „Það verður gaman að sjá hvað
úr þessu verður og við lifum f vonlnni
að þetta fái að dafna hér.”
DB-mynd Bjarnleifur.
„ Ovituríegt að hafa kommún-
ista í stjóm NATO-ríkia”
Sprengjuvaktin um hvalbátana:
Auðkýf ingur að
baki hótununum?
helgi og sást hann við hvalbátana þar
sem þeir liggja við Ægisgarð. Ábending
hafði borizt til lögreglunnar i Reykja-
vík frá brezku lögreglunni og fylgdist
hún gjörla með ferðum Bretans. Hann
dvaldi aðeins í hálfan sólarhring hér á
landi og hélt síðan aftur til sins heima.
Fullyrt er að að baki hugsanlegum
sprengjutilræðum standi auðugur ein-
staklingur en ekki grænfriðungar eða
Greenpeace-menn, sem fram að þessu
hafa aðallega látið til sín taka gegn is-
lenzku hvalveiðibátunum. Bent er á í
þessu sambandi, að í fyrra voru tveir
hvalveiðibátar sprengdir og þeim sökkt
íhöfnáSpáni.
Fundur Alþjóða hvalveiðiráðsins
hófst í Kristalsal Hótels Loftleiða í gær
en þar er rætt um hugsanlegar breyting-
ar á stofnskrá ráðsins. Fundinn sitja
tæplega 70 fulltrúar, frá 23 ríkjum og 4
alþjóðastofnunum. Óeinkennisklæddir
lögreglumenn gæta öryggis fulltrú-
anna.
-JH.
Miklar varúðarráðstafanir eru nú
gerðar til verndar hvalveiðibátunum í
Reykjavíkurhöfn og jafnframt ströng
öryggisvarzla á Hótel Loftleiðum þar
sem fundur Aiþjóða hvalveiðiráðsins
stendur. Eins og fram kom í DB í gær,
hafa komið fram ábendingar um að
reynt verði að sprengja upp ísienzka
hvalveiðibáta í höfn og sökkva þeim.
Brezkur sprengjusérfræðingur og
froskmaður kom til íslands um síðustu
Óeinkennisklæddir lögreglumenn gæta öryggis full-
trúa á fundi Alþjóöa hvaiveiöiráðsins.
DB-mynd: Einar Ólason.
Fyíkir
Reykjavíkur-
meistariífyrsta
sinn
— sjáíþróttiríopnu
Beginsakar
Schmidtum
trúnað við Hitier
— sjá erlendar
f réttir bls. 6-7
Sólbrúnka
ítöflum
— sjá DB á neytenda-
markaði bls.4
ASÍog
VSÍíeina
sæng
— sjábaksíðu
SOSog
framliðnir
— sjá Fleira
fólk bls. 16