Dagblaðið - 07.05.1981, Qupperneq 2
Sumarhús
í Danmörku
5. júni - örfá sæti laus vegna
forfalla
Orlof aldraðra
- Portoroz
20. maí - 3 vikur - laus sæti
Rimini
31. maí - örfá sæti laus
Portoroz
20. mai - laus sæti
Toronto
3. júní - uppselt
21. júni - laus sæti
Opid til 10 í kvöld
Vegna mikilla bókana aö undafornu
veröur opiö á skrifstofunni i Reykja-
vík til kl. 10 i kvold. Starfsfólk Sam-
vinnuferöa-Landsýnar veitir þarallar
upplýsingar um sumarferöirnar,
tekur niöur'pantanir og veitir inn-
borgunum móttöku . Kvikmynda-
sýning veröur (>gángi allt kvöldiö og
aö sjálfsögöu véröur heitt á könnunni
fyrir alla viöstadda.
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 7. MAÍ1981.
f
Flugteiðir:
Heppilegast að aðskilja flugfélögin
sáttastörf í því sem kallað er „flugmannadeila” er tímasóun
Verz/unarmannafé/ag
Reykjavíkur
Fyrir eindregin tilmœli Alþýöuorlofs
og aöildarfélaga Samvinnuferöa-
Landsýnar hefur veriö ákveöiö aö
framlengja frest til greiöslu staö-
festingargjalds til 3. júni 1981.
Orlofsgreiðslur munu berast fram
eftir maí mánuöi og er vonast til þess
aö fyrir 3. júni hafi þær borist öllu
launafólki, sem gelur þá lagt orlofsfé
sitt í staöfestingargjöld og/eöa
innborgun i sólarlandaferö ef svo ber
undir. Þeir sem staöfesta feröa-
pöntun fyrir 3. júní og eru innan vó-
banda aöildarfélaganna fá allir áöur
auglýstan aöildarfélagsafslátt,
kr. 500 fyrir fulloröna og kr. 250 fyrir
börn.
Athugull skrifar:
Einn hinna merku brautryðjenda í
flugmálum hérlendis, Alfreð Elías-
son, sem nú er nýhættur í stjórn
Flugleiða, segir í blaðaviðtali í sl.
viku, að sameining flugfélaganna
tveggja hafi verið ein allsherjar mis-
tök og allt hafi farið að klúðrast þeg-
ar sú ákvörðun hafði verið tekin.
Kannski á þessi brautryðjandi eftir
að tala meira og skýrar er frá líður.
Hann hefur eflaust frá mörgu að
segja. Hann er og sá brautryðjandi
sem á þvi láni að fagna að hafa
stjómað flugfélagi sem hófst upp úr
basli frumherjanna til eins voldug-
asta og þekktasta fyrirtækis, sem
nokkurn tíma hefur verið stofnað á
íslandi, LOFTLEIÐUM HF.
Þetta er nú liðin tíð. Við íslending-
ar áttum á sinum tíma bæði farþega-
skip til siglinga við strendur lttndsins
jafnt og til utanlandssiglinga.
Á sama tíma áttum við einnig
glæsilegar flugvélar sem vom í eigu
tveggja flugfélaga, Loftleiða og Flug
félags tslands. Það vom mikil umsvif
í farþegaflutningum til og frá landinu
með innlenda sem erlenda ferða-
menn.
öll farþegaskip voru seld úr landi.
Flugvélar voru þó enn til. Það var
hægt að velja milli fargjalda og fyrir-
tækja og það var gert. Bæði flugfé-
lögin nutu trausts, hvort á sínu sviði,
en samkeppni var mikil, heilbrigð og
eðlileg. Og það sem meira var, sam-
vlnna var talsverð milli flugfélaganna
t.d. með gagnkvæmum skilningi með
láni á varahlutum ef eitthvað bjátaði
á.
Þetta vom miklir uppgangstímar í
samgöngumálum. En dýrðin stóð
ekki lengi. Til vom menn sem vildu
ekki svona mikinn uppgang og
grósku í samgöngumálum.
Ríkisstjóm landsins með sam-
göngumálaráðherra þáverandi í
ORLOFSHÚS VR
DVALARLEYFI
Frá og með 9. maí næstkomandi verða afgreidd dvalarleyfi
í orlofshúsum Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, sem
eru á eftirtöldum stöðum:
2 húSaðÖlfusborgum í Hveragerði
8 hús að Húsafelli í Borgarfirði
I húsaðSvignaskarði í Borgarfirði
4 hús að lllugastöðum í Fnjóskadal
I hús I Vatnsfirði, Barðaströnd
Þeir sem ekki hafa dvalið sl. 5 ár í orlofshúsunum
á tímabilinu frá 2. maí til 15. september, sitja
fyrir dvalarleyfum til 22. maí nk. Leiga verður
kr. 400 á viku og greiðist við úthlutun.
Byrjað verður að afgreiða dvalarleyfi á skrifstofu
VR, að Hagamel 4, laugardaginn 9. maí nk., kl.
15.00—19.00.
Úthlutað verður eftir þeirri röð sem umsóknir berast. Ekki
verður tekið á móti umsóknum bréflega eða símleiðis.
„Sameining flugfélaganna var eitt mesta óheiilaverk sem framkvæmt hefur verid á
sviði atvinnumála hér á landi um áratugaskeið,” segir bréfritari.
broddi fylkingar krafðist sameining-
ar flugfélaganna. Meirihluti stjórn-
enda flugfélaganna var þeirri samein-
ingu samþykkur. Þeir sem í minni
hluta voru áttu við ofurefli að etja.
Sameining flugfélaganna var eitt
mesta óheillaverk sem framkvæmt
hefur verið á sviöi atvinnumála hér á
landi um áratuga skeið.
Meirihluti starfsmanna beggja
flugfélaganna var frá upphafi mjög
mótfallinn þessum aðgerðum og
hefur i raun aldrei getað sætt sig við
þetta aðfullu.
Einn flugmanna Flugfélags íslands
hefur t.d. Iátið svo ummælt í blaða-
grein, aö ef heilbrigt ástand ætti að
skapa í flugmálum hér væri bezta
ráðið að aðskilja félögin tvö. Þetta
eru orðaðsönnu.
Þetta ætti að vera auðvelt verk og
margfalt auðveldara en það var að
reyna að koma félögunum í eina
sæng sem reyndar hefur ekki tekizt
ennþá.
Þetta væri hagkvæmast fyrir alla
aðila og eignauppskipting er auðveld
i framkvæmd þar sem nú liggja fyrir
tölur um „matið” sem frægt er
orðið.
Sáttasemjara ríkisins ætti ekki að
verða skotaskuld úr því að sundur-
liða þær tölur, sem hann átti þátt í að
koma saman, meðan á matsgerðinni
stóð!
Sáttastörf í því sem kallaö er
„flugmannadeila” er tímasóun, en
aðsldlnaður flugfélaganna er þjóðar-
nauðsyn. Um þetta eru flestir hlut-
hafar líklega sammála. Þeir hafa eng-
an arð fengið síðustu árin og munu
ekki fá, meðan Flugleiðir.mestu mis-
tök íslenzkrar atvinnusögu, eru við
lýði.
Sérstök athygli er vakin á því
að dvalarleyfi verða afgreidd
frá kl. 15.00-19.00 laugardaginn 9. maí.
Kampútsea:
H vaða umboð hafa
þessir höfðingjar til
að tala um lýðræði
—það verður að teljast lýðræðisleg ráðstöf un í fyllsta
máta að svipta f ulltrúa þjóðarmorðs kjörgengi
Ólafur Gislason, Barónsstfg 41,
Reykjavik, skrífar:
Það voru gleðilegar fréttir sem
sjónvarpið flutti okkur hinn 2. maí
sl. þess efnis að kosningar til þjóð-
þings hefðu farið fram í Kampútseu
hinn 1. maí sl. Sveitarstjórnarkosn-
ingar hafa þegar farið fram og hiö
nýja þing mun nú taka til meðferöar
uppkast að nýrri stjórnarskrá. Allt er
þetta til vitnis um þau stakkaskipti
sem oröið hafa í landinu siðan hin
villimannlega stjórn Pol Pots var
hrakin frá völdum. Fréttamaðurinn
tók það fram að andstæðingar
byltingarinnar I Kampútseu hefðu
ekki haft.kjörgengi. Þar átti hann
væntanlega við leifarnar af fylgi Pol
Pots, sem Kínverjar halda enn úti til
hryðjuverkastarfsemi í Kampútseu
frá bækistöðvum í Thailandi. Það
verður að teljast lýðræðisleg ráðstöf-
un í fyllsta máta að svipta fulltrúa
þjóðarmorðs í Kampútseu kjörgengi.
Það sem vakti hins vegar athygli
mína við frétt sjónvarpsins og kom
eins og rúsínan í pylsuendanum hjá
fréttaþulnum var sú yfirlýsing, sem
hann las frá forustumönnum Suð-
austur-Asíubandalagsins um að
kosningarnar í Kampútseu hefðu
verið hreinn farsi og ólýðræðislegar í
Arið núll f Kampútseu.
hæsta máta. Þaö er undarlegt að
fréttamenn sjónvarpsins skuli finna
hvöt hjá sér til þess að leita vitnis-
burðar hjá herforingjastjórninni í
Thailandi og þeim Marcosi Filipps-
eyjaforseta og Suharto Indónesíufor-
seta um það hvort kosningarnar í
Kampútseu hafi farið nægilega
lýðræðislega fram. Hvaða umboð
hafa þessir höfðingjar til þess að tala
um lýðræði? Var Franco einræðis-
herra á Spáni kannski rétti maðurinn
til þess aö fella dóma um lýðræðið 1
Þýzkalandi eftir stríð eða er það
kannski vottur um hreinlætistilfinn-
ingu fréttastofunnar að hún skuli
ósjálfrátt leita í göturæsið eftir vitnis-
burðium hreinlæti vegfarendanna?