Dagblaðið - 07.05.1981, Síða 5
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 7. MAl 1981.
5
Dagblaðið á fundum með ráðherrunum Haig og Weinberger íWashington:
„Óviturlegt að hafa kommún-
ista i stjóm NATO-ríkja”
„Margir þakka nú Guöi fyrir aö
Bandaríkin hafi loksins vaknað, þegar
þeir hátta á kvöldin,” sagði Alexander
Haig utanríkisráðherra Bandaríkjanna
í viðtali við blaðamann DB og nokkra
aðra blaðamenn frá Evrópuríkjum í
Washington fyrir nokkrum dögum.
„Við verðum að biðja um fórnir til að
efla varnarmátt okkar,” sagði Haig,
„en jafnframt væntir fólk þess að við
reynum að hemja vígbúnaðarkapp-
hlaupið.”
„Bandaríski herinn hefur verið
vanræktur og nú þarf að ná jafnvægi i
hermálum að nýju,” sagði Caspar
Weinberger varnarmálaráðherra sem
blaðamenn hittu einnig að máli i
Washington. „Gífurleg breyting á
valdajafnvæginu hefur orðið á
nokkrum árum í þá átt að Sovétríkin
„Sovétrlldn hafa tekið forustu I
vigbúnaði,” sagði Weinberger varnar-
málaráðherra.
Öðru hvorum
megin
við helgina
— leggur Hjörleifur
fram virkjana-
frumvarpið
„Ég vænti þess að frumvörp til
laga um virkjunarframkvæmdir
verði lagt fram öðru hvorum megin
við helgina”, sagði Hjörleifur
Guttormsson, iðnaðarráðherra, í
viðtali við DB í gær. Hann kvað
ágreiningslaust að nauðsynlegt
væri að tryggja nægilegt vatn i
þær virkjanir, sem þegar væru
starfandi.
„Röðun nýrra virkjana er að
þvi leyti til bundin í stjórnarsátt-
málanum að þar er gert ráð fyrir
næstu virkjun utan eldvirkra
svæða,” sagði Hjörleifur. Hann
bætti við: „Ég ræð þessu því ekki
einn og auk þess eru starfandi
ráðgjafarnefndir sem reynt
verður að taka tillit til.”
-BS.
hafa tekið forustu í vígbúnaði,” sagði
Weinberger og nefndi einkum sovézka
flotann.
Larry Eagleburger aðstoðarutan-
rikisráðherra sagði í viðtali við þessa
blaðamenn, að „óviturlegt” væri fyrir
ríki í Atlantshafsbandalaginu að hafa
kommúnista í ríkisstjórn. Hann mun
hafa átt við ísland með þeim orðum.
Haig sagði að nú yrði varnarmáttur
Bandaríkjanna efldur næstu fimm
árin. Sovétríkin ykju stöðugt bein af-
skipti af öðrum rikjum og það kallaði á
öflugri svör en verið hefði. Jafnframt
mundu Bandaríkjamenn rétta við sitt
heimili með „byltingarkenndri efna-
hagsáætlun". Haig kvaðst bjartsýnn
eftir viðtöl við marga forustumenn
vestrænna þjóða að undanförnu. „Ég
hef nú þegar hitt marga af utanríkis-
ráðherrum ykkar og átt ítarleg viðtöl
við þá,” sagði Haig blaðamönnunum.
„Ég hlaut einlægan stuðning við áform
okkar. „Um NATO-fundinn, sem
væntanlegur var, sagði Haig að
ræddar yrðu ögranir Sovétmanna þótt
þær væru utan hefðbundins svæðis
NATO. Samtímis yrði unnið að eflingu
varnarmáttar bandalagsins og leitað
leiða til að finna grundvöll fyrir við-
ræðum við Sovétmenn um takmörkun
vígbúnaðar. „En við semjum ekki við
Sovétríkin i tómarúmi,” sagði Haig og
kvað Sovétmenn verða að draga úr
útþenslustefnu sinni, ætti að vera hægt
að semja. „Bandaríska þjóðin gerir ráð
fyrir, að við gerum ekki samninga, sem
gera okkur veikari fyrir,” sagði utan-
ríkisráðherrann og kvaðst tala fyrir
munn Reagans forseta. „Við leitum
ekki eftir takmörkunum á vigbúnaði
takmarkananna vegna,” sagði hann.
•HH.
Auglýsing
um skuldbreytingu
lausaskulda húsbyggjenda
og ibúðakaupenda
i föst lán
Samkvœmt samkomulagi við ríkisstjórnina munu viðskiptabankarnir gefa viðskipta-
vinum sínum, sem fengið hafa lún vegna húsbyggingar á undanförnum þremur árum,
kost á að sameina þau í eitt lán, semyrði til allt að 8 ára.
Skilyrði fyrir skuldbreytingu
A. að umsækjandi hafi fengið lán hjá Hús-
næðismálastofnun ríkisins á árunum 1978,
1979 og 1980 eða verið lánshæfur á þessum
árum, samkvæmt núgildandi reglum stofn-
unarinnar.
B. að umsækjandi eigi aðeins eina íbúð eða
íbúðarhús, byggt eða keypt á þessum árum
til eigin afnota.
C. að umsækjandi hafi fengið lán hjá banka til
íbúðakaupa eða byggingar og skuldi
31.12.1980 vegna slíkra lána 20.000 ný-
krónur eða meira, enda hafi lánin upphaf-
lega verið veitt til skemmri tíma en fjögurra
ára og eigi að greiðast upp á næstu þremur
árum eða skemmri tíma.
Undanskilin skulu skammtímalán veitt
vegna væntanlegra húsnæðislána, lífeyris-
sjóðslána eða annarra tímasettra greiðslna.
Lánskjör
Lánstími 8 ár, eða skemmri tími samkvæmt ósk
lántakenda. Lánin bundin lánskjaravísitölu með
2Vi% vöxtum og veitt gegn fasteignaveði. Veð-
setning eignar skal ekki nema hærra hlutfalli en
ALÞÝÐUBANKINN H/F
BÚNAÐARBANKIÍSLANDS
IÐNAÐARBANKI ÍSLANDS H/F
LANDSBANKI ÍSLANDS
<3
c
cn
65% af brunabótamati. Lánsfjárhæð skal ekki
nema hærri upphæð en 100.000 krónum og
endurgreiðast með ársfjórðungslegum af-
borgunum lánstímabilið.
Umsóknir
Umsóknum um skuldbreytingarlán skal um-
sækjandi skila á sérstökum eyðublöðum í þann
banka, þar sem hann hefur aðalviðskipti sín.
Skal þar skrá öll þau skammtímalán, sem óskað
er að breytt sé, í hvaða banka sem þau lán eru.
Auk umsóknar skal umsækjandi skila veðbókar-
og brunabótamatsvottorði eignar sinnar, sem
veðsetja á til tryggingar láninu.
Sá banki, þar sem hæsta skuld umsækjanda er,
veitir lánið og gerir upp lán við aðra banka.
Sé umsækjandi í vanskilum með önnur lán, skal
hann gera þau upp áður en skuldbreyting fer
fram.
Umsóknarfrestur
Frestur til að skila umsóknum er til 31. maí n.k.
Lánveitingar munu fara fram jafnóðum og
unnið hefur verið úr umsóknum og ekki síðar en
31. júlí n.k.
SAMVINNUBANKI ÍSLANDS H/F
ÚTVEGSBANKI ÍSLANDS
VERZLUNARBANKI ÍSLANDS H/F