Dagblaðið - 07.05.1981, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 7. MAl 1981.
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
I
Pönksöngkonan Wendy O’Williams:
HANDTEKIN FYRIR 8IÐ-
LEYSIÁ ALMANNAFÆRI
Tatum O’Neal 1 nektaratriðinu.
—var ber að ofan en útötuð vænum skammti af raksápu
Pönksöngkonan Wendy O’Will-
iams sem er meölimur hljómsveitar-
innar Plasmaticks var nýlega hand-
tekin í Cleveland. Ástæðan var
klæðnaður hennar en fyrir ofan mitti
var hún ekki i neinu nema hún var
Wendy O’Williams.
útötuð góðum skammti af raksápu.
Wendy var dregin fyrir dómara,
ásökuð tun ósiðlega framkomu á al-
mannafæri. Eftir tilþrifamikil réttar-
höld þar sem hún var meðal annars
klædd rauðgljáandi stígvélum var
hún sýknuð af ákærunni.
„Enginn handtekur karlmann fyrir
að fara úr skyrtunni,” sagði Wendy
O’Williams stuttaralega. Hins vegar
benti enginn á að fáir karlmenn hafa
barm eins og hún.
Priscilla Presley er
ekkert að fela það
hver sé ástin henn-
ar.
Landlaus
keisari
Hinn sjálfskip-
aði íranskeisari,
Reza II, til hægri á
myndinni, sést hér
ásamt Anwar Sad-
at Egyptalandsfor-
seta við útför her-
manna í Kairo ný-
lega. Keisarinn
ungi reynir nú að
finna sér hlutverk i
lífinu en þaö
verður erfitt því
ekkert land vill fá
hann sem keisara.
Tatum O’Neal, leikkonan unga sem
kunnust er fyrir Paper Moon og að
vera dóttir hans pabba sins, er ófeimin
við að afklæðast fyrir framan kvik-
myndatökuvélar og sýna hvað undir
fötunum býr.
Það gerir hún i nýrri kvikmynd,
Circle of Two, sem nýiokið er gerð á.
Faðir hennar Ryan O’Neal er sagður
hneykslaður á framferði dóttur sinnar.
En Tatum lætur sér fátt um finnast.
Sjálf segist hún vera orðin 17 ára og þvi
nógu gömul til að ráöa sér sjálf.
I kvikmyndinni leikur Tatum 15 ára
skólastúlku sem verður ástfangin af
gömlum, þekktum ieikara, Richard
Burton. f nektaratriöinu hendir stúlkan
af sér fötunum til að tæla Burton til
ásta.
Richard Burton, sem orðinn er 56 ára
gamall, dáist hins vegar að leikkonunni
ungu. Hann segir Tatum sannan leik-
ara sem taki fag sitt alvarlega. Hann
Rlchard Burton og Tatum hafa mildð
állt hvort á öðru.
segist einnig hafa haft mikla ánægju af
að vinna með henni.
Tatum O’Neal hefur sömuleiðis
mikið álit á Richard Burton. Hún segist
njóta þess að heyra hann segja sögur og
flytjaljóð.
„Hann segir mér frábærar sögur af
afa sínum og námunum. Ég kann ekki
við stráka undir tvítugsaldri,” segir
Tatum O’Neal.
Priscilla
Presley,
ekkja
rokkgoðsins,
höndlar
hamingjuna
áný:
Farin að búa með
spænskum söngvara
Priscilla Presley, ekkja rokkgoðsins
Elvis Presley, virðist hafa höndlað
hamingjuna á ný.
Hin 34 ára gamla ekkja hefur lifað
einangruðu og kyrrlátu lifi síðan Elvis
lézt árið 1977. En nú virðist hafa orðið
breyting þar á því PrisciUa hefur eign-
azt nýjan félaga, spánska söngvarann
Julio Iglesias.
Þau hittust á kjötkveðjuhátiðinni i
Rio de Janeiro sem er nýlokið, er
þau voru bæði i samkvæmi hjá sam-
eiginlegum vinum. Áður höfðu þau
kynnzt hvort öðru í einkasamkvæmi í
New York en það voru aðeins stuttara-
leg kynni. Annað var hins vegar uppi á
teningunum í Rio, höfuðborg BrasUiu.
Ekkja rokkkóngsins er ekkert að
fara í grafgötur um það að Julio er
ástin hennar. Þau eru þegar flutt
saman, gerðu það strax við heimkom-
una til Bandaríkjanna. Hinn 36 ára
gamli Julio er sjálfur skilinn svo engin
formsatriði virðast i veginum.
FÓLK
Priscilla Presley og nýjasta ástln,
spánski söngvarlnn Julio Iglesias.