Dagblaðið - 07.05.1981, Qupperneq 16
16
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 7. MAI 1981.
Júlíus Hafstcin, formaöur HSÍ og væntanlegur borgarstjórnarkandidat að
sögn Helgarpóstsins, afhendir hér Ólafi H. Jónssyni, fyrirliða Þróttar, verðlaunin
fyrir bikarkeppnina. Einar Sveinsson (þessi með stóru gleraugun) fann sig knúinn
til að klappa, rétt enn eina ferðina, fyrir árangri liðsins.
Þróttar-
gleði í
Holly og
Sigtuni
Þróttarar gerðu sér dagamun sl.
fimmtudag og fögnuðu þá glæsileg-
um árangri handknattleiksdeildar fé-
lagsins I vetur. Þróttur varð bikar-
meistari og í 2. sæti í 1. deildinni og
kvennalið félagsins vann sér sæti í 1.
deild. Það var því ærin ástæða til
gleði og er víst áreiðanlegt að skvett
hefur verið ærlega úr klaufunum. DB
fylgdist með Þrótturunum — bæði í
kokkteilboðinu í Hollywood og síðan
á uppskeruhátíð HSl í Sigtúni um
kvöldið og myndirnar segja vafalitið
meira en mörg orð.
-SSv./DB-myndlr S.
... og allir saman nú. Og við ætlum
að vera svo ... ” Kátt á hjalla í
Sigtúni. Það er Örn Thors, sem hefur
tekið að sér hlutverk kórstjóra en frá
vinstri talið eru: Einar Sveinsson,
„litli” bróðir Siggi, Sigurðar Ragnars-
son, Jón Viðar pönkari Sigurðsson,
Jens Jensson, Lárus Lárusson, Svein-
laugur Kristjánsson og Þormóður
rammi.
Fimm frískir heiðursmenn. Lengst til vinstri er Haukur Þorvaldsson, formaður handknattleiksdeildar Þróttar, þá Óskar
Pétursson, dyggur stuðningsmaður, Þorsteinn Jónsson, gjaldkeri handknattleiksdeiidarinnar, Guðmundur Pálsson og loks
DavíðSchevingThorsteinsson forstjóri. Hann hefur stutt Þrótt rækilega ogfélagiðboriðTropicana auglýsingar á brjóstinu
í staðinn.
Siggi Ragg. og Unnur Sæmundsdótt-
ir fengu bæði viðurkenningar fyrir 100
leiki með meistaraflokkum félagsins.
Ber ekki á öðru en vel fari á með þeim.
SOSá
Vísi og
framliðnir!
Sigmundur Ó. Steinarsson (SOS),
blaðamaður á Vísi, er að verða frægur
að endemum fyrir „viðtöl” við hina og
þessa, einkum þó erlenda menn. Þau
eru öll eins, sama hver á i hlut. Fléttað
örlítið kringum tvö orð, alltaf sömu
tvö orðin „stórkostlegt” og „víga-
móði”. Dæmi: Það er stórkostlegt að
fá tækifæri til að leika við strákana
hans Ellerts Schram. Ég veit að leik-
menn mínir verða í miklum Vígamóði á
Laugardalsvelli, sagði NN og svo fram-
vegis.
En SOS lætur sér ekki þessa vitleysu
nægja. Nú fá látnir menn ekki lengur
að hvíla í friði í gröf sinni fyrir honum.
Mánudaginn 4. maí sl. skrifaði SOS í
Vísi „að L.C. Edwards, stjórnarfor-
maður Manchester United, væri búinn
að ræða við Bobby Robson, fram-
kvæmdastjóra Ipswich, sem hefði tekið
sér umhugsunarfrest. Edwards ætlaði
að ræða við forráðamenn Ipswich eftir
helgi og kanna hvort Robson fengi að
fara frá félaginu . . .”.
Síðan þetta birtist hafa áleitnar
spurningar leitað á marga. Steig L.C.
Edwards, fyrrum stjórnarformaður
Man. Utd., upp úr gröf sinni I Man-
chester fyrir SOS á Vísi til að ræða við
Robson eða fékk SOS á Vísi miðil til að
koma á sambandi milli Bobby Robson
og Louis heitins Edwards? Ekki furða
þó menn velti þessu fyrir sér.
Jón Helgason, annar tveggja frá-
farandi ritstjóra Tímans, skrifaði
sinn síðasta vísnaþátt í sunnudags-
blaðið þann 3. mai. Jón kemst dálítið
undarlega að orði í upphafi og endi
þáttarins. Sú spurning vaknar hvort
hann sé að senda lesendum Timans
sína síðustu kveðju eftir áratuga störf
við blaðið, með þessum orðum:
„Dálítilli heimsstyrjöld er lokið,
og að sjálfsögðu er það töpuð styrj-
öld, því að I stríðinu sigrast enginn
nema fuglinn í kjarrinu. Þessi vísna-
þáttur verður hinn síðasti í blaðinu,
enda fer nú að sú tíð, er náttúran
tekur við af manninum og yrkir upp á
eiginspýtur. . .”
í lok þáttarins segir Jón:
„Og þar með siglir þessi vísnaþátt-
ur út úr kortinu, enda sjálfsagt kom-
inn tími til.”
Any Trouble
til Islands?
Samningaumleitanir munu nú
standa yfir um að fá brezku hljóm-
sveitina Any Trouble hingað til
lands. Hljómsveit þessari skaut upp á
stjörnuhimininn í Englandi síðasta
sumar og hefur hún átt mikilli vel-
gengni að fagna þar síðan. Þá er Any
Trouble spáð miklum frama víðar á
næstunni.
Dagblaðið hefur fregnað að búið
sé að taka frá tvö kvöld fyrir Any
Trouble á Hótel Borg í fyrrihluta
júní. Einnig hefur Laugardalshöllin
verið pöntuð.
Sígurður Sveinsson æfir hér lyftingar
eins og sjá má. Ekki mun af veita el'
drengurinn á ckki að hrynja niöur úr
hor. Aðrir á myndinni cru f.v.:
Jóhannes Sigurðsson, Gísli Óskarsson
og l árus hornamaður Lárusson.
Þessir þrir Þróttarar virðast misjafnlega úti á þekju á myndinni. E.t.v. er þaðaf
einskærri gleði, hver veit. Þeir fengu allir viðurkenningu frá félaginu fyrir 200
leikja áfangann og eru f.v.: Jóhann Frimannsson, Sveinlaugur Kristjánsson og
Gunnar Gunnarsson.
Kveðja
Jóns til
lesenda?