Dagblaðið - 07.05.1981, Side 17
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 7. MAl 1981.
17
THkynnÍngar
Fyrsti neminn í Handmennta-
skólanum
Handmcnntaskóli íslands hefur nú innritaö fyrstu
nemendur sina. Sú sem fyrst lét innrita sig var Guð-
munda Elíasdóttir söngkona og var myndin tekin við
það tækifæri er hún fékk afhcnt kennslugögn sin.
— í byrjun hvers mánaðar, utan júli og ágúst, hefst
ný önn i teiknun og málun í Handmenntaskólanum.
Næsta önn hefst i maí og er.enn hægt að bæta
nemendum við þar. — Kynningarrit skólans er sent
til þeirra sem eftir þvi óska. Simi skólans er 28033 kl.
14—17 og prósthólf 10340 130 Reykjavik.
Ný Evrópufrfmerki
Mánudaginn 4. mai komu út hin svoncfndu Evrópu-
frímerki. Verða þau sem fyrr í tveimur verðgildum,
180 og 220 aurar. Myndefni þeirra er að þessu sinni
sótt i þjóðsöguna „Djúpir eru islands álar”.
Evrópufrimerkin eru önnur frímerkjaútgáfan á
árinu en í febrúar komu sem kunnugt er út tvö frí
merki meö myndum af þeim Finni Magnússyni og
Magnúsi Stephensen, dómsstjóra.
Þriðja frimerkjaútgáfan á þessu ári verður aö
öllum likindum þrjú frimerki með islenzka
fugla, músarindla, heiölóu og hrafn, aö myndefni
í verögildunum 30, 100 og 200 aurar, fjórða útgáfan,
eitt frímerki, i tilefni Alþjóðaárs fatlaöra i verögild-
inu 200 aurar og fimmta útgáfan, citt frlmerki, með
jarðstöðina Skyggni að myndefni og að verðgildi 500
aurar. Þá er og í haust væntanlegt frimerki með mál-
verki eftir Gunnlaug Scheving að verðgildi fimmtíu
krónur.
Ákvörðun hefur ennfremur verið tekin um útgáfu
frímerkis i tilefni 1000 ára afmælis krístniboðs á
íslandi, en hönnun þess frímerkis er enn ekki
lokið. Þá hefur og veriö til athugunar aö gefa út sér-
stakt „jólafrímerki” í tveimur verðgildum.
Sigurjóni Sœmundssyni
ræðismanni veitt orða
Þann 18. marz siðastliöinn var Sigurjóni Sæmunds-
syni, ræðismanni Svía á Siglufirði, veitt orðan Ridd-
ari hinnar konunglegu Norðurstjömu, sem veitt er
af Sviakonungi fyrir vel unnin störf og dygga þjón-
ustu í þágu Svlþjóðar. Orðuveitingin fór fram að
heimili sænska sendiherrans á íslandi frú Ethel Wik-
lund aö viðstöddum nánustu ættingjum og starfs-
mönnum sendiráðsins. Sigurjón Sæmundsson hefur
verið ræðismaöur Svia á Siglufirði frá árinu 1 %8.
Tölvur og notkunar-
möguleikar þeirra
Vegna mikillar aðsóknar hefur verið ákveðið að
endurtaka námskeiðið um tölvur og notkunarmögu-
leika þeirra og verður það haldið i fyrírlestrarsal
félagsins aö Siðumúla 23 dagana 19. — 22. mai frá
kl. 15—19hverndag.
Tilgangur námskeiðsins er að gefa stjórnendum
yfirlit yfir helztu hugtök á sviði tölvutækni og kerfis-
fræði. Námskeiðið miðar aö því að gefa stjórn-
endum betri forsendur fyrir ákvarðanatöku um
notkun tölva við rekstur.
Gerð verður grcin fyrir gmndvallarhugtökum í
tölvufræðum og lýst helztu tækjum og skýrð hugtök
tengd þeim. Fjallað verður um hugbúnað tölva og
hvernig byggja má upp tölvukerfi. Aðaláherzla
verður siðan lögð á aö kynna hvemig mæta má upp-
lýsingaþörf stjórnenda og leysa vandamál innan
fyrirtækja með notkun tölva. f lok námskeiösins
verður gcrð grein fyrir framtíðarþróun á sviði tölvu-
tækni.
Námskeiðiö er ætlað framkvæmdastjómm og
öðmm þeim stjórnendum i fyrirtækjum sem taka
þátt í ákvörðunum um tölvur og notkun þeirra
innan fyrírtækja.
Leiðbcinendur á námskeiöinu verða Hjörtur
Hjartar rekstrarhagfræðingur og dr. Jóhann P.
Malmquist tölvunarfræðingur.
Biskupskjör
Hinn 28. april 1981 féllst forseti íslands á tillögu
kirkjumálaráðherra um að herra Sigurbirni Einars-
syni biskupi íslands verði veitt lausn frá embætti frá
1. október l981 að telja.
Undirbúningur að biskupskjöri er hafinn. Kjör-
stjóm við biskupskosningu hefur komið saman og
samið og lagt fram kjörskrá fyrir biskupskjör er
fram fer væntanlega i júnimánuði nk. Kjörskrá
liggur frammi á biskupsstofu og í dóms- og kirkju-
málaráðuneytinu til 26. mai nk.
Kærur til breytinga á kjörskránni þurfa að hafa
borízt formanni kjörstjómar i dóms- og kirkjumála-
ráðuneytinu fyrir 27. maí nk.
Aðatfundur
Fólags (slenzkra
myndlistarmanna
Aðalfundur i Félagi isl. myndlistarmanna var hald-
inn 19. marz. Á dagskrá voru venjuleg aöalfundar-
störf. Kynnt var frumvarp til laga um listskreytingar
opinberra bygginga, sem væntanlega veröur fiutt á
Alþingi af Ingvari Gíslasyni menntamálaráðhcrra.
Þar er gert ráð fyrir ákveðnu hundraðshlutfalli af
byggingarkostnaði allra opinberra bygginga til list-
skreytinga. Þá var til umræöu framhald samstarfs
FÍM viö Kjarvalsstaði vegna endurnýjunar sam-
starfssamninga. Aðalfundur samþykkti aö fara þess
á leit viö borgarráð Reykjavíkurborgar að listamenn
i stjóm Kjarvalsstaöa fengju aðild aö listaverka-
kaupum þeim sem gerö em af stjórn Kjarvalsstaða.
Ennfremur áleit aöalfundurinn æskilegt að fulltrú-
um myndlistarmanna væri fjölgað þannig að tveir
þeirra sætu i stjórn i stað eins áöur.
Þessu hafnaði siðan borgarráð á fundi sinum 6.
apríl sl. en samþykkti óbreytta samstarfssamninga
tÚ næstu tveggja ára, þ.e. til 1. mai 1983. Stjórn
FlM harmar aö ekki skuli hafa verið komiö til móts
við óskir listamanna og áskilur sér rétt til endur-
skoðunar samninga að ári liðnu.
Á aðalfundi var einnig til umræðu fyrirhuguð
teiknisýning að Kjarvalsstööum en siöastliöið haust
samþykkti stjórn Kjarvalsstaöa aö efna til sýningar á
nýjum teikningum islenzkra listamanna sumarið
1981. í dómnefnd voru kosnir þeir Jón Reykdal, sem
var upphafsmaður sýningarinnar, Hörður Agústs-
son og Bjöm Th. Björnsson. Vakti Jón Reykdal
máls á þvi aö Kjarvalsstaðir greiddu^dagleigu fyrir
verk Ustamanna á teiknisýningunni enda er FÍM
aðUi aö NORDFAG sem eru hagsmunasamtök
myndlistarmanna á Norðurlöndum. Þau hafa m.a. á
stefnuskrá sinni samræmingu dagleigugjalda tU
myndlistarmanna ef um sýningar i opinberum
sýningarsölum er að ræða. í Noregi eru lögfestir
samningar um þetta atriði og annars staðar á
Norðurlöndur gætir þess æ oftar að þessi sjálfsagði
réttur myndUstartnanna sé virtur.
í stjóm Kjarvalsstaða fékk þessi hugmynd aftur á
móti ekki stuöning borgarfulltrúa. í framhaldi af
þessari neitun ræddi stjórn FÍM máliö og ákvað að
taka það upp á aöalfundi. Aðalfundurinn sam-
þykkti síöan aö krefjast dagleigugjalda og hvatti
Ustamenn til að senda inn myndir með fyrirvara um
afturköllun ef ekki næöust samningar um dagleigu-
gjöld. Jafnframt var lesið upp bréf til formanns
FÍM, Sigrúnar Guðjónsdóttur, frá Birni Th. Björns-
syni. í bréfinu segist Bjöm biöjast undan setu i dóm-
nefnd sýningarinnar þvi hann vilji ekki ,,á neinn hátt
vera viðbundinn það óréttlæti, að myndUstarmenn
einir aUra íslenzkra listamanna fái ekkert endurgjald
fyrir birtingu hugverka sinna á vegum opinberra
aðUa”. Biöst hann þvi undan setu i dómnefndinni ef
ekki veröur komið tU móts við kröfur myndUstar-
manna. Þessari málaleitan var ekki sinnt en sýningin
auglýst og dómnefnd tilgreind. Bjöm Th. Björnsson
gerði itrekaðar tilraunir til þess aö skýra sjónarmið
sin fyrir stjórn Kjarvalsstaöa en stjórnarformaður,
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, neitaöi aö ræða máliö á
fundi.
Stjórn Kjarvalsstaða fjallaði um teiknisýninguna
á fundi 11. aprU sl. FuUtrúar FÍM og Bandalags isl.
Ustamanna vom ekki boöaöir til þess fundar. Þar
var lagt fram bréf Bjöms Th. Bjömssonar dags. 1.
aprU 1981. Eftirfarandi samþykkt var bókuð:
„Stjómin harmar, ef orðiö hafa mistök í fréttatU-
kynningu hinn 10. marz sl., að Bjöm Th. Björnsson
var nefndur sem einn þriggja manna í dómnefnd,
þar sem hann haföi þá þegar i raun sagt sig úr nefnd-
inni.” Með tilvísun tU ofangreindra upplýsinga lýsir
stjóm FÍM furðu sinni á samþykkt þessari.
Jafnframt var á fundi stjórnar Kjarvalsstaöa gerð
eftirfarandi samþykkt: „Stjóm Kjarvalsstaða telur
hugmyndir um greiðslur til handa myndUstarmönn-
um i formi dagleigugjalda allrar athygli veröar, og
mun í því sambandi ræða viö rétta aðUa, þe. stjórnir
FÍM og BÍL.” Stjóm FÍM fagnar þessari málalykt-
an og væntir þess að samningar hefjist sem fyrst
þannig að möguleiki myndist fyrir umrædda teikni-
sýningu á sumri komanda.
Eftirtaldir félagsmenn voru kosnir i stjórn félags-
ins á aðalfundi: Sigrún Guöjósndóttir formaður,
Valgeröur Bergsdóttir ritari, Þorbjörg Höskulds-
dóttir gjaldkeri, Eiríkur Smith meðstjórnandi og
Hringur Jóhannesson meðstjórnandi.
Louis Masterson
HELKULDI
Á NORÐURSLÓÐ
26. Morgan Kane
bókin komin út
„Helkuldi 6 Norflurslóð"
Út er komin 26. bókin í bókaflokknum um Morgan
Kane og heitir hún „Helkuldi á Noröurslóö”.
Morgan Kane hafði alltaf hugsaö sér helviti sem
mjög heitan stað, þangaö til hann kom til Noröur-
Dakota veturinn 1885. Dakota var þá Indíánaland
fyrst og fremst, á norðurhjara heims, allt norður aö
landamærum Kanada.
Þaö voru uggvænlegar fréttir, sem yfirvöld fengu
norðan úr þessum stokkfrosnu óbyggðum —
blóðugar árásir á veiðimenn og skinnasala, heilir
ættfiokkar brytjaðir niður, eða flæmdir á brott,
veiðikofar brenndir ofan af mönnum. Það var engu
likara en myrkrahöfðinginn sjálfur herjaði um
landið með manndrápum og pyntingum. Og þegar
Chippewa-Indiánarnir gerðu uppreisn, voru norður-
Ijósin ekki lengur hvit, þau voru blóðrauð.
Árbók Ferða-
félags íslands
1981
er komin út
Þetta er 54. Árbók félagsins og fjailar hún um
ódáðahraun. Aðalhöfundur þessarar Árbókar er
Guðmundur Gunnarsson fulitrúi, Akureyri. Enn-
fremur ritar Guðmundur Sigval'dason jarðfræðingur
þátt um jarðfræði Odáðahrauns en á undanförnum
árum hafa rannsóknir hans beinzt að þvi svæði og
þó einkum öskju. Koma fram i ritgerð hans ýmsar
nýjungar i jarðfjræði, sem ekki hafa áöur birzt í
bókum.
Efni bókarinnar er skipt niöur í 6 kafla og er
skiptingin miðuð við helztu ökuleiðirnar og jafn-
framt er lýst ákveðnum svæöum i nágrenni þeirra.
FERÐAFÉLAGÍSLANDS
Fremst i bókinni er uppdráttur af ieiöum um
ódáðahraun og rómversk tala visar tii þess kafla i
bókinni, þar sem viðkomandi leið er lýst. Auk þess
efnis, sem að ofan getur er aftast í bókinni kafli um
félagsmál Feröafélags íslands og deilda þess. Skýrt
er fró starfi liðins árs, byggingu sæluhúsa, ferðum
og fleiru, sem Feröafélagiö og deildir þess vinna aö.
Ritstjóri Árbókarinnar er Páll Jónsson bóka-
vörður og hefur hann haft alian veg og vanda af út-
gáfunni. Árbókin er gefin út í 10 þúsund eintökum,
prentuð í ísafoldarprentsmiöju, myndirnar eru
unnar af Prentmyndastofunni Litróf, Offset-
myndum sf. og litgreiningin er unnin i Myndamót
hf.
Á valdi
örlaganna
Bókaflokkurinn Stjörnu
róman
Bókaflokkurinn Stjörnu róman, er safn úrvals sagna
eftir ýmsa höfunda sem vakið hafa athygli fyrir
spennandi og hugljúfar ástarsögur.
Út er komin þriðja bókin í bókaflokknum og
heitirhún Á valdiörlaganna”.
Lisa og Úifur eiskuðust, en Rut gat ekki unnað
þeim að njótast. Hún vildi gera allt til aö Úlfur
giftist sér. Hún taldi honum trú um að hún bæri
barn hans undir brjósti — eftir nótt sem hann mundi
ekkert frá.
Úlfur og Lísa sáu framtíð sína hrynja i rúst, en
Rut var heldur ekki rótt. Hvað gerðist, þegar barnið
fæddist fyrir timann?
íþróttablaðið komið út
Fyrir nokkru kom út 4. tbl. íþróttablaðsins. Ýmis-
legt efni er i blaðinu. Rætt er við Stefán Jóhannsson
frjálsíþróttaþjáifara, Einar Ólafsson körfuknatt-
leiksþjálfara, Eystein Þorvaldsson formann Júdó-
sambands ísl. og Jóhann Hjálmarsson lyftinga-
kappa. Körfuknattleiksþjálfun er kynnt og er þetta
fyrsti þátturinn i röð af þjálfunarbáttum sem
lþróttablaöið hyggst birta i framtiöinni. Fjallað er
um kaup og kjör atvinnumanna í knattspyrnu. Litið
erinn á skrifstofuíSÍ og starfsemin kynnt. Auk þess
sem hér er upptaiiö er margt fieira efni i biaðinu.
$ Samvinnan ,, 2/8
Samvinnan
Skömmu fyrir páska kom út 2. hefti Samvinnunnar
á þessu ári. í blaðinu er margt efnis m.a. skrifar
Hjörtur Pálsson um Snorra Hjartarson. Rætt er við
Björn Stefánsson fyrrum kaupfélagsstjóra. Benedikt
Gröndal skrifar um Erlcnd Einarsson sem varð
sextugur nýlega. Sigriður Haraldsdóttir ritar um
neytendamál og fjallar þar um skrum i islenzkum
auglýsingum. Einnig eru birtir i blaðinu tveir kafiar
úr greinargerð eftir dr. Alexander Fraser Ladiaw
sem nefnist Samvinnuhreyfingin árið 2000. Auk þess
er ýmislegt fieira efni 1 blaöinu aö vanda.
BUNSKA (ÍUOSíWliaAWn
Sílf|illl
Veglegtrit
um fkigsöguna
Flugsagan, ársrit íslenzka flugsöguféiagsins, er
komið út. Er þaöhið veglegastaaöallrigerðogprýtt
mörgum myndum, bæði svart/hvitt — og litmynd-
um sem margar hverjar hafa sögulegt gildi.
Meðal efnis er ágrip af sögu islenzkra flugvéla frá
upphafi, Grænlandsflug Fiugfélags blands, frásögn
af nauðlendingu þýzkrar herflugvélar á Melrakka-
sléttu í stríðslok, björgun og endurbygging North-
rop-flugvélar 1979 og ágrip af sögu sildarleitar úr
lofti við ísland.
ÚTÍVÍSt
7
Ársrit Útivistar 1981
Sjöunda ársrit Útivistar er nýlega komiö út. í
þessu ársriti eru ýmsar greinar sem tengjast starfs-
sviöi Útivistar, má þar nefna staðháttaiýsingu úr
Æðey, ferðasögu úr Hoffellsdal. Sagt er frá rann-
sóknum á Sprengisandi og Svörðunum. Fjallað
er um örlygsstaðabardaga Loks er sagt frá skála-
byggingu Útivistar i Básum á Goðalandi i máli og
myndum. Mikill fjöldi mynda og þá fiestar litmyndir
prýða ritið.
AA samtökin hafa gefið út á
(slenzku bókina 12 reynslu-
spor og 12 erfðavenjur
„Við viðurkenndum vanmátt okkar gegn áfengi og
aö okkur var orðið um megn að stjóma eigin lífi.”
Segja má að þessi orð, sem AA-menn kalla
„fyrsta reynslusporiö”, sé kjaminn i því sem þessi
bók hefur að bjóða. Alls eru reynslusporin 12 og á
þau má líta sem gmndvöll þeirra hugmynda eða þess
hugmyndakerfis sem AA-fólk — alkóhólistar —
byggir líf sitt og lífshamingju á. Bókin er skrifuð til
að reyna aö skilgreina þær hugmyndir og þann boð-
skap sem í reynslusporunum felst.
Sé bókin lesin opnum huga kemur i ljós að hún á
ekki aðeins erindi tii alkóhólista heldur og til allra
þeirra sem eiga viö sálræn eöa hugarfarsleg vanda-
mál aö stríða.
Bókin er til sölu á skrifstofu samtakanna,
Tjarnargötu 5b, opið 1—5 e.h., og i öllum AA-
deildum um allt land. Söluverö kr. 200.
Franskar íslandsvbur
Það eru ekki miklar líkur til þess aö erient Ijóðskáld
hefji feril sinn með þvi að kveða ijóöaflokk um
island. Þó hefur þetta gerzt. Franskar fslandsvisur
(Poésies d’Islande) er fiokkur sjö Ijóða um ísland
sem Þýðingaútgáfan cr að gefa út á frummálinu
(frönsku) ásamt islenzkri þýðingu allra Ijóðanna.
Þetta er fyrsta bók höfundarins Gerard Lemarquis
sem er Parisarbúi að uppruna, fæddur árið 1948, en
flutti árið 1973 til Reykjavíkur þar sem hann nú býr
og kennir frönsku auk þess aö vera hér fréttaritari
stórblaðsins Le Monde og fréttastofunnar AFP.
Enda þótt ijóðasafnið Franskar Íslandsvísur sé
fyrsta bók höfundarins hafa nokkur Ijóöanna áður
birzt í hinu virta franska tímariti Création sem
eingöngu cr helgað nútimaljóðagerö.
fslenzk þýðing ljóðanna er gerð af Þorgeiri Þor-
geirssyni. Bókin er þannig prentuð að vinstra megin
á opnu stendur franski textinn en islenzka
þýðingin hægra megin. Slíkar tvímálaútgáfur hafa
ekki verið mjög algengar hérlendis en þykja viöa hið
mesta þing, einkum er þessi útgáfumáti algengur
með Ijóðaþýðingar. Ýmislegt flcira hefur útgáfan á
prjónunum sem of snemmt er að greina frá fyrren
séö verður hvernig áhuginn verður á þessari tilraun.
Sextán komið út
Út er komið annaö tölublaö unglingablaðsins Sextán
(16). Fjölbreytt efni er aö finna i Sextán, svo sem
þátt um gæludýr, popp, Ijósmyndun, plötudóma,
samskipti kynjanna, snyrtingu og framkomu, tækni
og viðskipti auk smásögu, kvikmyndir, vinatengsl,
hljómtæki og pósthóifið. Forsíöuviðtal er við
Kjartan Ragnarsson leikara. Þá er þáttur um ung-
linga og afbrot, smáþættir ýmiss konar og margt,
margt fleira. Blaðið hefur verið stækkað úr 48 siðum
i 56 og kostar þaö 18 krónur. Sextán er eina
unglingablaöiö sem gefið er út hér á iandi.
QRÆNLANO
ÍSLANO
ísinn nssst landi um 33
sjómflur NV af Straumnesi
Föstudaginn 1. mai sl. fór Landhelgisgæzla fslands I
iskönnunarflug undir stjórn Hclga Hallvarössonar
skipherra. Hafisrannsóknadeiid Veöurstofunnar tók
þátt í könnuninni. ísjaðarsvæðiö vestur og noröur
af landinu var kannað.
Jaðarinn var nokkuð vel afmarkaður norövestur
af Vestfjörðum, með þéttleika 7 til 9 tíundu hiutar.
Hann var næst iandi um 33 sjómllur norðvestur af
Straumnesi.
Úti fyrir Norðurlandi var jaðarsvæðiö gisnara og
voru þar 4 til 6 tíundu hlutar hafs þaktir is. lsjaöar-
inn var um það bil 70 sjómllur norður af Horni og
Rauðanúp, mun nær landi en mánuði áöur.
Kortið er af isnum milli fslands og Grænlands um
mánaðamótin april/maí, samkvæmt veöurtungla-
myndum og fyrrgreindri ískönnun Landhelgisgæzl-
unnar.