Dagblaðið - 12.05.1981, Qupperneq 6
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 1981.
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
3
Elísabet Englandsdrottning hefur undanfarna daga verið í opinberri heimsókn i Noregi. Myndin er tekin er hún hlýðir á þjóð-
söngva Bretlands og Noregs, „God save the Queen” og „Ja, vi elsker”. Við hlið hennar stendur Ólafur Noregskonungur cn
að baki þeim eru Philip prins og rikiserfingjarnir í Noregi, Haraldur og Sonja.
Bardagar halda áf ram í Líbanon:
Veðrið bjargaöi loft-
vamabyssum Sýriands
—þegar Menachem Begin hafði skipað að þeim skyldi eytt ,
—Sýrlendingar auka vamarviðbúnað sinn af ótta við árásir Israelsmanna
Philip Habib, sendimaður Banda-
ríkjastjórnar, hélt áfram friðarum-
leitunum sínum í Miðausturlöndum í
gær. Vonir manna um að honum
takist að koma á sáttum milli fsraels-
manna og Sýrlendinga hafa allt ann-
að en glæðzt við þá yfirlýsingu
Menachems Begin, forsætísráðherra
ísraels, að það hafi aðeins verið
óhagstætt veður sem hafi komið í veg
fyrir að ísraelsmenn eyddu Ioftvarna-
byssum Sýrlendinga í Líbanon 30.
april síðastliðinn. Síðan hafi komið
til beiðni Bandaríkjaraanna um að
ekki yrði gripiö til slikra aðgerða.
Habib ræddi viö Begin í hálfa aðra
klukkustund en ekki var greint frá
því sem þeim hefði farið á milli.
Skömmu fyrir fund þeirra kom Begin
ísraelska þinginu Knesset mjög á
óvart með fyrrgreindri yfirlýsingu
sinni.
„Hálfri klukkustund áður en ráð-
ast átti á loftvarnabyssurnar var mér
sagt að veðrið væri óhagstætt,”
sagði Begin í yfirlýsingu sinni í þing-
inu. Þingmenn stjórnarandstöðunnar
mótmæltu þessari yfirlýsingu hans og
sökuðu hann um aö afhjúpa ríkis-
leyndarmál. Begin sagöi að þrívegis
þennan dag hefði veðrið komið i veg
fyrir árásina og daginn eftir hefði
borizt bréf frá Alexander Haig, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, þar
sem ísraelsmenn voru beðnir um að
láta af öllum hernaðaraðgerðum þar
til Bandaríkjamenn hefðu reynt að
miðla máium. Var fallizt á það.
Sýrlendingar hafa nú lýst því yfir
að þeir muni auka varnarviðbúnað
sinn í ljósi hótana ísraelsmanna um
að eyða hinum mjög svo umdeildu
loftvarnabyssum þeirra í Libanon.
Bandaríkin:
Vextir hækka
Helztu bankar í Bandaríkjunum
hækkuðu forvexti í gær úr 19 í 19,5
prósent. Þetta var önnur hækkunin á
einni viku og sú fjórða síðan í apríl.
Hömlurá
hemaðar-
aðstoð við
El Salvador
Utanríkisnefnd Bandaríkjaþings hef-
ur greitt atkvæði með því að auknar
hömlur verði settar við áframhaldandi
hernaðaraðstoð Bandaríkjanna við E1
Salvador, þrátt fyrir að Alexander
Haig utanríkisráðherra hafi lagzt mjög
eindregið gegn því að slíkar hömlur
yrðu settar.
Nefndin lagðist hins vegar gegn því
að slíkar hömlur yrðu settar við hern-
aðaraðstoð Bandarikjanna við stjórn
Argentínu. Reagan-stjórnin leggur
mikla áherzlu á bætt samskipti við
Argentínumenn.
Francois Mittcrrand.
Pólland:
Nóbelsverð-
launahafinn
Bob Marley
lézt í gær
Bob Marley, fyrsti „reggae”-söngv-
arinn til að öðlast heimsfrægð, lézt af
völdum krabbameins á sjúkrahúsi í
Miami í Bandaríkjunum í gær. Marley
var 36 ára gamall er hann lézt. Margar
af hljómplötum hans hafa selzt í millj-
ónatali.
Krabbamein Marleys uppgötvaðist á
síðastliðnu ári er hann féll í öngvit á
hljómleikum í Madison Square
Garden. Lengst af síðan hefur hann
verið til meðferðar 1 krabbameinsstofn-
un nærri Múnchen í V-Þýzkalandi.
Marley verður grafinn í heimalandi
sínu, Jamaica.
snýr heim
Pólska skáldið Czeslaw Milosz, sem
hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels á
síðastliðnu ári, mun heimsækja Pól-
land í næsta mánuði eftir þrjátíu ára
útlegð þaðan, að því er Varsjárútvarpið
sagði í gær.
Pólska rithöfundasambandið bauð
Milosz, sem er 69 ára gamall. Honum
mun verða veitt heiðursdoktorsnafnbót
við kaþólska háskólann í Lublin.
Skáldið yfirgaf Pólland og kommún-
istaflokkinn árið 1951 og fluttist til
Bandaríkjanna. Þar til hann vann
nóbelsverðlaunin í fyrra voru ritverk
hans einkum þekkt í neðanjarðarútgáf-
um en á síðustu mánuðum hafa þau
verið gefin út af ríkinu og kaþólskum
útgáfufyrirtækjum.
Margir reknir
úrflokknum
Miðstjórn pólska kommúnista-
flokksins hefur skýrt frá því að 768
manns hafi verið reknir úr flokknum á
síðustu sex mánuðum. Ástæðan hafi í
flestum tilfellum verið spilling og brot á
siðferðilegum viðmiðunum.
Mjög ófriðlegt hefur verið I Miðausturlöndum, einkum i Libanon, að undanförnu. Óttazt menn að þá og þegar muni sjóða
upp úr milli ísraelsmanna og Sýrlendinga, sem eru dyggustu stuðningsmenn Sovétmanna i þessum heimshluta. Myndin er af
israelskum hermanni á vesturbakka Jórdanár.
UOD Marley.
Forsetinn nýkjörni hefur boðað til
þingkosninga í lok júní þar sem hann
mun freista þess að fá kosinn þing-
Costa Rica sleit stjórnmálasambandi við Kúbu:
„Stjómin þolir ekki
móðganir Kúbumanna”
Costa Rica sleit í gær stjórnmála- „Stjórnin getur ekki þolað jafn mun átt við þær ásakanir Kúbu-
sambandi sínu við Kúbu vegna móðg- móðgandi ummæli og stjórn Kúbu manna í garð stjórnar Costa Rica, að
andi ummæla fulltrúa Kúbu hjá Sam- hafði um Costa Rica,” sagði í yfirlýs- hún styddi byltingartilraunir Banda-
einuðu þjóðunum í desembermánuði. ingu ríkisstjórnar Costa Rica. Hér ríkjamanna gegn stjórn Kúbu.
Erlendar
fréttir
Búizt við að Mitt-
errand skipi einn
kommúnista í stjóm
Gengi frankans lækkaði talsvert í
gær þegar ljóst var orðið að sósíalistinn
Francois Mitterrand hafði farið með
sigur af hólmi í frönsku forseta-
kosningunum. Þá hækkuðu franskir
bankar vexti um 2,5 prósent.
Að baki viðbrögðum fjármálamanna
við kjöri Mitterrands liggur sú stefna
hans, að þjóðnýta ellefu stór iðnfyrir-
tæki og einkabanka, hækka lágmarks-
laun og auka útgjöld til félagsmála um
leið og vinnuvikan verður stytt úr 40
stundum í 35.
meirihluta vinstrimanna. Þar hafa nú
miðju- og hægrimenn 80 þingsæta
meirihluta. Ýmsar bollaleggingar eru
hafnar um hverjir verða ráðherrar í
stjórn Mitterrand og er almennt
reiknað með að einn kommúnista fái
sæti 1 stjórn hans að launum fyrir
stuðning Kommúnistaflokksins.