Dagblaðið - 12.05.1981, Page 27

Dagblaðið - 12.05.1981, Page 27
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 12. MAl 1981. Ci Útvarp Sjónvarp D Uæmi um fréttamynd sem geymir sögulegan atburð: Jack Ruby myrðir Lee Harvey Oswald, morðingja Kcnnedys Banda ríkjaforseta. LITIÐ Á GAMLAR UÓSMYNDIR - sjónvarp kl. 20,45: Sagt f rá þróun fréttamyndanna Tíundi þáttur brezka heimilda- myndaflokksins um ljósmyndina verður sýndur í sjónvarpinu i kvöld. Alls eru þættimir þrettán þannig að farið er að síga á seinni hluta mynda- flokksins. Að sögn þýðandans, Guðna Kolbeinssonar, verður í þættinum í kvöld fjallað um fréttamyndir og hvernig þróun myndavélarinnar gerir fréttamyndir mögulegar. Fyrstu ljósmyndavélarnar útílok- uðu fréttamyndir. Vélarnar voru of fyrirferðamiklar og myndefnið mátti ekki vera á hreyfingu. En þær þróuð- ust eins og flest annað og brátt kom að þvi að blöð fóru að notfæra sér þessa tækni. Þátturinn í kvöld fjallar einmitt um þá þróun. Sagt verður frá fyrstu ljósmyndunum sem birtust í blöðum, fyrsta blaðaviðtalinu sem var myndskreytt og þeim tækni- vandamáium sem við var að striða í sambandi við myndbirtíngar. Á tíma- bili var t.d. ekki hægt að hafa neinn texta á þeirri síðu sem mynd var á. Allir sem lesa dagblöð nútímans sjá að ljósmyndin gegnir þar mikil- vægu hlutverki. Oft kemur það fyrir að hún segir meira en hægt er að gera ílöngu máli. -KMU. NEYZLUÞJOÐFELAGIÐ — sjónvarp kl. 21,50: UMRÆÐUÞATTUR UM NEYTENDAMÁL Neyzluþjóðfélagið nefnist umræðu- þáttur um neytendamál sem Árni Bergur Eiríksson, stjórnarmaður í Neytendasamtökunum, annast í sjón- varpinu í kvöld. Þátttakendur verða fjórir, þeir Davíð Scheving Thorsteinsson iðnrek- andi, Friðrik Sophusson alþingis- maður, Jón Magnússon, lögfræðingur Neytendasamtakanna, ogTómas Árna- son viðskiptaráðherra. Auk þess verður skotið inn viðtölum við fólk sem hefur haft afskipti af neyt- endamálum. Dr. Bjarni Helgason jarðvegsfræðingur spjallar almennt um neytendur og stöðu þeirra, Jón Óttar Ragnarsson matvælafræðingur ræðir um matvæli og fæðuval manna, Aðal- heiður Bjarnfreðsdóttír talar um tengslin milli verkalýðsmála og neyt- endamála, Gísli Jónsson prófessor tekur fyrir þjónustu opinberra stofn- ana, Jóhannes Gunnarsson, fulltrúi hjá embættí verðlagsstjóra, segir frá þjón- Árni Bergor Eiriksson stjórnar um- ræðuþættinum. ustu- cg verðkönnunum, Sigríður Har- aldsdóttir, sem einnig starfar hjá verð- lagsstjóra og var lengi hjá leiðbeininga- stöð húsmæðra, fjallar um mál sem snerta starf hennar, og loks útskýrir Hrafn Bragason borgardómari lög sem snúa að neytendum. -KMU. YFIRLITYFIR FUGLANA Á ÍSLANDI—ífyrramálið kl. 11,15: ERINDISEM JÓNAS HALL- GRÍMSSON FLUTTI1835 Knútur R. Magnússon les í fyrra- raálið kl. 11.15 erindi eftir Jónas Hall- grímssonskáld, sem höfundur flutti á fundi íslendinga í Kaupmannahöfn 7. febrúar árið 1835. Erindið birtíst í Fjölni árið 1847 og er það um fuglana á Islandi. Jónas er fyrst og fremst kunnur fyrir ljóð sín en hann var náttúrufræðingur að mennt og nam þau fræði við Kaup- mannahafnarháskóla. Danska stjómin veittí honum styrk til náttúrufræði- rannsókna á Islandi og feröaðist hann um nær allt landið á fjórum sumrum. Víst er að þau ferðalög hafa veitt honum innblástur í nokkur af hans beztu kvæðum. í erindinu fjallar Jónas vítt og breitt um fuglana á fslandi. Að sögn lesarans, Knúts R. Magnússonar, kemur vel fram hinn væni tónn Jónasar í erindinu þó kannski megi segja að fróðleikurinn sé ekki ýkja merkilegur fyrir nútima náttúruvísindamenn. NEMENDALEIKHÚSIÐ Morðiö á Marat 3. sýning í kvöld, þriðjudag, kí. 20. 4. sýning föstudagskvöld kl. 20. Miðasala í Lindarbœfrá kl. 17 alla daga nema laugardaga. Miðapantanir í síma 21791. Viö gerum við rafkerfið í bílnumþítlUttl. rafvélaverkstæði. Sími 23621. Skúlagötu 59, í portinu hjá Ræsi hf. Töfraten- ingurinn er kominn Hjá Magna Laugavegi 15 Sími 23011 HAÞRYSTtÞVOTTUR Húseigendur, útgerðarmenn, verktakar! Tökum að okkur að háþrýsti- þvo hús, skip, vélar o.fl. Þrýstí- kraftur allt að 10.000 psi. llpplýsingar í simum 84780 og 83340. Matvæladreifing Við leitum að manni—konu með sendiferðabil til útkeyrslu á afurðum okkar. Frjáls vinnutími, um það bil hálfs dags starf. Uppl. á staðnum cða í síma 76340 milli kl. 16 og 18. REYKIÐJAN HF. SMIÐJUVEGI36 KÓPAVOGI Aðatsafnadarfundur Breiðholtssafnaðar verður haldinn í hátíðarsal Breiðholtsskóla sunnudaginn 17. maí nk. að lok- inni messu sem hefst kl.i 14.00. Venjuleg aðalfundarstörf. \ Safnaóarnefnd UTBOD Orkubú Vestfjarða óskar eftir tilboðum í lagningu dreifi- kerfa fyrir fjarvarmaveitur í Bolungarvik og Patreksfirði. Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Orkubúsins Stakkanesi 1, ísafirði, mánudaginn 25. maí 1981 kl. 14. Útboðsgögn verða afhent í tæknideild Orkubús Vestfjarða gegn 300 króna skilatryggingu fyrir hvort verk. Orkubú Vestfjarða, tæknideild. Kínverskir hjötbarðar 900—16—10 strigalaga auk fjölda algengra stærða undir smábíla. Umboðsmenn um allt land. í Reykjavík: Hjólbarðastöðin Skeifunni 5. Góð ending, gott verð. Einkaumboð á íslandi: REYNIRS/F Sími 95-4400 — Blönduósi. -KMU.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.