Dagblaðið - 12.05.1981, Side 28

Dagblaðið - 12.05.1981, Side 28
V' Er nú brennuvargur kominn á kreik: Hugsanlegar íkveikjur á fímm stöðum ínótt Tveir togarar, trollbátur og byggingarsvæði vettvangar eldanna Engu er líkara en brennuvargar hafi farið ura Stór-Reykjavíkursvæð- ið í nótt í miklum ham. Slökkviliðið barðist við elda sem talið er að kveiktir hafi verið af mannavöldum, viijandi, bæði í Kópavogi og Reykja- vík og slökkvilið Hafnarfjarðar fékk einn til meðferðar i Hafnarfjarðar- höfn. Þetta byrjaði kl. 21.16 er eldur var laus í sprengimottum á bersvæði við Digranesskóla. Tókst fijótlega að slökkva en svona mottur eru dýrar og tjón því nokkuð. Eldur var laus i sinu i Súðarvogi ki. 22.06 og urðu slökkviliðsmenn að berja hann niður. Eldvarnakerfi í togaranum Jóni Baldvinssyni fór i gang i Slippnum kl. 1.12 í nótt. Leituðu slökkviliðsmenn orsakar um allt skipið en fundu ekk- ertgrunsamlegt. Kl. 4.20 í morgun varð eldur laus i trolli sem var upprúllað á afturdekki Sæbjargar RE 20 við Grandagarð. Eyðilagðist troilið sem kostar hundruð þúsunda en eldurinn komst ekki í skipið sjálft því slökkvistarf var auðvelt viðfangs. Tveir menn sváfu í skipinu. Þarna er sterkur grunurum íkveikju. JC-húsið að Kirkjuvegi 39 í Kefla- vik skemmdist svo af eldi í gærkvöldi að það er talið ónýtt. Leikur grunur á að um ikveikju hafi verið að ræða og beinist grunurinn helzt að ungling- um. Enginn var í húsinu, sem er gamalt Loks kom upp eldur i málningar- vörum, tvisti og fleiru á dekki togar- ans Ottós Þorlákssonar sem lá við Óseyrarbryggju í Hafnarfirði. Var tilkynnt um reykjarkóf frá skipinu kl. 23.15 í gærkvöldi. Leit þarna út fyrir mikinn bruna en varð minna úr þar sem eldurinn var á dekki. Talið er timburhús, hæð og ris á steyptum grunni. Þar fór ekki önnur starfsemi fram en er á vegum Junior Chamber klúbbsins sem felst i fundahöldum, námskeiðum o.fl. Engin starfsemi var þar í gær. Eldurinn kom upp um ellefuleytið að hann hafi eitthvað kraumað því sjá má á síðu skipsins að járnið hefur hitnað. Er nú kannað hvort leiðslur kunni að hafa skemmzt en sé svo er tjónið mikið. Rannsóknarlögreglan rannsakar alla þessa bruna sem gætu verið íkveikjurviljandi. -A.St. og var húsið fijótt alelda. Blankalogn var og því var öðrum eldfimum húsum i grenndinm ekki hætt en þarna er fjöldi slíkra húsa. Samkvæmt upplýsingum DB var húsið tryggt venjulegri matstryggingu en innbú lágt eða ekki tryggt. -A.St. íkveikja f Keflavík? JC-húsið eyðilagðist í eldi í nótt Glatt logaði i sprengimottunum við Digranesskólann i Kópavogi i gærkvöldi. Siökkvilið beitti froðu til þess að slökkva eldinn. DB-mynd Sigurður Þorri. Stykkishólmur: Dýralæknir varö að skjóta 8 ær vegna vanhirðu eiganda „Hingað barst kvörtun frá forða- gæzlumanni á fimmtudagskvöld um fé sem var illa á sig komið. Ég fór á staðinn strax á föstudagsmorgun ásamt lögreglu og það verð ég að segja eins og er að ástand skepnanna var mjög bágborið. Það var því ekkert annaö að gera en að skjóta þær. Þetta voru sjö kindur og eitt lamb,” sagði Rúnar Gíslason dýra- læknir í Stykkishólmi. Stundum kemur það fyrir að dýra- læknar fái kvartanir vegna skepna sem illa er hugsað um. Þó er það ekki algengt sem betur fer og sagði Rúnar það einsdæmi að svo illa væri farið með skepnur eins og i þessu tilfelli. Eigandinn er búsettur á Hellissandi og hafði hann féð í hrauninu ofan við bæinn. „Þetta er í rauninni ágætis aðstaða þarna, það var bara ekkert hugsað um féð. Þar fýrir utan er þetta ekki í fyrsta skipti sem við höfum þurft að hafa afskipti af þess- um manni. Eg hafði afskipti af honum í fyrra vegna vanhirðu á fénu og eftir það lagaðist hann í smátima. Núna voru kindurnar svo illa á sig komnar að það var ekki hægt að halda í þeim lif- inu. Réttur eigandans til að vera með skepnuhaid var tekinn af honum svo við eigum ekki von á að þetta endur- taki sig,” sagði Rúnar Gíslason dýra- læknir. -ELA. fijálst, óháð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 12. MAt 1981. Ólafurþriggja makiáfundi ríkisstjórnarinnar umverðlagsmál Heildarvisitöluáhrifin af þeim hækk- unum sem Verðlagsráð samþykkti í síð- ustu viku eru talin.0,81%. Þar af er bensínhækkunin 0,63%. Er bensín- hækkunin sem lögð er til kr. 0,90 eða úr kr. 5,95 lítrinn í kr. 6,85 eða 15,1%. Vegur því þessi hækkun langþyngst í vísitölunni eða um 3/4 af öllum hækk- unum sem samþykktar voru i Verðlags- ráði. Þrátt fyrir það að Tómas Árnason viðskiptaráðherra fór erlendis í morgun til að sækja ráðherrafund EFTA í Genf og Steingrímur Hermannsson er í opin- berri heimsókn í Bretiandi mun rikis- stjórnin fjalla um verðlagsmálin á fundi sínum i dag. Ólafur Jóhannesson fer þar með embætti þriggja ráðherra, sitt eigið að sjálfsögðu og síðan til við- bótar embætti sjávarútvegs- og sam- gönguráðherra, og loks viðskipta- og ban kamálaráðherra. Gert er ráð fyrir því að ríkisstjórnin ákveði verðhækkunarmörkin sem stað- festing viðskiptaráðherra nægir til og hins vegar að hún staðfesti þær verð- hækkanir sem eru fyrir ofan þau mörk og samþykki hennar þarf til. Þess má geta að vísitala rekstrar- kostnaðar olíufélaganna er reiknuð út á þriggja mánaða fresti eftir á. Hluti bensinverðhækkunarinnar stafar af erlendum hækkunum, hluti hennar er magnálagning sem leyfð er eftir á og miðast við kostnaðarhækkanir 1. des- ember síðastliðinn. Um helmingur hækkunarinnar er svo bensíngjald sem rennur til vegaframkvæmda. Verður ekki betur séð en að sá hluti hækkunar- innar komi að einhverju leyti á móti niðurskurði á vegafé sem gerður var í síðustu efnahagsráðstöfunum ríkis- stjórnarinnar. - BS Viðbótarlán vegna raðsmíði f iskibáta Rikisstjórnin hefur ákveðið sérstak- an stuðning við raðsmíði fiskibáta og gengið frá reglum um 5% viðbótarlán af kostnaðarverði hvers raðsmíðaðs báts, sem komi til viðbótar framlagi Fiskveiðasjóðs og Byggðasjóðs. Þessi ákvörðun ríkisstjórnarinnar er í framhaldi af tillögu sem iðnaðarráð- herra lagði fyrir hana i júlí í fyrra um að ríkisstjórnin beitti sér fyrir áætlun um smíði allt að 10 skutskipa, 200— 300 lestir að stærð, innanlands á næstu fimm árum. Ríkisstjórnin taldi rétt að umrædd áætlun yrði undirbúin i sameiningu af iðnaðar- og sjávarútvegsráðuneyti þannig að taka mætti ákvörðun um að- gerðir, þar á meðal fjármögnunarþátt- inn. í lánsfjáráætlun fyrir árið 1981 er sérstakt framlag að upphæð 10 millj- ónir króna ætlað til þessa verkefnis. Byggðasjóður er hinn formlegi lántak- andi og eiga umsóknir um lán að send- ast til hans. Byggðasjóður tekur af- stöðu til þeirra að höfðu samráði við fiskveiðasjóð sem gengur úr skugga um að um raðsmíði sé að ræða. Þegar hefur verið tekin afstaða til nokkurra raðsmíðaverkefna. Þessi verkefni eru hugsuð sem stuðningur við skipasmiðar innanlands en einnig er talin þörf á endumýjun bátaflotans. -KMU. Sanitas drykkir LÆKKAÐ VERÐ

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.