Dagblaðið - 13.05.1981, Page 14

Dagblaðið - 13.05.1981, Page 14
26 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 1981. Gwt ar ráfl tyrir austan- afla norfl- auatanátt um aát land I dag, hvaaat varflur dt af Vaatfjörflum. llm auatan- vart landlfl varflur auatankaldl og vlfl- aat hvar á landlnu alnhvar úrfcoma. Ládaga varflur alydda norðanlanda an aúld annara staflar, þutrara varður á Suflurlandl. Klukkan « var auatan 1, akýjafl og 6 adg I Raykjavit, auatan 6, rlgning og 4 stig á Gufuakálum, norflauatan 8, aúld og 8 atlg á Qattarvlta, haagvlflri, rigning og 3 stlg á Akurayri, norfl- auatan 1, sdld og 1 atlg á Raufarhflfn,. suflaustan 1, þokubakkar og 2 sdg á Dslatanga, auflaustan 1, rignlng og 7 sdg á Hflfn og suflaustan 8, rignlng og 6 sdg á Stórhttfða. I Þórshflfn var þoka og 7 sdg, skýj- afl og 13 sdg f Kaupmannahttfn, látt- skýjafl og 13 sdg I Oalfl, láttskýjafl ogBadgf Stokkhúlml, láttakýjafl og 8 adg I London, Mttakýjað og 14 atíg ( Hamborg, skýjafl og 11 sdg I Paris, Mttakýjafl og 8 adg I Madrld, Mtt- skýjafl og 10 sdg I Ussabon og Mtt- skýjaðog 11 adg (Naw York. Andlát Minningarspiöíd Minningarkort kvenfélagsins Seltjarnar vegna kirkjubyggingarsjóðs eru seld á bæjarskrifsiof- unum á Seltjarnamesi og hjá Láru I sima 20423. Guðriður Jónsdóttir, sem lézt 3. mai, fæddist 17. september 1902 á Eyrar- bakka. Foreldrar hennar voru Jón Ás- björnsson og Guðrún Elíasdóttir. Árið 1924 giftist Guðriður Halldóri Jónssyni og stofnuðu þau til búskapar að Kana- stöðum í Áustur-Landeyjum. Árið 1929-30 bjuggu þau að Hellu en fluttust síðan til Reykjavíkur þar sem þau bjuggu síðan. Guðríður og Halldór áttu 5 börn. Simon Bárðarson, Sóleyjargötu 5 Vest- mannaeyjum, lézt á Sjúkrahúsi Vest- mannaeyja 10. mai. Sigurvin Eyjólfsson fyrrverandi verk- stjóri, Meðalholti 12 Reykjavík, lézt í Borgarspítalanum 10. maí. Rebekka Bjarnadóttir lézt að Hrafnistu 11. maí. Birgir Kristján Hauksson, Skólagerði 20 Kópavogi, lézt á Borgarspítalanum 9. maí. Útförin fer fram frá Kópavogs- kirkju mánudaginn 18. maí kl. 13.30. Minningarathöfn um Ólaf Guðmunds- son fv. símamann frá Seyðisfirði, Hvassaleiti 28, fer fram frá Fossvogs- kirkju fimmtudaginn 14. mai kl. 10.30. Jarðsett verður frá Seyðisfjarðarkirkju föstudaginn 15. mai kl. 14. Andrés Björnsson verður jarðsettur frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 14. maí kl. 16.30. Ólafur Halldór Þorbjörnsson, Stangar- holti 20, sem lézt 6. maí, verður jarð- sunginn frá Fossvogskirkju föstu- daginn 15. maí kl. 15. Vigfúsina Jónsdóttir frá Stóra-Múla, sem lézt laugardaginn 9. maí, verður jarðsett frá kirkju Óháða safnaðarins við Háteigsveg föstudaginn 15. maí kl. 15. Sölvi Jóhann Ólafsson, Hlíðarvegi 39 Kópavogi, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 14. maí kl. 13.30. AA-samtökin 1 dag, miflvikudag, verða fundir á vegum AA-sam- takanna sem hér segir: Tjarnargata 5 (s. 91-12010) kl. 12(opinn), 14,18og21. Crensás, Safnaflarheim- ili kl. 21, HaUgrimskirkja kl. 21. Akranes (93-2540) Suðurgata 102 kl. 21. Borgames, Skúiagata 13, kl. 21. Fáskrúðsfjflrflur, FélagsheirtUifl Skrúflur, kl. 20.30. Hflfn, Hornafírfli, Midtún 21, kl. 21. Keflavik (92-1800), Klapparsi 7 Enska, kl. 21.00. Á morgun, fímmtudag, verða fundir i hádeginu scm hér segir: Tjarnargata 5, grœna húsifl, kl. 14. Fyrirtestrar Háskólafyrirlestrar Brczki rithöfundurinn og ljóöskáldiö Kevin Cross- ley-Holland, sem staddur er hér á iandi um þcssar mundir, mun flytja tvo opinbcra fyrirlestra í boöi heimspekideildar Háskóla íslands. Kevin Crossley-Holland cr fæddur 1941. Hann hefur unniö hjá brezka útvarpinu BBC og bókaút- gáfunum Gollancz og Macmillan i Lundúnum. Hann hlaut menntun sina i Oxford og er sérgrein hans fomenskar bókmenntir. Hann hefur þýtt fom- ensku kvæöin The Battle of Maldon og Beowulf og auk þess Storm og fleiri fomenskar gátur. Sem bamabókahöfundur er hann ma. þekktur fyrir bók ina The Green ChBdren, sem fékk Arts Coundl verðlaunin sem bezta bamabókin 1966—1968. Einnig hafa komiö út eftir hann tvær Ijóðabækur, The Dream og The Rain Glver, hann var og ritstjóri tveggja bóka sem Faber gaf út nýlega um norræna goöafræöi og þjóðsögur. Fyrri fyrirlesturinn verður miðvikudaginn 13. maí kl. 7:15 i stofu 101 i Lögbergi og nefnist ..Old Eng- lish Riddles” og fjallar sérstaklega um Exeter gát- urnar með nokkrum samanburöi viö islenzkar gátur. Siðari fyrirlesturinn verður laugardaginn 16. mai kl. 15:00 i kennsluhúsnæöi ensku aö Aragötu 14 og nefnist „British Poetry from 1945—1981”. Aö fyrir- lestrinum loknum mun skáldiö lesa úr kvæðum sínum. Báöir fyrirlestramir verða fluttir á ensku. Tónleikar Tónlistarskóli Rangœinga Bamakór Tónlistarskóla Rangæinga er aö ljúka vetrarstarfi sínu um þessar mundir. Fyrstu tónleikar kórsins veröa fimmtudagskvöldiö 14. mai kl. 21.30 i Hvoli. Daginn eftir leggur kórinn svo af staö i söng- för og er henni fyrst heitið til Hverageröis. Þar mun kórinn syngja i kirkjunni föstudagskvöld 15. mai kl. 20.30. Laugardaginn 16. maí heldur kórinn tónleika í Hallgrimskirkju i Reykjavik og hefjast þeir kl. 14. Að þeim loknum liggur leiðin til Njarðvíkur þar sem kórinn mun halda tónleika sem eru liöur í „Menn- ingardögum” Njarðvíkurkirkju. Kórinn syngur i Njarðvíkurkirkju kl. 17. Á sunnudeginum mun kórinn syngja i Grindavikurkirkju kl. 11 og kl. 16 sama dag verður sungið í DAS í Hafnarfirði. Fjár til fararinnar hefur kórinn aflaö meö likum hætti og undanfarin ár, haldið hlutaveltu, selt jóla- kort, haldið grimuball og kórskemmtun. Einnig hafa kórforeldrar staðið fyrir kökubasar til styrktar kórnum. 1 Bamakór Tónlistarskóla Rangæinga er 31 bam, 14 drengir og 17 stúlkur. Börnin eru á aldr- inum 8—13 ára. Efnisskrá tónleikanna er mjög fjölbreytt og spannar allt frá þjóðlögum til nútimatónlistar. Barnakór Tónlistarskóla Rangæinga mun taka þátt i 3ja landsmóti ísl. bamakóra sem halda á i Há- skólabíói sunnudaginn 31. maí. Einsöngvarar með barnakórnum eru Oddgeir Sigurðsson og Sölvi R. Rafnsson. Stjórnandi er Sigriður Sigurðardóttir. Sýningar Sýning á graf Rcmyndum f anddyri Norrœna hússins Sett hefur verið upp sýning á grafíkmyndum eftir norska listamanninn Anne-Lise Knoff. Hér er um að ræða myndskreytingar sem hún hefur gert við Sólarljóð, íslenzka helgikvæðið frá 13. öld. Ivar Orgland þýddi kvæðið á norsku og bókin var gefin út af Dreyers forlag 1980. Alls eru myndirnar 16 talsins. Einnig sýnir hún myndir sem hún hefur gert við Lilju Eysteins Ásgrímssonar og myndir gerðar við sögu eftir norska rithöfundinn Veru Henriksen, sem íefnist Dronningasagen. Alls eru á sýningunni 34 grafikmyndir, allar unnar með þurrnál. Anne-Lise Knoff er kennari að mennt en sneri sér aö grafík- og málaralist. Hún hefur haldiö margar sýningar og tekiö þátt i samsýningum, bæði á Norðurlöndum og viöa i Evrópu. Mörg söfn hafa keypt myndir hennar og má m.a. nefna norska lista- safnið (Norske nasjonalgalleri) og Riksgalleri. Sýning Anne-Lise Knoff var opnuð 11. mai og stendur til 24. mai og er opin daglega á opnunartima hússins kl. 9—19 alla daga nema sunnudaga en þá er sýningin opin frá kl. 12—19. Aðgangur er ókeypis. ar I GÆRKVÖLDI Himnaríki til sölu ísjónvarpi Slcyldi nokkur í alvöru trúa, að aukin lífshamingja fylgi Lee Cooper gallabuxum, Vilko súpum og Natusan smyrslum? En svo virðist sem framleiðendur sjónvarpsauglýs- inga fyrir þessar vörur og aðrar slíkar vilji láta okkur neytendur trúa þessu. Eitthvert ömurlegasta efni sjón- varpsins eru auglýsingarnar. Mjög er sjaldgæft, að í þeim sé reynt að koma á framfæri upplýsingum, sem kaup- endum geta komið að gagni. Miklu fremur er reynt að hafa þá að fíflum. í gallabuxum og súpum er ekki verið að selja vörur, heldur kátinu. í snyrtivörum og tannkremi er ekki heldur verið að selja vörur, heldur rómantik og ást. 1 pakkaferðum tíl sólarlanda er ekld verið að selja þjón- ustu, heldur sex. Ég veit ekki betur en að mikill meirihluti sjónvarpsauglýsinga sé ólöglegur samkvæmt gildandi reglum um verzlunarhætti, Þetta kom ekki vel fram í sjónvarpsumræðu gær- kvöldsins um neytendartíál, þótt drepið væri á ýmislegt markvert í þessum þunga og lítt aðgengilega þættí. Auglýsingar sjónvarpsins eru gerólíkar ýmsum öðrum auglýsing- um, sem eru til fyrirmyndar, til dæmis skókaupmanna, er leggja áherzlu á að segja frá verði allra hluta, sem þeir hafa á boðstólum. Þessar síðastnefndu auglýsingar segja neytendum, hvernig varan litur út, í hvaða litum og stærðum hún fæst og hvað hún kostar. Þar er verið að kynna vöruna sjálfa á heiðarlegan hátt, en ekki verið að rugla neytendur í ríminu, eins og hin almenna regla er í sjónvarpsauglýsingum. Sjálfur hef ég fyrir reglu að forðast þær vörur og þá þjónustu, sem aug- lýst er út frá því sjónarmiði, að kaup- endur séu fávitar. Með því að gera slíkt hið sama gætu neytendur smám saman losnað við hinar hvimleiðu auglýsingar, sem tröllríða sjónvarp- inu; auglýsingar, sem spila á félags- lega vanmetakennd áhorfenda. Jónas Kristjánsson. Tilkynníngar Hár og ffegurð Fyrsta fagblaflifl um hártizkuheiminn Nýtt tímarit, Hár og fegurð, hóf nýlega göngu sína og er það fyrsta fagblaðiö um hár og snyrtingu sem hér hefur verið gefið út. Tilgangur meö útgáfu blaösins er að efla sam- skipti fagfólks i hársnyrtiiön og gefa þvi kost á að koma þjónustu sinni og hugmyndum á framfæri, bæði innan síns hóps og við almenning. í þessu fyrsta tölublaði eru kynningar frá ýmsum þekktum sýningum; eins og hinni heimsfrægu al- þjóðlegu sýningu Hairdressing Congress þar sem meðal annars kemur fram frægasta og fremsta hár- snyrti- og sýningafólk i heiminum í dag. Sýningin fór fram í Royal Albert Hall-óperu og sýningarhöll- inni glæsilegu í London. Ýmis fyrirtæki sýna nýjustu aðferðir við með- Sölumaður deyr í 30. skipti, Fáar sýningar eftir Sölumaður deyr eftir Arthur Miller verður sýnt i 30. skiptið i Þjóðleikhúsinu nk. föstudag, 15. maí, og skal fólki jafnframt bent á að nú eru aðeins fáar sýn- ingar eftir á þessu vinsæla leikriti þvi leikárið fer að styttast og munu leiksýningar ennfremur liggja niðri um hvítasunnuna t.d. Verkið fjallar um farandsalann'Willy Loman sem tekinn er að reskjast en á erfitt með að sætta sig viö aö lífi hans ljúki án þess að draumar hans hafi rætzt. — Gunnar Eyjólfsson leikur sölumanninn Willy Loman, Margrét Guðmundsdóttir leikur Lindu konu hans, Biff og Happy syni þeirra leika Hákon Waage og Andri örn Clausen, Róbert Amfinnsson leikur Ben frænda sem i augum Willys er ímynd þess sem allt getur. Ámi Tryggvason leikur Charley ná- búa Willys sem vegnar vel i lifinu og Randver Þor- láksson leikur Bernhard son hans. Bryndis Péturs- dóttir leikur glaðværa konu sem Willy heimsækir gjarnan á söluferðum sinum. Dr. Jónas Kristjánsson þýddi leikinn, Þórhallur Sigurðsson er leikstjóri, Sigurjón Jóhannsson gerði leikmyndina, Dóra Einarsdóttir gerði búningana, Áskell Másson samdi tónlistina og Kristinn Daniels- son sá um lýsinguna. höndlun hárs, bæöi litun og permanent auk nýjunga i klippingu. Fyrirhugað er einnig að fá Islenzkt hár- snyrtifólk til að sýna hugmyndir sinar i blaðinu. Auk þess er ætlunin að uppfræða almenning um meðferð hárs og segja frá þvi nýjasta sem gerist i tízkuheimin- um. Einnig er ætlunin að koma hugmyndum frá is- lenzku hársnyrtifólki á framfæri i erlend hártizku- blöð, sem Hár & fegurð hefur umboð fyrir. Útgendur þessa nýja blaös eru Pétur G. Melsteð og Torfi Geirmundsson. Efni i næsta blað streymir inn erlendis frá, frá heimsþekktum aðilum. Stúdentaráð styður nýlistamenn Á fundi Stúdentaráðs Háskóla íslands 6. maí sl. var eftirfarandi ályktun samþykkt samhljóða: „Stúdentaráð Háskóla lslands harmar þær skerðingar á valfrelsi til náms sem yfirvofandi eru hjá nemendum i Myndlista- og handiöaskóla íslands og fylgt gætu ákvörðun skólastjóra MHÍ um lokun nýlistadeildar. SHÍ lýsir furðu sinni á þessari ein- hliða ákvörðun skólastjóra MHÍ. Slíkar einhliða ákvarðanir skólastjóra án samráðs við nemendur eru ekki i samræmi við hugmyndir ráðsliða um stjórnun slíkra stofnana. SHÍ litur á ákvörðunina sem tilræði við frjálsa listsköpun og fordæmir því þessa einhliða og skorar á skólastjóra að breyta ákvörðun sinni. Ef hann gerir það ekki, þá skorar SHÍ á menntamála- ráðherra að staðfesta ekki ákvörðun skólastjórans. ” Hótel Loftleiðir 15 áre Hinn 1. mai sl. voru liðin 15 ár frá þvi Hótel Loft- leiðir var opnað. Bygging og opnun hótelsins var merkur áfangi í ferðamálasögu íslands. Með til- komu þess jókst feröamannastraumur til íslands verulega og öll aðstaða til gestamóttöku batnaði. Sérstaklega má þó segja að aðstaða til ráðstefnu- halds hér á landi hafi stórlega breytzt og batnað viö stækkun hótelsins 1972. Þá var m.a. byggður ráð- stefnusalur þar sem möguleikar voru til túlkunar á ræðum yfir á sex tungumál. Þessi ráðstefnusalur er enn sá eini sinnar tegundar hér á landi. Fyrsti hótelstjóri var Þorvaldur Guðmundsson og réð hann miklu um búnað og gerð hótelsins. Aðrir hótelstjórar hafa veriö Stefán Hirst, Erling Aspe- lund og núverandi hótelstjóri er Emil Guðmunds- son. Á Hótel Loftleiðum vinna 108 manns. í öndverðu gistu aðallega útlendingar á Hótel Loftleiöum og þá oft í sambandi við viðdvalartilboð á leiðinni yfir Atlantshafið. Á síöari árum hefur Orkuþing '81 Orkuþing verður haldiö að Hótel Loftleiðum 13., 14. og 15. mai 1981: Dagskrárefni verður allir helztu þættir íslenzkra orkumála. Auk erinda sem beðið var um frá ýmsum aðilum sem kunnugir eru islenzkum orkumálum verða einnig erindi sem send hafa verið til undirbún- ingsnefndar þingsins. öllum er heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir. Þátttökugjald er kr. 300.-. Að þinginu standa eftirtaldir aðilar: Iðnaðarráðu- neytið, Orkustofnun, olíufélögin, Rannsóknaráð rlkisins, Samband islenzkra hitaveitna, Samband is- lenzkra rafveitna, Verkfræðingafélag íslands. Ferðafólag íslands Miövikudaginn 13. mai kynnir Feröafélag íslands í máli og myndum ferðir félagsins .sumarið 1981 að Hótel Heklu, Rauðarárstig 18, kl. 20.30 stundvís- lega. Allir velkomnir. Veitingar i hléi. Útivist Miövikudagur 13. maí kl. 20: Geldinganes, létt kvöldganga, verð kr. 40. Farið verður frá BSÍ, vestanverðu. Tindafjallajökull um helgina. Farseðlar fást á skrif- stofu Útivistar Lækjargötu 6a, simi 14606. þetta breytzt og nú gista íslendingar þar meðan a Reykjavikurdvöl stendur ekki siöur en útlendir ferðamenn. í tilefni af 15 ára afmælinu bauð hótelið öllu starfsfólkinu til veglegrar kaffidrykkju 1. mai. Emil Guðmundsson hótelstjóri, sem starfað hefur við hótelið frá opnun, sagði frá ýmsu skemmtilegu sem á dagana hafði drifið og hópar starfsfólks færðu hótelinu blóm. í kaffisamsætinu voru tiu manns sem störfuðu hjá Hótel Loftleiðum við opnun og starfa þar enn. Þau eru talin frá vinstri: Bjami Guðjónsson barþjónn, Emil Guðmundsson hótelstjóri, Gylfi Ingólfsson, gestamóttöku, Stefania Runólfsdóttir, veitingabúð, Sigurður Brynjólfsson þjónn, Hildur Friðjónsdóttir barþjónn, Jenny Clausen Ward her- bergisþema, Hilmar Jónsson veitingastjóri, Soffía Andrfedóttir, forstöðukona, þvottahúsi, og Erla Bjamadóttir yfirherbergisþema. Á myndina vantar Reinholde Kristjónsson herbergisþernu, Bertha Johansen gjaldkera og Rúnar Finnbogason, gesta- móttöku. GENGIÐ i*L - - í jsj m i d GENGISSKRÁNING Ferðamanna- Nr. 88 — 12. maí 1981 gjaldeyrir Einingkl. 12.00 Kaup Sala Sala 1 Bandarfkjadollar 6,826 6,844 7JB2B 1 Steriingspund 14,29« 14,333 15,766 1 Kanadadollar 5,679 6,694 8,283 1 Dönsk króna 0,8491 0,9516 1,0468 1 Norsk króna U070 1,2110 1,3321 1 Sœnsk króna 1,3966 1,4003 1,5403 1 Hnnsktmark 1,5871 1,6913 1,7504 1 Franskur franki 1,2391 U424 1,3666 1 Belg.franki 0,1825 0,1829 0,2012 1 Svissn. franki 3,3084 3,3171 3,6488 1 Hollonzk florljia 2,8834 2,6905 2,9696 1 V.-þýzktmark 2,9853 3,9932 3,2825 1 ítölsk Kra 0,00699 0,00601 0j)0661 1 Austurr. Sch. 0,4225 0,4236 0,4660 1 Portug. Escudo 0,1125 0,1128 0,1241 1 Spánskur peseti 0,0747 0,0749 0,0824 1 Japansktyen 0,03122 0,03130 0,03443 1 (rsktDund 10,910 10,938 12,087 SDR (sérstök dráttarróttindi) 8/1 8,0496 8,0708 • - Stmsvari vegna gengisskráningar 22190.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.