Dagblaðið - 25.06.1981, Síða 4

Dagblaðið - 25.06.1981, Síða 4
4 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1981. DB á ne ytendamarkaði Hversu góöar eru snertí/insumar? Snertilinsur sem settar eru beint inn á augað hafa á seinni árum leyst gleraugu æ meira af hólmi. Þykir mörgum, þá sérstaklega konum, gler- augu lítt til prýði og auk þess óþægi- leg. Linsan sést hins vegar ekkert eftir að á augað er komið og á ekki að meiða augað neitt eða valda öðrum óþægindum. Mönnum gengur þó alltaf misjafnlega að venja sig við þær og sumir geta það aldrei. Linsurnar skiptast f höfuðdráttum i tvo flokka, harðar linsur og mjúkar. Báðar tegundirnar eiga að vera nýti- legar við hvers kyns sjóndepru. En mjúku linsurnar eru i reynd ekki eins fjölhæfar og þær hörðu. Það sem Iinsan gerir er að breyta halla yztu himnu augans, hornhimn- unni. Linsan ýmist víkkar eða þrengir sjónsviðið eftir þvi sem þörf er á. Fyrir þá, sem vinna í umhverfi þar sem mikið er af ryki og öðrum óhreinindum, er ekki æskilegt að vera með linsur. Gleraugu verja ein- mitt augun gegn slikum óhreinindum á meðan linsur bætast ofan á erting- una sem af þeim getur stafað. Um linsur verður að hugsa vel og gæta fyllsta hreinlætis. Þvi ætti ekki að láta ung böm fá linsur nema þau þurfi þeirra sérstaklega með vegna veikinda. Harðar eða mjúkar? Mjúkar linsur innihalda meira vatn en þær hörðu. Þær líkjast hlaupi og mega alls ekki þorna annars molna þær sé komið við þær. Hörðu lins- urnar innihalda minna af vatni og eru minni. Mjúku linsumar henta illa þeim sem hafa mikla sjónskekkju sem kölluð er, það er þegar halli horn- himnunnar er ekki allur jafnmikill. Til eru sérstakar linsur fyrir þetta fólk en þær eru þykkari en þessar venjulegu og töluvert mikið dýrari. Hörðu linsurnar eru hins vegar ágætar fyrir fólk með sjónskekkju. Það er auðveldara að venjast mjúku linsunum. Það tekur svona 1—3 vikur. Lengri tíma tekur að venjast hörðu linsunum og þeir em fleiri sem aldrei geta vanizt þeim. Þess vegna hafa mjúku linsurnar verið mikið i tizku hin siðari ár. En hörðu linsurnar hafa batnað mikið á síðustu tímum og eru betri viður- eignar en þær voru. Harðar linsur verður að nota stöðugt ef nota á þær á annaö borð. Það dugar ekki aö nota gleraugu á daginn og setja svo á sig linsur á kvöldin áður en farið er á íþróttaæf- ingu eða dansleik. Þá verður stöðugur pirringur í auganu. Mjúku Iinsurnar er hægt aðnota af og til eftir vild. En þær mega aldrei þorna á milii og ef þær eru hviidar lengi verður að skipta um þann vökva sem þær liggjai. Það er meiri hætta á því að týna hörðu linsunum. Þær eru minni og detta frekar úr auganu. Kosturinn við þær er hins vegar bæði sá að þær eru ódýrari og þær þurfa minni umhirðu. Þær endast einnig lengur, 10—15 ár á móti 3—4 árum. Að sofa með linsurnar Tilraunir úti í heimi snúast núna fyrst og fremst um linsur sem sofa má með. Það er talin fylgja því of mikil vinna að taka þær af á kvöldin þó varla sé hún meiri en að bursta tenn- urnar. Þessar nýju linsur eru aldeilis rándýrar og efast margir um að þær verði nokkurn tima almennilega til friðs. Þegar linsur eru notaðar þurfa augun að venjast minna súrefni en ella. Sé sofið með linsurnar fá augun ekki að „anda” eðliiega, ekki einu sinni á nóttinni. Það þykir mönnum ekki vænlegt til langframa. Erlendis frá hefur heyrzt um að sjúkdómar fylgi i kjölfar linsanna. Er þá einkum um að ræða hvers konar slímhimnusjúkdóma sem stafa fyrst og fremst af því að fólk hirðir ekki linsurnar nógu vel, hefur þær i of lengi og ber hvers kyns sýkla upp i augun með linsunum. Ekki er okkur hins vegar kunnugt um slika sjúk- dóma hér á landi. En þeir, sem nota linsur, ættu að hvfla sig á þeim þegar þeir finna fyrir óþægindum í augum og ef þeir verða rauðeygðir. ítfzku Linsur eru, eins og fyrr sagði, nokkuð i tizku. Sérlega eru það konur sem fyrir þeim falla og virðast þær leggja meira á sig en karlar til að venjast þeim. Alltaf eru þeir þó til sem gefast upp. Fólk er misjafniega viðkvæmt í augunum, sumir þola nánast að segja hvað sem er á meðan ekkert má við aðra koma. - DS • Viö þykjumst mcstir í flestu, Islendingar. En þegar varðar þjónustu viö eldri borgara eru margir okkur fremri. Þessi mynd er til dæmis tekin vestur í Bandarikjunum en þar ganga sérstakir strætisvagnar ætlaöir gömlu fólki scm er bundið viö hjólastól. Ekki afsláttur fyrir gamla fóUdð í rútunum —verðurrætt „Mér finnst það furðulegt að það tíðkast i öllum aimenningsfarartækj- um á Norðurlöndum og öllum nema sérleyfisbilum hér að gamla fólkið' fær afslátt af fargjaldinu. Af hverju, bjóða sérleyfisbliarnir ekki sömu kjör og strætisvagnar, flugvélar og Akraborgin?” sagði Anna Guð- mundsdóttir ieikkona í samtali viö Neytendasiðuna. Anna taldi að þaöj ætti að setja sem skilyrði fyrir þvi að fá sérleyfi að veita gömlu fólki af-1 slátt. Öiafur Steinar Valdimarsson í samgönguráðuneyti var spurður að því hvort fram á slikt hefði verið farið við bilstjóra. „Nei, þetta hefur ekki einu sinni verið rætt. Ríkið hefur aldrei átt frumkvæðið að þvl aö gamla fólkið fengi afslátt á ferðum með samgöngutækjum,” sagði hann. Gunnar Sveinsson framkvæmda- stjóri Bifreiðastöðvar ísiands var spurður að þvi hvort bílstjórar hefðu, eitthvað rætt þetta mál sín i milli. „Beiðni um þetta frá féiagsskap úti I bæ var að berast okkur. En hún hefur ekki ennþá verið tekin til um- fjöllunar. En við munum á næstunni ræða hana og það hvernig við getum samræmt okkar taxta öðrum sam- göngutækjum. Hér er ekki um pen- ingana að ræöa heidur hitt að hafa einhverja heildarstefnu,” sagði Gunnar. Vonandi kemst þetta mál í höfn áður en aðalferöalögin út um land hefjast. -DS Sími Fjöldi heimilisfólks. Kostnaður í maímánuði 1981 Matur og hreinlætisvörur kr. Annaö kr. Alls kr. m nit iA Mjúkar linsur eru mikiö f tizku um þessar mundir. DB-mynd Gunnar Örn. HVAÐ KOSTA LINSURNAR? Hjá Hilmari Herbertssyni, sem er sérmenntaður i linsufræðum og selur fólki linsur, fengust eftirfarandi upp- lýsingar um verð: Mjúkar linsur 1760 kr. (1280 í annað sinn). Mjúkar linsur fyrir sjónskekkju 2400 kr. (2800). Harðar linsur 1280 kr. (1360). Liklegt verð á linsum sem sofa má með 6000 kr. Munurinn á veröinu á mjúku lins- unum, sem upp er gefið, er sá aö i fyrsta sinn þarf að máta iinsurnar ná- kvæmiega. Þaö er gert i 4 skipti og kostar það 480 krónur. Munurinn á verðinu á iinsum fyrir sjónskekkju felst í því að þegar lægra verðið er greitt tekur viðskiptavinurinn áhættuna af þvi að geta ekki notað linsurnar. Þegar hærra verðið er greitt tekur hins vegar Hibnar áhættuna af honum í mánuð. Hærra verðið á hörðu linsunum er greitt fyrir litaðar linsur, það lægra fyrir glærar. Hilmar býður i þeim tilfellum, sem keyptar eru venjulegar mjúkar og haröar linsur, upp á mánaðarábyrgð á því hvort fólk þolir þær. Það greiðir tryggingu og þoli það ekki linsumar fær það alla upphæðina nema trygginguna endurgreidda. Þriggja mánaða ábyrgð er gagnvart göllum í linsum. Kostnaður við hreinsun á mjúku iinsunum er á milli 70 og 80 krónur á mánuði en mun minni á hörðu lins- unum. Mörgum kann að þykja þetta nokkuð hátt verð. En vélarnar, sem linsurnar eru búnar til í, eru rándýrar og þarfnast oft endurnýjunar. Af linsunum er greiddur 15% tollur, vörugjald og söluskattur þannig að verð á þeim hækkar þó nokkuð á leiðinni hingað. Vökvarnir, sem notaðir eru til hreinsunar, eru einnig innfluttir og er framleiðsla þeirra erfitt verk. Til eru margar tegundir hreinsivökva og er ekki sama hverjar eru notaðar. Um það er bezt að fá upplýsingar hjá þeim sem selja lins- urnar. - DS * Nafn áskrifanda 7 til samanburðar á heimiliskostnaði! Hvað kostar heimilishaldið? Vinsamlega sendið okkur þcnnan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak- |. andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar , fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Þar aö auki eigið þér von um að fá nvtsamt heimilis- tæki. * I -------------------------------------| Heimili

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.