Dagblaðið - 25.06.1981, Blaðsíða 28
—meðnýja
Kjarasamníngmn
við ríkisvaldið
Næstu skref í stórvirkjunum:
Stífla víð Sultartanga
verður boöin út ítíaust
f ramkvæmdir hefjast strax eða í vor
stækkun Hrauneyjafossvirkjunar
Kvíslarveitur næsta verkef ni með
Stíflugerð í Sultartanga, þar sem
saman koma Þjórsá og Tungnaá, er
næsta skref í stórvirkjun raforku á
Íslandi. Stíflugerðin verður boðin út í
haust og bygging stíflunnar hafin
næsta vor. Hún er forsenda þess að
ákvarða næstu virkjun.
Með aukinni miðlun og ísskolun
með stíflugerðinni einni, eykst orku-
framleiðslan um 140 gígavattstundir,
skv. upplýsingum DB.
Fyrsta vélasamstæðan í Hraun-
eyjafossvirkjun verður tekin í notkun
í ár og önnur á næsta ári. Með til--
komu þeirra eykst vinnslugeta vatns-
orkuvera landsins um 800 gígavatt-
stundir. Það er um 24% aukning frá
núverandi vinnslugetu.
Við þetta bætist svo aukningin af
Sultartangastíflunni sem siðar kemur
í gagnið. Verður þá heildarvinnslu-
getan orðin 3.940 gígavattstundir.
Til þess að tryggja vatnsorku í
Hrauneyjafossvirkjun, miðað við
þriðju og ef til vill fjórðu vélasam-
stæðuna, sem þar er gert ráð fyrir að
unnt sé að setja upp með viðbótar-
húsbyggingu stöðvarinnar, eru
Kvíslarveitur næsta viðfangsefni.
Þar er um að ræða Þjórsá, Grjóta-
kvísl, Hreysiskvísl, Eyvindarkvisl og
fleiri kvíslir ofan Þjórsárvera. Þeim
yrði veitt í Þórisvatn til aukningar á
miðlun þar. Úr Þórisvatni fengist
miðlun í Sigöldulón eða Krókslón í
Tunganárkróki.
Umræða kann að verða um ná-
lægð sumra þeirra staða, sem getið
hefur verið, við eldvirk svæði.
Hugsanleg Sultartangavirkjun verður
ef til vill rædd samhliða athugunum á
virkjunarmöguleikum annars staðar
á landinu. Ofangreindar fram-
kvæmdir eru þær, sem næstar eru á
dagskrá samkvæmt heimildum DB.
-BS
Vit;dís gróðurseth ríða tré íjiir smni um Dalinu on Strandir. Þarna er Karl E. Loftsson, oddriti Hólmarlkur, að stingafyrir birkihríslu scm Vigdis gróðursetti i hliðinni
fyrir neðan Hólmarikurkirkju. DB-mynd: Kristján Jöhannsson, Hólmarík.
Vigdísheim til Bessastada í gærkvöldi
Forseti íslands, frú Vigdís Finnboga- Dalasýslu og Strandasýslu. Heimsókn- forsetann á Holtavörðuheiði í gærdag. Starfsmaður á forsetasetrinu sagði í
dóttir, kom til Bessastaða um kl. 21 1 inni lauk þegar Hjördís Hákonardóttir, Ferðalag forsetans hófst síðastliðinn morgun að Vigdís væri mjög ánægð
gærkvöldi eftir opinbera heimsókn í sýslumaður Strandamanna, kvaddi laugardag og stóð því yfir í fimm daga. eftir vel heppnaða ferð. -KMU.
116 með, 40 á móti samkomulaginu á læknaf undinum:
LÆKNARNIR „EKKI
YFIR SIG ÁNÆGÐIR”
„Úrslit atkvæðagreiðslunnar má
túlka sem svo að læknahópurinn í
heild sé ekki yfir sig ánægður með
samningana,” sagði PáU Þórðarson
framkvæmdastjóri Læknafélags
íslands í morgun um nýjan kjara-
samning lækna og ríkisvaldsins.
Hann var samþykktur á félagsfundi
lækna í gærkvöldi með 116 at-
kvæðum gegn 40. 5 skUuðu auðum
eða ógUdum atkvæðum.
Páll sagði að margir andstæðingar
samkomulagsins væru þeirrar skoð-
unar að átt hefði að semja um grunn-
kaupshækkanir á kaupi lækna. Á
slíkt er hins vegar ekki minnzt í samn-
ingnum en samið um margvísleg önn-
ur kjaraatriði. Til dæmis fá nú
læknar á bakvöktum, sem sinna út-
kaUsskyldu, greiddan bílastyrk sem
nemur 8 þús. kilómetrum á ári. Það
taldi PáU Þórðarson eitt af mikilvæg-
ustu atriðum samningsins nýja.
Þorsteinn Geirsson í fjármálaráðu-
neytinu vísaði tU fyrri ummæla
Ragnars Arnalds fjármálaráðherra
þess efnis, að samningarnir væru
„viðunandi og í samræmi við upp-
haflegt samkomulag um að ekki yrði
um grunnkaupshækkanir að ræða.”
Þorsteinn sagðist ekki hafa á reiðum
höndum tölur um hvað nýi samning-
urinn kostaði ríkið í beinhörðum
peningum.
Samkomulagið felur í sér að fram-
lag ríkisins 1 lífeyrissjóð verður 5 % af
brúttólaunum en var 6% af föstum
launum. Vaktaálag hækkar, álag
vegna bakvaktar um nætur og helgar
hækkar úr 33% í 45%. Fallizt var á
að greiða læknum hálfan áttunda
tíma á mánuði til undirbúnings
fræðslufunda. Þá er læknum heimilt
að fara í námsferð i hálfan mánuð á
ári.
-ARH
Félagsfund lækna í gærkvöldi sóttu 160—170 manns. Þar voru samningar sam-
þykktir med miklum atkvæöamun. DB-mynd Gunnar Örn.
frjálst, nháð daghlað
FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ1981.
„Hækkun í
hafi” skoðuð
íiðnaðairáðu-
neytinu
Þrír menn frá brezka endur-
skoðunarfyrirtækinu Coopers &
Lybrand hafa dvalizt hér í Reykjavík
undanfama 5 daga. Hafa þeir unnið að
skýrslu sinni um viðskipti íslenzka
álfélagsins og Alusuisse og farið í
saumana á henni með starfshópi á
vegum iðnaðarráðuneytisins.
Er hún sögð um margt athyglisverð
en um efni hennar er að svo komnu
máli ekki unnt að gera neitt uppskátt.
Brezku endurskoðendurnir fara utan í
dag.
Fullbúin skýrsla fyrirtækisins er
væntanleg um miðjan júlímánuð næst-
komandi.
-BS.
„Varað við gylliboðum":
Ekki nýja
Húseigna-
þjónustan
Vegna fréttar, sem birtist í Dag-
blaðinu í gær, þar sem lögfræðingur
Húseigendafélagsins varaði við „gylli-
boðum” óprúttins húsaviðgerða-
manns, skal tekið fram að Halldór
Kristjánsson, sem rekið hefur húsavið-
gerðaþjónustu undanfarna tvo mánuði
undir nafninu Húseignaþjónustan, og
auglýst undir því nafni í Dagblaðinu, á
engan hlut að þeim málum sem rakin
voru í fréttinni. Eins og skýrt var tekið
fram í frétt blaðsins í gær liggja fyrir
kærur á mann nokkurn sem í október
sl. rak húsaviðgerðaþjónustu undir því
sama nafni. Um þann mann snerist frá-
sögn blaðsins.
-ÓV
Áskrifendur
DB athugið
Einn ykkar er svo Ijónheppinn
aö fá aö svara spurningununj í
leiknum „DB-vinningur i viku
hvcrri”. Nú auglýsum viö eftir hon-
um á smáauglýsingasiðum
blaðsins i dag.
Vi'nningur í þessari riku er 10
gíra DBS eða Raleigh reióhjól fró
Fólkanum, Suðurlandsbraut 8 i
Reykjarík.
Fylgizt rel með, óskrijendur,
fyrir nœstu helgi rerður einn ykkar
glœsilegu reiðhjóli ríkari.
hressir oetur.