Dagblaðið - 23.07.1981, Qupperneq 11
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1981. ,,
^Kjötskortur fyrir dyrum?... — —......... ■" -v
Smærrí verzlanir eiga Iftið af
kjöti—þær stærrí nóg
„Nei, við eigum nóg til af dilka-
kjöti. Við fengum tæp 700 kg fyrir
stuttu,” sagði viðmælandi okkar í
matvöruverzlun KRON að Noröur-
felli í gær. Sömu sögu var að segja
um Hagkaup, þar var nóg til af dilka-
kjöti. Minni verzlanir meö lltið eða
ekkert geymslurými kvörtuðu hins
vegar sáran yfir kjötskorti og skipti
litlu máli hvort eigendur þeirra væru
vanir að verzla við Samband félag Suðurlands. Ekkert kjöt var að smáverzlana og fara svör þeirra hér á
íslenzkra samvinnufélaga eða Slátur- fá. DB ræddi við nokkra eigendur eftir.
HVERGIHÆGT AÐ FÁ KJÖT
— segir Benedikt Kristþórsson eigandi Grensáskjörs
,,Það er hvergi hægt að fá kjöt tvoeðaþrjá. Sláturfélagsmenn að ef ég fái þessa
núna,” sagði Benedikt Kristþórsson, Ég hef einnig reynt fyrir mér á fimm skrokka. þá fái ég heldur ekki
eigandi Grensáskjörs, í samtali við öðrum stöðum. í Búrfelli er aldrei til meira út mánuðinn frá þeim. Þeir
DB. ,,Ég pantaði 10 skrokka hjá kjöt og ekki var heldur neitt að fá hjá segjast hafa reiknað út að ég keypti
Sláturfélaginu og þeir sögðu að ég Sambandinu. að meðaltali 20 skrokka á mánuði, en
gæti kannski fengið fimm, en á Venjulega hef ég keypt 10 skrokka það er önnur niðurstaða en mín, og
fimmtudag fékk ég 10 skrokka hjá fyrir hverja helgi og svo gjarnan út frá því meta þeir kjötþörf mína,”
Sláturfélaginu. Af þeim á ég eftir fimm eða sex eftir helgi. En nú segja sagði Benedikt Kristþórsson. -SA
„V oðalega lítið kjöt til”
— segir Reynir Eyjólfsson íReynisbúð
„Hér er voðalega lítið kjöt til og
þegar ég ætlaði að panta kjöt frá
Sambandinu á fimmtudag var ekkert
að fá,” sagði Reynir Eyjólfsson í
Reynisbúð í spjalli við DB.
„Ég hef takmarkað geymslurými
og get ekki tekið meira en fimm
skrokka í einu. Ég ætla að hringja
aftur á morgun í Sambandið en ég
hef ekkert leitað til annarra seljenda,
enda er raunin sú að það þýðir lítið ef
varan er ekki til,” sagði Reynir
Eyjólfsson.
- SA
3. FL0KKS KJÖT VÆRIBETRA EN EKKERT
— segir Sigrún Valdimarsdóttir í Laugarneskjöri
Smærri kaupmenn kvarta undan þvi
að fá ekki það kjöt sem þeir biðja
um en hinir stærri virðast hafa nóg.
„Ég hringdi síðast í dag í Sam-
bandið og spurði hvort ekki væri til
dilkakjöt. Þótt ég gæti ekki fengið
nema einn skrokk þá væri það þó
alltaf eitthvað til að hafa í borðinu.
Þeir áttu ekki kjöt til en kannski
kemur bíll i vikunni utan af landi
með kjöt,” sagði Sigrún Valdimars-
dóttir í Laugarneskjöri í samtali við
DB.
,,Það er vika siðan ég fékk síðast
kjöt. en ég er vön að taka lítið í einu,
svona fimm til sex dilka í hvert sinn.
Ég er með litla geymslu og verð því
að taka kjöt þrisvar i viku, á föstu-
dögum, mánudögum og miðviku-
dögum eða fimmtudögum. Ég hef
alltaf skipt við Sambandið og hef
ekkert reynt að fá kjöt annars staðar
frá því ég hef heyrt utan af mér að
ekkert kjöt sé heldur að fá hjá Slátur-
félagi Suðurlands. Mér er sama hvort
kjötið, sem ég fengi væri af 1., 2. eða
3. flokki, það væri þó alltaf betra en
ekkert,” sagði Sigrún Valdimars-
dóttir.
- SA
p|SA-ROKKDANSLBKUR
verður í Veitingahúsinu GLÆSIBÆ í kvöld
frá kl. 9—1 eftir miðnætti.
Stœrsta ferðadiskótek land-
sins, Diskótekið—Rocky, undir
stjórn hins kunna plötusnúðs
Grétars Laufdal. Mun hann
þar koma fram með eldhresst
og gott dansrokk fyrir alla
sanna rokkunnendur. Mikill
ogfullkominn Ijósabúnaður
verður með músíkinni allt
kvöldið. Aðstoðarkynnir
verður Ásgeir Bragason
plötusnúður og trommari
(PURRK-PILLNIKK).
Miðasala hefst kl. 8 um
kvöldið við innganginn. Miða-
verð rúllugjald, aldurstakmark
18 ára. Allar veitingar á
staðnum. Allir rokkarar í
Glœsibæ í kvöld með Rocky í
fararbroddi.
ATH. Rokktónlist — Rocky svíkur engan
Rocky síminn er 37666