Dagblaðið - 22.09.1981, Blaðsíða 16
16
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 22. SEPTEMBER 1981.
Hjónin Óskar Aðalsteinn rithöfundur og Valgorður H. Jónsdóttir vrta-
irörður. DB-myndir: Bjarnloifur.
„Þessi ódráttur fór með
spíraglösunum á hauginn”
— komið við í Reykjanesvita
„Ég er veikur fyrir að vera í vitum.
Ég hef þörf fyrir að vera í vitum,”
sagði Óskar Aðalsteinn rithöfundur
sem í meira en þrjátíu ár hefur ásamt
konu sinni, Valgerði H. Jónsdóttur,
búið í vitum.
Dagblaðsmenn voru á ferð um
Reykjanesskaga fyrir nokkrum
dögum og komu við í vitanum sem
kenndur er við nesið..
Siðustu fjögur áf hífa þau Óskar
og Valgerður búið í Reykjanesvita en
Valgerður er nú vitavörður þar. Áður
höfðu þau verið þrjú ár í Hornbjargs-
vita og 24 ár í Galtarvita en Óskar var
vitavörður í báðum þeim vitum.
„Okkur líður vel hér báðum, hér er
afskaplega gott að vera,” sagði Ósk-
ar. Og Valgerður tók undir það. „Ég
kann vel við þetta starf, það er gott
að vinna hjá Vitamálastofnun,”
sagði hún.
Þau voru bæði sammála um það
að að mörgu leyti væri betra að vera í
Reykjanesvita en í vitunum fyrir vest-
an. „Hér njótum við fjölbýlisins líka
enda ekki langt frá Reykjavík,”
sagði Óskar. Eins nefndi hann að
gestakomur væru tiðar.
„Þetta er sérkennilegur vitastaður,
eins og vin í eyðimörk. Ég geri mikið
að því að labba um í nágrenni vitans,
um hraunið,” segir Óskar.
,,Ég hef orðið var við ýmislegt dul-
arfullt, ég sé. Ég sé verur hérna á nes-
inu, skrautlega klæddar sem dansa
„Aldrei sé ég þetta,” skýtur Val-
gerður inn í.
„. . . þær dansa hringdans, keðju-
dans. Þetta er mikið litskrúð,
stundum eru allir alhvitir. Svo eru
aðrir flokkar sem klæðast á annan
hátt, í marglit skrautföt, gul, blá,
græn og rauð.”
„Eru þetta ekki ímyndanir?” spyr
Valgerður.
„Þetta er það sem ég sé. Og ég er
ekkert einn um að sjá þetta, maður
væri eitthvað klikkaður ef maður
væri að búa þetta til. Þetta er bara
skyggnigáfa.
Ég sé þetta oft í breytilegu veðri,
það er ákaflega gott aö sjá þetta í
skúraskini. Þetta eru verur sem dansa
á hverasvæðinu, þetta eru heilir skar-
ar, þeir heillast til að dansa í kringum
hverina.
Þessar miklu sýnngar standa mis-
jafnlega lengi yfir, oft ekki nema ör-
fáar mínútur sem þetta sést, og mikil
dagaskipti á því hversu oft það sést.
Aldrei verða þó dansstundirnar lang-
ar eða leiðar fyrir sjáandann.
En svo er það smáfólkið, ákaflega
litlar og fínlegar verur sem fara
hljóðlega um holt og móa og virðast
vera í eins konar sæluástandi, fyrir
utan gott og illt á mannlegan mæli-
kvarða. Og áhrifrn frá þessu smá-
fólki eru aldrei nema góð, maður
kemst helzt i samband við það á kyrr-
um og hlýjum sólskinsdögum og þá í
algerri einsemd.
Svo hef ég séð eina mannlega veru
hér í kjallaranum . . .”
„Farðu nú ekki að segja drauga-
sögur,” skýtur Valgerður inn í.
„Þetta var leiðindadraugur,” held-
ur Óskar Aðalsteinn áfram. „Hann
var hér í kjallaranum, ég vildi alls
ekki hafa hann. í kjallaranum hafa
verið geymd spíraglös, glösin þefjuðu
illa. Ég henti spíraglösunum út á
haug. Þessi ódráttur fór með þeim á
hauginn. Þetta er eini vágesturinn
sem ég hef haft,” segir Óskar.
Frá huldufólki og draugum snýst
samtalið að veraldlegri hlutum. Ósk-
ar er spurður hvernig honum lítist á
að fá saltverksmiðju sem næsta ná-
granna en nú þegar hefur tilrauna-
verksmiðja verið reist skammt frá vit-
anum.
„Mér lízt ákaflega vel á að fá salt-
verksmiðju. Hér á nesinu eru miklir
möguleikar til að gera stóra hluti.
Það gerir heita vatnið.
í Sandvíkinni verður einhvern
tímann reist heilsuverndarstöð. Það
mætti bjóða hingað heilsulausum út-
lendingum og rækta þar aldingarða.
Það verður fjölskrúðugt mannlíf
hér á tánni. Heilsustöðvar og sjó-
efnaverksmiðjur sjá til þess að hér
verður fjölmenni mikið áður en
margir áratugir liða. ”
-KMU.
„Heilsustöðvar og sjóefnaverksmiðjur sjé tilþess að hór á tánni verður fjöimennimikið óður en margir áratugir
líða," segir Óskar Aðalsteinn.
FÓLK
— / brezka blaðinu
Record Business
Alltaf öðru hvoru gera ísiendingar
það gott í útlöndum. Nú heyrum við
frá hljómsveitinni Mezzoforte. Með-
limir hennar, þeir Friðrik Larsson,
Jóhann Ásmundsson, Björn Thorar-
ensen, Gunnlaugur Briem og Eyþór
Gunnarsson eru um þessar mundir
staddir í Lundúnum þar sem þeir
vinna við þriðju plötu sina.
Plata þeirra félaga, í Hakanum,
sem út kom hér á landi fyrir tæpu ári
er einmitt nýlega komin út í Eng-
landi. Nýstofnað útibú Steina hf.,
Steinar Records Ltd., gefur út plöt-
una og nefnist hún einfaldlega
Mezzoforte.
Viðbrögð komu strax í ljós og það
ánægjuleg því 14. þ.m. var platan
komin i áttunda sæti á diskó-vin-
sældalista brezka blaðsins Record
Business og stefndi í fimmta sæti.
Meðal annarra á þessum lista eru
Stevie Wolder, Quincy Jones, Randy
Plata Mezzoforte, í Hakanum, gerir það gott í Bretlandi:
Komin í áttunda sœti yfir
vinsœlustu diskóplötumar
— Vinna nú að þriðju
plötu sinni í
Lundúnum
Crawford, Level 42, Aretha Franklin
ogSyro Gyra.
Platan hefur sem sagt vakið athygli
brezkra plötusnúða auk þess sem hún
hefur mikið verið spiluð í Capital
Radio. Mezzoforte hefur verið boðið
að koma þar fram, svo og viðtal i
BBC Radio 1. Megum við því vel við
una með strákana okkar í Mezzo-
forte.
Þá má geta umfjöllunar um hið ný-
stofnaða fyrirtæki Steina hf. og
Mezzoforte í vikuritinu Music and
Video Week. Mezzoforte hefur starf-
að í fjögur ár og má minnast hljóm-
sveitarinnar sem frábærs stjörnu-
bands áStjörnumessu DB árið 1980.
-ELA.
u
Mezzoforte taiið frá vinstri: Friðrik
Karlsson, Jóhann Ásmundsson,
Björn Thorarensen, Gunnlaugur
Briem og Eyþór Gunnarsson.