Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Side 19

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Side 19
83 Fólksfjölgunin og áhrif hennar á neyzluna. Árið 1956 var eðlileg fólksfjölgun um 3400 manns og má gera ráð fyrir, ef engin óáran steðjar að, þá verði fjölgunin áþekk á næstunni eða rúm 2% á ári, en þá fjölgar líka þjóð- inni um 38 þúsund næstu tíu árin. Af þessari viðbót fer sennilega ekkert í landbúnað, en það þarf að sjá henni fyrir neyzluvörum og af landbúnaðarvörum þeim, er hér hefur verið rætt um, þarfnast hún tæpra 3000 tonn af kjöti og 20 millj. kg af mjólk. Vera má að landbúnaðurinn, að óbreyttum ástæðum, anni því að fullnægja innanlandsþörfinni af þessum vör- um eftir tíu ár og að enn verði nokkuð í afgangi, einkum af kjöti, en mikið verður það varla, og tíu ár er skammur tími, eða aðeins augnablik af þjóðarævinni, og hvernig verð- ur þetta eftir 20 ár? Þá verður mannf jölgunin orðin 84—85 þúsund og neyzluþörf hennar af kjöti og mjólk 6400 tonn af kjöti og 41 millj. kg af mjólk. Engar líkur eru til, að landbúnaðurinn geti fullnægt þessari neyzluþörf, nema stefnuhvörf verði frá því sem nú er, og einhver verulegur hluti af fólksfjölguninni hverfi að landbúnaðarstörfum. Með sama hraða verður fólksfjölgunin um næstu aldamót, eða eftir 43 ár, orðin 244 þúsund og fólksfjöldinn allur 406 þúsund, eða 2,5 sinnum meiri en nú. Þegar þessar tölur eru athugaðar ætti að vera ljóst, að sá smávægilegi útflutningur af landbúnaðarvörum, kjöti og mjólkurafurðum, sem nú á sér stað, er aðeins óveridegur varasjóður handa komandi fólksfjölgun, og áróðurinn gegn honum getur fólgið í sér verulega hættu, því að allar líkur benda til, að í náinni framtíð verði það miklu meira vanda- mál að fullnægja þörfum þjóðarinnar fyrir mjólk og kjöt með innlendri framleiðslu, heldur en sá tiltölulega litli út- flutningur þessara afurða er, sem nú á sér stað, og sem við ranglega nefnum offramleiðslu. 6*

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.