Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Side 45

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Side 45
109 landsins, einkum þær afskekktari, væri með líku sniði og vegagerðin. Þess eru mörg dæmi, að símaflokkar eru sendir ár eftir ár í sama dalinn til þess að hafa þar aðeins fárra daga viðdvöl í hvert sinn og leggja síma inn á sárfáa bæi í einu, en þótt þetta séu lítt skiljanleg vinnubrögð er á þeim sá munur samanborið við vegagerðina, að símaflokkarnir hafa minni flutning með sér en vegaflokkarnir og eru því hreifanlegri og svo kemur venjulega það, sem símaflokkarn- ir afreka í hvert sinn, óðar að notum. Engu að síður eru þessi vinnubrögð ódrjúg og hálf barnaleg. Vafalaust á fleiri sviðum opinberra framkvæmda eru vinnubrögð með líkum hætti, en hvergi eru gallarnir eins augljósir og jafn auðvelt úr að bæta, án þess að með því sé á nokkurn hallað, eins og í vegagerðinni, og væri æskilegt að framkvæmd vegalaga verði endurskoðuð hið bráðasta með hagsýnni og framsýnni vinnubrögð fyrir augum, en þau, sem tíðkazst hafa oft fram til þessa. B Vinnulöggjöf og kjaradeilur. Síðustu árin ættu að hafa fært öllum flokkum og stéttum heim sanninn um það, að vinnulöggjöf vor er meira en lít- ið gölluð, og að verkföllum má beita þannig, að þau eru þjóðhættuleg og eiga engan rétt á sér, en þjóðhættuleg verða verkföllin, ef rétt er, svo sem mjög hefur verið á orði haft síðustu árin, að hægt er að beita þeim pólitískt af flokkum, sem í það og það skiptið eru í stjórnarandstöðu, til þess að gera löglegum stjórnum erfitt eða ókleift að stjórna land- inu, en þessu hefur verið haldið fram bæði af fyrrverandi og núverandi stjórn og sé það rétt er augljóst, hvílíkur voði er á ferðum. Annað sem gerir verkföll þjóðhættuleg er það, er fámennir starfshópar hafa á valdi sínu að stöðva eða lama allt gangverk þjóðfélagsins með því að skera á lífsvið- kvæma þætti þess, en í því er fólgin sú hætta, að þessir fá-

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.