Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Side 37

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Side 37
101 maðurinn brosd, er honum flaug í hug, að þetta væri spek- ingurinn Sókrates að baða sig. Hann hafði að vísu heyrt um Hrólf Eðvarðs við Vatnið einmana, en aldrei hafði honum til hugar komið neitt líkt því, er hann sá þarna. Þegar hann hafði skoðað aflstöðina, raflögnina, sagverkið og mörg önn- ur tæknileg furðuverk, sem Hrólfur hafði gert aleinn, og þegar Þrúða fór að spyrja hann um mismunandi gerðir af segulkveikjum, og hann uppgötvaði að hún vissi kynstrin öll um span, straumbreyta, segulsvið og margt annað og hafði numið þetta allt af bókum, þá varð hann bæði undr- andi og angurvær yfir þeim ótrúlegu þrekraunum, er hér hafði verið lagt í að leysa. Hrólfur var fyrst í sjöunda himni, að geta rætt um flug- vélar við Johnny og aðra þá flugmenn, er fluttu kornbyrgð- irnar, en því fylgdu einnig ægileg vonbrigði. „Við vitum að þú getur gert flugvél,“ sögðu þeir við hann, „en þegar þú hefur lokið smíðinni koma opinberar reglugerðir til sög- unnar. Þér verður ekki leyft að nota flugvélina fyrr en hún hefur verið athuguð og reynd, að tilhlutan flugmálaráðu- neytisins, á allan hugsanlega hátt. Þetta getur tekið 2—3 ár, og svo verður hún að lokum ef til vill dæmd ónothæf.“ Vonbrigðin voru mikil, en Hrólfur lét ekki bugast. Síðar sagði hann: „Þetta varð til þess, að ég í alvöru fór að hug- leiða flugvélarkaup. Það var ekki hægt að draga þau mikið lengur." , Næst þegar Hatch kom að Birkilundi sagðist hann hafa skygnzt um á flugvélamarkaðinum og fundið vél við þeirra hæfi. Meiri hvatningar var ekki þörf. Flugvélasjóðurinn hafði vaxið smám saman, svo bilið milli verðs og efna var ekki orðið gífurlegt. Þrúða var send til Vancouver til að nema flug. Hrólfur, sem nú var 62 ára, óttaðist að aldur- inn yrði sér til trafala. Þegar Þrúða kom til Vancouver vorið 1953 til flugnáms- ins, hafði hún 13 ára undirbúning. Hún gat því hlaupið

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.