Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1957, Síða 50
114
ingsmálum þegnanna? Mundi ekki sá sterkari jafnan fara
með sigur af hólmi e.ftir harðvítugar deilur og árekstra, án
tillits til rétts eða rangs?
Skynsamlega skipaður gerðardómur mundi jafnan leita
að réttlátustu lausninni. Hann mundi byggja niðurstöður
sínar á hlutlausri rannsókn, en ekki á óbilgjörnum kröfum.
Hann mundi gefa báðum málsaðilum jafnan kost á að flytja
mál sitt með rökum, en slæva þær öfgaöldur, er nú fylgja
venjulega kjaradeilum. Hann mundi spara bæði einstakling-
um og þjóðarheildinni stórfé með því að útkljá málin án
vinnustöðvunar. Hann mundi kveða niður þær öfgar, sem
nú eru orðnar lenzka í kjaradeilum, svo sem eins og það
að gera í upphafi svo miklar kröfur, að engum heilvita
manni komi til hugar að nokkru sinni verði að þeim geng-
ið. Slíkar aðferðir vekja aðeins gremju og andúð og torvelda
allt eðlilegt samkomulag. Gerðartilhögunin mundi einnig
taka fyrir það, að kaupkröfur taki á sig mynd svívirðilegustu
fjárkúgunar, svo sem eins og þegar tiltölulega vel launaðir
starfsmannahópar hika ekki við að framkvæma algera stöðv-
un á lífsnauðsynlegum atvinnuþáttum þjóðfélagsins, til þess
að knýja fram kröfur sínar, og að lokum mundi gerðardóm-
ur í kjaradeilum kveða niður þann ósóma, að ósvífnir póli-
tískir spekúlantar geti notað verkföll til þess að ógna lýð-
ræðislegum stjórnarháttum og grafa undan löglegum stjórn-
arvöldum.
Áður var að því vikið, að kjaradeilur nú væru fyrst og
frernst orðnar metingur um kjör milli launaflokka. Ríkið
hefur ráðstafað þessu hvað starfsmenn þess áhrærir með því
að setja launalög, þar sem þeim er skipað í mismunandi
launaflokka eftir því hve veigamikil og vandasöm störfin
eru eða hve mikla hæfni og undirbúning þau krefjast. í
raun og veru ætti með lögum að skipa öllum atvinnugrein-
um þjóðfélagsins á sama hátt. Er fullkomlega réttmætt, að
ríkisvaldið geri þetta, þegar þess er gætt, að eins og nú er